Morgunblaðið - 05.10.1993, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 05.10.1993, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTÓBER 1993 55 Rekstrarhalli ríkis- sjóðs verði 9,8 milljarðar króna FJÁRLAGAFRUMVARPIÐ fyrir árið 1994 gerir ráð fyrir 9,8 milljarða króna halla á ríkissjóði, eða fimmtungi minni halla en á yfirstandandi ári og nemur hann 2,5% af lands- framleiðslu, samanborið við 3,2% á þessu ári. Hrein lánsfjár- þörf ríkissjóðs er áætluð 12 milljarðar. Heildartekjur ríkis- sjóðs eru áætlaðar 103,5 milljarðar og lækka um rúmlega 1 milljarð að raungildi frá yfirstandandi ári en skatttekjúr lækka meira, eða um 1,5 milljarða kr. Heildarútgjöld verða 113,3 milljarðar og lækka að raungildi um ríflega 3,5 millj- arða frá endurskoðaðri áætlun þessa árs, eða um rúmlega 3% milli ára. Tekjur og gjöld ríkissjóðs 1993 og 1994* Áætlun Frumvarp TEKJUR: 1993 1994 * skv áætlun 1993 og Tekju- og eignaskattar millj.kr. % millj.kr. % Breyting frá áætlun 1992 frumvarpi tii fjarlaga 1994 Einstaklinga 15.146 14,9 16.910 16,3 I 111,6% Fyrirtækja 4.650 4,6 3.655 3,5 Virðisaukaskattur 40.000 39,4 37.950 36,7 -5.1% I Aðrir skattar 25.592 25,2 26.556 25,7 | j 3^8% Tryggingagjald 9.300 9,2 10.850 10,5 i Aðrar tekjur 6.917 6,8 7.550 7,3 9,2% Samtals: 101.605 100 103.471 100 □ 1,8% GJÖLD: Rekstrarkostnaður 44.200 38,8 42.984 37,9 -2,8% H Tryggingabætur, niður- greiðslur og framlög 43.295 38,0 43.876 38,7 □ 1,3% Vaxtagreiðslur 10.000 8,8 11.700 10,3 I ÍTÖ%1 Viðhald 3.361 2,9 3.267 2,9 -2.8% wm Fjárfesting 13.084 11,5 11.465 10,1 I 112.4% Samtals: 113.940 100,0 113.292 100,0 D 0,6% Laun og önnur rekstrargjöld A- hluta ríkissjóðs eru áætluð 43 millj- arðar og lækka um 5% að raungildi milli ára. Sértekjur stofnana ríkisins eru áætlaðar 6,6 milljarðar, sem er óbreytt milli ára í krónum talið. Heildarlaunagjöld eru áætluð 34,1 milljarður kr. en áætlað er að árs- verkum ríkisstarfsmanna fækki um 1,1% frá fjárlögum þessa árs. Gera á sérstakt átak til að ■ GREIÐSLUR ríkisins vegna mjólkurframleiðslu og sauðfjárframleiðslu lækka sam- tals um 240 milljónir króna milli áranna 1993 og 1994. Gert er ráð fyrir að heildarneysla á mjólkurvörum standi nokkurn veginn í stað milli áranna en neysla á kindakjöti hefur minnk- að verulega að undanförnu og umframbirgðir safnast upp vegna þess að framleiðsla hefur ekki dregist saman í takt við minnkandi neyslu. Gert er ráð fyrir að 55 miiljónum verði veitt úr ríkissjóði tii að ijármagna sérstakt átak í sölu kindakjöts á næsta ári. ■ FJÁR VEITING til bygg- ingar nýs Hæstaréttarhúss verður 185 milljónir á næsta ári samkvæmt íjárlagafrumvarpi en á þessu ári nemur hún 100 milljónum. ■ EMBÆTTI skattstjóra Vestmannaeyja verður lagt niður á næsta ári og starfsemi sem hann hefur haft með hönd- um verður flutt til skattstjóra Suðurlandsumdæmis, að því er segir í fjárlagafrumvarpi fyrir næsta ár. ■ EKKI er gert ráð fyrir að gjaldskrá Ríkisútvarpsins hækki á næsta ári og áætlaður 6 milljóna króna tekjuafgangur hjá stofnuninni. Samt er reiknað með að sala auglýsingatíma dragist saman um 8% til viðbót- ar við þann samdrátt sem orðið hefur á þessu ári. Einnig er gert ráð fyrir að afnotagjöld hjá um 8.000 tryggingaþegum falli niður og einnig eru felld niður afnotagjöld hjá öllum starfs- mönnum útvarpsins sem náð hafa þriggja ára starfsaldri. ■ ÁBURÐARVERÐ á ekki að hækka á næsta ári. Á undan- förnum árum hefur verið unnið að umfangsmikilli hagræðingu í rekstri Áburðarverksmiðj- unnar í Gufunesi sem hefur skilað sér í minni tilkostnaði. Nú skilar rekstur fyrirtækisins 33 milljóna króna arði í ríkissjóð. ■ ÞJÓÐARBÓKHLAÐAN verður tekin í notkun fyrri htuta árs 1995. Áætlað er að 340 milljónir króna innheimtist með sérstökum eignarskatti á næsta ári, sem er svipuð upphæð og á Sessu ári. I ÓVERULEGAR