Morgunblaðið - 17.06.1993, Blaðsíða 60
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1 103 REYKJAVÍK
SlMl 691100, StMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 1556 / AKUREYRl: HAFNARSTRÆTI 85
FIMMTUDAGUR 17. JÚNÍ 1993
VERÐ í LAUSASÖLU 110 KR.
Skordýr
erumun
-færri í ár
AÐ ÖLLUM líkindum fækkar
skordýrum verulega í sumar frá
því er var í fyrra. Þetta er mat
Guðmundar Halldórssonar skor-
dýrafræðings en hann byggir
það á þeirri staðreynd að sumar-
ið í fyrra hafi verið tiltölulega
kalt og rigningasarat. Vaxtar-
skilyrði skordýra voru því slæm
og þar af leiðandi komust færri
afkvæmi skordýra á legg.
„Af reynslu minni í starfí hjá
Skógræktinni," segir Guðmundur,
„hefur ýmsum meindýrum á ttjám
og runnum fækkað miðað við fyrri
A ár. Sérstaklega verður vart við
mikla fækkun hjá tveimur skaðleg-
um blaðlúsategundum."
Á nyrstu mörkum dýralífs
„Við verðum að gera okkur grein
fyrir því að ísland er á nyrstu mörk-
um gróður- og dýralífs. Smávægi-
legar hitasveiflur milli ára og sólar-
leysi hafa þess vegna mikil áhrif á
skordýrin," sagði Guðmundur.
---------»"■♦■■■»..
Ríkisskulda-
bréf í dollur-
umámarkað
Morgunblaðið/ Einar Falur
Sigur á Ungveijum
ÍSLENDINGAR sigruðu Ungveija 2:0 á Laugardalsvelli í gærkvöldi í góða möguieika á að færast um einn sfyrkleikaflokk. Eyjólfur Sverris-
næst síðasta leik Islands í 5. riðli heimsmeistarakeppninnar í knatt- son og Amór Guðjohnsen gerðu mörk Islands í gær og miðað við þau
spymu. íslendingar eru nú í þriðja sæti riðilsins með sex stig og eiga færi sem liðið fékk hefði sigurinn getað orðið stærri. Sjá bls. 59.
ÍSLENSK ríkisskuldabréf gefin
út í Bandaríkjadölum munu verða
til sölu hér á landi í næstu viku.
Sett verða á markaðinn skulda-
bréf að fjárhæð 1 milljón dollara
og er þar um að ræða bréf úr
125 milljón dollara skuldabréfa-
útboði ríkissjóðs sem fór fram í
London í síðustu viku.
Þetta er í fyrsta skipti sem ríkis-
sjóður setur á markað hér á landi
stöðluð skuldabréf í erlendri mynt
ií-">*?ieð nákvæmlega sömu kjömm og
á alþjóðamarkaði. Bréfín em til
fímm ára og bera 6% nafnvexti sem
greiðast árlega en þau em síðan
greidd upp í einu lagi í lok láns-
tímans. Til samanburðar má geta
þess að vextir af innlendum gjald-
eyrisreikningum í Bandaríkjadölum
em um þessar mundir á bilinu 1-2%.
Sjá bls. 2B: „íslendingum
bjóðast...
Samskip hætta eigin sigl-
ingnm tíl Bandaríkj arnia
Samningur gerður við Eimskip sem annast mun flutningana
SAMSKIP hafa hætt flutningum á eigin skipum til Bandaríkjanna
og gert samning við Eimskip um beina flutninga milli íslands og
Bandaríkjanna. Jafnframt hafa Samskip gert samninga við erlend
skipafélög um flutninga til og frá Bandaríkjunum í gegnum Evr-
ópu. Tap Samskipa á siglingaleiðinni milli íslands og Bandaríkjanna
á síðasta ári var verulegt, en heildartapið var 489 milljónir kr.,
mest vegna Evrópuflutninganna. I síðustu viku var það upplýst að
fyrirtækið hefði misst flutninga frá Bandaríkjunum fyrir varnarliðið
í hendur Eimskips, sem var lægstbjóðandi í flutningana.
Fimmtugur íslendingur í gæsluvarðhaldi í Þýskalandi
Grunaður um smygl á
3 kílóum af amfetamíni
FIMMTUGUR íslendingur hefur um skeið setið í gæsluvarðhaldi í
Wiesbaden í Þýskalandi, grunaður um að hafa smyglað allt að 3
kílóum af amfetamíni með pósti hingað til lands á síðastliðnu ári.
Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins getur maðurinn átt yfir
höfði sér allt að fjögpirra ára fangelsi í Þýskalandi fyrir þau brot
sem honum eru gefin að sök.
