Morgunblaðið - 21.08.1993, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 21.08.1993, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. ÁGÚST 1993 29 KristnýJ. Valda- dóttir — Fædd 10. október 1909 Dáin 10. ágúst 1993 I dag kveðjum við kæra ömmu. Kristný Valdadóttir var fædd í Miðskála undir Eyjafjöllum. Hún var dóttir hjónanna Valda Jónsson- ar og Guðrúnar Stefánsdóttur. Amma ólst upp í stórum systkina- hópi. Bræður hennar, Árni (Gölli), Sigurjón, Óskar, Stefán og Kristján, eru látnir, en eftir lifir ein systir, Guðbjörg. Hálfsystkini ömmu, sam- feðra, voru Páll, einn eftirlifandi, en Guðjón, Kristín og Lára eru lát- in. Amma var fimm ára þegar for- eldrar hennar fluttust til Vest- mannaeyja og bjó hún þar alla tíð. Árið 1930 giftist amma Jens S. Ólafssyni og var hjónaband þeirra farsælt. Jens afi lést fyrir einu og hálfu ári eða hinn 23. febrúar 1992. Þau eignuðust fimm börn, fyrst Ólaf, en hann lést aðeins níu mán- aða að aldri; Lilju Sigríði, fædda 9. nóvember 1930, hún giftist Guð- laugi Þ. Helgasyni, verkstjóra, en hann andaðist árið 1982 eftir erfið veikindi, þau eignuðust sex börn; Fjólu, fædda 15. apríl 1932, hún giftist Boga Sigurðssyni, verk- smiðjustjóra og eignuðust þau fjög- ur böm. En sorgin kvaddi enn að dyrum hjá ömmu og afa því Fjóla andaðjst árið 1986 aðeins 54 ára að aldri eftir erfið veikindi. Guðrún, fædd 13. september 1936, hún gift- ist Þorbimi Ásgeirssyni en þau slitu síðar samvistum. Guðrún á fimm börn. Yngst er Sigríður Mínerva, fædd 3. nóvember 1943, gift Kristni Baldvinssyni, húsasmíðameistara. Þau eiga þijá syni. Mikil og erfið veikindi ömmu urðu oft til þess að hún þurfti að liggja langdvölum á sjúkrahúsi. Þá tók Siguijón, bróðir ömmu, og kona hans, Mínerva Kristinsdóttir, yngstu dótturina Siggu Mínu í fóstur og ólu hana upp. Dóttir Guðrúnar, Guðný Linda Antonsdóttir ólst upp á heimili ömmu og afa. Var hún þeirra stoð Minning og stytta síðustu árin sem voru þeim erfið vegna veikinda þeirra beggja. Þegar ég lít um öxl þá er mér efst í huga hve það var alltaf gott að koma til hennar Nýju ömmu á Brekó. Þegar ég var barn í skóla hljóp ég alltaf til hennar í frímínút- unum og tók hún ævinlega á móti manni með bros á vör, mjólk var hellt í glas og brauðsneið sett á disk og ekkert amast við því þótt ein eða fleiri skólasystur fylgdu með. Ég var oft spurð að því sem krakki hvort ég hefði verið að eign- ast nýja ömmu þegar ég talaði um að fara til Nýju ömmu. Hafði ég alltaf lúmskt gaman af en skýrði svo frá því að hún amma mín væri kölluð Nýja. Það er skýtin tilfinning þegar klippt er á einn kafla í til- veru manns, nú er ekki lengur hægt að lalla upp á Brekó til ömmu í sopa og spjall. Amma og afi voru mjög samrýnd og var afi ómögulegur ef amma var ekki nálæg. Amma hjálpaði afa oft við að dytta að bílnum en afi var lengst af vörubifreiðastjóri og fram yfir sjötugt hjálpaði amma afa við að setja þungar hliðar á vörubifreið- arpallinn. Afí var mikill nákvæmn- ismaður og amma þurfti alltaf að hafa til mat og kaffí á réttum tíma annars var dagurinn ónýtur fyrir afa. Það