Morgunblaðið - 05.10.1993, Blaðsíða 1
64 SIÐUR B
225. tbl. 81.árg. ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTÓBER1993 Prentsmiðja Morgunblaðsins
Mikið mannfall í Moskvu í bardögum stj órnarher sins við vopnaðar sveitir harðlínuaflanna
Uppreisn kommúnista og
þjóðemissinna bann niður
Rútskoj og Khasbúlatov færðir í Lef-
ortovo-fangelsið Leyniskyttur enn á
þökum nokkurra háhýsa í borginni
Moskvu. Reuter, The Daily Telegraph.
BARIST var í Moskvu í gærkvöldi og ferilkúlur lýstu upp næturhimin-
inn er stjórnarhermenn freistuðu þess að yfirbuga leyniskyttur harð-
línumanna, sem tekið höfðu sér stöðu á þökum háhýsa í nágrenni
Hvíta hússins, aðsetri þingheims, sem brann líkt og kyndill í miðborg.-
inni. Síðdegis í gær gengu leiðtogar harðlínuaflanna, þeir Rúslan Khasb-
úlatov þingforseti og Alexander Rútskoj, sem þingið hafði skipað for-
seta, út úr húsinu og gáfust upp. Þeir voru fluttir í Lefortovo-fangelsið
í Moskvu. Sagði talsmaður Borís Jeltsíns forseta að Rússar gætu ekki
fyrirgefið föðurlandssvik. Fyrr um daginn hafði uppgjörið í valdabar-
áttu Jeltsíns forseta og harðlínumanna á þingi náð hámarki er mið-
borg Moskvu varð að blóði drifnum vígvelli.
Byggingar nötruðu undan
sprengjukúlum og vélbyssugelti þeg-
ar sérsveitir hers og innanríkisráðu-
neytis gerðu árás á Hvíta húsið í
gærmorgun. Um klukkan tvö að ís-
lenskum tíma þegar áætlað var að
hundruð manna hefðu fallið í Hvíta
húsinu gengu þingmenn og aðrir
þeir sem haldið höfðu uppi vörnum
í byggingunni út, margir með hendur
yfir höfði sér til merkis um að þeir
hefðu gefist upp. Þrátt fyrir að enn
væri barist þótti ljóst í gærkvöldi að
vegna stuðnings hersins við forset-
ann hefði uppreisn harðlínukommún-
ista og öfgafullra þjóðernissinna,
„októberbyltingin síðari“, runnið út
í sandinn eftir harðvítugustu götu-
bardaga í sögu Moskvu á þessari öld.
Sjö hundruð sérsveitamenn
Um klukkan sjö að Moskvutíma í
gærmorgun (ijögur um nótt að ísl.
tíma) er borgarbúar voru margir
hveijir að búa sig undir að halda til
vinnu gerðu sérsveitir herafla Rúss-
lands og innanríkisráðuneytisins árás
á Hvíta húsið í samræmi við sérstaka
tilskipun Jeltsíns forseta. Sveitimar
mættu mikilli mótspymu af hálfu
varnarsveita harðlínumanna sem
búnar voru sjálfvirkum hríðskota-
rifflum. Að sögn stjórnvalda tóku
um sjö hundruð sérsveitamenn þátt
í árásinni og voru þeir studdir tíu
skriðdrekum og enn fleiri brynvögn-
um. Nokkrir skriðdrekanna tóku sér
stöðu við bakka Moskvufljóts og
skutu þeir sprengjukúlum á efri
hæðir Hvíta hússins sem er 19 hæð-
ir. Á sama tíma brutu hermenn sér
leið inn í húsið og náðu tveimur
neðstu hæðunum án teljandi mót-
spyrnu. Árás skriðdrekasveita og
hermanna stóð yfir í um sex kiukku-
stundir en sóknarþunginn var minnk-
aður um klukkan eitt að íslenskum
tíma. Að sögn talsmanna stjómvalda
var það gert til að koma í veg fyrir
enn meira blóðbað. Hermálaráðgjafi
Jeltsíns, Dmítrí Volkogonov, sagði
að áætlað væri að 500 manns hefðu
fallið í Hvíta húsinu og kvað hann
mannfallið einkum hafa verið í röðum
uppreisnarmanna. Síðar um daginn
isagði hann þessa tölu „stórlega
ýkta“. Lík var víða að sjá á neðstu
hæð þinghússins og í nágrenni við
það er húma tók að kvöldi á þessum
fallega haustdegi í Moskvuborg.
