Morgunblaðið - 04.07.1993, Side 18

Morgunblaðið - 04.07.1993, Side 18
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. JÚLÍ 1993 Guó*likama- hús, tab- ernaculum. Oblátur sem blessaóar hafa verió vió messu eru geymdar í iokaúri hirslu. NY KAÞOLSK KIRKJA VÍGÐ í HAFNARFIRÐI eftir Guðna Einarsson Myndir: Sverrir Vilhelmsson JÓSEFSKIRKJA að Jó- fríðarstöðum í Hafn- arfirði var vígð í gær og er önnur kaþólska kirkj- an sem vígð er fullri vígslu hér á landi eftir siðbreytingu. Kirkjan þjónar kaþólska söfnuð- inum í Hafnarfírði, Garðabæ og á Suðurnesj- um. Yið kirkjuna eru prestsbústaður og safn- aðarheimili. í Sögu Hafnarfjarðar segir að hið forna nafn Jófríðar- staða hafi verið Ófriðar- staðir. Hafa menn getið sér þess til að þar hafí verið háð orrusta, án þess að um slíkt séu neinar heimildir. Miklu líklegra þykir að nafnið vísi til þess að þarna hafí verið allra veðra von. Klukknaport or ffromst ó súlnagöngunum, on þau tongja prestbústaó, klrkfu og saffnaóarheimili. Morgunblaðið/Sverrir \ Séra H|alti ÞorkeUson er sóknarprestur i Jósefskirkjunni. Kaþólska kirkjan er næstfjöl- mennasta trúfélag á ís- landi. 1. desember 1992 töldust til hennar 2.419 sálir og hafði þeim fækkað nokkuð frá fyrra ári. Það skýrist að mestu af brott- flutningi erlendra farandverka- manna kaþólskrar trúar. Á heims- vísu er rómversk-kaþólska kirkjan langstærst kristinna trúfélaga og telur yfir 800 milljónir manna um allan heim. Alfred J. Jolson er biskup kaþ- ólskra hér á landi. Biskupsdæminu tilheyra 10 prestar og eru 3 þeirra íslenskir, sr. Ágúst Eyjólfsson, sem nú þjónar í Þýskalandi, sr. Hjalti Þorkelsson í Jósefskirkju og sr. Sæmundur Vigfússon í Kristskirkju. Þegar rætt er um fjölda presta og fjölda safnaðarbarna skal haft í huga að einungis þrír prestanna eru undir fimmtugu og fjórir eldri en 75 ára. Alls hafa sex Islendingar hlotið ka- þólska prestvígslu á þessari öld. Enginn Islendingur er nú í kaþólsk- um prestaskóla en einn enskur grestsnemi hyggur á starf á íslandi. Á fímmta tug kaþólskra nunna og systra er nú hér á landi. Fimmtán St. Fransiskussystur eru í Stykkis- hólmi og Hafnarfirði, 17 Karmel- systur eru í Karmelklaustrinu í Hafnarfirði og 12 Jósefssystur í Garðabæ. Fjórar íslenskar konur hafa gengið í reglu Jósefssystra, en eru nú allar látnar. Fjfilskylda jólaguóspiallsins Regla Montfort-presta eignaðist Jófríðarstaði 1922 og seldi jörðina Kaþólska biskupsdæminu 1955. Regla St. Jósefssystra lagði fé til kaupanna í upphafi og fékk í staðinn tveggja hektara lóð fyrir sjúkrahús. Kapella var innréttuð og blessuð að Jófríðarstöðum 1924. Frá 1926 sat þar prestur og oftast bróðir (óprest- vígður munkur) sem stundaði bú- skap. Eftir að Karmelklaustrið tók til starfa voru prestar oftast tveir á Jófríðarstöðum og sinnti annar þjón- ustu við klaustrið. Meðal kaþólskra ríkir sú hefð að kenna kirkjur við helga menn og konur. Eftir vígslu kirkju heilags Jósefs í Hafnarfirði eru hér á landi þijár kaþólskar kirkjur kenndar við ijölskyldu jólaguðspjallsins. Krists- kirkja í Landakoti var vígð 23. júlí 1929 og í Breiðholti var Maríukirkj- an blessuð 1985. Hún hefur ekki hlotið fulla vígslu, enda húsnæðið ætlað til bráðabirgða. Kaþólski bisk- upinn leitaði álits safnaðarins á því hvað nýja kirkjan í Hafnarfirði ætti að heita og varð nafn Jósefs fyrir valinu enda nátengt starfi kaþólskra í Hafnarfírði. St. Jósefsspítalinn var vígður þar 1926 og unnu St. Jósefs- systur í Hafnarfirði mikið við hjúkr- un sjúkra, auk þess sem þær ráku barnaskóla í Hafnarfírði allttil 1956. Auk