Morgunblaðið - 05.10.1993, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 05.10.1993, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTÓBER 1993 29 ÍEISN HARÐLÍNUMANNA Vamarsveitir þingsins yfír- bugaðar á skömmum tíma SÉRSVEITIR rússneska hersins gerðu árás á Hvíta húsið í Moskvu um klukkan sjö að staðartíma. Varnarsveitir harðlínumanna vopnaðar hríðskotarifflum veittu harða andstöðu. Tíu skriðdrekar og fjölmargir brynvarðir bílar aðstoðuðu sérsveitirnar í árásinni. Skutu nokkrir skriðdrekanna sprengikúlum á efri hæðir þing- hússins á meðan hermenn brutu sér leið inn í húsið. Nokkuð var dregið úr sóknarþunganum eftir sex klukkustundir og síðdegis í gær gáfust varnarsveitir þingsins og þingmenn upp. Með þessum blóðugustu bardögum í Moskvu á þessari öld var lokið þessari loka- rimmu í deilum Borís Jeltsíns Rússlandsforseta við fulltrúaþing- ið. Hún hafði staðið í nokkur ár en að mestu leyti farið friðsam- lega fram. A sunnudaginn varð hins vegar ljóst að lokakaflinn yrði blóðugur. ÞÚSUNDIR mótmælenda söfnuð- ust síðdegis á sunnudag saman und- ir Lenínstyttunni á Októbertorgi skammt frá þinghúsinu. Mannfjöld- inn var æstur og krafðist þess að lögreglumenn á svæðinu hyrfu á brott. Er þeir urðu ekki við þeim til- mælum kom til átaka. Mótmælend- urnir voru mun fleiri en lögreglu- mennirnir, um fimmtán þúsund tals- ins, og náðu um hálffjögurleytið að staðartíma að brjóta sér leið að þing- húsinu án þess að mæta teljandi andstöðu. Þegar þangað var komið og Hvíta húsið hafði verið „frelsað" eftir viku umsátur sveita Jeltsíns komu þeir Rúslan Khasbúlatov þingforseti og Alexander Rútskoj varaforseti út til fundar við fólkið. „Allt vald til sovét- anna,“ hrópaði múgurinn er þeir birt- ust. Rútskoj talaði til fólksins úr gjall- arhorni af svölum hússins og sagði það hafa sýnt mikið hugrekki. „Fé- lagar, nú verðið þið að ráðast á skrif- stofu borgarstjórans og Ostankíno [höfuðstöðvar sjónvarpsins]," hróp- aði hann og byijaði að gefa sveitum sínum skipanir. Það tók ekki langan tíma fyrir uppreisnarmennina, vopnaða vél- byssum, að ganga tæplega hundrað metra leið að borgarstjóraskrifstof- unum handan götunnar og upp tröppurnar. Þeir fáu hermenn sem þar voru til varnar veittu enga mót- stöðu. Eftir stuttar samningaviðræð- ur var þeim leyft að fara á brott með því skilyrði að þeir skildu vopn sín eftir. Vörubíl var bakkað inn um aðal- RRUSTÁN UM HVÍTA HUSIÐ Talið er aö allt að 500 manns hafi falliö í bardögum um Hvíta húsiö eftir aö hermenn hliöhollir Jeltsín forseta. réöust á þinghúsiö í gær. Þingmenn og vopnaöir stuðnings- menn þeirra hafa hafst viö í húsinu frá því aö Jeltsín leysti upp þingið 21. september. Eldar á mörgum hæðum eftir sprengjuárásir stjórnarhermanna Mi-24 orruslu- þyrla 1 Rússneska þingið (Hvíta húsið) 2 Mír-hótelið (bráöabirgðahöfuðstöövar hermanna innanríkisráðuneytisins) 3 Bandariska sendiráðið 4 Skrifstofa borgarstjóra Moskvu 5 Hringvegurinn 6 Utanríkisráðuneytið 7 Kreml 8 Rauðatorgið N-' Gangur orrustunnar 3. OKTÓBER 10:50 — Allt að 15.000 stuðningsmenn þingsins brjótast gegnum raðir hermanna við Hvíta húsið. 12:25 - Fyrstu skotunum hleypt af. 13:25 - Mótmælendur brjótast inn í borgarstjóraskrifstofurnar. 14:45 - Jeltsín lýsir yfir neyðarástandi. 16:40 - Uppreisnarmenn vopnaðir eldflauga- vörpum ráðast á sjónvarpshúsið. 21:00 - Uppreisnarmenn hörfa frá sjónvarps- húsinu eftir að 62 menn höfðu látiö lífiö 4. OKTOBER 04:20 - Jeltsín skipar hernum að taka byggingar úr höndum uppreisnarmanna. 04:45 - Hermenn ráðast á Hvíta húsið. 06:35 - Þyrlur vopnaðar eldflaugum umkringja þinghúsið. 