Morgunblaðið - 14.09.1993, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 14.09.1993, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 1993 - BTSKTOp*? CáCíTT É3S- NXf=í€Xr X J>IGr. VXE> EROM Ff€> FRRPf F)F=- Sn=K> MEO PVUSO VRCSKl. <S ETTP 5KtPTT-£> TTTL. OKK'RR KT-ETRKX E»ET<&RR Þf=lR f=«5 KEMOR?. Sveppafræðingar á Hallormsstað Frá Helga Hallgrímssyni: DAGANA 4.-7. ágúst var ráðstefna norrænna sveppafræðinga haldin á Hallormsstað. Er það í fyrsta skipti sem slík samkoma er haldin hér á landi. Þátttakendur voru um 20 frá öllum Norðurlöndum, nema Finn- landi, bæði atvinnumenn og áhuga- menn í faginu, þar af flórir Islending- ar. Náttúrufræðistofnun Norðurlands á Akureyri stóð fyrir ráðstefnunni í samvinnu við Gróplöntustofnunina (Institut for sporeplanter) í Kaup- mannahöfn. Styrkir fengust frá Nor- ræna menningarsjóðnum og víðar, til að standa undir ferða- og dvalar- kostnaði. Komið var upp rannsóknar- stofu í skólanum, og lánuðu ýmsir aðilar tæki til hennar, m.a. Mennta- skólinn á Egilsstöðum. Farið var í söfnunarferðir alla ráð- stefnudagana. Fyrsta daginn var safnað í Hallormsstaðarskógi, en hina dagana farið um Hérað og niður á firði. Þegar heim var komið settust menn niður við að nafngreina fenginn og ganga frá honum til þurrkunar. Var því oft ekki lokið fyrr en liðið var á nóttu. Þó gafst tími til að skoða litskyggnur af sveppum bæði frá Færeyjum og íslandi. Sveppaspretta var nokkuð góð á Austurlandi í ágústbyijun og má víst þakka það hinni óvenjulegu veðráttu sem hér hefur ríkt í sumar. A góðviðr- issvæðinu sunnanlands og vestan var engin sveppaspretta á sama tíma, að sögn ýmissa þátttakenda, sem litu þar eftir sveppum við komu sína tii landsins. Sannaðist þar hið fom- kveðna, að fátt er svo með öllu illt o.s.frv. Þá var veður með besta móti sjálfa ráðstefnudagana, hlýtt og stundum bjart. Voru hinir erlendu gestir því ánægðir með dvölina hér eystra. Sveppaflóra íslands er býsna fjöl- breytt. Þekktar eru um tvö þúsund tegundir, þar af um 500 svonefndir stórsveppir, sem mynda stæðileg ald- in. Það eru þeir sveppir sem fólk kannast almennt við, og margir tína sér til matar. Nú er einnig farið að nota sveppi til litunar, og sýndi sænsk kona dæmi um slíka sveppaliti á ráð- stefnunni. Margir íslenskar sveppategundir eru illa skilgreindar og nafngreining þeirra vafasöm. Er því mikilvægt að fá aðstoð svo margra sérfróðra manna á þessu sviði, eins og þama vom saman komnir. Um 15-20 teg- undir fundust í ferðunum, sem em VELVAKANDI TAPAÐ/FUNDIÐ Plastpoki tapaðist GULUR og hvítur plastpoki merktur „Stína fína“ tapaðist í leigubíl sl. laugardagskvöld. í honum var myndavél og hár- lakksbrúsi. Hafi einhver orðið var við pokann er hann beðinn að hafa samband í síma 656183. Lyklahulstur fannst SVART lyklahulstur með fjómm lyklum í fannst sl. þriðjudag við göngubrautina í Elliðaárdaln- um. Eigandinn getur vitjað þess í síma 610518. Húfa tapaðist DÖKKGRÆN bamahúfa tapað- ist við Hagkaup í Skeifunni sl. þriðjudag. Finnandi vinsamlega hafí samband í síma 34273. Svartir skór NÝIR svartir skór töpuðust í Kolaportinu sl. laugardag. Þeir vom í poka frá Kjallaranum. Þessir skór voru keyptir fyrir síðustu sumarpeningana og er þeirra sárt saknað. Ef einhver hefur fundið skóna þá vinsam- lega hafíð samband í síma 52895, Björg. Innleggsnóta fannst INNLEGGSNÓTA í Kringlu- sporti fannst á Norðurvangi í Hafnarfírði 8. september sl. Uppl. í síma 52905. Fílófax BRÚNT fílófax tapaðist sl. fimmtudag í Kringlunni, í því em skiiríki og margt persónu- legt og er þess sárlega saknað. Finnandi vinsamlega hringi í síma 53335. GÆLUDÝR Kettlingur fannst STÁLPAÐUR kettlingur fannst í Hólahverfí, hann er hvítur og grár, ef einhver saknar kisu þá eru upplýsingar í síma 78709. Kanínur TVÆR kanínur rúmlega hálfs árs gamlar, óská eftir góðu heimili. Búr fylgir