Morgunblaðið - 05.10.1993, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTÓBER 1993
13
>
I
)
)
)
>
>
:
■
V
í
i
i
i
H
Nýjar bækur
Ljóðabók eftir Jón Dan
TALMYNDIR nefnist ný ljóða-
bók eftir Jón Dan.
í bókinni eru tveir Ijóðaflokkar,
Myndir og vötn og Dagar. í fyrri
flokknum eru 11 myndir, þar af
þijár sem höfundur nefnir talmynd-
ir. í síðari flokknum, sem er ljóða-
bálkur, eru 18 ljóð, 18 myndir með
einu og sama viðfangsefni.
Eftir Jón Dan hafa komið út
nokkrar ljóðabækur, m.a. Berfætt
orð 1967, en hann er kunnastur
fyrir skáldsögur sínar og smásögur.
Meðal þeirra verka eru smásagna-
safnið Þytur um nótt 1956 og skáld-
sögurnar Sjávarföll 1958, Tvær
bandingjasögur 1960 og Atburðirn-
ir á Stapa 1973.
Bókin er 48 síður, unnin í Off-
setfjölritun og kápu gerði Jón
Örn Þorseinsson. Verð 1.197 kr.
Jón Dan
Bjartsýnn
KRISTJÁN Jóhannsson óperusöngvari hefur nú enn meiri ástæðu en
áður tii bjartsýni. Hann brosti líka breitt við móttöku bjartsýnisverð-
launa Bröstes í Kaupmannahöfn síðastliðinn föstudag. Verðlaunin, sem
nema 385.000 íslenskum krónum, hafa síðan 1981 verið veitt íslensk-
um listamanni ár hvert. Hann þarf að hafa sýnt bjartsýni í viðhorfum
og verkum og í frásögn Bröste-fyrirtækisins að þessu sinní segir að
rauði þráðurinn á framabraut Kristjáns sé „per aspera ad astra“ - í
gegnum erfiðleikana til stjarnanna. A myndinni eru Peter Bröste, Sigur-
jóna Sverrisdóttir, Kristján og Poul Jörgensen, sem flutti ávarp við
verðlaunaveitinguna.
Tríó Reykjavíkur
Tónlist
Ragnar Björnsson
Þremenningarnir í Tríói Reykja-
víkur, þau Guðný Guðmundsdóttir,
Gunnar Kvaran og Halldór Haralds-
son hófu 4. starfsárið með tónleik-
um á sunnudagskvöldið í Hafnar-
borg, að venju. Raunar má bæta
einum aðilanum við sem hluthafa í
tónleikaröð þremenninganna, en
það eru þeir mörgu styrktaraðilar
sem með Ijárframlögum gera þessa
tónleika mögulega, eins og Gunnar
Kvaran nefndi í ávarpi sínu. Annars
eru skýringar á verkefnum og höf-
undum vafasamar, eins og flytjend-
ur gáfu að þessu sinni. Inn í slíkar
kynningar geta auðveldlega slæðst
yfirlýsingar sem áheyrendur eru
ekki sammála um eða þurfa a.m.k.
nánari skýringar. Þremenningarnir
höfðu með sér gest, sá var danskur
fiðluleikari, kona með alþýskt nafn,
Elisabeth Zeuthen Schneider. Sú
er kynnt í efnisskrá sem margfald-
ur verðlaunahafi fyrir fíðluleik í
heimalandi sínu, Danmörku. Hefur
komið fram sem einleikari með öll-
um helstu hljómsveitum dönskum,
verið aðstoðarkonsertmeistari í
óperuhljómsveitinni í Kaupmanna-
höfn og nú kennari við Konunglega
Konservatoríið í Kaupinhöfn. Elisa-
beth og Halldór léku fyrsta verk
kvöldsins, Sónatínuna í G-dúr op.
100 eftir A. Dvorak. Strax var auð-
heyrt að Elisabeth er góður fiðlu-
leikari, tónöryggi gott, tónninn
breiður - nokkuð litaður, og sýndi
góða og örugga tækni, t.d. í
scherzo-kaflanum. Hinsvegar náðu
þau ekki langt út fyrir það venju-
lega í flutningi sónatínunnar, nót-
umar voru á sínum stað, en flutn-
ingurinn var um of varkár, líklega
Öryggi ökumanns
og farþega hefur
forgang hjá NISSAN.
Yfirbyggingin er
styrkt sérstaklega
með styrktarbitum
í öllum hurðum.
Komið og reynsluakið
NISSAN Sunny 4x4
Ingvar
Helgason hf.
Sævarhöfða 2
síma 91-674000
Elisabeth Zeuthen Schneider.
eðlilegt, samvinnan of stutt og
fiðluleikarinn bundinn blaðalestri,
sem hlýtur að hefta sveiflun í Dvor-
ak. Hið þekkta G-dúr tríó J. Haydns
var næst á efnisskránni. Þar sýndi
Elisabeth að hún er ágætur kamm-
ermúsiker, hins vegar kom og í Ijós
að ekki hefur náðst að spila sig
saman fyllilega, spilamátinn ekki á
sama fleti, þó náði Rondóið að glitra
á köflum. Píanókvartettinn í g-moll
op. 25 eftir J. Brahms var stórvirki
kvöldsins, í það hafði auðheyrilega
mestur æfingatíminn farið og safa-
ríkur tónn strokhljóðfæraleikar-
anna var þarna sem í heimahögum,
með Halldór sem samnefnara á
Hindsbergflyglinum. Margt skilaði
sér mjög vel í þessum ólíku en
þrungnu fjórum þáttum verksins.
Guðný greip þarna til víólunnar og
skilaði hlutverkinu eins og vænta
mátti, þó vantar ennþá meiri söng
í tóninn. Bestir voru kannske mið-
þættirnir tveir, Andante con moto-
þátturinn mjög fallega mótaður.
Síðasti þátturinn dálítið þunglama-
legur, eins og flytjendurnir ætluðu
sér um of, endurtekningin var þó
miklu afslappaðri mótt metrononinn
hafi aðeins verið færður upp.
NISSAN
Þú ert
öruggari á
nýjum Sunny
4x4
sem kostar
aðeins
kr. 1.461.000.-