Morgunblaðið - 14.09.1993, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 14.09.1993, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 1993 MENNING/LISTIR Kórastarf Kórastarf í Hafnar- fjarðarkirkju Barnakór Hafnarfjarðarkirkju er nú að byija þriðja starfsár sitt. í vetur verður lögð áhersla á raddbeitingu og nótnalestur. Auk þess syngur kórinn í messu einu sinni í mánuði einn eða með kór Hafnarfjarðarkirkju. Barna- kórinn tekur þátt í jólavöku og guðs- þjónustu á öðrum degi jóla. Eftir áramót verður haldið kóramót með þátttöku kórsins og einnig farið í æfingabúðir. Fyrsta æfíng verður í Hafnarijarðarkirkju, þriðjudaginn 14. september kl. 17 og er öllum börnum á aldrinum 9-12 ára boðið að koma og kynna sér starf barnakórsins. Stjórnandi kórsins er Brynhildur Auð- bjargardóttir og veitir hún uppl. í síma 653633. K§r Hafnarfjarðarkirkju er skipaður ungu fólki og er nú um 30 manna. Undanfarin ár hefur kórinn leitast við að flytja krefjandi verk eftir gömlu meistarana og mun svo verða áfram. Á dagskrá vetrarins verður messa eftir W. Byrd og J.B. Hilber. Eftir ára- mót stendur til að æfa flokkinn. „Llibre vermell" sem er spænsk endurreisnar- tónlist. Kórinn veður svo með hefð- bundna vortónleika, þar sem fluttar verða þijár kantötur eftir J.S. Bach. Miðvikudaginn 15. september kl. 19.30 er opin æfrng þar sem fólki er boðið að koma og kynna sér starf kórs- ins. Nánari uppl. eru veittar hjá söng- stjóra kórsins, Helga Bragasyni, í síma 53584. Tónlist Tónleikar á Hvammstanga Þriðja starfsár Tónlistarfélags Vest- ur-Húnvetninga hefst miðvikudaginn 15. september. Fyrstu tónleikar starsf- árins, sem haldnir verða í Félagsheimil- inu Hvammstanga á miðvikudagskvöld kl. 21, verða með þeim Gunnari Kvar- an sellóleikara og Gísla Magnússyni píanóleikara. Þeir ætla að flytja blandaða dag- skrá, en á efnisskránni má finna verk eftir Brahms, Jón Nordal, Saint Saens og Sjostakovitsj. Auk þessa, verða þeir Gunnar og Gísli með hljóðfæra og tón- listarkynningu á miðvikudag og fimmtudag í Grunnskóla Hvamms- tanga, Laugarbakkaskóla og Barna- skóla Staðarhrepps, en kynningar sem þessar eru vel þegnar hjá kennurum og nemendum. Samstarf Gísla og Gunnars nær aft- ur til ársins 1973 og árið eftir fóru þeir í tónleikaferðalag um Norðurlönd. Síð- an hafa þeir haldið fjölda tónleika og komið fram í útvarpi og sjónvarpi. Hausttónleikar í Selfosskirkju Orgeltónleikar eru um þessar mund- ir hvert þriðjudagskvöid i Selfoss- kirkju. í kvöld verður Marteinn H. Friðriksson, dómorganisti við orgelið og leikur verk eftir D. Buxtehude, F. Mendessohn, J. Bramhs, J.S. Bach, Jón Þórarinsson og Jón Nordal. Marteinn hefur starfað að tónlistarmálum á fs- iandi í nærfellt þrjá áratugi og m.a. haldið marga orgeltónleika. Það var því tími til kominn að fá hann tii að setjast við orgel Selfosskirkju, en á það hefur hann ekki leikið áður. Aðgangur er ókeypis af tónleikunum sem byija kl. 20.30. Kvikmyndatónleikar í kvöld, þriðjudagskvöldið 14. sept- ember kl. 20, verður sýnd þögla kvik- myndin „The Wind“ við undirleik Sin- fóníuhljómsveitarinnar í Háskólabíói, en Hreyfimyndafélagið og Sinfóníu- hljómsveit íslands hafa stofnað til sam- vinnu um flutning á kvikmyndinni við undirleik Sinfóníuhljómsveitarinnar og er það í fyrsta skipti á íslandi. „The Wind“ eða Stormurinn er eftir sænska kvikmyndastjórann Viktor Sjöström en aðalhlutverk er í höndum bandarísku leikkonunnar Lillian Gish, en hún var ein skærasta stjama þöglu kvikmyndanna. Hún lék jafnframt í mörgum talmyndum og var síðasta kvikmynd hennar Ágústhvalir með Bette Davis árið 1987. Lillian iést í byijun þessa árs. „The Wind“ sem gerð var 1928 fjall- ar um örlög ungu saklausu stúlkunnar Lettý sem flyst frá heimahögum í