Morgunblaðið - 05.10.1993, Síða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. OKTÓBER 1993
fólk í
fréttum
Morgunblaðið/Gunnar Hallsson
Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður
Alþýðubandalagsins, færir íbúum
Bakkahverfis í Bolungarvík Morgun-
blaðið.
VINNA
Þingmað-
urinn ber út
Morgunblaðið
Um nokkurt skeið hafa
Bolvíkingar tekið eftir því
að Kristinn H. Gunnarsson,
alþingismaður Alþýðubanda-
lagsins, er farinn að bera út
Morgunblaðið til áskrifenda.
Hafa menn velt því nokkuð
fyrir sér, hvort það geti þjónað
hugsjón þessa stjórnmála-
flokks sem hann er á þingi
fyrir.
En Kristinn er útsjónarsam-
ur og slær margar flugur í einu
höggi með því að bera blaðið
í húsin. Hann stuðlar að því
að réttur og vandaður frétta-
flutningur komist greiðlega til
áskrifenda blaðsins, hann fær
hressandi göngutúr sem léttir
lundina og vegur upp á móti
þvarginu í pólitíkinni og hann
hjálpar syni sínum við blað-
burðinn, en strákurinn hefur
þetta embætti til að afla sér
vasapeninga. „Ég ber út á
Bökkunum,“ sagði Kristinn er
fréttaritari hitti hann með
Morgunblaðstöskuna nú á dög-
unum. „Ég fékk að fara núna,
strákurinn tók sér frí.“
Alþingismaðurinn var bara
léttur í spori er hann tók stefn-
una út á Bakka, stikaði stórum
til þess göfuga verkefnis að
koma Morgunblaðinu til áskrif-
enda sinna.
'
^
WllÐAVERÐ KR
SSSISb
Þriggja stiga bensínstöðvar.
SÖLUSTAÐIR:
ÍÞRÓTTAHÚSIÐ KAPLAKRIKA
STEINAR HAFNARFIRÐI
STEINAR AUSTURSTRÆTI
SKÍFAN KRINGLUNNI
SALA MEÐ KREDITKORTUM: ISÍMA 99 66 33
SPORTHÚSIÐ AKUREYRI
STEINAR MJÓDD
SÖLUBÁS í KRINGLUNNI
PROMOTIONS
RÉTTIR
Jarmað á kratana
Orðin landbúnaður og Alþýðu-
fiokkurinn hafa ekki virkað
eins og plús- og mínusskaut á segli
í gegnum tíðina. Þvert á móti, ef
ætti að leggja tvö orð saman til lík-
ingar, þá væru þau fremur hundur
og köttur. Því kom það eins og
skrattinn úr sauðarleggnum er
Hafnarfjarðarbær, eitt sterkasta
kratavígi landsins, stóð fyrir „rétt-
arhátíð" í samvinnu við Ferðaskrif-
stofuna Ferðabæ nú fyrir skömmu.
Hafnfírðingar hafa verið ötulir
að brydda upp á nýjungum til að
draga athygli manna að bænum.
Vinafélag hefur verið stofnað, vík-
ingar ganga þar um götur og nú
síðast hafa huliðsheimar Hafnar-
fjarðar vakið eftirtekt og undrun.
„Réttarhátíðin" er síðan nýlunda,
sem mun hafa átt í upphafi að vera
í Reykjavík. Að minnsta kosti er
hennar getið í ritinu „Around
Reykjavík“ og í bæklingi Þróunar-
félags Reykjavíkur. Ekki lukkaðist
samvinna Reykvíkinga og hug-
myndasmiðarins, forstjóra Ferða-
bæjar, og hélt hann því til Hafnar-
íjarðar með sitt hafurtask og var
„réttarhátíðin" sett þar upp með
litlum fyrirvara, en miklum mynd-
arskap.
Fjallkóngur úr þingheimi
Hátíðin fór fram laugardaginn
18. september. Hófst hún um miðj-
an dag á því að safn var rekið inn
í Hafnarfjarðarbæ og rakleiðis í
gegnum miðbæinn og út á stórt
samkomutún Hafnfirðinga í Norð-
urbænum. Fyrir rekstrinum fór
dýralæknirinn, þingmaðurinn og
Hafnfirðingurinn Arni Mathiesen.
Rollurnar voru óstýrilátar sumar
hveijar og höguðu sér sem á fjalli
væru. Stukku nokkrar inn í nær-
liggjandi húsagarða, en knáir knap-
ar sóttu þær þangað. Ein rolla stakk
sér í sjóinn og tók þar sundtökin,
en það tókst að ná henni áður en
henni varð meint af.
Á túninu var réttað og þar fór
allt fram sem í réttum væri. Voru
alls um 3.000 manns á túninu,
bæði heimamenn og gestir. Meðal
annars var þarna hrútasýning og
hrossauppboð og börn fengu að
bregða sér á hestbak eða í hesta-
kerru.
Um kvöldið logaði bærinn af
glaum og gleði. Hestamenn fóru
blysför um bæinn og réttarball var
haldið við Kænuna og í Firðinum.
Aðrir veitingastaðir létu ekki sitt
eftir liggja og buðu allar veitingar
á sérstöku réttartilboði. Að sögn
aðstandenda hátíðarinnar var þetta
sú fyrsta af mörgum. Stefnt er að
því að láta uppákomuna höfða til
útlendinga og mun þegar frágengið
að um 130 Þjóðverjar verði meðal
gesta næsta ár og unnið er að því
víða að hækka þá tölu. Leyfum svo
myndunum að tala sínu máli...
Safnið „kemur af fjalli".
Þetta var ekki síst dagur smá-
fólksins.
Dregið í dilka.