Morgunblaðið - 05.10.1993, Side 15

Morgunblaðið - 05.10.1993, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTÓBER 1993 - 15 Merk nýjung í starf- semi Lánasjóðsins og námsmannasamtaka eftir Gunnar Birgisson Undanfarið hefur Lánasjóður íslenskra námsmanna aukið mjög þjónustu sína við námsmenn. Það er athyglisvert að þetta hefur tek- ist þrátt fyrir mikið álag á starfs- fólk vegna breytinga á lögum og reglum um sjóðinn og án þess að starfsfólki hafí verið fjölgað. Fyrir nokkru var auk þess gerður gagn- kvæmur þjónustusamningur milli námsmannasamtaka og LÍN, sem á að auðvelda námsmönnum mjög alla upplýsingaöflun um meðferð mála sinna hjá sjóðnum. Þessi samningur er merk nýjung og markar tímamót í samskiptum LÍN og námsmannasamtaka. Von- ast er ennfremur til að samningur- inn auðveldi námsmönnum alla upplýsingaöflun um meðferð mála sinna hjá sjóðnum. Beinlínutenging LÍN og námsmannasamtaka Tölvur á skrifstofum fjögurra námsmannasamtaka hafa verið tengdar beint við fyrirspurnarþjón hjá LÍN. Þessi samtök eru: Stúd- entaráð Háskóla íslands, SHÍ, Samband íslenskra námsmanna erlendis, SÍNE og Bandalag ís- Ienskra sérskólanema, BÍSN svo og Iðnnemasamband íslands, INSÍ. Samningurinn við þessi námsmannasamtök felst í því að þau skuldbinda sig til að veita námsmönnum, sem koma á skrif- stofu þeirra eða hringja þangað, upplýsingar, sem hægt er að nálg- ast með fyrrgreindum hætti, um hvernig mál þeirra standi hjá LÍN, hvað vanti til þess að umsókn þeirra fái afgreiðslu o.s.frv. Náms- mannasamtökin fá fyrir þetta greiðslu frá LÍN af sérstakri fjár- veitingu frá menntamálaráðu- neyti, sem veitti fé til þess að gera þessa tilraun á yfírstandandi skólaári. Segja má að náms- mannasamtökin, sem standa um- bjóðendum sínum nær en Lána- sjóðurinn, séu með þessum hætti orðin verktakar sem annist þessa þjónustu jafnt fyrir sjóðinn og umbjóðendur sína. Þjónustan við námsmenn aukin Umsækjendur um lán hjá LÍN eiga því að geta snúið sér til skrif- stofu eigin samtaka og fengið þar á aðgengilegan hátt upplýsingar um afgreiðsluferil umsóknarinnar hjá sjóðnum, hvort t.d. vanti með henni fylgigögn o.s.frv. Með þess- um hætti ætti álagið á síma og afgreiðslu sjóðsins sjálfs að jafn- ast. Sú þjónusta hefur verið stór- aukin að undanförnu. Eftir sem áður er það þó svo að reynslan sýnir að á ákveðnum árstímum vilja helst allir 8-9000 umsækjend- ur sjóðsins fá þjónustu á tveimur til þremur vikum! Þrátt fyrir góðan vilja starfsfólksins hefur því álagið í síma og afgreiðslu sjóðsins á stundum einfaldlega verið slíkt að ekki hefur verið hægt að veita öllum nægilega góða þjónustu. Spennándi reynslutími Stjórn sjóðsins tók ákvörðun um að gera þessa gagnkvæmu þjón- ustusamninga við framangreind námsmannasamtök í tilraunaskyni skólaárið 1993-94. Það verður spennandi að sjá hvemig til tekst. Vonandi verður þetta til að auka enn þjónustuna við námsmenn og jafna álagið á starfsfólk LÍN. Þá er tilganginum náð og verður lögð á það rík áhersla að halda slíku samstarfi við námsmannasamtök- in áfram. Gunnar Birgisson „Umsækjendur um lán hjá LÍN eiga því að geta snúið sér til skrif- stofu eigin samtaka og fengið þar á aðgengi- legan hátt upplýsingar um afgreiðsluferil um- sóknarinnar hjá sjóðn- um, hvort t.d. vanti með henni fylgigögn o.s.frv. Með þessum hætti ætti álagið á síma og af- greiðslu sjóðsins sjálfs að jafnast.“ Aukin ráðgjafar- og útgáfustarfsemi í kjölfar nýrra laga um Lána- sjóð íslenskra námsmanna var út- hlutunarreglum hans einnig breytt verulega. Til þess að auðvelda umsækjendum námslán að tileinka sér þessar breyttu reglur hefur ráðgjafaþjónusta verið aukin og einnig lagt í viðamikla útgáfu- starfsemi m.a. með ítarlegum skýringarbæklingum, sem eiga að auðvelda mönnum að gera sér grein fyrir reglunum. Nýjung í greiðslu námslána LÍN hefur ennfremur beitt sér fyrir því með samningum við banka og sparisjóði að námsmenn geti nú greitt námslán sín mánað- arlega, þannig að þeir greiða inn á sparireikninga mánaðarlega og viðkomandi banki eða sparisjóður sér síðan um að greiða til LIN á gjalddögum, t.d. 1. mars og 1. september. Þetta er nýjung sem menn hafa tekið vel og á vafa- laust eftir að vera til mikils hag- ræðis fyrir greiðendur námslána. Höfundur er formaður stjórnar LÍN. ■ " eldh innréttii U ús- IQG* f HAflÐVfÐARVAL HARÐVIÐARVAL HF. KRÓKHÁLSI 4 R. SfMI 671010 NISSAN Vindskeið á mynd er ekki staðalbúnaður en fæst í varahluta- verslun Ingvars Helgasonar kf á aðeins kr. 25.000.- Sunny 1400 Verð aðeins kr. 965.000.- Nissan auðveldar þér valið. Sunny GTi 2000cc 5 dyra 5 gíra ABS bremsur bein innspýting og margt, margt fleira Verð aðeins kr. 1.580.000.- , - - . Ingvar S'. 5 Helgason hf. Sævarhöföa 2 síma 91-674000

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.