Morgunblaðið - 14.09.1993, Síða 46

Morgunblaðið - 14.09.1993, Síða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. SEPTEMBER 1993 PÚ Í'c beygju í hliðarhalla _ og jeppinn komst ekki lengra. Á meðan ók Gísli, sem fyrr, af miklu öryggi upp þrautina og fékk mun fleiri stig. Aðeins síðasta þrautin, tímabraut, var eftir og titillinn gekk ekki Gísla úr greipum þar. Af stakri yfírvegun ók hann þrautina, yfirvegun sem margir keppendur öfunda hann af. Fátt virðist geta komið honum úr jafnvægi og í mótum ársins hefur hann oft sýnt afburðaakstur. Hann er vei að titlinum kominn, hefur unnið tvo sigra og verið í fremstu röð í öðrum mótum. í næst síðustu keppni hrundi vélin í jeppa hans og hann lagði nótt við dag til að koma henni í lag fyrir lokaslaginn. „Það er sérstök tilfinning að vinna titilinn, ánð hefur verið erfítt og mótin mörg. Ég vann alla vikuna við að raða saman vélinni, tók mér alveg frí daginn fyrir keppni til að ná þessu. í byrjun tímabils var Ein- ar Gunnlaugsson skæðasti keppi- nauturinn, en síðan kom Þóiir Schi- öth sterkur inn í myndina. Ég hélt þó ró minni og ók góðum jeppa. í lok keppnistímabils spila margir smáir hlutir stóran þátt og hvert stig sem maður missir skiptir máli. Þá skiptir miklu máli að fylgjast með öðrum í þrautum og sjá hvern- ig þær breytast til að velja svo réttu aksturslínuna fyrir sjálfan sig. Þetta heppnaðist best hjá mér þetta árið,“ sagði Gísli. í flokki götujeppa börðust sem fyrr Ragnar Skúlason og Þorsteinn Éinarsson. Ragnar var búinn að koma sínum jeppa í lag eftir tvær veltur í keppninni á undan og tilbú- inn að slást við Þorstein um sigur. Sá síðarnefndi var hinsvegar kom- inn með báðar hendur á titilinn fyr- ir keppni. Ragnar sætti sig hinsveg- ar ekki við að missa titilinn, vildi túlka reglurnar á annan hátt og kærði stigajöf til handa Þorsteini í sjálfri keppninni. „Ég skil ekki alveg röksemdir Ragnars og fínnst hann bara vera að klóra í bakkann. Við höfum keppt drengilega á árinu og mér finnst óþarfi að enda árið með þessu klóri. Það er varla svona sárt að missta titilinn, þó það sé ljúft að fá hann í hendurnar í fyrsta skipti. Það hef- ur verið mikið af kærumálum á mótum ársins og við torfærumenn þurfum að setjast niður og laga reglur og dómgæslu með mótshöld- urum. Það er engum greiði gerður með að allt sé í lausu lofti. En þessi titill er minn og var það fyrir þessa keppni,“ sagði Þorsteinn. Hann lét ekkert hindra sig í keppni helgarinnar og vann góðan sigur. Stuttu síðar var hann kominn upp í skreyttan vörubíl, þar sem hann og Ingibjörg Reynisdóttir voru gefin saman með pompi og prakt. Fjöldi fólks fylgdist með athöfninni, sem vakti mikla lukku og setti skemmtilegan svip á keppnina. Að athöfninni lokinni stukku konur keppenda um borð í vélfákana og kepptu. Þijár urðu jafnar að stigum, en úrslitin urðu þau að keppandinn nýgifti, Ingibjörg Reynisdóttir, vann; ákveðið var að hún fengi sig- urinn í brúðargjöf. Vetrartímiim hjá SJÓVÁ-ALMENNUM er frá níu til fimm Gunnlaugur Rögnvaldsson SIGUR, bæði í flokki götujeppa og sérútbúinna, innsiglaði Is- landsmeistaratitla þeirra Gísla G. Jónssonar og Þorsteins Einars- sonar í síðustu torfæru ársins. Torfæra Olís og Jeppaklúbbs Reykjavíkur fór fram í Jósepsdal og var skemmtilegur endapunkt- ur á stormasömu