Morgunblaðið - 05.10.1993, Side 20
20
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTÓBER 1993
ExtraStarka
| KARAMELLPOJKARNA |
Beiskur brjóstsykur - einnig án sykurs
vera án þeirra? íslenskir bændur
BACKGUARD.
NÝJU SANDALARNIR FRÁ
SCHOLL
MEÐ STUÐNINGSHÆL
Back Guard sandalarnir frá Scholl eru með sérstökum
stuðningspúða í hæl, svokölluðum Poron®. Poron®
tekur högg af fætinum og minnkar þannig titringinn í
fótum og baki. Back Guard sandalar með Poron® létta
þannig álag á fætur og bak.
sig vel að fœtinum Stamur sóli með góðu mynstri
útsölustaðir: Akraness Apótek, Akureyrar Apótek, Apótck Austurlands,
Apótek Blönduóss, Borgar Apótek, Borgarness Apótek, Dalvíkur Apótek, Egils-
staða Apótek, Garðabæjar Apótek, Grindavíkur Apótek, Hafnar Apótek, Háa-
leitis Apótek, Holts Apótek, Hraunbergs Apótek, Húsavíkur Apótek, Ingólfs
Apótek, ísafjarðar Apótek, Keflavíkur Apótek, Kópavogs Apótek, Laugarness
Apótek, Laugavegs Apótek, Lyfsala Hólmavíkur, Lyfsala Kirkjubæjarklausturs,
Lyfsala Víkur, Lyfsala Vopnafjarðar, Mosfells Apótek, Nesapótek Neskaupstað,
Nesapótek Seltjarnarnesi, Ólafsfjarðar útibú, Ólafsvíkur Apótek, Patreks Apó-
tek, Rangár Apótek Hellu, Rangár Apótek Hvolsvelli, Sauðárkróks Apótek,
Siglufjarðar Apótek, Stykkishólms Apótek, Vestmannaeyja Apótek, Vesturbæjar
Apótek, Ölfus Apótek.
Umboðsmaður Alþingis fjallar um ráðningu tollvarðar
U ndirbúningnr og niður-
staða stöðuveitingar ótæk
Grundvallarregla að velja beri hæfasta umsækjandann
UMBOÐSMAÐUR Alþingis átelur harðlega veitingu utanríkisráðu-
neytisins á stöðu tollvarðar á Keflavíkurflugvelli í október 1990.
Segir hann að stöðuveitingin hafi verið ótæk bæði um undirbúning
og niðurstöðu, þar sem í veigamiklum atriðum hafi verið brotið í
bága við lög og vandaða stjórnsýsluhætti. Leggur umboðsmaður
áherslu á að sfjórnvald sem veiti stöðu hafi ekki frjálsar hendur um
val á milli umsækjenda, jafnvel þegar svo stendur á að fleiri en einn
hæfur umsækjandi sæki um. Það sé grundvallarregla í stjórnsýslu-
rétti að þegar svo standi á beri að velja þann umsækjanda sem
hæfastur verði talinn á grundvelli málefnalegra sjónarmiða um
menntun, reynslu, skólagöngu, hæfni og aðra persónulega eiginleika
er máli skipta. Kemur þetta fram í nýútkominni ársskýrslu umboðs-
manns fyrir árið 1992.
Hinn 9. janúar 1991 leitaði A til
umboðsmanns Alþingis og kvartaði
yfir því að fram hjá sér hefði verið
gengið við ráðningu í fasta tollvarð-
arstöðu hjá tollgæslunni á Keflavík-
urflugvelli. Staðan var auglýst í dag-
blöðum í ágústmánuði 1990 og sóttu
tólf um. Samkvæmt reglugerð um
Tollskóla ríkisins, veitingu í fastar
tollstöður o.fl. eru almenn menntun-
arskilyrði tollvarða að þeir hafi lokið
grunnskóla og fjölbrautarskóla,
menntaskóla eða sérskóla er veitir
sambærilega menntun. Einungis
tveir umsækjendur, A og B, upp-
fylltu almenn menntunarskilyrði.
Samkvæmt reglugerðinni eru hin
sérstöku menntunarskilyrði þau að
viðkomandi hafi lokið prófi frá Toll-
skólanum. Víkja má frá því skilyrði
ef sérstaklega stendur á. Enginn
umsækjandi hafði lokið prófi úr Toll-
skólanum. Lögreglustjórinn á Kefla-
víkurflugvelli ritaði utanríkisráðu-
neytinu bréf varðandi umsóknirnar
og taldi hann að einungis tveir um-
sækjendur, þ.e. A og B, kæmu til
álita. Báðir hefðu starfað við emb-
ættið =um nokkurn tíma sem laus-
ráðnir afleysingamenn í tollgæslunni
og væru nú í slíkum störfum. Þeir
hefðu einnig getið sér gott orð hjá
yfirmönnum sínum.
Hinn 1. október réð utanríkisráð-
herra C í hina föstu tollstöðu.