Virginíufylki með kúreka sínum út á hijóstruga Texas sléttuna. Hljómsveitarstjórinn Carl Davis er bandarískur en hefur búið í Bretlandi sl. 20 ár. Hann hefur samið tónlist við fjöldann ailan af þöglum kvikmyndum til að mynda Napóleon, Ben Húr og Greed. Einnig hefur hann samið tónlist við nýjar myndir svo sem The French Lieutenant’s Woman og Schandal. Carl Davis er þekktastur hér fyrir að hafa samið Liverpool-óratóríu með Paul McCartney fyrir tveimur árum. Aðgöngumiðar eru seldir á skrif- stofu SÍ í Háskólabíói og í miðasölu bíósins og fá áskrifendur SÍ 10% af- slátt af miðaverði. Kaisu Koivisto Myndlist Eiríkur Þorláksson Nú stendur yfír í Galleríi Einn einn við Skólavörðustíg sýning ungrar finnskrar listakonu, Kaisu Koivisto. Hún sýnir hér nokkur einföld verk og innsetningu, sem byggja á fábrotnu myndmáli og efnum, sem ekki vekja mikla at- hygli við fyrstu sýn, en vinna mik- ið á við nánari skoðun. Kaisu Koivisto er fædd árið 1962 og stundaði listnám í Finn- landi. Hún hefur haldið nokkrar einkasýningar og átt verk á sam- sýningum víða -um lönd, en þetta er í fyrsta sinn sem hún sýnir hér á landi. Hún hefur unnið með ýmis efni í gegnum tíðina, og hér er áhugi hennar á hári og mjúkum loðfeldum mest áberandi þáttur sýningarinnar. Hárið hefur í huga listakonunn- ar mjög ákveðnar tilvísanir; það hefur ríkulegt snertigildi, vísar til hins mjúka (og þá um leið blíða) og tengist þannig jákvæðum þátt- um lífsins; þessu til staðfestingar bendir hún á að í sögunni hefur klipping eða rakstur hárs oft verið notað sem refsing eða hefnd, sbr. meðferð stríðsfanga og „sam- starfskvenna“ hernámsliðs Þjóð- verja í Iok síðari heimsstyijaldar- innar. (Hvað kemur íslenskum íþróttamönnum til að leggja þessa fornu pyndingu á sjálfa sig hvað eftir annað er hins vegar hulin ráðgáta!) í fremri sal gallerísins hefur Kaisu Koivisto sett upp þijú verk, og hið stærsta þeirra nefnir hún einfaldlega „AnimaTL Hér er um að ræða myndapör í svörtum römmum, þar sem hrosshár er eina viðfangsefnið; annars vegar eru þetta svart/hvítar Ijósmyndir sem listakonan hefur litað, en hins veg- ar eru rammar með marglitu hrosshári undir gleri. Það er oft erfítt að greina hvað er ljósmynd og hvað er ekta, svo sannfærandi eru myndirnar, og einnig mun áhorfandinn undrast hversu djúpa og ríkulega liti er að fínna í hross- hárinu sjálfu; tilfinningin fyrir mýkt efnisins er einnig áhrifamik- il. Verkið „Love me tender“ virðist að nokkru sem framhald þessa; S E R H Æ F T Skrifstofutækninám HNITMIÐAÐRA ÓDÝRARA VANDAÐRA STYTTRI NÁMSTÍMI Verð á námskeið er 4.956,-krónur á mánuði!* KENNSLUGREINAR: - Wlndows gluggakerfí - Word ritvinnsla fyrir Windows - Excel töflureiknir - Áætlanagerð - Tölvuíjarskipti - Umbrotstækni - Teikning og auglýsingar - Bókfærsla - o.fl. Sérhæfð skrifstofutækni er markvisst nám fyrir alla, þar sem sérstök áhersla er lögð á notkun tölva í atvtnnulífínu. Nýjar veglegar bækur fylgja með náminu. Engrar undirbúningsmenntunar er krafíst. Innritun fyrir haustönn er hafin. Hringdu og fáðu sendan bækling eða kíktu til okkar í kaffi. hér hanga mjúkir teningar úr feldi í strengjum innan um teninga þakta ljósmyndum. Við skoðun ljósmyndanna kemur hins vegar í ljós, og titill verksins vísar fremur til ófullburða vonar en gleði yfir ríkjandi ástandi; hér birtast marð- ir, sárir og öróttir líkamshlutar, og yfir þeim hvílir grúfa kynferðis- leg ofbeldis, þar sem einnig eru sýnd ýmis heimilisverkfæri sem geta um leið verið vopn. Sú blíða, sem farið er fram á í titlinum, verður hrópandi í ljósi þeirra mynda, sem verkið hefur að geyma. Loks má geta lítillar veggmynd- ar, sem sett er upp líkt og leyndar- dómsfull altaristafla með vængj- um; sé hún hins vegar opnuð kem- ur í ljós