Morgunblaðið - 05.10.1993, Page 44
44
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTÓBER 1993
ekki hægt að gleyma honum því það
er Pési í okkur öllum, Pési sem all-
ir litu upp til og elskuðu.
Hans kæri vinur,
Logi Unnarson Jónsson.
í dag verður borinn til grafar
Pétur Ingi Þorgilsson. Pétur var
minn kærasti vinur og það var vissu-
lega sárt að heyra það að hann hefði
látist af slysförum sunnudaginn 26.
september.
Pétur Ingi, sem oftast var kallað-
ur Pési eða Summi af vinum sínum,
var óvinalaus ungur maður sem öll-
um þótti vænt um. Það sást strax í
barnaskóla að þar var góður maður
á ferð, einnig mjög sérstakur. Pétur
vildi öllum vel, það var alltaf mikið
fjör í honum og hann var ávallt til
í eitthvað skemmtilegt. Pétur var
deliukarl sem tók hugmyndum sín-
um alvarlega og varð oftast mjög
góður í því sem hann tók sér fyrir
hendur. Þegar Pétur gekk í Haga-
skóla var fólk ekki lengi að komast
að því hver drengurinn var, því að
hann var ekki ragur við að gera
sniðuga hluti, jafnvel ótrúlega hluti,
fyrir framan hvern sem var. í kjöl-
far þess vildu sumir halda því fram
að drengurinn væri ruglaður, en að
því hló Pétur bara og tók aðeins sem
hvatningu. Hann var sífellt að koma
fólki á óvart með hlægilegum uppá-
tækjum sínum. Það leið ekki á löngu
þar til Pétur var kominn með
skemmtiatriði á hverri skemmtun
skólans, en tónlistarhæfileikar hans
voru einstakir. Helstu áhugamál
hans voru einmitt tónlistin og einnig
myndlist, en Pétur var alltaf annað
hvort með blýant í hönd eða hljóð-
færi.
Eftir að Pétur lauk samræmdu
prófunum úr Hagaskólanum ákvað
hann að hefja nám við Menntaskól-
ann í Reykjavík. Er í Menntaskólann
kom blómstraði hann allur af ham-
ingju og ekki döluðu vinsældir
drengsins, þær jukust ef eitthvað
var. Hann hafði nefnilega þau áhrif
á fólk að engum gat verið illa við
hann. Hann eignaðist góða vini á
skömmum tíma og með skemmtileg-
um hugmyndum sínum var hann
búinn að skapa ákveðið hegðunar-
mynstur innan vinahópsins. Hann
var áberandi í félagslífi skólans, svo
og í skólanum sjálfum. Það var svo
margt sem Pétur gerði á sínum
menntaskólaárum sem féll í góðan
jarðveg hjá nemendum skólans, þó
að það hafi kannski ekki fallið í jafn
góðan jarðveg hjá kennurum og
skólastjórn. Áhugi hans lá í allt öðru
en skólabókunum.
Það kom líka að því að Pétur
ákvað að ljúka sínum menntaskóla-
ferli og snúa sér að því sem hann
gerði best, myndlistinni. Hann fékk
inngöngu í Myndlista- og handíða-
skóla íslands nú í haust, en Mennta-
skólann yfirgaf hann ekki án þess
að skilja eitthvað eftir sig. Pétur var
búinn að semja nokkur árshátíðarlög
og teikna heilan bekk í Faunu, en
það er árbók útskriftarnema þeirar
MR-inga. Þeim verkum skilaði hann
með frábærum árangri. Þegar hann
svo loks hóf myndlistarnámið var
hann yfir sig ánægður, því að þá
gat hann fyrst lært og unnið við það
sem hann hafði áhuga á. Verkefnin
hlóðust upp og hann hugðist taka
þeim með mikilli alvöru og vand-
virkni. En þrátt fyrir alla alvöruna
sem þessu fylgdi var hann alltaf
glaðvær og hress, það hress að í
næstum öllum tilfellum var það
smitandi. Það er ekki hægt að muna
eftir einni stund þar sem einhver var
gramur eða vondur út í Pétur, því
að hvar sem hann steig niður fæti
var alltaf stutt í hláturinn.
