Morgunblaðið - 31.12.1993, Page 4
MORGUNBLAÐIÐ FOSTUDAGUR 31. DESEMBER 1993
Grein eftir íslenska lækna í British Medical Journal
Hringblöðrubólgu fylgir
aukin krabbameinshætta
í HINU virta breska læknatímariti British Medical Journal sem kem-
ur út á morgun verður grein eftir tvo íslenska lækna, Bárð Sigur-
geirsson og Bjarna A. Agnarsson, og sænskan starfsbróður þeirra,
Bernt Lindelöf, þar sem sýnt er fram á að sjúklingum með húðsjúk-
dóminn hringblöðrubólgu er hætt við að fá eitlakrabbamein. Niður-
stöður greinarinnar byggjast á rannsókn sem unnin var fyrir styrk
frá Vísindasjóði íslands. Niðurstöðurnar eru þær að karlmönnum
með hringblöðrubólgu er fimmfalt hættara við að fá eitlakrabba-
mein og konum fjórfalt hættara.
Lengi hefur leikið grunur um að
sjúklingum með hringblöðrubólgu
sé hættara við krabbameinum af
öllum gerðum. Áður hefur þó ekki
verið hægt að sýna fram á það með
óyggjandi hætti. í rannsókn ís-
lensku læknanna er sýnt fram á
mjög umtalsverða krabbameins-
áhættu hjá þessum sjúklingum svo
og að áhættan er bundin við eitla-
krabbamein. Mikilvægi niðurstaðn-
anna liggur í því að húðsjúkdómur-
inn greinist oftast löngu áður en
krabbameinið myndast. I ljósi þeirra
staðreynda er nauðsynlegt að leita
reglulega að eitlakrabbameini hjá
öllum sjúklingum sem greinast með
hringblöðrubólgu og halda þeirri
leit áfram svo lengi sem sjúkdómur-
inn er virkur.
Óþol fyrir hveiti
Hringblöðrubólga (dermatitis
herpetiformis) er húðsjúkdómur
sem lýsir sér með miklum kláða og
útbrotUm, oft blöðrum. Ekki er vit-
að hve margir hafa sjúkdóminn
hérlendis, líklega 2-3 tugir íslend-
inga. Um orsök hans er ekki vitað
í smáatriðum en talið er að hér sé
um einhvers konar óþol fyrir hveiti
(gluten) að ræða og í mörgum til-
vikum batnar sjúklingum sem neyta
glutensnauðs fæðis.
Rannsakaðir voru 976 sjúklingar
sem greindust með hringblöðru-
bólgu á árunum 1964 til 1983 í
Svíþjóð. Leitað var að gögnum um
þessa sjúklinga í sænsku krabba-
meinsskránni og fengust þannig
upplýsingar um hveijir sjúkling-
anna 976 höfðu greinst með
krabbamein. Hjá þessum 976 sjúk-
lingum greindust 106 krabbamein
fram til ársins 1987. Þegar þessar
niðurstöður voru bomar saman við
þann fjölda krabbameina sem hefði
átt að greinast í hópnum ef allt
hefði verið með felldu kom í ljós
nokkuð aukin krabbameinsáhætta
í heild. Þegar tíðni einstakra
krabbameina var könnuð kom í ljós
rúmlega fimmföld áhætta á eitla-
krabbameini hjá körlum og rúmlega
fjórföld hjá konum. Þegar litið var
fram hjá eitlakrabbameini kom í
ljós að sjúklingamir höfðu ekki
áhættu á öðrum krabbameinum.
VEÐUR
I DAGkl. 12.00
Heimild: Veðurstofa Islands
(Byggt á veðurspá kl. 16.30 í gær)
VEÐURHORFURI DAG, 31. DESEMBER
YFIRLIT: Fyrir sunnan og austan land er aðgerðalítil 975 mb lægðar-
svæði.sem þokast austur og grynnist. Yfir N-Grænlandi er 1020 mb
háþrýstisvæði, sem þokast austur og grynnist. Yfir Norður-Grænlandi
er 1020 mb háþrýstisyæði, sefn færist heldur í aukana.
