Morgunblaðið - 22.07.1993, Síða 13

Morgunblaðið - 22.07.1993, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. JÚLÍ 1993 13 Viðvörun til þeirra sem hyggja á nám í Þýskalandi íslendingar sem hyggja á nám erlendis eru hér með varaðir við að stefna til Þýskalands. Ekki stafar það af vaxandi ofsóknum á hendur útlendingum eða öðru tengdu innanríkismálum þar, heldur vegna þess að Lánasjóður íslenskra náms- manna hefur hætt að veita full- nægjandi lán til framfærslu í Þýska- landi. Varhugavert er að treysta því að upplýsingar frá LÍN um láns- hæfni ákveðinna greina standist þar sem annað hefur komið á daginn. Vandamálið liggiir í því að í þýsk- um háskólum er uppgefin opinber námslengd hverrar greinar, eða „Regelstudienzeit", í mörgum til- fellum langt frá því að eiga við rök að styðjast. Heildarnámstíminn hjá afbragðs þýskum sem og íslenskum námsmönnum er þar af leiðandi oft töluvert lengri en sá sem gefinn er upp. Hingað til hefur LÍN veitt fullt námslán þriðjungi lengur en opin- bera námslengdin segir til um. Síð- astliðinn vetur tóku þeir skyndilega upp nýjar reglur og miða nú nauð- synlega námsframvindu við opin- beru námslengdina. Þessi skyndi- lega viðhorfsbreyting hjá lánasjóðn- um stafar að öllum líkindum af þeim sparnaði sem stefnt er að í ríkisbúskapnum á þessum sam- dráttartímum. Afleiðingin er hins vegar sú að tekið er fyrir frekara nám íslendinga í Þýskalandi. Háskólar í Þýskalandi hafa um árabil þótt með þeim bestu í heimin- um og Þjóðveijar verið framarlega í vísindum og tækniþróun. Skóla- gjöld eru þar engin og aðgangur útlendinga að háskólunum því gef- inn þeim þjóðum sem senda náms- menn sína þangað. Meðal annars af þessum ástæðum hafa íslenskir námsmenn sótt til Þýskalands í framhaldsmenntun. Hafi ætlunin verið að minnka útgjöld LÍN með því móti að miða námsframvindu við opinberu tölumar, þá er það ákaflega vanhugsuð aðgerð þar sem íslenskir námsmenn munu væntan- lega leita í auknum mæli til ann- arra landa, landa þar sem um skóla- gjöld er að ræða og því viðbúið að lánsupphæðin til hvers námsmanns hækki. Til að sjá betur hversu kröfur LÍN um námsframvindu eru langt frá því að vera raunhæfar dugar að skoða súlurit 1 til 3 sem unnin eru úr gögnum síðustu ára frá há- skólanum í Karlsrahe. Hver súla stendur fyrir námslengd í önnum og sýnir hæð hennar hlutfall þeirra námsmanna sem útskrifast hafa eftir þessa tilteknu námlengd. Síð- asta súlan sýnir hlutfall þeirra sem Súlurit 3 30% Lengd námstíma í arkitektúr 25% 20% 15% 10% 5% 0% Námslcngd skv. LÍN I---i----1---i---1---1---H cm eo in co co cn o •—• cvj co 'f io co c*- Útskriftarönn Súlurit 1 18% 16% ^ 14% 3 íg 12% 1 10% | 8% w =3 6% a 4% 2% 0% Lengd námstíma í rafmagnsverkfræði Námsicngd íkv. LÍN llll. R R R 1 1 R \ 1 1 R R R R cO'cmtoi^coœo^C'J cn^'incot*- Útskriftarönn Súlurit 2 20% 18% 16% 14% Lengd námstíma í vélaverkfræði 12% 10% a “ 8% 1 6% 4% 2% 0% Námslcngd skv. LÍN .1. H---1-1--1--1--H—H--P I I II rm III n R R R I I OJ CO -*í- LO co t'- CM CO 'cf* lO CO £*- CO CT» Útskriftarönn sem fýrir liggja en séu ekki teknar órökstuddar og án þess að afleiðing- ar þeirra séu kannaðar. Þær fjölskyldur og þeir einstak- lingar sem haldið hafa til Þýska- lands sjá fram á að þurfa að hætta í miðju námi því engin lifir á loftinu einu saman. Þeir -fjármunir sem liggja í þessu hálfnaða námi munu því aldrei skila sér og námsmenn- irnir era þar með búnir að tapa þessum upphæðum. Þar sem LÍN virðist enn sem komið er segja þeim námsmönnum sem halda ætla til Þýskalands í nám að námið sé lánshæft, er rétt að vara menn við því að treysta þeim upplýsingum. Á meðan afstaða LÍN er óbreytt ættu menn því ekki að halda til Þýskalands nema að þeir geti fjármagnað námið á annan hátt en með láni frá LÍN eða þá að þeir fái staðfest gögn frá þeim skólum sem þeir ætla að sækja að raunhæfur námstími sé innan þeirra marka sem LÍN setur. Til að hindra það að frekara tjón hljótist af þess- um reglum er því beint til þeirra sem þekkja námsmenn á leið til Þýskalands að koma þessum skila- boðum áfram tii námsmannanna. Fyrir hönd íslenskra námsmanna í Karlsruhe: Einar B. Pálsson (nemi í arki- tektúr), Jens Fylkisson (nemi í raf- magnsverkfræði), Pétur Richter (nemi í vélaverk- fræði), Ragnheiður Aradóttir (nemi í arkitektúr), Sveinbjörn Höskuldsson (nemi í rafmagnsverkfræði). útskrifast á 19. önn eða seinna. Pílan sýnir kröfur LÍN um náms- framvindu. Glögglega má sjá að mörkin sem LIN setur á námslengd- ina lenda framan við eðlilega náms- lengd í öllum þessum tilfellum. Þegar námsmenn í Karlsruhe feng^u skyndilega ekki afgreidd lán síðastliðinn vetur voru þessi gögn send LÍN til þess að hægt væri að leiðrétta þann misskilning sem þar virtist ríkja um hveijar væru raun- hæfar kröfur um námsframvindu í Þýskalandi. Svar LÍN var stutt og laggott, að ekki stæði til breyta þessum kröfum og var með öllu órökstutt. Engin haldbær rök era til fyrir því að miða ekki kröfur um náms- framvindu við þessi gögn skólans. Þess í stað er gripið til einhverrar opinberrar tölu sem fyrirfram er vitað að stenst ekki í raun. Skil- greining LÍN jafngildir því að nær 100% þýskra stúdenta dragi nám sitt á langinn sem er auðvitað fáránlegt. Markmiðið með þessari ákvörðun LÍN virðist vera að ársreikningur LÍN líti eitthvað örlítið betur út, en ekki virðist hafa verið hugsað út í hverjar afleiðingar þessara gjörða era. Sú kvöð hlýtur að hvíla á LÍN eins og á öðrum ríkisstofnunum að ákvarðanir byggist á þeim gögnum frá kr. 1.482,000,- á götuna án vsk. Burðargeta á grind frá þremur til sex tonn, einnig 4x4 BÍLHEIMAR Fosshálsi 1, sími 634000 ♦ ♦ UTSOLU 6ALLAVESTI - SKÓLABOLIR Á STRÁKA - BÓMULLARPEYSUR Á STELPUR - HARLEY DAVIDSON BOLIR - ÚTVÍDAR BLÁAR OC RÖNDÓTTAR ÓALLABUXUR O.FL. O.FL. h KRAKKAR KRINGLUNNI 8-12 - SIMI 681719

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.