Það er ólýsanlega sárt að missa
svo elskulegan vin sem Pétur var,
vin sem var mér og öllum öðrum
kær og yndislegur og átti framtíðina
fyrir sér. Ég votta fjölskyldu Péturs
Inga mína dýpstu samúð og sam-
hryggist öllum aðstandendum hans.
Við höfum misst mikilfenglegan
mann sem mun þó aldrei deyja úr
huga okkar.
Blessuð sé minning hans.
Steingrímur Óli Einarsson.
Fleiri minningavgreinar um
Pétur Inga Þorgilsson bíða
birtingar og munu birtast í
blaðinu næstu daga.
t
EINAR AÐALSTEINSSON
vistmaður í Víðinesi,
lést í Borgarspítalanum, Reykjavík, aðfaranótt föstudags
1. október.
Vinir hins látna.
t
Bróðir okkar,
SIGURÐUR J. SIGURÐSSON
frá Skammbeinsstöðum,
andaðist í Sjúkrahúsi Suðurlands 4. október.
Systkini hins látna.
t
Bróðir minn,
REYNIR BJÖRGVINSSON,
andaðist þann 21. september.
Jarðarförin hefur farið fram.
Gréta Björgvinsdóttir og fjölskylda.
t
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
RICHARDT RYEL,
Sölleröd Park 12,1-17,
2840 Holte, Danmörku,
lést á sjúkrahúsi í Kaupmannahöfn 2. október sl.
Helga Ryel og fjölskylda.
t
ELÍSABET ERLENDSDÓTTIR
bæjarhjúkrunarkona í Hafnarfirði
lést á Sólvangi 26. september 1993.
Útför hennar hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Stjórnendum og starfsfólki á Sólvangi eru færðar sérstakar þakk-
ir fyrir að búa henni þar góða dvöl síðustu árin.
Þeim, sem vilja minnast hinnar látnu, er bent á Sólvang og/eða
aðrar líknarstofnanir.
Aðstandendur.
t
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
ÓLAFÍA INGIBJÖRG ÞORGILSDÓTTIR
frá Þórshamri í Sandgerði,
Eskihlíð 12bj
Reykjavík,
lést í Landspítalanum laugardaginn 2. október.
Oddný Jónasdóttir,
Þorgils Jónasson, Vilborg Bjarnadóttir,
barnabörn
og barnabarnabörn.
t
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
ÞURÍÐUR FINNSDÓTTIR,
Dunhaga11,
Reykjavik,
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 6. október
kl. 13.30.
Margrét Snorradóttir,
Hallgrímur Snorrason,
Gunnar Snorrason,
Auður Snorradóttir,
Finnur Snorrason,
Halldór Baldursson,
Ruth Snorrason,
Ólafur Siemsen,
Lise Bratlie Snorrason
og barnabörn.
t
Hjartkær eiginmaöur minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
MARINÓ L. STEFÁNSSON
kennari,
Brautarlandi 19,
Reykjavik,
andaðist 3. október í Hátúni 10B.
Útförin verður auglýst síðar.
Guðbjörg Bergsveinsdóttir,
Þorbjörg L. Marinósdóttir,
Sigfríður L. Marinósdóttir,
Grétar L. Marinósson, Svava Guðmundsdóttir,
Karl L. Marinósson, Dóra S. Jiiliussen,
barnabörn og barnabarnabörn.
mni og vorum að reyna að radda.
Ég var hálffeiminn við það fyrst,
en loks tókst það auðvitað. Þú
keyrðir mig áfram og að lokum
sungum við heillengi í mismunandi
tóntegundum.
Minningarnar um þig eru óendan-
lega margar. Síðustu daga hafa þær
þotið gegnum huga minn og huga
okkar allra sem þekktum þig.
Munið þið þegar við vorum í
Melaskóla, ungir og saklausir. Við
gerðum allt vitlaust í kringum okk-
ur. Það var alltaf svo mikil gleði
og gauragangur. Það sem okkur
datt'í hug var ótrúlegt. Þá var Pét-
ur oft í aðalhlutverki með sinn ótrú-
lega húmor sem var svo innilega
sprottinn upp úr hans eigin hugar-
heimi.