hefur því orðið mikið tóma- rúm hjá ömmu eftir að afi dó, því þá heyrðist ekki lengur kallað til hennar, Nýja-Nýja mín. Heilsu ömmu tók hraka fyrir um það bil tveimur árum og var hún ekki heil heilsu þegar afí dó, en með reisn fór hún í gegnum þá erfíðleika. í vor tók hún þá erfiðu ákvörðun að flytjast á dvalarheimili aldraðra, Hraunbúðir, þar sem hún fann að heilsa hennar leyfði henni ekki að hugsa um sig sjálfa. Það lýsir ákveðni og skapfestu ömmu að þangað ætlaði hún einungis tíma- bundið til að safna körftum til að geta farið heim aftur. Og fyrst við erum farin að tala um skapgerð ömmu, að þegar hún var búin að taka ákvörðun um að fara á „Elló“ þá var það núna strax eða ekki svo að við ættingjarnir urðum að setja allt á fullt svo að það gengi eftir. Ömmu var farið að líka vel á „Elló“ enda var hún mikil félagsvera. Hún var alltaf í hörku samræðum og fjöri þegar ég leit inn til hennar. Heilsunni hrakaði hratt hjá ömmu og tvo síðustu mánuðina dvaldist hún á sjúkrahúsi Vestmannaeyja, en þó var aldrei að heyra neina uppgjöf hjá ömmu. Allt fram undir það síðasta sagðist hún ná sér fljót- lega og aðeins um tveim vikum fyrir andlátið bað hún um fótsnyrt- ingu. Nú þegar amma hefur kvatt þetta líf, veit ég að í öðrum heimi tekur afi sæll og glaður á móti henni Nýju sinni. Við systkinin, börn Lilju, elstu dóttur ömmu og fjölskyldur okkar kveðjum hana í dag með þökk í huga fyrir liðna tíð. Far þú í friði, friður pðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V.Briem) Svanhildur Guðlaugsdóttir. Keflavík Miklar framkvæmdir fyr- irhugaðar á Mánagrund Morgunblaðið/Arnór Grimnurinn steyptur ÞESSA dagana eru framkvæmdir við nýja keppnis- og kennsluhús- næðið í fullum gangi. Mánudaginn 15. ágúst var grunnurinn steypt- ur en húsið sjálft verður járnklætt stálgrindarhús. MIKLAR framkvæmdir eru fyr- irhugaðar á Mánagrund, svæði hestamanna, á næstu árum. Fjárhagsáætlun er upp á 32 milljónir króna og leggur Kefla- víkurbær samtals 18 milljónir til verksins í formi styrks og vinnu. Mánagrund stendur skammt vestan við nýjasta byggðarkjarna Keflavíkur og er stefnt að því að fegra nyög í kringum hesthúsin og nýtt keppnis- og kennsluhúsnæði sem hestamannafélagið er að byggja í samvinnu við Bridsfé- lag Suðurnesja. Byggins hússing er hafín. Það mun rísa á nokkurra ára gömlum kjallara sem hestamannafélagið byggði en komst aldrei lengra með. Bridsfélagið hafði verið að leita sér að húsnæði í vetur og varð úr að félögin sameinuðust um bygginguna. Húsið verður 320 fm stálgrindarhús og er áætlað að það verði fokhelt í haust. Keppnis- og kennslusalurinn verður um 230 fm en auk þess verður á hæðinni eld- hús, salerni og skrifstofa. Leitað var til stærstu byggðar- laganna á Suðurnesjum og tókst samstarfssamningur við Keflavík- urbæ fyrir nokkru. Bærinn leggur til 8 milljónir kr. á næstu 5 árum auk þess sem þeir munu aðstoða hestamannafélagið við uppbygg- ingu á Mánagrund og leggja til 10 milljónir kr. í formi vinnu og hráefnis. Mikil drift hefír verið í hesta- mannafélaginu enda eykst fjöldi þeirra sem íþróttina stunda