06:40 - Skriðdrekar skjóta á þinghúsiö. 08:15 - Rúslan Khasbúlatov, forseti þingsins, segist vil ja semja en ekki gefast upp. 10:15 - Sérsveitir ráðast inn í Hvíta húsið. REUTER dyrnar og vopnaðir menn hlupu inn. Þeir fundu fyrir nokkra aðstoðar- menn borgarstjórans og drógu þá út. Sumir þeirra voru barðir með riff- ilskeftum og mynduðust stórir blóð- pollar á götunni. Aðrir voru teknir í gíslingu og færðir yfir í Hvíta húsið. Einn talsmanna Khasbúlatovs sagði allt að hundrað menn úr sér- sveitum innanríkisráðuneytisins hafa lýst yfir stuðningi við þingmenn og upp úr hálf sex brunuðu brynvarðir bílar, þéttsetnir stuðningsmönnum Rútskojs, í átt til Ostankino. Menn- irnir í bílunum veifuðu rauðum fán- um er þeir lögðu af stað frá þinghús- inu. Sumir þeirra voru vopnaðir byss- um en aðrir veifuðu járnkylfum og virtist sem nokkrir sérsveitarmenn frá innanríkisráðuneytinu væru með- al þeirra. Tuttugu mínútum síðar heyrðist skothríð frá höfuðstöðvum sjónvarpsins er sveitir uppreisnar- manna gerðu árás á sjónvarpsstöðina með eldflaugavörpum og vélbyssum. Ávarp Jeltsíns Borís Jeltsín hafði fyrr um daginn komið með þyrlu frá sumarhúsi sínu til Kreml og lýsti hann því yfir að allar helstu stofnanir landsins styddu hann, innan skamms yrði stillt til friðar. Hann lýsti yfir neyðarástandi í Moskvu skömmu fyrir sex á sunnu- dag, í fyrsta skipti frá því í valdarán- inu í ágúst 1991. Einnig kallaði hann til tvær fallhlífaherdeildir frá borg- inni Tula suður af Moskvu. Nokkram klukkustundum síðar bytjuðu sveitir hliðhollar Jeltsín að streyma til borg- arinnar. „í dag ákvarðast örlög Rússlands og örlög barna okkar. Ofl borgara- styrjaldar munu ekki sigra. Þau eru reiðubúin að koma til valda glæpa- mönnum sem hafa vermt hendur sín- ar í blóði saklausra borgara," sagði forsetinn í yfirlýsingu, sem lesin var upp í sjónvarpi. „Ég trúi á almenna skynsemi okkar og styrk. Við búum yfir þeim kostum í mun ríkara mæli en ævintýramennirnir sem nú skjóta á Moskvubúa," sagði forsetinn. Þá gaf hann einnig út tilskipun þar sem tekið var fram að ef hann léti lífið myndi Viktor Tsjernómyrdín forsætisráðherra taka við völdum. Loks svipti hann Alexander Rútskoj formlega embætti varaforseta og tignargráðum í hernum. Utan höfuðborgarinnar virtust flestir leiðtogar ætla að bíða og sjá hvernig valdabaráttan færi en heim- ildir herma að nær allir yfirmenn heraflans í landinu hafi lýst yfir stuðningi við Jeltsín. í Pétursborg fyrirskipaði hinn fijálslyndi borgar- stjóri Anatolí Sobtsjak hert eftirlit við allar borgarstofnanir til að koma í veg fyrir að þær lentu í höndum uppreisnarmanna. Hart barist við Ostankíno Á meðan var hart barist fyrir utan Ostankíno-sjónvarpsmiðstöðina og stöðvuðust útsendingar stöðvar Samveldisins um hálfáttaleytið. Hjá rússneska sjónvarpinu, sem er í sama húsi, var sett upp neyðarfréttamið- stöð og tilkynningum frá Jeltsín og ráðherrum hans sjónvarpað um va- rasendi. Fremstir í liði uppreisnarmanna voru menn úr hinum nýnasísku sam- tökum Rússnesk þjóðarsamstaða, vopnaðir Kalashníkov-vélbyssum. Til varnar í sjónvarpshúsinu voru menn úr OMON-sérsveitum lögreglunnar. í forystu sveita uppreisnarmanna var Albert Makasjov hershöfðingi og í samningaviðræðum við varnarliðana reyndi hann að fá þá til að gefast upp. Mikil spenna ríkti í Moskvu þegar hér var komið sögu og í samtali við útvarpsstöðina Ekho Moskvy sagði Jegor Gajdar aðstoðarforsætisráð- herra að hann óttaðist að hið „blóð- uga, brúna tjald fasismans" myndi falla yfir Rússland ef uppreisn kommúnista og fasista heppnaðist. Þúsundir