keppnistímabili, en slapp þó ekki við kæru, sem virðist orðin viðtekin venja í akt- ursíþróttamótum. Greinilegt að hrista þarf upp í skipulagi dóm- gæslu og reglum af hálfu Lands- sambands íslenskra aksturs- íþróttafélaga. Konurnar mýktar Engu að síður var létt yfir mann- skapnum á torfærumótinu. Konur keppenda léku á als oddi eftir keppni og stýrðu farartækjum manna sinna í tveggja þrauta kvennakeppni. Gár- ungarnir sögðu keppendur hafa skipulagt kvennakeppnina til að húsbændumir ættu auðveldarara með að fá leyfi til keppni fyrir næsta keppnistímabil, því þátttaka í tor- færumótum er tímafrek og kostar sitt. Konurnar nutu hinsvegar að kynnast íþrótt manna sinna og mátti sjá ákveðinn svip og einbeitt augu hjá þeim, engu síður en hjá karlmönnunum, sem höfðu lokið síð- asta torfærumóti ársins. Þrír áttu möguleika á meistaratit- ili í sérútbúna flokknum fyrir keppn- ina; Einar Gunnlaugsson frá Akur- eyri, Þórir Schiöth frá Egilsstöðum og Gísli G. Jónsson frá Þorlákshöfn. Dagurinn byrjaði ekki vel hjá Þóri Schiöth, því sjálfskipting bilaði ein- um og hálfum tíma fyrir keppni. Hún var rifin úr af aðstoðarmönnum og síðan var brunað með hana á Selfoss til Ljónstaðarbræðra, sem eru þekktir jeppamenn. Nokkrum mínútum áður en Þórir átti að vera mættur í fyrstu brautina kom sjáif- skipting í lagi, bræðumir höfðu skrúfað réttu blönduna saman og Þórir gat þeyst af stað. Hann náði forystu í keppninni eftir fyrstu þrautirnar og það fór að fara um helstu andstæðinga hans. Með sigri gat hann orðið meistari. En Adam var ekki lengi í Paradís. Brotinn afturöxull setti strik í reikninginn þegar ró úr drif- búnaðinum týndist og engin til vara fannst. Hrapaði Þórir úr fyrsta sæt- inu í næstu þraut, þar sem drifbún- f. Meistarinn Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson GÍSLI G. Jónsson í faðmi áhorfenda í Jósepsdal, en torfæra er vinsælasta akstursíþróttagreinin hérlendis. Afslappaður ANDSTÆÐINGAR meistarans telja með ólíkindum hve rólegur Gísli er í keppni og hér sést hann geispa hin rólegasti fyrir eina þraut. Aðrir keppendur eru venjulega mjög taugastrekktir fyrir hverja þraut, maginn í hnút og adrenalínið flæðir frjálslega. aðurinn virkaði ekki sem skyldi. Það var ekki fyrr en undir lokin sem hann náði að sýna sitt rétta andlit, eftir að hafa tjaslað saman aftur- hjólabúnaðinum. Þá var hann búinn að missa af lestinni í keppninni um Islandsmeistaratitilinn, því Einar og Gísli voru komnir langt framúr að stigum. Einar óheppinn Óheppni Einars Gunnlaugssonar ríður ekki við einteyming. í síðustu mótum hefur allt gengið á afturfót- Meistarabrúðhj' ónin BRÚÐHJÓNIN Þorsteinn og Ingibjörg giftu sig eftir að hafa innsiglað meistaratitilinn í flokki götujeppa í torfæru. unum hjá honum, eftir að hann náði Gísla að stigum til meistara og sigldi framúr í einni keppni. Hvers kyns bilanir hafa hijáð hann og í næst síðustu þraut missti hann Gísla of langt frá sér í stigum. Þá lak loft úr hægra framhjóli í miðri Haustið er komið og veturinn nálgast óðum. Hjá SJÓVÁ-ALMENNUM skiptum við yfir í vetrarafgreiðslutíma sem er frá klukkan níu til fimm. Vetrartíminn gildir frá 15. september til 1. maí. Islandsmót í torfæruakstri Signr innsiglaði Is- landsmeistaratitlana Akstursíþróttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.