breytingar verða á verði áfengis og tóbaks á næsta ári samkvæmt áætlun- um fjárlagafrumvarpsins. Gert er ráð fyrir að tekjur af sölu áfengis og tóbaks verði 9,4 millj- arðar króna á næsta ári og lækki um 3% frá áætlun fjárlaga 1993. styrkja þjónustu ríkisins við al- menning með sameiningu stofn- ana. I fyrsta áfanga snýr það að embættum sýslumanna og inn- heimtustofnunum ríkisins en áformað er að ná með þeim að- gerðum um 100 millj. kr. sparn- aði á næsta ári. Tryggingabætur og framlög nema 43,9 milljörðum og lækka um 0,7% milli ára en vaxtagreiðslur af lánum ríkissjóðs hækka um 1.700 millj. kr. milli ára eða um 17%. Hækkunin stafar annar vegar af því að innlausn spariskírteina er talin hækka um tæpan milljarð kr. og er áætluð 2,3 milljarðar og hins vega hækka vaxtagreiðsl- ur um álíka fjárhæð vegna fjár- mögnunar á fjárlagahalla yfir- standandi árs. Til viðhalds á byggingum ríkisins verður varið 3,3 milljörðum sem er 25% lækkun frá áætiun yfirstand- andi árs en þar af fara 2,6 milljarð- ar til viðhalds vega. Framlög til fjár- festingar eru áætluð 11,5 milljarðar sem er óbreytt frá fjárlögum þessa árs. Til stofnkostnaðar verður varið 6,8 milljörðum en þar af eru 3 millj- arðar vegna vegagerðar. Ríkiseignir seldar í frumvarpinu er gert ráð fyrir að seldar verði eignir rikisins fyrir 500 millj. kr. á næsta ári en þar segir einnig að nú þyki sýnt að eignasala skili ríkissjóði ekki nema 100 millj. kr. á yfirstandandi ári en ekki 1.500 millj. eins og frum- varp þessa árs gerði ráð fyrir. Atvinnutry ggingagj ald innheimt hjá fyrirtækjum og launþegum Iðgjald einstaklinga verði 0,5% af launum TIL AÐ styrkja fjárliagsstöðu Atvinnuleysistryggingasjóðs og mæta um leið hluta af tekjutapi ríkissjóðs vegna áformaðrar lækkunar virð- isaukaskatts af matvælum um næstu áramót, sem talið er verða 2,5 milljarðar kr., hefur ríkisstjórnin ákveðið að innheimta sérstakt at- vinnutryggingagjald af launþegum sem nemur 0,5% af heildarlaunum og að hækka tryggingagjald atvinnurekenda um 0,35%. Til að draga úr áhrifum þessarar gjaldtöku á afkomu tekjulágra barnafjölskyldna verður barnabótaaukinn hækkaður um 150 milljónir króna. Skv. upp- lýsingum fjármálaráðuneytisins á þetta að leiða til þess að fjögarra manna fjölskylda með um 200 þúsund kr. mánaðarlaun verði jafnsett eftir sem áður. Spáð er 5% atvinnuleysi á næsta ári og að heildarbætur Átvinnuleys- istryggingasjóðs verði um 3,6 millj- arðar kr. Framlög ríkissjóð til sjóðs- ins eru áætluð 2.950 millj. kr. og gert er ráð fyrir að tekjur af iðgjöld- um sem launþegum og atvinnurek- endum verði gert að greiða verði alls um 1.650 millj. kr. Þar af nemi iðgjald launamanna um einum miilj- arði kr. en frá þeirri upphæð drag- ast svo auknar barnabætur að upp- hæð 150 millj. kr. Sérfræðingar íjár- málaráðuneytisins sögðu á frétta- mannafundi í gær að heildaráhrif þessara skattabreytinga yrðu þau, að skattar launafólks myndu minnka á næsta ári og kaupmáttur aukast vegna þeirra. Þannig ætti kaupmátt- ur fjögurra manna fjölskyldu með 250 þús. kr. mánaðarlaun að aukast um 0,9% þegar tekið væri tillit til þessara skattabreytinga. Ástæðan væri fyrst og fremst sú að virðis- aukaskattur af matvælum lækkaði um 700-800 milljóna króna hærri upphæð en næmi aukinni skatt- heimtu af álagningu atvinnutrygg- ingagjaldsins. Skattur á skrifstofu- og verslunarhúsnæði fellur niður Stefnt er að upptöku 10% skatts á fjármagnstekjur um mitt næsta ár sem er áætlað að skili 100-150 millj. kr. Persónuafsláttur og barna- bætur verða óbreyttar á fyrri hluta næsta árs en hækka svo um mitt ár í takt við lánskjaravísitölu. í lok síð- asta árs samþykkti Alþingi breyting- ar á lögum um vaxtabætur sem koma til framkvæmda á næsta ári. Talið er að þær muni spara ríkis- sjóði um 400 millj. kr. Þá eru fyrirhugaðar