Morgunblaðið - 05.10.1993, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTÓBER 1993
7
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Haukur Ásgeirsson rafveitu-
stjóri bendi á brunnu spennana
úr Laxárvatnsvirkjun.
Bruninn í Lax-
árvatnsvirkjun
Viðgerð
tekur hálf-
an mánuð
Blönduósi.
MIKIÐ tjón varð er kviknaði í
spennum í Laxárvatnsvirkjun
sí. laugardag. A-Húnavatns-
sýsla varð án rafmagns í rúmar
níu klukkustundir. Orsakir
brunans eru ekki enn kunnar
og fullnaðarviðgerð mun taka
um hálfan mánuð.
Milljóna tjón
Haukur Ásgeirsson, rafveitu- •
stjóri á Blönduósi, sagði í samtali
við Morgunblaðið að ljóst væri að
tjónið næmi nokkrum miljónum
króna en þó liggur það ekki endan-
lega fyrir. Tengja þurfti framhjá
háspennurofum til að koma raf-
magni aftur á sýsluna og mun slíkt
fyrirkomulag vera næsta hálfa
mánuðinn meðan viðgerð stendur
yfir.
Unnið að ransókn
Eins og fyrr greinir eru orsakir
brunans ekki kunnar en að sögn
Hauks er unnið að rannsókn máls-
ins en afar sjaldgæft er að aðstæð-
ur sem þessar skapist að allur
rofabúnaður fyrir heilt byggðarlag
detti út í einu og einnig varaafl-
stöð fyrir Blönduós, en hún er
staðsett í Laxárvatnsvirkjun og
kom því ekki að neinu gagni í
rafmagnsleysinu.
Jón Sig
-----♦ ♦ ♦----
Lítil loðnuveiði
Einungis
fjórir bátar
á miðum
LÍTIL loðnuveiði hefur verið
að undanförnu og eru einungis
fjórir bátar á miðunum. Flestar
loðnuverksmiðjur eru hráefnis-
lausar. Um 385 þúsund tonn af
loðnu hafa borist á land á
vertíðinni.
Að sögn Teits Sigurðssonar hjá
Félagi íslenskra fiskmjölsframleið-
enda hefur lítil veiði verið á loðnu-
miðunum að undanförnu.
Loðnan dreifð
Loðnan gengur dreifð og hafa
margar áhafnir loðnubáta tekið
sér frí. Nokkrir bátar eru hættir
loðnuveiðum og eru að búa sig til
síldveiða.
Einungis fjórir bátar voru á
miðunum í gær en enginn á leið
til lands með afla. Nokkrar vonir
eru bundnar við að loðnugangan
þéttist er hún kemur upp að land-
inu.
Ungtempl-
arar heiðra
lögreglu
ÍSLENSKIR ungtempiarar af-
hentu lögreglunni í Breiðholti við-
urkenningarskjöldinn „Vímuefna-
bani ’93“ sl. sunnudag. Skjöldur-
inn er veittur fyrir „frækilega
framgöngu í forvörnum meðal
unglinga" og varð lögreglan í
Breiðholti fyrir valinu vegna bar-
áttu þeirra við ólöglegra bruggara
áfengis.
Arnþór Bjarnason, lögreglumaður
í Breiðhoitsstöð, segir að lögreglu-
menn í stöðinni þakki veitta viður-
kenningu og að þeir líti á hana sem
viðurkenningu til annarra lögreglu-
manna einig.
t-, . p i Morgunblaðið/Júlíus
r ynr rorvarmr meðal ungmenna
AFHENDING viðurkenningarskjaldar; f.v. Einar Ásbjörnsson hjá lögreglunni í Breiðholti, Ómar Smári
Ármannsson aðstoðaryfirlögregluþjónn, Böðvar Bragason lögreglustjóri, Arnþór Bjarnason hjá lögregl-
unni í Breiðholti, og hópur ungtemplara sem afhenti skjöldinn.
Einstakt áskriftartilboö:
# Við bjóðum þér vinsælasta myndasögublað á íslandi,
Andrés Önd, á aðeins kr. 223 hvert blað
Tryggðu að Andrés Önd
sent heim til þín.
# Hálfsmánaðarlega berst óvæntur glaðningur
\ með blaðinu.
á\# Efþú tekur tilboðinu innan 10 daga færðu að gjöf vandaða
|k\ 700 kr. safnmöppu undir blöðin.
komi heim til þín í hverri viku
safnmöppuna ókeypis!
HRINGDU STRAX í DAG í ÁSKRIFTARSÍMANN: 91 -688300