Morgunblaðið - 05.10.1993, Blaðsíða 48
48
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTÓBER 1993
STJÖRNUSPÁ
eftir Frances Drake
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú ert með margvísleg
áform á pijónunum varð-
andi viðskipti en verður fyr-
ir töfum og truflunum. Upp-
lýsingar eru villandi.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú ert að ganga frá samn-
ingum. Ferðaáætlun þarfn-
ast endurskoðunar. Einhver
óvænt útgjöld geta komið
upp.
Tvíburar
(21. maf - 20. júní)
Taktu ekki á þig neinar fjár-
hagsskuldbindingar fyrir
aðra. Hafðu hagsýni og
skynsemi að leiðarljósi í dag.
Krabbi
, (21. júní - 22. júlí)
Mikill tími fer í það i dag
að aðstoða aðra. Þú hefur
lítinn tíma út af fyrir þig í
dag, en getur slappað af
þegar kvöldar.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Fyrirhuguðum fundi getur
verið frestað í dag svo þú
færð tíma til að sinna heim-
ili og fjölskyldu. Eitthvað
er hugurinn á reiki.
Meyja
(23. ágúst - 22. september) <T.J
Hugsun þín er skýr og dóm-
greindin góð. En þú verður
að sýna nærgætni í sam-
skiptum við aðra. Varastu
óþarfa gagnrýni.
V°g ^
(23. sept. - 22. október)
Sumir eru að ganga frá
ferðaáætlun. Þú hefur góða
dómgreind í peningamálum
og getur gert mjög góð kaup
í dag.
-*j Sporódreki
(23. okt. - 21. nóvember) HiS
Láttu það ekki koma þér á
óvart þó einhver segi ekki
allan sannleikann í dag.
Ósarhkomulag getur komið
upp varðandi peninga.
Bogmaóur
(22. nóv. - 21. desember) &
Þú einbeitir þér í vinnunni
í dag og sérð verkefni þitt
í nýju Ijósi. Hafðu gott sam-
band við einhvern nákominn
í kvöld.
Steingeit
j. (22. des. - 19. janúar)
Fyrirlestur eða námskeið
hvetur þig til dáða. Þér mið-
ar samt hægt í vinnunni í
dag og kemur ekki öllu í
verk sem þú ætlaðir.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar) ðh
Þú ert að kanna nýjar Ieiðir
í vinnunni og gefur þér lítinn
tíma til að sækja mann-
fundi. Ræddu hugmyndir
þínar við ráðamenn.
_;| ___________________________
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars)
Gestakoma og truflanir
veita þér lítinn tíma til að
sinna hágsmunum fjölskyld-
unnar í dag. Leitaðu ráða
hjá fagmanni.
i Stjörnuspdna á aó lesa sern
dœgradvöl. Spár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum grunni
vísindalegra stadreynda.
DYRAGLENS
/}Fj ÉG Vt£E>lS>T Bfitfca. \
Etoa GEFA FUNDI£> HEmk
FLUGUE.. HVAB> LEGGUQ
PÚ TIL
rf-7
, V/NGASXU V/D EtN -
HVEIZN FLbDHEST/HN .
GRETTIR
TOMMI OG JENNI
ÞO VAdS.r FUÓTVK AP hussa
PetSAK. ÞoGee&tKÞerrA. þo
NOTAÞtKi HBtLAHH UE L >
/M...EUC.),
l/viytdp/ éGNÚ
\SES7/
mmm
UOSKA
(*«£>/ ag ésVA’fu or
FERDINAND
SMAFOLK
IN TME SIXTH CHAPTER OF PR0VERBS, IT 5AV5,
0 60 TO THE ANT, THOU SLU66ARP..C0N5I0ER.
I4ER UUAV5, ANP BE U)ISE//
I TRIEP TMAT..THE ANT PIPN
KNOU) THE AN51a)ER, EITHER..
I sjötta kafla Orðskviðanna segir: „Far þú til maurs- Ég reyndi það... en maurinn vissi ekki svarið heldur..
ins, letingi... skoða háttu hans og verð hygginn."
