Morgunblaðið - 19.10.1993, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 19.10.1993, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. OKTÓBER 1993 9 Stretchbuxur Verð kr. 5.500,- TESS U' NEÐST VIÐ DUNHAGA, S. 622230. Opið virka daga kl. 9-18, laugardaga kl. 10-14. Fjölbreytt úrval af hinum heimsþekktu sígildu leikföngum. Barbie -bestu vinir barnanna! Fást í næsiu '„ii^gnnaverslun I. GUÐMUNDSSON & Co. hf. UMBOÐS 'Oe HBILDVERSt-UN SÍMI 91-24020 FAX 91-623145 m m mmuMfi! ELFA-LVI Einfaldir eða tvöfaldir olíufylltir rafmagnsofnar350 - 2000w. Hæð 30, 50 eða 59 cm. ELFA-OSO Hitakútar úr ryðfríu stáli. Stærðir 30- 300 lítra, útvegum aðrarstærðir frá 400-10.000 lítra. ELFA-VARMEBARONEN Hitatúba / rafketill 12kw, 230v. 1 fasa. Útvegum aðrar stærðir allt að 1200kw. ELFA-V ORTICE Rafmagnsþilofnar, 600 - 2000w. Elfa rafhitunarbúnaðurinn er þraut- reyndurvið íslenskaraðstæður. HAGSTÆTT VERÐ OG GREIÐSLUSKILMÁLAR. /V' Einar Farestveit & Co.hf. Borgartúni 28 - "S 622901 og 622900 VIP forVIP • VIP forVIP • VIP forVIP • VIP forVIP«VIPforVIP »vip, ODYR ALVÖRU HÁÞRÝSTIDÆLA TIL HEIMILISN0TA Til hreingerninga á húsinu, girðingunni, stéttinni, garðhýsinu, bílnum, kerrunni, bátnum ofl. HUN B0RGAR SIG STRAX UPP! Skeifan 3h-Simi 812670 “:dlA» dlAUM dlA* dlAHOd dlA«dlAuod dlA*dlAuod dlA»dlAuoddlA* 3,5% meðal- talshalli frá 1970 Þorvaldur Gylfason segir í grein í Fjármála- tíðindum að viðskipta- jöfnuður okkar við um- heiminn hafi aðeins verið jákvæður eitt ár síðan 1980: „Öll hin árin höfum við safnað skuldum. Við- skiptahallinn hefur num- ið 3,5% af landsfram- leiðslu að meðaltali síðan 1980. Þessi meðalhalla- tala helzt óbreytt, þótt viðmiðunartiminn sé teygður aftur til ársins 1970. Nú þarf skuldasöfnun í útlöndum ekki endilega að valda vandræðum undir öllum kringum- stæðiun, öðru nær. Hæfi- leg skuldasöfnun getur komið fólki og fyrirtækj- um að miklu gagni, sé tveimur skilyrðum full- nægt: 1) lánsféð verður að renna til arðbærra fram- kvæmda, svo verðmætar eignir myndist á móti skuldunum; 2) vöxtur þjóðarfram- leiðslu verður að vera nógu mikill til þess, að skuldabyrðin (þ.e. hlut- fall vaxta og afborgana af útflutningstekjum þjóðarinnar) þyngist ekki um of með tímanum. Hversu mikill þarf vöxtur þjóðarframleiðsl- unnar að vera, svo að skuldabyrðinni sé haldið í skeíjum? Svarið kann að hljóma undarlega í fyrstu: hagvöxturinn verður að vera að minnsta kosti jafnmikill og raunvextiniir af er- lendu skuldunum." Höfundur færir síðan rök að því „að skulda- byrði okkar Íslendinga Þorvaldur Gylfason muni að miklum líkind- um þyngjast verulega á næstu árum að öðru jöfnu, einmitt vegna þess að hagvöxtur hefur dreg- izt saman hér heima á sama tíma og vextir hafa hækkað á heimsmark- aði“. Hann varar og við þeirri hættu „að gera út á erlendar skuldir til að komast hjá erfiðum ákvörðunum um sinn í stað þess að skapa skil- yrði til raunverulegs hagvaxtar með skynsam- legri hagstjórn". _____________ Ingibjörg Sólrún Gísladóttir Kveimalistinn refsar lgöl- festunni Alþýðublaðið segir í forystugrein: „Kveimalistinn, hand- tækasta afsprengi kvennabaráttunnar, er orðinn hluti af kerfinu; hann tekur þátt í að skipta góssinu eins og aðrir með því að beijast fyrir sinum konum í bankaráðum og stjóm- um, en hefur hins vegar ævinlega hopað þegar á hólminn kom og glufa