örvæntingarfullt augnaráð í afmynduðu andliti, sem þó virð- ist vera að gæða sér á ljúffengum berjum. Hvað er hér að gerast? I innri sal hefur listakonan kom- ið fyrir innsetningu, sem byggir á stuttu myndbandi, en eftir því hafa verið gerðar ljósmyndir sem prýða veggi salarins. Innsetningin heitir „Butterflies” og vísar þannig til þess frelsis og fegurðar, sem jafna er tengd fiðrildum; hins veg- ar benda afklippt tögl í vírnetum, sem hanga í loftinu, svo og skuggamyndir skordýra, sem er varpað á bakhluta fólks í mynd- bandinu, á einhvern hátt til þving- unar, ógnar og refsingar, þannig MYND Kaisu Koivisto: Hluti af innsetningunni „Love me tender". að frelsið og fegurðin reynist draumsýn ein. Framsetning Kaisu Koivisto er fáguð og einföld, og virðist í fyrstu aðeins fjalla um blíðu og fegurð. Við nánari skoðun kemur þó í ljós, að hún er ekki síður að fást við þá tvíræðni, sem fylgir þessum hugtökum, og þá hörku og grimmd, sem maðurinn býr við, þrátt fyrir allar vonir um hið gagn- stæða. Þessi samtenging tekst einkar vel í sýningunni, þó hún sé ekki augljós við fyrstu sýn. Sýningu Kaisu Koivisto í Gall- eríi einn einn við Skólavörðustíg lýkur fimmtudaginn 16. septem- ber, og er rétt að benda listunn- endum að líta við. Nýr geisladiskur Sautján ljóðalög eftir Kristin Reyr SAUTJAN ljóðlaög er heiti á nýjum geisladiski sem út er kom- inn á vegum höfundar, Kristins Reyrs. Geisladiskurinn hefur að geyma eldri sem nýrri lög höf- undar og hefur ekkert þeirra heyrst opinberlega fyrr, en nokkur þeirra verið gefin út í nótnaformi. Jafnframt því að vera höfundur laganna hefur Kristinn Reyr samið átta ljóðanna. Hin ljóðskáldin eru Davíð Stefánsson, Guðmundur Böðvarsson, Jóhann Jónsson, Karl ísfeld, Magnús Ásgeirsson, Steinn Steinarr, Theódóra Thoroddsen, Þorsteinn Valdimarsson og Örn Arnarson. Fjöldi þekktra listamanna sér um flutning ljóðalaganna á þessum nýja geisladiski. Fyrst skal nefna óperusöngvarana Elínu Ósk Ósk- arsdóttur sópran, Guðmund Sig- urðsson tenór, Signýju Sæmunds- dóttur sópran, Sigurð S. Stein- grímsson bassa, Þorgeir Andrésson tenór og Þóru Einarsdóttur sópran. Einnig prýða flutninginn karla- raddir úr Skagfírzku söngsveitinni. Píanóleikarar eru þau Anna Guðný Guðmundsdóttir, Gróa Hreinsdótt- ir, Hólmfríður Sigurðardóttir, Lára S. Rafnsdóttir, Olafur Vignir Al- bertsson og Þóra Fríða Sæmunds- dóttir. Sellóleikari er Oliver Kent- ish. Carl Billich og Eyþór Þorláksson Tölvuskóli Reykjavíkur BORGfiRTÚNI 28. 105 REYKJftUÍK. SÍmi 616699. fax 616696 •Skuldabréf í 20 mán. (19 afborganir), vextir eru ekki innifaldir. Krístinn Reyr útsettu lögin. Björgvin Þ. Valdi- marsson tónlistarkennari var höf- undi til aðstoðar við val laga og flytjenda, auk þess sem hann hafði umsjón með upptökum og útgáfu geisladisksins. Hljóðritun ljóðalag- anna fór fram í Víðistaðakirkju í Hafnarfírði í maí 1993 og um upp- töku þeirra sá Halldór Vikingsson. Lítill bæklingur fylgir geisladiskn- um og hefur hann m.a. að geyma öll söngljóðin. Geisladiskur og prentun: Nimbus og Prisma sá um fílmuvinnslu. Dreifing í síma 10258. Kristinn Reyr hefur lengi fengist við tónsmíðar og hafa mörg laga hans verið flutt opinberlega, ýmist á hljómplötum eða í útvarpi. Meðal þeirra sem flestir þekkja er Amo- rella sem Haukur Morthens gerði víðfrægt á sínum tíma, bæði hér á landi og í Danmörku. En auk þess hafa Guðmundur Jónsson, Kristinn Hallsson, Guðrún Tómasdóttir og fleiri listamenn flutt lög höfundar í gegnum tíðina. Gefnar hafa verið út fjölmargar nótnabækur með lögum og ljóðum Kristins Reyrs og einnig má nefna ritverkið Leikrit og ljóð, auk nýrri ljóðabóka. Leikrit hans hafa verið flutt á sviði, í útvarpi og sjónvarpi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.