Morgunblaðið - 14.09.1993, Blaðsíða 48
Féð tekið heim
VÍÐA var réttað um síðustu helgi og þegar því er lokið þarf að koma fénu heim, en bændur í Reykjadal voru
við þá iðju í blíðskaparveðri í gærmorgun.
Sjá bls. 47: „Víða réttað...“
SVÆÐISUMDÆMANEFND um sameiningu sveitarfélaga á höf-
uðborgarsvæðinu samþykkti einróma á fundi sínum í gær að
leggja til sameiningu Seltjarnarness, Mosfellsbæjar, Kjalarnes-
hrepps, Kjósarhrepps og Reykjavíkur. Svæðið allt frá Gróttu
og upp í Hvalfjarðarbotn yrði því eitt sveitarfélag með um
110.000 íbúa. Jafnframt leggur nefndin til að Bessastaðahrepp-
ur og Garðabær sameinist. Greidd verða atkvæði um þessar til-
lögur 20. nóvember.
Sveinn Andri Sveinsson, formað-
ur svæðisumdæmanefndarinnar,
■mgði í samtali við Morgunblaðið
að nefndin hefði áður skoðað þá
möguleika að Seltjarnarnes og
Reykjavík sameinuðust, sem ekki
hefði verið talinn spennandi kostur,
og að Mosfellsbær, Kjalarnes og
Kjós sameinuðust, en Mosfellsbær
hefði verið talinn of veikburða
sveitarfélag til að sinna svo stóru
landsvæði. Sameining allra sveitar-
félaganna fimm gæti hins vegar
skilað verulegum árangri.
Sveinn Andri sagði að mikilvægt
væri að nefndin gerði ráð fyrir að
áður en til atkvæðagreiðslu kæmi,
yrði gerður málefnasamningur
sveitarfélaganna, sem segði til um
hver yrðu verkefni hins nýja sveit-
arfélags, yrði sameining samþykkt.
„Allir nefndarmenn gera að skilyrði
að sameiningin leiði hvergi af sér
verri þjónustu en fyrir er. Til dæm-
is er lögð mikil áherzla á að skóla-
verði áfram í Ásgarði í Kjósar-
hreppi, og að byggður verði upp
þéttbýliskjarni á Kjalarnesi. í mál-
efnasamningi mætti til dæmis taka
á uppbyggingu íþróttahúss og
sundlaugar þar,“ sagði Sveinn
Andri.
Bætt þjónusta og lausn
landavanda
„Þessi sameining myndi bæta
þjónustu á Kjalarnesi og í Kjós og
gerbreyta öllum skipulagsforsend-
um sveitarfélaganna á norðursvæði
höfuðborgarsvæðisins," sagði
Sveinn. „Hún myndi leysa landa-
vanda Reykjavíkur og Seltjarnar-
ness, þannig að fyrir þau sveitarfé-
lög væri talsvert á sig leggjandi til
að koma til móts við hin þijú.“
Hann sagði að talið væri að 55
milljóna króna útgjöld á ári spöruð-
ust við sameininguna, einkum
vegna sparnaðar í yfirstjórn. Yrði
sameining samþykkt, myndu minni
sveitarfélögin fjögur færast úr
Reykjaneskjördæmi í Reykjavíkur-
Skákþing íslands
Helgi vann
Jóhann og
ér efstur
HELGI Ólafsson vann Jóhann
Hjartarson með svörtu í 41 leik
í 6. umferð Skákþings íslands
í gær. Helgi er efstur á Skák-
þinginu með 5 vinninga.
Hannes Hlífar vann
Önnur úrslit urðu þau, að Hann-
es Hlífar Stefánsson vann
Guðmund Gíslason, Þröstur
Þórhallsson vann Ándra Áss
Grétarsson. Haukur Angantýsson
vann Björgvin Jónsson, Helgi Áss
1 ^Hkétarsson vann Tómas Björnsson.
Skák Jóns Garðars Viðarssonar og
Sævars Bjarnasonar var ólokið.
Eftir 6 umferðir er Helgi Ólafs-
son með 5 vinninga, Hannes Hlífar
með 4 vinninga og frestaða skák,
Jóhann með 4 vinninga og Þröstur
með 3'A og frestaða skák.
I kvennaflokki var 4. umferð
tefld í gær. Guðný Hrund Karls-
dóttir vann Guðfríði Lilju Grétars-
dóttur og Helga Guðrún Eiríks-
'\i’3ÍWtir vann Önnu Björgu Þorgríms-
dóttur. Þær eru allar með l'h vinn-
ing en Helga Guðrún hefur teflt 2
skákir, Guðný Hrund og Guðfriður
Lilja hafa teflt 3 skákir en Anna
Björg hefur teflt 4 skákir.