umfangs- miklar breytingar á tekjustofnum sveitarfélaga vegna niðurfellingar aðstöðugjalds á þessu ári. Er annars vegar gert ráð fyrir að útsvar sveit- arfélaga hækki um 1,5% að meðal- tali á næsta ári en tímabundin 1,5% hækkun tekjuskatts ríkisins á þessu ári lækki um sama hlutfall um ára- mótin. Þá mun skattur á verslunar- og skrifstofuhúsnæði falla niður sem þýðir um 500 millj. kr. tekjutap fyr- ir ríkissjóð en á móti er gert ráð fyrir að sveitarfélög hækki fasteig- nagjöld af atvinnuhúsnæði um svip- aða upphæð en endanleg útfærsla iiggur ekki fyrir. Tekjuskattur fyrir- tækja mun lækka úr 3 milljörðum á þessu ári í 2,5 milljarða 1994 sem m.a. stafar af því að lækkun skatt- hlutfallsins lækkar úr 39% í 33% um næstu áramót. Miklar tollalækkanir á iðnaðar- vörum eru áformaðar vegna gildis- töku EES-samningsins um næstu áramót en fyrirsjáanlegu tekjutapi vegna þeirra verður að mestu mætt með álagningu vörugjalda. Því til viðbótar er gert ráð fyrir hækkun á vörugjaldi gosdrykkja og sælgætis til að vega á móti áformaðri lækkun virðisaukaskatts af matvælum úr 24,5% í 14%. Landsútsvar sem olíufélögunum hefur verið gert að greiða og runnið hefur í Jöfnunarsjóð sveitarfélaga verður fellt niður á næsta ári en á móti hækka vörugjöld á bensíni sem á að skila 125 millj. kr. viðbótartekj- um á næsta ári. Nýjar lántökur verða 12 milljarðar króna Lántökum ekki lengur skipt í innlendar og erlendar HEILDARLÁNSFJÁRÞÖRF ríkissjóðs er áætluð 27,9 milljarðar króna á næsta ári. Greiddar afborganir af teknum lánum nema 15,9 milljörð- um, samanborið við 6,2 milljarða á þessu ári en hækkunin milli ára stafar aðallega af uppgreiðslu dollaraláns hjá Citibank sem nemur um 7,5 milljörðum kr. Einnig eykst innlausn spariskírteina um 2,5 milljarða milli ára að talið er. Hrein lánsfjárþörf ríkissjóðs, þ.e. nýjar lántökur umfram afborganir af eldri lánum, árið 1994 er því talin verða 12 milljarðar króna, samanborið við 14 milljarða árið 1993. Hrein lánsfjárþörf ríkissjóðs og annarra opinberra aðila (húsnæðis- kerfisins, fjárfestingarlánasjóða og opinberra fyrirtækja) dregst nokkuð saman milli ára, en hún er talin verða 23 milljarðar kr. árið 1994, 3 milljörðum kr. minni en á yfirstand- andi ári. Eru heildarlántökur hins opinbera á næsta ári áætlaðar um 64 milljarðar kr. og afborganir 41 milljarður. Allar lántökur á markaði Með frumvarpi til lánsfjárlaga verður horfið frá því að skipta lán- tökuheimildum í innlendarogerlend- ar sérstaklega og verður leitað lán- tökuheimilda fyrir ríkissjóð, ríkisfyr- iitæki og ríkislánastofnanir til nota innanlands eða utan eftir því sem aðstæður á markaði leyfa hvetju sinni, en frá og með næstu áramót- um eiga nær allar hömlur á fjár- magnsflutningum milli landa að vera afnumdar. Á næsta ári verður ríkis- sjóður að mæta fjárþörf sinni að fullu á markaði. Ráðgert er að veitt verði ný lán til fyrirtækja og sjóða í B-hluta ríkis- sjóðs á næsta ári að fjárhæð 6,3 milljarðar kr., þar af eru 3,7 milljarð- ar til Lánasjóðs ísl. námsmanna og 2,5 milljarðar til atvinnutrygginga- deilar Byggðastofnunar en áætlað er að innheimtar afborganir af eldri lánum verði 5,1 milljarður. Stofn- framlög ríkisins til alþjóðafjármála- stofnana og til kaupa á hlutabréfum í innlendum fyrirtækjum eru áætluð 500 millj. kr. á næsta ári en þar á meðal er óskað eftir heimild þingsins til 200 millj. kr. hlutafjárframlags í íslenska járnblendifélaginu. Aukinn sparnaður Talið er að inniendur spamaður verði um 25 milljarðar kr. á þessu ári, þar af er kerfisbundinn sparnað- ur 17 milljarðar eða fimmtungi minni en á síðasta ári en aukning frjáls sparnaðar verður hins vegar meiri eða 8 milljarðar. Á næsta ári er áætlað að heildarsparnaður verði um 26 milljarðar eða 6,6% af landsfram- leiðslu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.