Borís Jeltsín forseti flutti ávarp
til rússnesku þjóðarinnar í gærmorg-
un þegar árásin var hafin. Forsetinn
var þungur á brún en virtist í góðu
jafnvægi er hann hvatti landsmenn
til að styðja herinn og stjórnvöld í
aðgerðum þessum. Hann kvað valda-
rán hafa verið reynt í Rússlandi og
vísaði til árásar harðlínumanna á
Hvíta húsið, skrifstofur borgarstjórn-
ar og sjónvarpsstöð Rússlands á
sunnudag sem kostaði, eftir því sem
næst verður komist, um 70 manns
lífið. Forsetinn harmaði mannfallið,
kvað ábyrgðina liggja hjá leiðtogum
harðlínuafla og sagði að nauðsynlegt
hefði reynst að binda endá á „upp-
reisn kommúnista og fasista".
Nokkru eftir að árásin hófst komu
þeir Khasbúlatov og Rútskoj boðum
til Jeltsíns í gegnum ótiltekið sendi-
ráð þess efnis að þeir væru tilbúnir
til að gefast upp fengju þeir að haida
lífi. Þeir óskuðu einnig eftir því við
utanríkisráðherrafund EB-ríkja í
Lúxemborg að öryggi þeirra yrði
tiyggt. Að sögn fréttamanns Reuters
í Hvíta húsinu sást Khasbúlatov sitja
með skakkt bindið og muldra: „Mér
datt aldrei í hug að hann [Jeltsín]
myndi gera þetta. Hvers vegna kem-
ur enginn okkur til hjálpar?“ Rútskoj
átti símtal við Valeríj Zorkín, for-
mann stjórnlagadómstólsins: „Þeir
eru morðingjar, þeir skjóta á fólkið
og aka yfir það á skriðdrekum. Ef
þú ert kristinn maður verður þú að
gera eitthvað,“ öskraði Rútskoj. Tylft
barna á aldrinum 11-15 ára með
merki ungliðahreyfingar Sovétríkj-
anna gömlu var við glugga þinghúss-
ins og gáfu ungmennin skýrslu um
liðsafnað hermanna. Ungur maður
varaði þau við að borða: „Ef þið
borðið og fáið skot í magann eru
minni líkur á að þið lifið af.“
Útgöngubann
Þrátt fyrir hættuna fylgdust þús-
undir manna með átökunum og frétt-
ir hermdu að margir hefðu komist
inn í þinghúsið og framið þar rán
og gripdeildir er barist var á hæðun-
um fyrir ófan. ískrið í beltum skrið-
drekanna rann saman við vélbyssu-
gelt og sprengingar er hleðslur úr
þungavopnum sprungu þegar þær
hæfðu þinghúsið. í gærkvöldi var enn
barist við húsið en útgöngubann
gekk í gildi í Moskvu, samkvæmt
tilskipun Jeltsíns, klukkan 8 að ísl.
tíma í gærkvöldi.
Sjá einnig fréttir og viðtöl á
bls. 26, 27 og á miðopnu.
Reuter
Uppreisn í andarslitrunum
ALEXANDER Rútskoj, búinn herklæðum og strigaskóm, situr í reykjarkófi í Hvíta húsinu um
miðjan dag í gær, skömmu áður en hann gafst upp ásamt Rúslan Khasbúlatov. Rútskoj hefur
hafst við í húsinu nær óslitið frá því að Jeltsín rauf þingið, hinn 21. september.
Clinton frestar refsiaðgerðum
Boston. Frá Karli Blöndal, fréttaritara Morg'unblaðsins.
BILL Clinton Bandaríkjaforseti lýsti í gær yfir því að hann hygðist
fresta refsiaðgerðum á hendur Norðmönnum um óákveðinn tíma.
Forsetinn sagði um leið að hval- legs eðlis að þær réttlættu við-
veiðar Norðmanna væru það alvar- skiptabann og þvi hefði hann fyrir-
skipað að skrá yrði gerð yfir mögu-
legar þvingunaraðgerðir, þar á
meðal listi yfir norskar sjávarafurð-
ir sem hægt væri að setja á inn-
flutningsbann.