Þessum látum linnti ekkert í
Hagaskóla. Þvert á móti. Þar hóf
Pétur að haida tónleika og taka
þátt í hæfileikakeppnum. Sköpun-
argleðin var algjör. Hann var sann-
kallaður listamaður á öllum sviðum,
óhemju hraustur bæði á sál og lík-
ama.
Keppnisskapið var ótrúlegt og
einu skiptin sem þú varðst fúll var
þegar þú tapaðir, enda kepptir þú
við okkur í ótrúlegustu hlutum eins
og t.d. átkeppninni í afmælinu þínu
þegar allir urðu fárveikir um nóttina
og gubbuðu. Upp frá því hef ég
aldrei getað borðað kokteilpylsur.
Þetta var í ellefu ára afmælinu þínu.
Einmitt á þeim tíma þegar „break“-
tímabilið stóð sem hæst. Þar lést
þú ekki þitt eftir liggja og 12 ára
gamall varstu farinn að gera ótrú-
legustu hluti. Þú gerðir vindmyll-
una, snerir þér á hausnum og fórst
10-12 hringi á bakinu. Það var unun
að horfa á þig. Við allir vinirnir
vorum langt á eftir þér í þessu sem
öðru.
Það er endalaust hægt að rifja
upp ógleymanlegar minningar af
Pésa. Þær munu iifa með okkur sem
eigum þær. Við munum geyma þær
í hásæti hjartans og höll hugans.
Aldrei mun ég gleyma honum því
ég elska hann af öllu hjarta og mun
alltaf gera.
Elsku Áslaug, Rakel, Didda og
Þorgils. Megi guð styrkja ykkur öll
í þessari miklu sorg. Við strákarnir
munum halda merki Péturs á lofti,
hann mun aldrei gleymast, það er
t
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærr-
ar eiginkonu minnar, móður og dóttur,
SVANHILDAR BJARKAR JÓNASDÓTTUR
frá Vogum,
Birkihrauni 11,
Mývatnssveit.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki deildar 11-E, Landspítalans
og Sjúkahúsi Húsavíkur fyrir hlýlegt viðmót og góð kynni.
Stefán Þórhallsson,
Þórir S. Þórisson,
Kristinn A. Stefánsson,
Þórhallur R. Stefánsson,
Kristi'n Jónasdóttir.
t
Hjartkær móðir, tengdamóðir, amma
og langamma,
SÓLVEIG BJARNADÓTTIR,
Vi'filsgötu 15,
Reykjavík,
lést 1. október sl. í öldrunardeild Borg-
arspítalans.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Álfheiður Bjarnadóttir, Sævar Guðmundsson,
Ari Eyberg Sævarsson,
Guðleif Sunna Sævarsdóttir,
Jóhanna Bjarndís Sævarsdóttir,
Sólveig Birna Sigurðardóttir, Þór Þorgeirsson,
Alfheiður Þórsdóttir,
Bjarni Sævar Þórsson.
t
Hjartans þakkir sendum við öllum þeim
sem sýndu okkur samúð og vináttu við
andlát og útför eiginmanns míns, föður
okkar og sonar,
SIGURÐAR VIGGÓS
BERNÓDUSSONAR,
Völusteinsstræti 2,
Bolungarvík.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
krabbameinsdeildar 11E, Landsspítala-
num fyrir frábæra umönnun og hlýhug.
Halldóra Kristjánsdóttir,
Guðrún Jóna Sigurðardóttir, Jens Þór Sigurðarson,
Dómhildur Klemenzdóttir, Bernódus Halldórsson.
t
Ástkær eiginmaður minn og faðir okkar,
SVERRIR ÞÓRISSON,
Núpasíðu 4H,
Akureyri,
verður jarðsunginn frá Glerárkirkju mið-
vikudaginn 6. október kl. 14.00.
Þeim, sem vildu minnast hans, er bent
á Krabbameinsfélag Akureyrar.
Kristín Þórsdóttir,
Þór Sverrisson,
Rut Sverrisdóttir,
Sif Sverrisdóttir.