Morgunblaðið - 14.09.1993, Side 38

Morgunblaðið - 14.09.1993, Side 38
38 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTBMBER 1993 fclk í fréttum Talið er að samband Karls og sonanna hafi verið nánara I sameiginlegu sumarfríi en oft áður. FJÖLSKYLDA Kóngalíf er ekkert sældarlíf Díana prinsessa er sögð hafa átt erfitt að undanfömu vegna þeirrar nýju stöðu sem hún nú gegnir í bresku þjóðfélagi, þ.e. að vera ein- stæð móðir sem jafnframt hefur þurft að gegna opinberum skyldum og reyna um leið að halda ró sinni þrátt fyrir að hafa nýlega gengið í gegnum skilnað. Ekki má hún svo mikið sem líta í átt til karlmanna fyrr en ein- hver hefur búið til sögu um að þar búi meira en lítið að baki. Hún er sögð vera orðin einangruð og er farin að grennast aftur. Sumarfrí hvort í sínu lagi Nýlega fór Díana með syni sína tvo, Vilhjálm og Harrý, til Flórída. “Segja heimildir að hún hafí drifíð í því eftir að Karl átti notalegt sum- arfrí með drengjunum. Myndir sem teknar voru af Karli og sonum hans benda til þess að hann hafi sinnt þeim með öðrum hætti en áður. Virt- ist sem samband feðganna væri nán- ara en sést hefur á undanfómum árum. Á þetta bendi meðal annars dagblaðið Daily Express. Vilhjálmur sagður sakbitinn Þrátt fyrir þetta góða tímabil eru prinsarnir Vilhjálmur og Harrý — einkum sá fyrmefndi — sagðir hafa átt erfiðar stundir í sumar þegar þeir bræður dvöldust annars vegar með móður sinni, sem sýnir þeim gjaman blíðuhót, leikur við þá eða skreppur með þá á skyndibitastaði, og hins vegar þegar þeir dvöldust hjá föður sínum með tilheyrandi formlegheitum, hefðum og skyldum. Til dæmis er morgunverður með réttu næringargildi alltaf borinn fram kl. 7.45, því þannig hefur það verið frá bamæsku Karls. Sjálfur hefur hann ekki verið orðlagður fyr- Díana er sögð eiga erfitt sum- ar að baki og virðist aftur orðin viðkvæm í skapi. ir að sína blíðuhót, að minnsta kosti ekki þar sem náðst hefur til hans með myndavélinni. Hins vegar virðist enginn hafa áhuga á því eða geta aflað upplýs- inga um hvemig tilvera Karls er; einstæðs föður sem einnig þarf að gegna opinberum skyldum og fær að heyra það reglulega í breskum fjölmiðlum að hann ætti að afsala krúnunni til Vilhjálms sonar síns. Prinsarnir Vilhjálmur (t.v.) og Harrý koma af veitingahúsinu Pla- net Hollywood ásamt móður sinni. BORGINNI JÓTIÐ LÍFSINS ÁBORGINNI Þingvellir Vínkjallarinn Höfiim einkar gLæsilega aðstöðu fyrir hópa og einkasamkvæmi þar sem þjónusta og matur eru sniðin að ykkar Jjöríum. Vínkjallarinn, mjög eftirminnilegur salur í kjallara, 8-16 manns. Pingvellir, kyrrlátur og þægilegur saiur á fyrstu hæð, 12-30 manns. Gyllti salurinn, tilkomumikill og frægur, 40-150 manns. Pálmasalurinn með Sushi-bar -Opið fyrir almenning. Nánari uppfysingar veita veitingarstjórar í síma 11247 eða 11440. Hð¥it fB©R® Þ A Ð * E R A Ð E I N S E I N H Ó T E L B O R G STJÖRNUR Tina hefur fyrir- gefið Ike LIST Tvíburasystumar Ásta og Anna Kristjánsdætur fylgdust með brúðuleikhúsinu af miklum áhuga. Bróðir þeirra Halldór lét einnig fátt framhjá sér fara. Söngkonan Tina Turner hefur í kjölfar sýningar myndarinnar „What’s love got to do with it?“ lýst því yfir að hún hafi fyrirgefið fyrrverandi eiginmanni sínum framkomu hans á þeim árum sem þau voru gift. Að sögn Tinu lamdi Ike hana eins og harðfisk. Ike uppgötvaði Tinu og gerði hana að stjörnu á sjötta og sjöunda ára- tugnum. Frægðin varð honum of- viða og upp úr því fór hann að neyta fíkniefna með tilheyrandi ofbeldi. Hún segist hafa þolað hjónabandið alltof lengi vegna þess að hann hafi sífellt lofað bót og betrun. Hún segist þó ekki hafa minnsta áhuga á að umgangast hann, þrátt fyrir að hún hafi fyrirgefið honum. Tina Tumer lét sér nægja eitt hjóna- band og er því m.a. lýst í myndinni „What’s love got to do with it?“ Mjallhvít og dverg- arnir sjö í brúðulíki au fylgdust með af miklum áhuga börnin sem voru á forsýningu íslenska brúðuleik- hússins á leikritinu Mjallhvíti og dvergunum sjö undir stjórn Jón E. Guðmundssonar. Hann hóf fertugasta leikár sitt nú um helg- ina. Jón segist hafa orðið snortinn af Mjallhvíti og dvergunum sjö eftir að það var sýnt á fjölum Þjóðleikhússins fyrir nokkrum áratugum, en þá var hann feng- inn til að búa til grímur sem not- aðar voru í uppfærslunni. Þess má til gamans geta að þá var Bryndís Schram í hlutverki Mjall- hvítar. „Ég hafði alltaf hugsað mér að taka leikritið til sýningar en lét fyrst verða af því núna á fer- tugasta leikárinu. Kolbrún Erna Pétursdóttir leikkona tók aðalatr- iðin úr leikritinu og gerði úr því gott stykki,“ sagði Jón í samtali við Morgunblaðið. Þeir leikarar sem ljá raddir sín- ar að þessu sinni eru Kolbrún Erna Pétursdóttir, Barði Guð- mundsson, Jóhanna Jónsdóttir, Jón St. Kristjánsson, Rósa Guðný Þórsdóttir, en Sigurður Rúnar Jónsson sá um hljóðupptökur. Morgunblaðið/Kristinn Vonda drottningin skipar hér veiðimanninum að drepa Mjall- hviti. Til hægri er sagnaþulurinn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.