Umdæmanefnd leggur til að fjögur sveitarfélög sameinist Reykjavík
Falsaður
þúsund
kr. seðill
í umferð
FALSAÐUR 1.000 króna seðill
kom fram í versluninni Goðsögn
við Rauðarárstíg á föstudags-
kvöld þegar verslunareigandinn,
Maron Brynjarsson, var að gera
upp sölu dagsins. Ekki er vitað
hver notaði seðilinn, sem virðist
gerður í litljósritunarvéi. RLR
hefur málið til rannsóknar en
ekki hafa komið fram fleiri seðl-
ar úr öðrum verslunum, að sögn
Guðmundar Guðmundssonar hjá
RLR.
Maron Brynjarsson sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að seðillinn
væri svo vel falsaður að hann hefði
athugasemdalaust farið um hendur
afgreiðslufólks í versluninni og aftur
þegar talið var úr kassa eftir lokun.
Sami litur, sama stærð
„Þegar ég var að gera upp tók
ég eftir því hvað þessi seðill var ein-
kennilegur viðkomu, og þegar ég bar
hann upp að ljósi sá ég að hann var
falsaður, það vantaði bæði þráð og
vatnsmerki,“ sagði Maron.
Maron sagði að engirln í verslun-
inni gerði sér grein fyrir því hver
hefði borgað með seðlinum. Mikið
hefði verið að gera á föstudaginn
og seðillinn runnið í gegn án þess
að vekja nokkra athygli enda vel að
fölsuninni staðið.
Guðmundur Guðmundsson hjá
RLR sagði að rannsókn málsins
væri að heflast. Ekki væri vitað um
fleiri seðla en ólíklegt væri að farið
væri út í fölsun af þessu tagi með
aðeins einn seðil.
Tilraunir gerðar með gallblöðrutöku með kviðsjá
Tugir þúsunda sparast
VEL hefur tekist til með fyrstu gallblöðrutökur með kviðsjá á Borg-
arspítalanum eftir því sem Gunnar H. Gunnlaugsson yfirlæknir á
skurðlæknisdeild Borgarspítalans sagði í erindi sínu á Læknaþingi
í gær. Hann sagði að legutími væri margfalt styttri en við skurðað-
gerð og sjúklingarnir kæmust mun fyrr á fætur.
Fram kom hjá Gunnari að fyrsta
árið eftir að gallblöðrutökur með
kviðsjá hófust á spítalanum síðla árs
1991 hafi 133 aðgerðir verið fram-
kvæmdar. Þar af hafi verið byijað á
106 með kviðsjá en breyta hafi orðið
í skurðaðgerð í 10 tilfellanna, oftast
vegna bólgu og samgróninga um-
hverfis gallblöðru.
Liggja skemur
Gunnar sagði að til að byija með
hefði tekið lengri tíma að fram-
kvæma kviðsjáraðgerðir en nú tækju
aðgerðirnar svipaðan tíma. Hins veg-
ar lægju sjúklingamir að meðaltali
4 dögum skemur á sjúkrahúsi og 87%
væru komnir heim á öðrum degi.
Þannig spöruðust u.þ.b. 4 legudagar
við hveija kviðsjáraðgerð eða sam-
tals um 80.000 kr. Gunnar benti þó
á að ástæða væri til að draga um
10.000 kr. frá þeirri upphæð vegna
kostnaðar við einnota tæki vegna
kviðsjáraðgerða.
Þeir sem gengist höfðu undir gall-
blöðrutöku um kviðsjá komust mun
fyrr til vinnu en hinir. Þeir voru að
jafnaði (84%) komnir aftur til starfa
eða höfðu náð fyrri færni 12,7 dögum
eftir aðgerðina en eftir skurðaðgerð
voru menn að jafnaði frá vinnu 4-6
vikur.
Sjá bls. 18: „Landlæknir ...“
kjördæmi, en lagabreyting um slíkt
yrði að ganga í gegn áður en af
formlegri sameiningu gæti orðið.
„Nefndin er í raun ekki að leggja
til sameiningu, heldur atkvæða-
greiðslu um tillögurnar, þannig að
kjósendur fái að tjá sig með lýðræð-
islegum hætti,“ sagði Sveinn Andri.
Sveitarfélög á Suðurnesjum
sameinist í eitt
Samkomulag varð í umdæma-
nefnd á Reykjanesi um að greidd
yrðu atkvæði um að öll sveitarfé-
lögin sjö á Suðurnesjum sameinuð-
ust í eitt sveitarfélag með rúmlega
fimmtán þúsund íbúa. Þessi
sveitarfélög eru: Grindavík, Vogar,
Hafnir, Keflavík, Njarðvík, Sand-
gerði og Garður. Þá leggur um-
dæmanefnd Vesturlands til að
sveitarfélögum þar fækki úr 36 í 9.
Sjá bls. 25: „Lagt til...“
Morgunblaðið/Júlíus
Svikinn seðill
EFRI seðillinn á myndinni er
falsaður, hinn ósvikinn. Ekki sést
munur á lit né stærð en þó glans-
ar sá falsaði óeðlilega mikið.
Eitt sveitarfélag verði
frá Gróttu í Hvalfjörð