opnaðist fyrir hann inn í landsstjómina. Innan Kvennalistans hefur jafn- framt farið af stað ná- kvæmlega sama þróun og í öðrum fiokkum; klofningur milli þing- manna, harðar deilur sem eins og i öðrum flokkum hafa verið bom- ar á torg slikjuritaúna; og öfundsýki og valda- brölt rétt eins og í gömlu flokkunum. Þessi þróun brauzt fyrir skemmstu fram í þvi að kjölfestu Kvennalistans, Ingi- björgu Sólrúnu Gísla- dóttur, var refsað fyrir skoðanir sínar á ÉES með því að hún fékk hvorki að tala á eldhús- degi né vera áfram í ut- anríkisnefnd þingsins. Afdrif og örlög Kvennalistans tengjast án efa þeirri lægð sem kvennabaráttan er í um þessar mundir. Konur bundu gífurlegar vonir við listann sem nýtt stjómmálaafl, en þær vonir era að mestu leyti brostnar ... Hin fomi styrkur listans, grasrót- in, er sölnuð eins og iauf- ið sem fellur þessa dag- ana ... Þetta, ásamt stofnana- gervingu baráttunnar, á vafalítið mikinn þátt í lægð kvennabaráttunar. Það er búið að setja lög, samþykkja þingsályktan- ir og gera fram- kvæmdaáætlanir um út- færslu hvorutveggja. Þetta em í sjálfu sér sigr- ar, sem ekki skyldu van- metnir. En um leið og þeir unnust, em áfang- amir sem barist er fyrir, óljósari en áður. Kannski veldur það því, að viður- inn í elda reiðinnar sem áður brunnu, em ekki jafn nálægur og áður. Þó búa íslendingar við nýtt böl, atvinnuleysið, sem kemur mun harðar niður á konum en körl- um, og ætti að nægja til að kynda undir eldun- I um.“ Eitt ár af þrettán með afgang „Aðeins einu sinni síðan 1980 hefur ver- ið afgangur af viðskiptum okkar við út- lönd; það var í uppsveiflunni 1986. Öll hin árin höfum við safnað skuldum.“ Svo segir í grein Þorvaldar Gylfasonar, Vöxtur í skjóli skulda, í nýjasta hefti Fjármálatíð- inda. Staksteinar glugga í þá grein - og leiðara Alþýðublaðsins um Kvennalist- ann. Útbob ríkisvíxla fer fram mibvikudaginn 20. október Nýtt útboð á ríkisvíxlum fer fram á morgun. Um er að ræða 20. fl. 1993 í eftirfarandi verðgildum: Kr. 1.000.000 Kr. 50.000.000 Kr. 10.000.000 Kr. 100.000.000 Ríkisvíxlarnir eru til þriggja mánaða með gjalddaga 21. janúar 1994. Þessi flokkur verður skráður á Verðbréfa- þingi íslands og er Seðlabanki íslands viðskiptavaki ríkisvíxlanna. Ríkisvíxlarnir verða seldir með tilboðsfyrirkomulagi. Lágmarkstilboð samkvæmt tiltekinni ávöxtunarkröfu er 5 millj. kr. og lágmarkstilboð í meðalverð samþykktra tilboða er 1 millj. kr. Löggiltum verðbréfafyrirtækjum, verðbréfamiðlurum, bönkum og sparisjóðum gefst einum kostur á að gera tilboð í ríkisvíxlana samkvæmt tiltekinni ávöxtunarkröfu. Aðrir sem óska eftir að gera tilboð í ríkisvíxla eru hvattir til að hafa samband við framangreinda aðila, sem munu annast tilboðsgerð fyrir þá og veita nánari upplýsingar. Jafnframt er þeim sjálfum heimilt ab bjóða í vegið meðalverb samþykktra tilboða (meðalávöxtun vegin meb fjárhæð). Öll tilboð í ríkisvíxlana þurfa ab hafa borist Lánasýslu ríkisins fyrir kl. 14 á morgun, miðvikudaginn 20. október. Tilboðsgögn og allar nánari upplýsingar eru veittar hjá Lánasýslu ríkisins, Hverfisgötu 6, í síma 62 60 40. Athygli er vakin á því ab 22. október er gjalddagi á 14. fl. ríkisvíxla sem gefinn var út 23. júlí 1993. LANASYSLA RIKISINS Hverfisgötu 6, 2. hæð, 150 Reykjavík, sími 91- 62 60 40.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.