BRIDS
Umsjón Guðm. Páll
Arnarson
„Þetta getur ekki verið rétt. Þeir
hafa víxlað áttum. Keppnisstjóri!“
Norður gefur; AV á hættu.
Norður
♦ 52
♦ ÁG954
♦ 76
♦ DG54
Vestur Austur
♦ 3 ♦ Á9764
¥ 1063 I II ¥ D87
♦ KD8543 ♦ Á9
♦ 1082 ♦ ÁK9
Suður
♦ KDG108
¥ K2
♦ G102
♦ 763
Spilið er frá Jöklamóti Bridsfélags
Hornafjarðar sem fram fór um síð-
ustu helgi og lauk með sigri austf-
irsku bræðranna Pálma og Guttorms
Kristmannssona. Þeir komu þó
hvergi nærri sögunni sem þessu spili
fylgdi, en hetjurnar krefjast nafn-
leyndar. Út um allan sal voru menn
að spila þtjú grönd í AV og taka
hina upplögðu níu slagi: 600 í AV.
En ein tala á skorblaðinu stakk nokk-
uð í stúf: 550 í NS fyrir þrjú grönd,
dobluð og unnin! Er nema von menn
álykti að 90 gráðu halli hafí komið
á-höfuðáttimar við það borð.
„Nei, þetta er rétt skrifað," urruðu
AV að keppnisstjóra, sem var að leita
sannleikans í málinu. „Þeir unnu
þijú grönd dobluð.“
Þetta voru sagnimar:
Vestur Norður Austur Suður
— 2 hjörtu* 2 spaðar Dobl**
Pass 3 lauf Pass 3 grönd
Pass Pass Dobl Allir pass
♦ Veikt með lýarta og láglit
** ineint sem refsidobl, en skilið sem
úttekt
Eftir að hafa gælt við smáan tígul
nokkra stund, ákvað vestur að þetta
væri rétti tíminn til að spila út í lit
makkers og lagði spaðaeinspilið á
borðið. Austur sá ekki betur en þri-
sturinn væri frá einhveiju bitastæðu,
svo hann drap á ásinn og spilaði
meiri spaða.
Góð tíðindi fyrir sagnhafa, sem
fylgdi fast og ákveðið á eftir með
fleiri spöðum. En svo mikið lá honum
á að koma spaðaslögunum í hús, að
hann tók fyrir misgrip traustataki
um tígulgosann og slengdi honum á
borðið. Vestur var fljótur að leggja
drottninguna á og stífla litinn. Spil-
aði siðan hjarta. Gosinn veiddi
drottninguna frá austri og síðan var
svínað fyrir tíuna (eftir að hafa tekið
þá spaðaslagi, sem áður urðu útund-
an). Fjórir á spaða og fimm á hjarta.
Það eru níu slagir.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
í deildakeppni Skáksambands
íslands um helgina kom þessi
staða upp í 1. deild viðureign
þeirra Ingvars Ásmundssonar
(2.325), sem hafði hvítt og átti
leik, og Braga Halldórssonar
(2.170). Bragi var að seilast í eitr-
að peð, lék 17. - Db4xb2?
18. Dxa4! - Dxal, 19. Bcl
(Svarta drottningin á nú engan
reit og bara eftir að fanga hana)
19. - Re7, 20. 0-0 - Rd5, 21.
Db3 - Bd6, 22. Hdl! (Svartur
vonaðist eftir 22. Bd2?? - Bh2+
og vinnur) 22. — Hhg8, 23. Bd2
— Dxdl+, 24. Dxdl og hvítur
vann auðveldlega á liðsmuninum.
Fjórar umferðir af sjö voru tefldar
og er staðan þessi í 1. deild:
1. Tafifélag Reykjavíkur 25'/2
v., 2. Skákfélag Akureyrar 20'A
v. 3. Skáksamband Vestfjarða 19.
v. 4. Hellir 16 v. 5.-6. Skákfélag
Hafnarfjarðar og TR, B-sveit 14‘/i
v. 7. Taflfélag Garðabæjar 11 v.
8. Ungmennasamband A-Hún-
vetninga 7 v. Seinni hluti keppn-
innar verður tefldur í vor.