jafnt og þétt með aukinni hrossaeign. Bæði félögin ætla að auka ungl- ingastarf sitt verulega við bætt starfsskilyrði. Fyrir bridsfélagið er nýja húsið mikil lyftistöng. Félagið verður 45 ára 26. september nk. og má segja að félagið hafí verið á hrakhólum frá stofnun þess þrátt fyrir að starfsemin hafi aldrei fallið niður allan þennan tíma. Mikil framtíðarsýn er í sam- vinnu hestamanna og Keflavíkur- bæjar. Ljóst er að bærinn mun á næstu áratugum teygja sig til vesturs í átt að hesthúsahverfínu. Gera þarf skjólgarða og umfram allt að planta tijám þannig að Mánagrund verði aðlaðandi og skemmtilegt svæði þar sem hægt verði að halda hestamót og brids- mót á landsvísu. Arnór t Móðir mín, RANNVEIG STEFÁNSDÓTTIR, Dalbæ, Dalvík, lést í Fjórðungssjúkrahusinu á Akureyri 19. ágúst. Gunnar Stefánsson. t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÍÐUR MARKÚSDÓTTIR, Hrafnistu, (áður Fellsmúla 9), sem lést þann 13. ágúst sl., verður jarðsungin frá Fossvogskirkju mánudaginn 23. ágúst nk. kl. 13.30. Karl Guðjónsson, Sjöfn Guðjónsdóttir, Þórarinn Guðjónsson, Rúnar Guðjónsson, Eygló Guðjónsdóttir, Hrefna Guðjónsdóttir, Sigrfður Guðjónsdóttir, Garðar Guðjónsson, Siv Karlsson, Steinar Magnússon, Erla Jónasdóttir, Hildur Ágústsdóttir, Smári Steingrfmsson, Jón Lárusson, barnabörn og barnabarnabörn. t Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför föður míns, tengda- föður og afa, GUÐMUNDAR GRETTIS JÓSEPSSONAR. Sigtryggur Guðmundsson, Hrefna Ragnarsdóttir, Barbara Ósk Ólafsdóttir, Hlynur Páll Sigtryggsson, Kristrún íris Sigtryggsdóttir. t Hjartans þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns, föður okkar, tengda- föður, afa og langafa, JÓNS Þ. PÁLSSONAR, Prestsbakka á Síðu. Sigríður Jónsdóttir, Gunnar Bragi Jónsson, Sigrfður Dóróthea Árnadóttir, Jón Jónsson, Sigrún Böðvarsdóttir, Guðríður S. Jónsdóttir, Ólafur Oddsson, Rúnar Páll Jónsson, Rannveig E. Bjarnadóttir, barnabörn og barnabarnabarn. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa, BJARNA PÉTURSSONAR, Hraunbæ 103, Reykjavfk. Guðný Hallgrímsdóttir, Sævin Bjarnason, Svala Haraldsdóttir, Guðný Sævinsdóttir, Haraldur Sævinsson, Sigrún Dóra Sævinsdóttir, Bjarney Sævinsdóttir. t Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför HÁVARÐS HÁVARÐSSONAR, Efri-Fljótum I, Meðallandi. Hansína Elíasdóttir, Róshildur Hávarðsdóttir, Halldór Hávarðsson og aðrir aðstandendur. Birting afmælis- og minningargreina MORGUNBLAÐIÐ tekur afmælis- og minningargreinar til birt- ingar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á ritstjórn blaðs- ins Kringlunni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Hafnar- stræti 85, Akureyri. Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga. Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar greinar um fólk sem er 70 ára eða eldra. Hins vegar eru birtar afmæl- isfréttir með mynd í dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra. Mikil áhersla er á það lögð að handrit séu vel frá gengin, vélrituð og með góðu línubili.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.