Morgunblaðið - 05.10.1993, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTÓBER 1993
45
Minmng
Nanna Gestsdóttir
Fædd 14. júlí 1925
Dáin 27. september 1993
Sofðu ég svæfi þig,
allir helgir þjóni þér.
Pétur og Páll hinn frómi,
geymi þig frá dómi.
Og sú hin milda mær,
marga bæn hjá guði fær.
Sankti Maria sé þér holl,
sú er betri en rautt goll.
Þetta vögguljóð söng hún amma
fyrir börnin sín. En nú er hún amma
okkar dáin. Það er erfitt að sætta
sig við það, en því verður ekki
breytt.
Þar sem amma kom var alltaf líf
og fjör. Hún naut þess að vera með
fólki og var oft hrókur alls fagnað-
ar. Ein síðasta minning okkar um
ömmu er einmitt frá ættarmóti sem
haldið var í sumar. Þá skemmti hún
sér aldeilis vel, söng og dansaði og
fór meira að segja í eltingarleik
með okkur krökkunum. Hveijum
hefði þá dottið í hug að mánuði
seinna lægi hún amma veik á spít-
ala. Ekki okkur.
En nú er hún dáin. Við söknum
hennar mikið, en huggum okkur
við það að nú líður henni vel. Hún
er komin til Guðs og til afa sem
hún hafði svo stutt hjá sér.
Amma varð ung ekkja með sjö
lítil börn, en tókst á við þann mót-
byr af æðruleysi og þrautseigju.
Hún reyndist börnum sínum vel, svo
og okkur barnabörnunum, enda var
hún í eðli sínu fyrst og fremst
mamma og amma. Megi þessi minn-
ing lifa um Nönnu ömmu.
Við elskum þig amma og vitum
að þú elskar okkur líka.
Hvar sem þú reikar,
á landi eða sandi.
Geymi þig frá grandi,
Guð, faðir, guðssonur
og guðs helgur andi.
(Höf. ókunnur)
Elín Anna, Valdimar Örn og
Ólafur Heiðar.
Jóhann EggertJó-
hannsson — Minning
Fæddur 23. nóvember
1936
Dáinn 22. september 1993
Síminn hringir. Hann Lilli er
dáinn. Þessi orð hljómuðu í eyrum
mínum miðvikudaginn 22. septem-
ber sl. Mín viðbrögð voru þau, nei,
ó nei, það getur ekki verið. Ég var
orðlaus og máttvana.
Jóhann Eggert Jóhannsson eins
og hann hét fullu nafni eða Lilli
eins og vinir og vandamenn kölluðu
hann var bróðir minn. Hann var
líka minn besti vinur, við vorum
mjög samrýnd og áttum mörg sam-
eiginleg áhugamál. Það var oft
gaman hjá okkur. Það komu líka
daprar og erfiðar stundir, en þá
sameinuðumst við og hjálpuðum
hvort öðru.
Ekki óraði mig fyrir því, þegar
hann kom til mín fyrir tveim dögum
glaður og ánægður með lífið og til-
veruna, að það væri í síðasta sinn
sem við hittumst í þessu lífi. Hann
hafði komið til að biðja um smá
greiða hjá okkur hjónum sem sjálf-
sagt var að veita. Þegar að hann
var að fara sá hann að hann gat
gert okkur greiða á móti og það
gerði hann. Þannig var Lilli, hjálp-
samur og greiðvikinn.
Það eina sem við vitum með vissu
er að einhverntíma deyja allir það
er gangur lífsins. Við hjónin vottum
sambýliskonu Lilla og börnum okk-
ar dýpstu samúð og biðjum guð að
styrkja þau og varðveita í þeirra
þungu sorg.
Guð blessi minningu Lilla bróður
míns.
Kristín og Lárus.
3 HARÐVIÐA HAR KRÓKl ÐVIÐARVAL HF. IÁLSI 4 R. SIMI 671010
wai«v\
ERFIDRYKKJUR)
HÓTEL GSJA
sími 689509
V J
108 Reykjavík. Sími 31099
Opið öll kvöld
til kl. 22,- einnig um helgar.
Skreytingar við öll tilefni.
Gjafavörur.