SPA: Austan- ög norðaustan átt, viða allnvasst um landið norðanvert,
enhægari vindur sunnantil. Norðaustan og austanlands er reiknað með
slyddu en á Norðurlandi og Vestfjörðum verður éljagangur.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á NÝÁRSDAG: Austlæg eða norðaustlæg átt. Él við norður-
ogausturströndina og ef til vill einnig vestur með suðurströndinni og
annars bjart veður að mestu sunnan- og vestanlands. Líklega frostlaust
suðaustanlands envægt frost annars staðar.
HORFUR Á SUNNUDAG OG MÁNUDAG: Norðan- og norðaustanátt
og harðnandi frost. Snjókoma eða éljagangur norðan- og austanlands
en úrkomulaust og jafnvel bjart veður suðvestanlands.
Nýir veðurfregnatímar: 1.30, 4.30, 7.30, 10.45, 12.45, 16.30, 19.30,
22.30. Svarsími Veðurstofu Islands — Veðurfregnir: 990600.
o a -ó m Sunnan, 4 vindstig. Vindðrin sýnir vindstefnu og fjaðrimar vindstyrk,
Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað heil fjöður er 2 vindstig.
/ / / * / * * * * * Á * 10° Hitastig
/ / / / / * / / * / * * * * * V V V V Súld J
Rigning Slydda Snjókoma Skúrir Slydduél Él æ Þoka ^
FÆRÐA VEGUM
(Kl. I7.30ígær)
Á Vestfjörðum er þungfært um Klettsháls og ófært um Dynjandisheiði.
Að ööru leyti er greiðfært um flesta þjóðvegi landsins en víða er nokk-
ur hálka.
Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í sima 91-631500 og
i grænnilínu 99-6315. Vegagerðin.
VEÐUR VIÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
hiti veður
Akureyri 3 rigning
Reykjavík 2 alskýjað
Bergen 4 skýjað
Helslnkl +2 kornsnjór
Kaupmannahöfn 3 þoka
Narssarssuaq +11 snjóskýjað
Nuuk +13 snjókoma
OsJó 0 þoka
Stokkhólmur 1 snjókoma
Þórshöfn 1 létlskýjeð
Algarve 17 skýjað
Amsterdam 7 rigning
Bercelone 13 skýjað
Berlin 6 léttskýjað
Chicago +16 heiðskýrt
Feneyjar 2 þokumóða
Frankfurt 8 rigning
Glasgow 2 reykur
Hamborg 6 alskýjað
London 8 alskýjað
LosAngeles 11 léttskýjað
Lúxemborg 7 skúr
Madrtd 8 skýjað
Malaga 18 léttskýjað
Mallorca 16 léttskýjað
Montreal +16 snjókoma
NewYork +4 skafrenningur
Orlando 16 þokumðða
París 8 skýjað
Madelra 16 skýjað
Róm 10 skýjað
Vín 1 alskýjað
Weshington +4 léttskýjað
Wlnnipeg +12 alskýjað
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Gjöfin afhent
Sveinn Runólfsson landgræðslustjóri tekur við gjöf Anheuser-Busch
úr hendi Magnúsar Jónssonar.
Landgræðslan
4,3 milljónir frá An-
heuser Busch og ÁTVR
SVEINN Runólfsson landgræðslustjóri veitti í gær viðtöku 2,8 millj-
óna króna gjöf frá bandaríska fyrirtækinu Anheuser Busch til Land-
græðslu ríkisins og 1,5 milljóna króna framlagi frá ÁTVR vegna
tekna af auglýsingum sjö íslenskra fyrirtækja á burðarpokum ÁTVR.
Framlagi Anheuser Busck, sem 1,5 milljóna króna framlag til
m.a. framleiðir Budweiser og Landgræðslu vegna auglýsinga á
Michelob bjór, verður varið til upp-
græðslu Þórsmerkur en undanfarin
tvö ár hefur fyrirtækið gefíð jafn-
virði 65 þúsund Bandaríkjadala eða
um 4,7 milljónir króna að núvirði
til uppgræðslu í Þórsmörk.
burðarpokum ATVR kemur frá eft-
irtöldum fyrirtækjum: Bræðrunum
Ormsson, Búnaðarbanka íslands,
Ölgerðinni Agli Skallagrímssyni,
Mjólkurdagsnefnd, Leikhúskjallar-
anum, Ingólfscafé og Plastprenti.
