Morgunblaðið - 31.12.1993, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. DESEMBER 1993
Morgunblaðið/Þorkell
FRÁ byggingarstað við Digraneskirkju sem aðbúnaðarnefnd Trésmiðafélagsins taldi að verðskuld-
aði viðurkenningu félagsins í ár.
ViðllrkemliIlg, fyrir góðan aðbúnað
TRÉSMIÐAFÉLAG Reykjavíkur afhenti í gær Hallvarði Guð-
laugssyni byggingameistara viðurkenningu félagsins fyrir góðan
aðbúnað á byggingarstað. Byggingarstaðurinn er Digranes-
kirkja við Digranesveg í Kópavogi.
Á árlegri yfirreið um vinnustaði
á félagssvæði Trésmiðafélagsins
var aðbúnaðarnefnd félagsins á
einu máli um að aðstaða starfs-
manna á byggingarstaðnum
Digraneskirkju verðskuldaði við-
urkenningu félagsins. Á staðnum
sé góð matstofa og umgengni
starfsmanna til fyrirmyndar. Með
góðu móti sé hægt að þurrka
hlífðarfatnað á staðnum og læstur
skápur sé fyrir hvern starfsmann.
Aðstaða til að vinna við ýmis verk-
efni innan húss sé einnig fyrir
hendi og öll umgengni og þrif á
vinnustaðnum með ágætum.
Það er sannfæring Trésmiðafé-
lagsins að þær viðurkenningar
sem veittar hafa verið vinnustöð-
um fyrir góðan aðbúnað allt frá
árinu 1985 hafi orðið til að vekja
athygli á aðbúnaðarmálum bygg-
ingamanna og hvatt menn til dáða
í þessu efni, segir loks í frétt Tré-
smiðafélagsins.
Deilt um framlag ríkis til Sólheima í Grímsnesi
Félagsvísindadeild HÍ
* _________
Staða Olafs Ragnars
auglýst á næstunni
PRÓFESSORSSTAÐA í stjórnmálafræði við félagsvísindadeild
Háskóla íslands verður að sögn Siguijóns Björnssonar deildar-
forseta að öllum líkindum auglýst laus til umsóknar á næstu
mánuðum. Ólafur Ragnar Grímsson hefur gegnt þessari stöðu
en hann sagði henni iausri sl. sumar eftir að hafa verið í launa-
lausu ieyfi. Hann kenndi síðast við HÍ árið 1988.
Siguijón sagði að námsnefnd í
stjórnmálafræði, sem í eiga sæti
kennarar og stúdentar, myndi koma
saman og senda frá sér beiðni um
að staðan yrði auglýst og taka jafn-
framt afstöðu til þess hvort gera
þyrfti á henni breytingar frá því
sem var þegar henni var gegnt síð-
ast. Siguijón segir að þeir sem séu
við kennslu og nám í greininni geti
best sagt til um á hveiju greinin
þyrfti að halda. „Tillaga um auglýs-
ingu fer til deildarráðs, sem er
stjórnarnefnd deildarinnar, og það
gengur frá henni og endanlegu
formi auglýsingar til menntamála-
ráðherra. Að fengnu samþykki hans
er staðan auglýst og háskólarektor
skipar dómnefnd sem fer yfir um-
sóknirnar. Deildarfundur í félags-
vísindadeild tilnefnir formann
nefndarinnar, rektor einn nefndar-
mann og menntamálaráðuneyti
einn. Dómnefndin skilar álitsgerð
til rektors sem gengur úr skugga
um að það fullnægi formlegum skil-
yrðum. Að því búnu fer dómnefnd-
arálitið til deildarinnar aftur þar
sem það er lagt fyrir deildarfund
þar sem allir kennarar og fulltrúar
og stúdentar sitja. Þar eru greidd
atkvæði um meðmæli með umsækj-
endum. Menntamálaráðherra skip-
ar síðan í embættið og samkvæmt
lögum getur hann ekki skipað ann-
an en þann umsækjenda sem feng-
ið hefur meðmæli meirihluta at-
kvæðisbærra deildarfundarmanna.
Ef ráðherra sér eitthvað athugavert
við dómnefndarálitið getur hann
óskað eftir því að embættið verði
auglýst aftur,“ sagði Sigutjón.
Onnur sambýli fá 30 millj.
króna hærri fjárveitingn
- segir stjórnarformaður Sólheima
PÉTUR Sveinbjamarson stjóraarformaður Sólheima í Grímsnesi seg-
ir að ef heimilið ætti að njóta sambærilegrar fjárveitingar til rekstr-
ar og sambýli á vegum ríkisins þá þyrfti hún að hækka um 30 milljón-
ir króna. Sagði hann að með niðurskurði á fjárveitingu til heimilisins
væri verið að kippa rekstrargrundvelli undan heimilinu.
