Morgunblaðið - 22.07.1993, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. JÚLÍ 1993
5
Gömlu sundlauginni í Kópavogi breytt í kennslu- og æfingalaug
Laugin grynnkuð
VERIÐ er að grynnka gömlu sundlaugina í Kópavogi og
endurbæta lagnir og búningsklefa í kjallara laugarhússins.
Að sögn Guðmundar Harðarsonar forstöðumanns standa von-
ir til að verkinu verði lokið í
verður 10,9 milljónir.
„Laugin er nær 30 ára,“ sagði
Guðmundur. „Hún hefur þjónað
Kópavogi þar til fyrir tveimur
árum að nýja laugin var opnuð.“
Gamla laugin var þriggja metra
djúp þar sem hún var dýpst en
byrjun september. Kostnaður
ákveðið var að grynnka hana í
75 sentímetra þar sem hún er
grynnst og í 90 sentímetra þar
sem hún er dýpst og gera hana
þar með að góðri kennslu- og
barnalaug.
Morgunblaðið/Jón Stefánsson
Framkvæmdir við Kópavogslaug
Unnið er að grynnkun gömlu sundlaugarinnar í Kópavogi.
Vegur um Breiðdalsós
Lægsta tilboð
52% af áætlun
ÓLAFUR Hjaltason á Skála í
Berufirði átti lægsta tilboð í lagn-
ingu Austurlandsvegar um Breið-
dalsós í útboði Vegagerðarinnar.
Hann býðst til að leggja veginn
fyrir 49,9 milljónir kr. sem er
52,3% af kostnaðaráætlun.
Unnið er að byggingu nýrrar brú-
ar á Breiðdalsós og er það vegurinn
að brúnni sem nú er verið að bjóða
út en hann er um 7 km langur.'
Fyrirhugað er að tengja veginn
til bráðabirgða fyrir árslok og ljúka
honum að fullu næsta sumar.
Landhelgisgæslan
16 sækja
um stöðu
forstjóra
SEXTÁN sóttu um stöðu forstjóra
Landhelgisgæslu íslands sem hef-
ur verið auglýst laus til umsókn-
ar. Umsóknarfrestur rann út 19.
júlí og reiknað er með að ákvörð-
un verði tekin um stöðina í næstu
viku, samkvæmt upplýsingum frá
dómsmálar áðuneytinu.
Fjórir umsækjendanna óskuðu
nafnleyndar, hinir eru:
Arnór Sigurjónsson varnarmálaráðu-
nautur, Asgrímur Lárus Ásgnmsson,
fulltrúi hjá Landhelgisgæslu íslands,
Baldur Bjartmarsson verkfræðingur,
Gísli Jón Kristjánsson viðskiptafræð-
ingur, Guðjón Petersen, fram-
kvæmdastjóri almannavarnaráðs,
Gylfi Geirsson loftskeytamaður, Haf-
steinn Hafsteinsson hrl., Helgi Hall-
varðsson skipherra, Hrafn Sigur-
hansson framkvæmdastjóri, Hregg-
viður Jónsson, Jón Sveinsson verka-
maður og Þorsteinn Þorsteinsson
flugvélaverkfræðingur.
♦ ♦ 4----
Varnarliðið
Telja þyrlu
ekki valda
að bruna
ÁHÖFN þyrlu frá Varnarliðinu,
sem lenti í landi Úthlíðar í Bisk-
upstungum á þriðjudag, telur
mjög ólíklegt að lendingin hafi
valdið eldi sem kviknaði í mosa
á svæðinu. Lögreglan á Selfossi
rannsakar nú málið að ósk bónd-
ans í Úthlíð.
Sjónarvottar í Úthlíð sögðu að
mikill reykur hafi komið upp í þann
mund sem þyrlan hóf sig á loft.
Slökkvistarf var hafið áður en eldur-
inn náði að breiða sig út að ráði.
Blaðafulltrúi Varnarliðsins sagði
að þyrlan hefði lent á þessum slóðum
á umræddum tíma. Hann sagði
áhöfnina fullyrða að ekki hefði sést
neinn reykur þegar þyrlan hóf sig á
loft og telja með ólíkindum að eldur
hefði orðið laus vegna lendingarinn-
ar, en ekki hefðu verið notuð reyk-
flögg við lendinguna eins og stundum
er gert. Sagði blaðafulltrúinn, að
þyrluáhöfninni hefði verið kunnugt
um að landið var þurrt og þar af
leiðandi eldhætta á svæðinu.
:Á I SUMAR!
1993
Peking ISO með fortjaldi
8.900.- stgr. 9.400.- m. greiðslukorti
IHANNAtþMI^M
2SVEFNPOKAR
32lteefihox miekmmpééw
4 stólar og borð á 3.990.
4MANNAN**I80
2SV&NPOKAR
AhÍelnumpáHia
Einlitir frá 1.900 - Þykkri frá 2.990,
POSTSENDUM SAMDÆGURS
þar sem ferðalagið byrjar!
opið laugardag kl. 10-16
sunnudag kl. 13-16
SVEFNPOKAR 5° TJALDASÝNING
FRÁ KR. 3.990. ALLA DAGA