+
Eiginkona mín, móðir okkar og dóttir,
ÞÓRDÍS S. FRIÐRIKSDÓTTIR
sjúkraliði,
Álfheimum 9,
verður jarðsungin frá Áskirkju fimmtu-
daginn 7. október kl. 13.30.
Blóm og kransar vinsamlegast
afþakkaðir.
Þeim sem vildu minnast hennar er bent
á Krabbameinsfélagið.
Karel Kristjánsson,
Friðrik Ingi Karelsson, Þórdís
Ingunn Hlfn Björgvinsdóttir, Friðrik
Okkar ástkæra
ANNA ÁRNADÓTTIR
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni mið-
vikudaginn 6. október kl. 15.00.
Þeim, sem vilja minnast hennar, er
bent á heimahlynningu Krabbameins-
félagsins.
Jóna Sigurjónsdóttir,
Guðrún Sigurjónsdóttir,
Anna Björnsdóttir,
tengdasynir, barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær sonur okkar, barnabarn, bróðir
og frændi,
PÉTUR INGI ÞORGILSSON,
Kaplaskjólsvegi 39,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Háteigskirkju í
dag, þriðjudaginn 5. október, kl. 13.30.
Sólveig Berndsen, Þorgils Baldursson,
Áslaug Pálsdóttir, Rakel Sigurðardóttir,
systkini og aðrir aðstandendur.
Kveðja
Ingólfur Pálsson
og Lilja Jóhannes-
dóttirfrá Uppsölum
Ingólfur:
Fæddur 13. apríl 1902
Dáinn 26. september 1993
Lilja:
Fædd 6. október 1905
Dáin 19. desember 1976
Laugardaginn 2. október var í
kirkjugarðinum á Munkaþverá bor-
inn til hinstu hvilu afi okkar, Ingólf-
ur Pálsson frá Uppsölum. Þar hvílir
hann nú við hliðina á Lilju ömmu
Jóhannesdóttur og nýtur þráðra
endurfunda. Á milli þeirra hvílir
blessað, lítið bam, Dóranna Lilja,
sem gömlu hjónin hafa tekið að sér
að gæta.
I sjálfri sér er sorgin sáttfús þeg-
ar vegmóður kveður og við unnum
honum hvíldar og viljum „leyfa
dagsins þreyttu barni að sofa“.
Eftir lifa bjartar myndir af réttsýn-
um hundrað prósent manni, stund-
um alvarlegum, minningar um elju
og samviskusemi og umfram allt
orðstír gjafmildi og umburðarlyndis
sem hlýst þeim sem sáttir eru við
Guð og menn. Gamli bóndinn og
keppnismaðurinn er kominn í mark
í síðasta sinn.
Við endamarkið bíður hans lítil,
grönn kona sem er okkur öllum
persónugjörvingur gæskunnar. Og
einmitt núna, þar sem þau hafa
hist á ný, eftir langan aðskilnað,
er auðvelt að ímynda sér að um-
ræðuefnið sé um það, hvar sé hægt
að gefa og gleðja.
Guð blessi minningu afa og
ömmu.
Deyr fé
deyja frændur
deyr sjálfir ið sama.
En orðstír deyr aldregi
hveim er sér góðan getur.
(Hávamál)
Systkinin áUppsölum.
+
MARGRÉT GÍSLADÓTTIR
frá Hoftúni,
Stokkseyrarhreppi,
er lést að Kumbaravogi 26. september sl. verður jarðsungin frá
Stokkseyrarkirkju miðvikudaginn 6. október kl. 14.00.
Unnur Sigrún, Guðrún og Birna
Bjarnþórsdætur og fjölskyldur.
+
Móðir okkar,
SIGRÍÐUR MAGNÚSDÓTTIR,
Stigahlíð 34,
Reykjavik,
lést í Landspítalanum sunnudaginn 3. október.
Jarðarförin auglýst 'síðar.
Árni Jakob Garðarsson,
Jón Ingvar Garðarsson.
Íslenskur efniviður
íslenskar steintegundir henta margar
afar vel í legsteina og hverskonar
minnismerki. Eigum jafnan til fyrir-
liggjandi margskonar íslenskt efni:
Grástein, BJágrýti, Líparít og Gabbró.
Áralöng reynsla.
Leitið W S. HELGASON HF
upplýsinga. IISTEINSMIÐJA
SKEMMUVEGI 48 • SlMI 91-76677