Morgunblaðið - 05.10.1993, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 05.10.1993, Blaðsíða 4
- 4 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTÓBER 1993 Skýrsla sem Olafur Olafsson landlæknir hefur tekið saman Morð og manndráp jukust um 90% með sjónvarpinu Oskað eftir að fjölmiðlar takmarki sýningu á ofbeldismyndum í SKÝRSLU sem Ólafur Ólafsson landlæknir tók saman um áhrif sjónvarps- og myndbandaofbeldis á börn og ungl- inga kemur fram að morðum og manndrápum á Islandi fjölgaði um 90% á árunum 1971-1990 miðað við tímabilið 1950-1970. Þetta er meðal annars rakið til áhrifa ofbeldis- mynda í sjónvarpi, en sjónvarpsútsendingar hófust hér á landi 1966. í skýrslunni segir að þó margt hafi breyst í skólum til batnaðar sé enn vaxandi áreitni og jafnvel ofbeldistilhneiging þar verulegt áhyggjuefhi foreldra og kennara. Nú geri börn og unglingar ekki upp sakirnar vegna meintra ávirð- inga „maður gegn manni“ heldur islausu og jaðri oft við misþyrm- ingu, sem ekki hafi tíðkast áður. Erlendar rannsóknir í skýrslunni er vitnað til er- lendra rannsókna sem gerðar voru til að fá úr því skorið hve almenn áhrif sjónvarps- og myndbandaof- beldis eru. í bandarískri rannsókn kom í ljós að 22-36% fanga sem dæmdir höfðu verið fyrir ofbeidis- verk höfðu framið ofbeldisverk sem voru nákvæm eftirlíking á senum úr ofbeldismyndum í sjón- varpi. Birtar voru niðurstöður af rannsókn á föngum dæmdum vegna ofbeldis og samanburður gerður við aðra sem ekki höfðu hlotið dóm fyrir ofbeldisverk. Eftir að hafa tekið tillit til hugsanlegra samverkandi þátta, ofbeldis í heimahúsum, vímuefnaneyslu, árangurs í skóla o.fl., kom í ljós greinileg fylgni milli ofbeldisverka á fullorðinsárum og áhorfs ofbeld- ismynda í sjónvarpi í æsku. Tilmæli landlæknis Þá kemur fram í skýrslunni að í Bandaríkjunum og Kanada fjölg- aði morðum um nær 100% 15-20 Manndráp af ásetningi á íslandi lBfc* 7/5 frá 1945 4/6 Annars staðar á landinu----- árum eftir að sjónvarp hélt innreið sína. Barnalæknasamtök í Banda- ríkjunum hafa ráðlagt að sjón- varpsáhorf barna verði takmarkað við 1-2 klukkustundir á dag. Hér á landi hafa Slysavarnaráð Islands og landlæknir skrifað fjölmiðlum og óskað eftir að sýningar á of- beldismyndum verði takmarkaðar eftir mætti. 10% útgjalda í afborganir og vexti , Á TÍMABILINU 1980 til 1988 námu heildarskuldir opin- . berra aðila hér á landi að jafn- aði um 30% af landsfram- leiðslu en frá þeim tíma hefur | skuldahlutfallið hækkað stöð- ugt og er talið að það fari í 51% á þessu ári. Skuldir hins opinbera í OECD-ríkjunum hafa hins vegar aukist úr 53% í 66% af landsframleiðslu á sama tíma og er skuldaaukn- ing hins opinbera hér á landi því mun örari og hafa vaxta- greiðslur og afborganir af skuldum ríkissjóðs aukist sam- hliða. Á síðasta ári fóru 7,5% af út- gjöldum ríkissjóðs til greiðslu af- borgana og vaxta af lánum. Á þessu ári er reiknað með að hlut- | fallið fari í tæplega 9% og á næsta ári er áætlað að vaxtagreiðslur og afborganir nemi rúmlega 10% af L heildarútgjöldum ríkissjóðs. VEÐUR VEÐURHORFUR I DAG, S. OKTOBER YFIRLIT: Yfir Norðaustur-Grænlandi er 1.035 mb hæð en skammt vest- ur af Irlandi er víðáttumikil 976 mb lægð, sem þokast austur. Heidur kólnar í veðri. SPÁ: Norðaustangola og léttskýjað um vestanvert landið en norðaustan- kaldi og slydduél á stöku stað norðaustanlands. Einnig léttskýjað um allt sunnanvert landið. Kalt vestanlands en sæmilega hlýtt sunnanlands yfir hádaginn. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR A MIÐVIKUDAG, FIMMTUDAG OG FÖSTUDAG: Útlit er fyrir háþrýstisvæði yfir landinu og því verður vindur hægur. Þurrt um land allt og víða verður léttskýjað. Hiti 6-10 stig að deginum, en á stöku stað inn til landsins kólnar niður fyrir frostmark yfir nóttina. Nýír veðurfregnatímar: 1.30, 4.30, 7.30, 10.45, 12.45, 16.30, 19.30, 22.30. Svarsími Veðurstofu fslands - Veðurfregnir: 990600. o Heiðskírt r r r r r r r r Rigning Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað * r * * / r * r Slydda * * * * * * * * Snjókoma Alskýjað * V V V Skúrir Slydduél Él Sunnan, 4 vindstig. Vindörin sýnir vindstefnu og fjaðrirnar vindstyrir, heil fjöður er 2 vindstig. 