stjórnarandstæðinga söfnuðust saman fyrir utan sjón- varpshúsið á meðan um það var bar- ist og hvöttu uppreisnarmenn til dáða. Gengu gamlar konur á milli rnanna og afhentu þeim tómar flösk- ur til að útbúa bensínsprengjur, svo- nefnda molotov-kokkteila. „Gerðu eitthvað. Við verðum að bjarga börn- unum okkar,“ hrópaði ein konan er hún þrýsti flösku í lúku vestræns blaðamanns. Margir í mannþröng- inni voru með skildi sem þeir höfðu náð af óeirðalögreglumönnum í átök- um fyrr um daginn. Margir virtust einungis hafa komið af forvitni til að fylgjast með því sem var að ger- ast. Aðrir virtust líka hafa óljósar hugmyndir um tilgang bardaganna. „Ég styð hvorki Rútskoj, Khasbúl- atov né Jeltsín. Mér finnst bara að við verðum að gera eitthvað til að stöðva upplausn samfélags okkar,“ sagði maður á þrítugsaldri, vopnaður lögregluskildi og járnstöng. Um tíuleytið komu fimm herbílar með 200 sjálfboðaliða til viðbótar að sjónvarpshúsinu til að aðstoða and- stæðinga Jeltsíns. Hermenn hliðholl- ir forsetanum byijuðu skömmu síðar að streyma að húsinu og beijast við uppreisnarmenn. Um miðnætti komu um 300 stjórnarhermenn að sjón- varpshúsinu og réðust inn í húsið eftir stutta skothríð. Stóð þá hluti jarðhæðarinnar í ljósum logum og uppreisnarmennirnir flúðu. Tóku hermennirnir sig til og afvopnuðu alla stuðningsmenn Rútskojs sem í náðist við sjónvarpshúsið. Við og við heyrðust skot fram eftir nóttu en uppreisnarmennirnir gerðu ekki aðra árás. í gær var því lýst yfir að alls hefðu sextíu og tveir fallið í bardag- anum um sjónvarpshúsið. í fréttatilkynningu á ensku, sem gefin var út aðfaranótt mánudags- ins, sagði fréttastofan Interfax að fréttastofan hafi verið frelsuð af „sérsveitum“ eftir að hafa verið um hríð á valdi uppreisnarmanna. Spennan magnast Upp úr miðnætti á sunnudag byij- uðu þúsundir stuðningsmannna Jeltsíns að safnast saman fyrir utan ráðhús Moskvu til að sýna honum stuðning í verki. „Jeltsín, Jeltsín," hrópaði fólkið og margir höfðu búið til bensínsprengjur. í Hvíta húsinu, síðasta vígi upp- reisnarmanna eftir að baráttunni um sjónvarpshúsið lauk, lýsti Rútskoj yfir „útigöngubanni". Var þeim stuðningsmönnum hans, sem voru í húsinu, bannað að fara milli hæða eða um ganga hússins þangað til klukkan sjö um morguninn. Fyrir utan húsið biðu um þúsund stuðn- ingsmenn þingsins yfir nóttina eftir því að stjórnarherinn réðist til at- lögu. „Við erum að búa okkur undir bardaga,“ sagði háskólaneminn Alexander sem vann hörðum hönd- um við að fylla flöskur af bensíni. Aðrir voru önnum kafnir við að reisa götuvígi. „Við munum beijast til síð- asta blóðdropa," sagði Júrí, miðaldra maður í herklæðum. Töluverð um- ferð herbifreiða var um borgina yfir nóttina og einstaka sinnum skutu andstæðingar Jeltsíns að þeim. Tsjernómyrdín flutti sjónvarps- ávarp og sagði hann hermenn streyma til borgarinnar til að koma á ró. „Þrátt fyrir erfiðleikana hefur stjórnin fulla stjórn á hlutunum," sagði forsætisráðherrann. Heimildir meðal embættismanna Jeltsíns for- seta herma að sumir háttsettir hers- höfðingjar hafí verið tregir til að láta sveitir sínar blandast inn í deil- una. Útvarpsstöð nokkur sagði sum- ar hersveitir hafa lýst yfír hollustu við jafnt þingið sem forsetann. Mík- haíl Gorbatsjov fyrrum Sovétleiðtogi lýsti einnig yfír miklum áhyggjum af ástandinu og sagði nauðsynlegt að Jeltsín kallaði allt herlið frá borg- inni og drægi til baka tilskipun sína um neyðarástand. Það vakti hins vegar athygli að hann gagnrýndi ekki uppreisn manna Rútskojs.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.