með. Uppl. í síma 627848. nýjar fyrir landið, og álíka margar voru greindar upp á nýtt. Er þó að vænta mun betri og ýtarlegri upplýs- inga síðar, þegar þátttakendur hafa unnið úr söfnum sínum heimafyrir. Ekki var laust við að hinir erlendu gestir undmðust þá ríkulegu mat- sveppasprettu sem hér er sums stað- ar, t.d. í nýju lerkiskógunum og með- fram skurðum. Einn daginn var skurðaknipplingi safnað í fulla körfu og matreiddu ráðstefnugestir hann um kvöldið. Rann hann ljúflega niður með öli frá Agli Skallagrímssyni. HELGI HALLGRÍMSSON Tangarási 2, Egilsstöðum LEIÐRÉTTINGAR Málverkatextar víxluðust í Lesbók Morgunblaðsins á laugar- daginn birtist grein eftir Svein Björnsson um líf og list Gunnlaugs Schevings. Með greininni birtust myndir af tveimur málverkum Gunn- laugs, en myndatextarnir víxluðust, þannig að undir myndinni af Sjávar- þorpi stóð Frá Grindavík og öfugt. Morgunblaðið biðst afsökunar á þessum mistökum. Nöfn féllu niður í grein í sunnudagsblaði Morgun- blaðsins um arfgengi meðgöngueitr- unar féll niður að geta hluta sam- starfshópsins sem vinnur að rann- sóknum á mögulegum tengslum með- göngueitrunar við kransæðasjúk- dóma. Þetta eru Lilja Sigrún Jóns- dóttir læknir, Nikulás Sigfússon yfir- læknir og Helgi Sigvaldason verk- fræðingur. Auk þess hefur verið sam- starfsfólk I Glasgow-háskóla og við INSERM stofnunina í París um þann þátt rannsóknanna sem varða breyt- ingar á erfðaeiginleikum. FJCHDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA 1. 5afS 1 2.295.662 £Lm 4af 5* 99.714 3. 4af5 79 8.709 4. 3af5 3.125 513 HeikJarvinningsupphæð þessa viku: .654 kr. upplýsingarsímsvari91 -681511 lukkulína991 002 & Leyft verði að skrá skip án veiðiheimilda FUNDUR sambandsstjórnar Far- manna- og fiskimannasambands íslands, FFSÍ, haldinn 10. sept- ember 1993, skorar á stjórnvöld að heimila að gera viðeigandi ráðstafanir, sem leyfa skráningu fiskiskipa, án veiðiheimilda, í eigu íslenskrar útgerðar. Slík fiskiskip skulu í einu og öllu lúta ísienskum lögum. ’ „Að undanförnu hefur borið á því að veiðiskip í eigu íslendinga, sem eru án veiðiheimilda samkvæmt lög- um um stjórn fiskveiða, hafa verið eða stendur til að skrá undir þægind- afána, vegna þröngrar túlkunar stjórnvalda á reglum um íslenska skipaskráningu. Þessi túlkun stjórn- valda gæti orðið þjóðinni afar kostn- aðarsöm, þar sem hún ýtir undir r skráningu fiskiskipa undir þægiint- afána, sem síðan mun leiða af sér ótal vandamál varðandi mönnun, "öryggi og kjör sjómanna. Auk þessa mun veiði skipa skráð undir þægind- afána í eigu íslendinga, sem eru á veiðum utan lögsögu strandríkja ekki reiknast til veiðireynslu Islands, þegar kemur að samningum um skiptingu veiðiheimilda milli þeirra, sem stundað hafa veiðar á þessum hafsvæðum,“ segir í ályktun FFSÍ. ...mióstöðvardælur, neyslu- vatnsdælur, kjallaradælur, djúpdælur ofl. eigið þjónustu- verkstæði, ráðgjöf og fag- þekking tryggja þér hagkvæmasta valió f fjárfestingu á dælu.. . io! . ISLEIFUR JONSSON -med Þér í veitun vatns- ■ OlNOtTI 4 SlMI é * 0 3 4 0 NÁMSKEIÐAPAKKI a einstökum kiörum! Viltu margfalda lestrarhraðann og auka ánægju af öllum lestri? Viltu auka afköst í starfi og námi? Hraðlestrarskólinn býður nú tvö vinsæl námskeið, hraðlestr- arnámskeið sem kostar kr. 15.800 og námstækninámskeið sem kostar kr. 5.900, saman í „pakka" á frábærum kjörum, einungis kr. 15.800. Þú sparar kr. 5.900! Betra tilboð fært&T' ekki, enda skila námskeiðin þér auknum afköstum í námi og starfi alla ævi! Næsta námskeið hefst 16. september. Skráning alla daga í síma 641091. HRAÐLESTRARSKOLINN ...við ábyrgjumst að þú nærð árangri! S 1978- 1993 \M fyrir skólafólk Bókahilla nr.77 175cm á hæð kr. 3.910,« Bókahilla nr.78 85.5cm á hæð kr. 2.910,« BÍLDSHÖFÐA 20 -112 REYKJAVÍK - SÍMI91-681199

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.