Látnir lausir og
brutust inn að nýju
TVEIR 18 ára piltar sem grunaðir eru um fjölmörg innbrot, þar á
meðal að hafa stolið 5-600 þúsund krónum úr peningaskáp veitinga-
hússins Skútunnar í Hafnarfirði um jólin, voru handteknir á heimili
kunningja síns í Breiðholti í fyrradag. Skömmu fyrir jól voru piltarn-
ir handteknir eftir innbrot og fundust þá m.a. á þeim uppdrættir
yfir innbrotsstaði. Þeir voru þá látnir lausir eftir yfirheyrslur og
eru taldir hafa brotist inn í fjölmörg fyrirtæki siðan. Málið komst
upp þegar kunningi piltanna reyndi á miðvikudagsmorgun að fram-
selja ávísun úr einu innbrotinu í banka.
Lögregla var kvödd í bankann
og sagði pilturinn þá að hann hefði
fengið ávísunina hjá kunningja sín-
um. Hann kvaðst hafa verið í góðri
trú um að ávísunin væri í fullu gildi.
í framhaldi af þessu voru kunnin-
gjarnir tveir handteknir í húsi í
Breiðholti. í fórum þeirra fundust
m.a. fíkniefni.
Þessir piltar voru 17. þessa mán-
aðar handteknir eftir innbrot á
Reykjalundi og fundust þá m.a. í
fórum þeirra uppdrættir að fyrir-
huguðum innbrotsstöðum og upp-
lýsingar um aðila sem hefðu áhuga
á að kaupa af þeim ýmiss konar
þýfí. Þeir voru þá látnir lausir eftir
yfírheyrslur.
Við rannsókn málsins eftir hand-
tökuna í fyrradag vaknaði grunur
um að piltarnir bæru ábyrgð á fjölda
innbrota síðan þá og hefðu m.a.
framið 8 innbrot í ýmis fyrirtæki í
Kópavogi aðfaranótt miðvikudags-
ins go einnig á lögfræðiskrifstofu
í Reykjavík.
Vegna rannsóknar á málum pilt-
anna var í gær gerð krafa um að
piltamir yrðu úrskurðaðir í gæslu-
varðhald og var sá úrskurður tekinn
til umfjöllunar í Héraðsdómi í gær
og piltarnir úrskurðaðir í gæslu-
varðhald til 10. janúar.
Sementsverksmiðjan hf. tekur til starfa
Yfirstjórn einfölduð
og gerð skilvirkari
UM ÁRAMÓTIN verður sú breyting að Sementsverksmiðja ríkisins
verður lögð niður en Sementsverksmiðjan hf. sem er alfarið í eigu
ríkisins tekur við rekstrinum. Samhliða þessari breytingu hefur
sljórn fyrirtækisins ákveðið að gera ýmsar breytingar á yfirsljórn
verksmiðjunnar sem taka gildi nú um áramótin.
„Við erum að einfalda yfírstjórn verksmiðjunnar en dr. Guðmundur
fyrirtækisins og gera hana skilvirk-
ari sem m.a. felur í sér að það verð-
ur einn framkvæmdastjóri og tveir
deildarstjórar," sagði Frosti Bergs-
son, stjórnarformaður Sements-
verksmiðjunnar. „Fyrir J. febrúar
mun liggja fyrir endanlegt skipu-
rit.“
Ákveðið hefur verið að Gylfi
Þo’rðárson verði framkviemdastjóri
Guðmundsson, sem jafnframt hefur
verið framkvæmdastjóri, verði
starfsmaður stjórnar. Mun hann
vinna að ýmsum sérverkefnum m.a.
í markaðsmálum. Jafnframt verða
forstöðumenn deilda tveir, þ.e.
Gunnar H. Sigurðsson fyrir fram-
leiðslu- og viðhaldsdeild og Tómas
Runólfsson fyrir fjármála- og við-
skiptadeild.
1
1