10° Hitastig V Súld = Þoka >tig.. FÆRÐA VEGUM: m. 17.30f««, Þjóðvegir landsins eru flestir í góðu ásigkomulagi og greiðfærir. Víða er þó unniö að vegagerð og þurfa vegfarendur að haga akstri sam- kvæmt merkingum þar. Hálendisvegir eru færir fjailabílum, Gæsavatna- leið fær til austurs frá Sprengisandi. Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í síma 91-631500 og á grænni línu, 99-6315. Vegagerðin. VEÐUR VIÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma hiti veður Akureyri 2 alskýjað Reykjavlk 8 léttskýjað Bergen 10 súld Helsinki 9 rigning Kaupmannahöfn 13 þokumóða Narssarssuaq S alskýjað Nuuk 4 rigning Ósló 8 rigning Stokkhólmur 12 þokumóða Þórshöfn 10 alskýjað Algarve 20 iéttskýjað Amsterdam 15 skýjað Barcelona 21 léttskýjað Berlín 17 léttskýjað Chicago 13 heiðsklrt Feneyjar 19 heiðskírt Frankfurt 12 rigning Glasgow 13 skýjað Hamborg 15 skýjað London 15 skýjað LosAngeles 18 þokumóða Lúxemborg 11 súld Madríd 20 léttskýjað Malaga 25 léttskýjað Mallorca 24 iéttskýjað Montreal 11 rigning New York 13 léttskýjað Orlando 21 hálfskýjað París 19 léttskýjað Madelra 23 skýjað Róm 22 léttskýjað Vín 13 rlgning Washington 11 heiðskírt Winnipeg 0 léttskýjað / DAG kl. 12.00 Heimild: Veðurstota Islands (Byggt á veðurspá kl. 16.15 í gær) Eigendur St. Bernharðshvolpa Keyptu kött- inn í sekknum EIGENDUR sjð vanskapaðra St. Bernharðshvolpa, allra úr sama goti, telja sig svikna í viðskipt- um við seljandann, sem þeir keyptu dýrin af á allt að 150 þúsund krónur. Þrír hvolpanna hafa verið deyddir vegna van- sköpunar á mjaðmalið sem talið er að sögn Guðgeirs Magnússon- ar, eins hundaeigendanna, að rekja megi til erfðagalla, en tal- ið er að hvolparnir séu afkvæmi skyldleikaræktunar og annað got sömu foreldra sem farist hafi fyrir að miklu leyti. Að sögn Guðgeirs Magnússonar, talsmanns hundaeigendanna, eru hvolparnir fæddir í kringum mán- aðamótin október/nóvember í fyrra og flestir keyptir um það bil tveggja mánaða gamlir um jólaleytið og fljótlega hafi komið í ljós, að sögn Guðgeirs, að hvolparnir voru undan feðginum og að um er að ræða annað gotið undan þeim á skömm- um tíma. Guðgeir segir sérfræð- inga hafa tjáð hundaeigendunum að við mikla og öra skyldleikarækt- un magnist upp erfðagallar. Ljóst sé að sjö af tólf hvolpum úr þessu goti séu vanskapaðir um mjaðmal- ið, þannig að þeir eiga erfitt um gang, og/eða séu þeir með van- skapaða kjálka sem lýsi sér í skúffukjafti. Þrír hundar úr gotinu eru heilir en óvíst er um afdrif tveggja. Þrír hinna vansköpuðu hafa verið svæfðir og sömu örlög bíða fleiri af þessum hundum á næstunni að sögn Guðgeirs. Morgunblaðið/Kristinn GUÐGEIR Mágnússon ásamt tíkinni sinni, Söru, sem verður aflífuð einhvern næstu daga vegna vansköpunar. Ekki brot á dýra- verndunarlögum Guðgeir Magnússon segir að hvolpaeigendurnir hafi myndað samtök um að gæta réttar síns gagnvart seljendunum og einnig hafi þeir sett sig í samband við Hundaræktunarfélagið. Hann segir að Hundaræktunarfélaginu hafi verið kunnugt um að um skyid- leikaræktun á lélegum stofni væri að ræða og hefur eftir forsvars- mönnum félagsins að það hafi gert seljandanum grein fyrir því að af- kvæmin fengjust ekki ættbókar- færð. Hins vegar hafi félagið ekki talið sér fært að grípa inní- eða stöðva viðskiptin fyrirfram. Kosningu í fastanefndir þingsins frestað Rætt um breytt þing- sköp og verkaskiptingu KOSNINGU í fastanefndir Alþingis hefur verið frestað fram á mið- vikudag vegna viðræðna formanna þingflokka um þingsköp og verka- skiptingu innan nefndanna. „Við, formenn þingflokka, höfum átt fundi um hvort raunhæft sé að hugsa sér einhveijar breytingar á þingskapalögunum að því er varðar ræðutíma og umræður um þingsköp. Svo höfum við jafnframt rætt mögu- leika á því að gera einhverjar breyt- ingar á verkaskiptingu milli stjórnar og stjórnarandstöðu í einhveijum þingnefndum," sagði Geir H. Haarde, formaður þingflokks sjálfstæðis- manna, þegar við hann var rætt. Hann sagði að viðræðum yrði haldið áfram í dag Þegar Geir var spurður um hvað rætt væri að veita stjórnarandstöðu formennsku í mörgum nefndum sagði hann að það væri ekki alveg komið á hreint. Hann kvaðst bjartsýnn á að samkomulag næðist fýrir morgun- daginn. Þingsköp Alþingis gera ráð fyrir að kosið sé í 12 nefndir þingsins eða svokallaðar fastanefndir, á fyrsta þingfundi. t
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.