Umboðsmaður ritaði utanríkis-
ráðuneytinu bréf 19. febrúar 1991
og óskaði eftir öllum gögnum um
málið. Eftir ítrekún bárust loks öll
gögn 10. september það ár.
Umboðsmaður spurði ráðuneytið
svo hvaða kröfur það hefði lagt
áherslu á að umsækjendur uppfylltu
og hvað hefði ráðið vali þess. Jafn-
framt spurði hann hvers vegna ráðu-
neytið hefði ekki gert þeim umsækj-
endum sem hafnað var grein fyrir
niðurstöðunni.
Svör varnarmálaskrifstofu
í svari varnaiTnálaskrifstofu ráðu-
neytisins segir að miklu hafí ráðið
að C hafi ætlað að starfa til frambúð-
ar hjá embætti lögreglustjórans á
Keflavíkurflugvelli. Segir skrifstof-
an að hún hafi fengið upplýsingar
um að þeim sem ekki voru ráðnir
hafi verið tilkynnt um þá ákvörðun
en skrifstofunni sé ekki kunnugt um
að henni sé skylt að skýra fyrir
umsækjendum hvers vegna þeir hafi
ekki fengið stöður sem sótt var um.
A gafst kostur á að tjá sig um
svar varnarmálaskrifstofunnar og
sagði hann að það ætti að vera öllum
auðskilið að umsókn um fasta stöðu
hjá ríkisstofnun fæli í sér að sótt
væri um starf til frambúðar.
Umboðsmaður óskaði upplýsinga
um það á hveiju ráðuneytið hefði
byggt þá skoðun að A hafi ekki
ætlað að starfa til frambúðar hjá
embætti lögreglustjórans. Dráttur
varð á svari af hálfu ráðuneytisins
en í skýrslu umboðsmanns segir að
hann hafi átt viðræður við skrif-
stofustjóra varnarmáladeildar hinn
12. mars 1992 og þar hafi komið
fram að frekari skýringa væri ekki
að vænta.
Margskonar annmarkar
I áliti umboðsmanns er fjallað um
stöðuveitinguna út frá fímm sjónar- i
hornum:
Sá annmarki var á auglýsingu
tollstöðunnar að ekki var auglýst í i
Lögbirtingablaðinu eins og mælt er
fyrir um í 1. nr. 38/1954 um réttindi
og skyldur starfsmanna ríkisins. j
Verulegur annmarki var á undir-
búningi málsins að öðru leyti. Þau
gögn og upplýsingar sem fylgdu
umsóknunum tólf voru í flestum til-
vikum ófullnægjandi. Ekki varð á
grundvelli þeirra gengið úr skugga
um hvort umsækjendur uppfylltu
lögboðin hæfnisskilyrði. Samt gerði
ráðuneytið ekkert til að upplýsa
málið betur eins og því var þó skylt
að mati umboðsmanns. Samkvæmt
reglugerð ber við ráðningu að leggja
sérstaka áherslu á góða kunnáttu í
íslensku. Mjög fáir umsækjendur
skiluðu prófskírteinum og ekki var
haldið hæfnispróf í íslensku og vél-
ritun eins og veitingarvaldinu var
þó heimilt. Ekki var heldur kannað 1
hvort umsækjendur ætluðu að starfa
til frambúðar hjá embættinu enda
voru þeir ekki kallaðir í viðtöl.
Um ákvörðun um veitingu stöð-
unnar segir að hún hafi verið ótæk
bæði um undirbúning og niðurstöðu, j
þar sem þar hafi í veigamiklum at-
riðum verið brotið í bág við lög og
vandaða stjórnsýsluhætti. C var ráð-
inn þótt einungis A og B uppfylltu
almenn menntunarskilyrði. Þetta
hafi ekki verið réttlætt með neinum
rökum eða gögnum. Auk þess hafi
verið gengið fram hjá B sem komst
næst því að uppfylla hin sérstöku
menntunarskilyrði þar sem hann
hafði lokið fyrri önn Tollskólans.
Umboðsmaður telur að ganga
verði út frá þeirri meginreglu að
hver sá sem ber upp skriflegt erindi
við stjórnvöld eigi rétt á skriflegu
svari hlutaðeigandi stjórnvalds. í
samræmi við vandaða stjórnsýslu-
hætti hefði átt að gera þeim sem ]
ekki fengu stöðuna grein fyrir því
bréflega hvað. réði vali stjórnvalds.
Vantar heimild til að bæta
miska
Loks varð þetta mál umboðs- •
manni tilefni til að benda Alþingi
og fjármálaráðherra á að í lög vant-
aði heimild til að bæta miska þegar
gengið væri framhjá þeim umsækj-
anda sem hæfastur er. Einungis
væri heimild til að bæta fjártjón en
sá bótaréttur væri næsta haldlítill
þar sem iðulega væri aðeins um
miska að ræða.
Happdrætti
Hjartaverndar
DRÖGUM 8. OKT.
Þú geturgreitt miðan
þinn með greiðslukorti
É SÍMI813947 E8
ingólfsstræti 8 - s. 1 61 80