Um er að ræða mann, sem marg-
ítrekað hefur gerst sekur um alls
kyns afbrot, hér á landi og erlend-
is. Talið er að hann hafí staðið í
viðskiptum við nokkra aðila hér-
lendis en aðeins hefur tekist að
upplýsa um aðild eins þeirra. Þar
er um að ræða fertugan mann sem
handtekinn var í Reykjavík í febr-
úar eftir að hann hafði fengið 113
grömm af amfetamíni send með
pósti hingað til lands falin í póstum-
búðum. Tollverðir á tollpóststof-
unni í Reykjavík fundu sendinguna.
Björn Halldórsson lögreglufull-
trúi staðfesti í samtali við Morgun-
blaðið að fíkniefnalögreglan hefði
tíl rannsóknar mál vegna þeirrar
sendingar og hefði í því sambandi
haft samskipti við lögregluna í
Wiesbaden. Bjöm sagði að rann-
sókninni hér væri ekki lokið og
vildi ekki tjá sig um hana í einstök-
um atriðum.
10 milljóna söluverðmæti
Við leit á heimili Islendingsins í
Þýskalandi fann þýska lögreglan
um 100 grömm af amfetamíni.
Samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins hefur rannsókn á málinu
vakið grunsemdir um að maðurinn
hafi síðasta árið fyrir handtöku
sína sent fjölmargar póstsendingar
til ýmissa aðila hér á landi, með
allt að 3 kg af amfetamíni að sölu-
verðmæti um 10 milljónir króna
hér á landi.
Maðurinn situr í gæsluvarðhaldi
í Þýskalandi og mun samkvæmt
úrskurði verða hafður í haldi fram
í september. Að sögn Johann Leop-
old, lögreglufulltrúa í Wiesbaden,
hefur íslenska fíkniefnalögreglan
tengst rannsókn málsins en mál
mannsins er nú til meðferðar hjá
ákæruvaldi í Aachen.
Að sögn Árna Geirs Pálssonar
markaðsstjóra Samskipa hefur
verðið á flutningsleiðinni verið að
falla vegna þess hve flutningsgeta
á henni er mikil. Á síðasta ári
voru flutningar félagsins til
Bandaríkjanna um 6% af heildar-
flutningum þess og því óverulegur
hluti af heildartekjum en stór liður
af heildargjöldum vegna taprekst-
ursins. „Með samningnum við
Eimskip sjáum við fram á það að
snúa við starfsemi sem rekin var
með miklu tapi í jákvæða rekstr-
arniðurstöðu,“ sagði Árni Geir.
Svipað verð
„Við náum okkur í beina flutn-
inga með Eimskipi sem eru á hálfs
mánaðar fresti, en einnig erum
við með flutninga í gegnum Evr-
ópu einu sinni í viku. Við nýtum
okkur þá möguleika sem eru hag-
stæðastir á hveijum tíma. Við
ætlum að bjóða þessa þjónustu á
svipuðu verði og við gerðum með
okkar eigin skipi og munum ekki
tapa á því. Hefðum við haldið
áfram siglingum til Bandaríkjanna
hefðum við þurft að hækka flutn-
ingsgjöldin."
Árni Geir sagði að félagið hefði
verið rekið með tapi það sem af
er þessu ári en áætlanir gerðu ráð
fyrir að jafnvægi yrði á rekstrinum
á árinu öllu.
Óljóst með Jökulfell
Eimskip mun væntanlega hefja
flutninga fyrir Samskip til Banda-
ríkjanna um næstu mánaðamót.
Jökulfellið, sem verið hefur í
Bandaríkjasiglingunum, mun
ljúka sínum verkefnum á því sviði,
en að sögn Áma Geirs er óljóst
hver framtíð skipsins verður. „Ef
það reynist hagstæðast fyrir okkur
að selja skipið þá munum við gera
það, en við erum þegar með þijú
af fimm skipum félagsins í sölu.
Við munum hins vegar að sjálf-
sögðu reyna að leita allra leiða til
að nýta þau skip sem við erum
með eins vel og við getum,“ sagði
hann.
-------♦ ♦ ♦
Tekinná
ofsahraða
ÖKUMAÐUR var í gærkvöldi
stöðvaður í Langadal af lögregl-
unni á Blönduósi. Var hann á
leiðinni norður á 148 km hraða
á klukkustund eða 58 km yfir
hámarkshraða.
Hjá lögreglunni á Blönduósi
fengust þær upplýsingar að 13
hefðu verið teknir seinni hluta
dags og um kvöldið í gær fyrir
of hraðan akstur. Sá sem keyrði
hraðast var á 148 km hraða eins
og áður sagði en flestir aðrir voru
á 110 til 120 km hraða.