Morgunblaðið - 14.09.1993, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 1993
39
Morgunblaðið/Kristinn
Diddú með fjór-
um fyrrverandi
No Name-stúlk-
um. F.v. Jóna
Björk Helgadótt-
ir, Nanna Guð-
bergs, Diddú,
Unnur Steinsson
og Linda Péturs-
dóttir.
SNYRTIVÖRUR
Diddú vetrar-
stúlka No Narne-
snyrtivaranna
Verulega athygli hefur vakið í tískuheiminum að
söngkonan Sigrún Hjálmtýsdóttir, sem betur er
þekkt undir nafninu Diddú, hefur verið valin vetrar-
stúlka No Name-snyrtivaranna. Þykir mönnum sem
hér sé um tímamót að ræða, þar sem undanfarin ár
hafi kornungar stúlkur orðið fyrir valinu og þá gjarn-
an fegurðardrottningar. Þess má geta að víða erlend-
is, einkum í Bandaríkjunum, má sjá breytingar á aldri
fyrirsæta, einkum í sambandi við ilmvötn og aðrar
snyrtivörur. Kynning á vetrarstúlkunni og nýju vetrarl-
ínunni fór fram síðastliðið fimmtudagskvöld á veitinga-
húsinu Barrokk.
Fyrir alla aldurshópa
Að sögn Kristínar Stefánsdóttur snyrti- og förðunar-
fræðings var aðalástæðan fyrir því að Diddú varð fyr-
ir valinu sú, að No Name snyrtivörurnar væru ekki
eingöngu fyrir ungar stúlkur heldur fyrir alla aldurs-
hópa. Heiðurinn að vali Diddúar á Heiðar Jónsson, en
það var hann sem kom upphaflega með hugmyndina
að vali hennar.
Þurfti ekki að hugsa sig um
Diddú segist ekki hafa þurft að hugsa sig um tvisv-
ar þegar hún var beðin að verða vetrarsúlka No Name.
Á kynningarkvöldinu voru sýnd undirföt frá versl-
uninni Conny. Hér sýnir ung stúlka glæsilega sam-
fellu. —
„Ég er nú alltaf til í allt, svo það var ekkert mál. Mér
fannst þetta samt svolítið skondið og vissi ekki í fyrstu
hvort verið væri að gera grín að mér. Ég held að
hugmyndin hjá fyrirtækinu hafi verið að breyta um
karakter eða yfirbragð," sagði Diddú og kveðst hafa
nokkuð gaman af því að marka vetrarlínuna, því þeir
litir sem klæða hana vel eru valdir sem vetrarlitirnir.
Meira en þú geturímyndað þér!
ENGINN VENJULEGUR
KLÚBBUR!