kirknanna þriggja eru kapellur í Garðabæ, Stykkishólmi, ísafirði, Akureyri og Keflavík. Fyrir siðbreyt- ingu voru flestár kaþólskar kirkjur hér á landi helgaðar Maríu guðsmóð- ur, heilögum Nikulási, sem er fyrir- mynd góðlegs jólasveins víða um heim, og Pétri postula. Alþjóóleg lcirkja Þrátt fyrir fámenni hefur kaþólski söfnuðurinn á íslandi áorkað miklu frá því um aldamót. Séra Hjalti Þor- kelsson segir skýringuna þá að starfsfólk og fjármagn hafl komið erlendis frá, enda er kaþólska kirkj- an alþjóðleg stofnun og hafin yfír landamæri. Aðaltekjur safnaðarins hér á landi eru sóknargjöld sem lögð eru á kaþólska líkt og önnur lands- ins börn. Við stórframkvæmdir hefur verið leitað liðs í öðrum löndum og á það við um byggingu Jósefskirkj- unnar í Hafnarfírði. Bonifatius- stofnunin, sem er stofnun þýsku biskupsdæmanna, hefur styrkt starf kaþólskra á Norðurlöndum með margvíslegum hætti og Iagði hún fé til byggingar Jósefskirkjunnar. Regla St. Jósefssystra greiddi um helming byggingarkostnaðar og gjafír hafa borist frá einstaklingum og félögum innanlands og utan. Safnaðarfólk hefur unnið ötullega að byggingunni og margir lagt hönd á plóginn í sjálfboðavinnu og fjáröfl- un af ýmsu tagi. Slöóug fjölgun kaþólskra Undanfarin ár hefur gætt aukins trúaráhuga hér á landi og hefur hann beinst í ýmsa farvegi. Auk fjöl- breyttra afkvæma nýaldarhreyfinga hefur gætt aukins áhuga innan krist- inna kirkna. Árið 1982 tilheyrðu 1.696 manns Kaþólsku kirkjunni hér á landi og fjölgaði þeim því yfir 40% á áratug til 1992. Eitthvað af þess- ari fjölgun má rekja til misræmis í færslu kirkjubóka og manntals- Eftir vigslu kirlqu heilags Jósef s i Hafnarfirói eru hér á landi þr jár kaþólskar kirkjur kenndar vió fjölskyldu jólaguóspjallsins. skýrslna, sem var leiðrétt eftir að farið var að innheimta sóknargjöld. Páfaheimsóknin árið 1989 vakti mikla athygli á kirkjunni og virkaði til hvatningar fyrir kaþólska söfnuð- inn en varð ekki til að fleiri gengju til liðs við kirkjuna en ella. Séra Hjalti segist ekki hafa orðið var við mikla fjölgun í hópi þeirra sem ganga til liðs við kaþólsku kirkjuna á hveiju ári og ekki hægt að tala um neina vakningu í því sambandi. Sr. Hjalti segir alltaf eitthvað um að fólk komi sem er leitandi og telur sig hafa fundið eitthvað í kaþólskum sið. Stundum kemur fólk sem er óánægt í sinni kirkju, en það segir séra Hjalti að sé hvorki næg ástæða né rétt forsenda til að gerast ka- þólskur. Oft sé um stundarhrifningu að ræða eða tilfínningaáhrif. Sá sem hyggur á trúskipti til kaþólsks siðar verður að ganga til prests í eitt ár og njóta trúfræðslu. Ef ásetningur- inn er staðfastur gefur viðkomandi yfirlýsingu frammi fyrir söfnuðinum um að hann samþykki kenningar kirkjunnar, fer með trúaijátninguna og er síðan fermdur. Kaþólska kirkj- an viðurkennir skírn annarra kirkju- deilda, „ef hún er að boði Krists, í nafni föður, sonar og heilags anda,“ segir sr. Hjalti. Ýmsir sem leita til kaþólsku kirkj- unnar hafa hrifist af sakramentun- um sjö, eða náðarmeðulunum, en lútherska kirkjan viðurkennir tvö sakramenti, skírn og heilaga kvöld- máltíð. Sakramenti kaþólskra eru altarisgangan og fer hún fram á hveijum degi við messur í öllum kaþólskum kirkjum. „Við álítum að messan hafí gildi fyrir allan líkama Krists, hvort sem einhver er við- staddur eða.ekki," segir séra Hjalti. „Messan er fyrst og fremst Guði til dýrðar, trúuðum til sáluhjálpar og mannkyni til blessunar." Önnur sakramenti eru skírnin, skriftirnar,

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.