Pétur segir það alrangt hjá Jó-
hönnu Sigurðardóttur félagsmála-
ráðherra og Braga Guðbrandssyni
aðstoðarmanni ráðherra að verið sé
að auka rekstrarfé til heimilisins um
5% til 6%. Sagði hann það óumdeilan-
legt að fjárveiting til Sólheima árið
1992 hafi verið 82 millj. en síðan
hafí heimilinu verið úrskurðaðar 7,2
millj. í afgjald sem ætlað er að standa
undir viðhaldi og kostnaði vegna
hitaveitu. „Sannarlegur rekstrar-
kostnaður sem reyndar er mjög lágur
er því 89,2 milljónir og þannig hefði
fjárveiting til heimilisins verið ef
ekki hefði komið til rekstrarbreyting
um síðustu áramót,“ sagði hann en
þá var heimilinu breytt í þjónustu-
miðstöð fyrir fatlaða. Benti hann á
að ef Sólheimar ættu að fá sambæri-
lega íjárveitingu til rekstrar og sam-
býli á vegum ríkisins þá þyrfti hún
að hækka um 30 millj.
Lægri rekstrarkostnaður
Með breyttu rekstrarfyrirkomu-
lagi hefur heimilisfólk fengið greidd-
ar örorkubætur og lífeyri frá Trygg-
VILT ÞÚ SÉRHÆFA ÞIG í
HACCP-GÆÐASTJÓRNUN?
E! svo er gæti þessi auglýsing verió fyrir þig
HACCP-gæðakerfið fyrir matvælavinnslu byggir ó að greina
mikilvæga eftirlitssfaði í vinnsluferlinu og koma á fyrirbyggj-
andi ráðstöfunum til að tryggja nútímalegt framleiðslueftir-
lit og hámarks neytendavernd. HACCP-gæðakerfi mun inn-
an skamms verða lögbundið hjá okkar helstu viðskiptaþjóð-
um og nú þegar eru mörg íslensk fyrirtæki í sjávarútvegi
og öðrum matvælaiðnaði farin að huga að uppsetningu
HACCP-kerfa, enda gera sífellt fleiri viðskiptavinir kröfur
um slíkt. Þörfin fyrir vandaða ráðgjöf er því brýn.
Fiskistofa ráðgerir að efna til námskeiðs í HACCP-gæða-
stjórnun í febrúar sérstaklega ætlað þeim, sem vilja afla
sér ítarlegrar þekkingar í þeim fræðum. Kennarar á nám-
skeiðinu verða sérfræðingar frá Bandarísku sjávarútvegs-
stofnuninni National Marine Fisheries Service.
Námskeiðið stendur í sex heila daga og lýkur með prófi.
Prófskírteini verða gefin út af National Marine Fisheries
Service.
Námskeið þetta gefur þeim, sem hafa hug á að starfa við
gæðastjórnun í matvælavinnslu, hvort heldur er sem ráð-
gjafar, eftirlitsmenn, kennarar, starfsmenn fyrirtækja eða
stofnana, einstakt tækifæri að tileinka sér þekkingu færustu
leiðbeinenda sem völ er á.
Skráningar og nánari upplýsingar veitir Einar M. Jóhanns-
son hjá FÍsklstofu fyrir 7. janúar nk.
FISKISTOFA
Ingólfsstræti 1,
sími 91-697900 - fax 91-13866.
ingastofnun ríkisins og sagði Pétur
það alrangt að þeir peningar rynnu
beint til Sólheima. Þetta væri fé sem
færi beint til að kosta eigin heimilis-
rekstur vistmanna, svo sem húsnæði
og matarkostnað. Eins árs reynsla
af breyttu rekstrarfyrirkomulagi
sýndi að rekstur hefði lækkað um
6,5 millj. Kostnaður við að koma
breytingunum á hefði verið nokkur
en þó minni en nokkur dæmi eru um,
eða rúmar 7 millj. „Við töldum okkur
gæta fyllstu hagkvæmni og gera
þetta í raun án verulegs kostnaðar-
auka en hegningin er aftur á móti
hreinn niðurskurður um 19 milljón-
ir,“ sagði Pétur.
Stöðug áreitni
Sagði Pétur að heimilið hefði þurft
að þola stöðuga áreitni frá Jóhönnu
Sigurðardóttur félagsmálaráðherra í
14 ár og að það væri ljót og löng
saga. „Eftir að hún varð ráðherra
fyrir tæpum sjö árum versnaði
ástandið verulega og hefur aldrei
verið jafn slæmt og síðustu sjö mán-
uði,“ sagði hann. Alvarlegastur væri
niðurskurðurinn á fjárveitingum til
heimilisins. Þar væri í raun verið að
kippa rekstrargrundvellinum undan
heimilinu. Beiðni stjórnar heimilisins
í byijun desember sl. um nýjar við-
ræður um þjónustusamning hafi ekki
verið svarað fyrr en gripið var til
þess neyðarúrræðis að tiikynna ráðu-
neytinu að samskiptum um þjónustu
við fatlaða yrði slitið. „Þá fyrst fóru
hjólin að snúast,“ sagði Pétur. „Það
hefur aldrei komið til álita eða um-
ræðu að hætta rekstri á Sólheimum.
Nú er mál að linni og að heimilið fái
starfsfrið og rekstrargrundvöll, hvort
sem það verður með samstarfi við
félagsmálaráðuneytið á næsta ári
eða við aðra aðila.“
Endurhæfingarhappdrætti
i Sjálfsbjargar, landssambands
a fatlaðra 1993.
Dregið var 24. desember 1993.
Vinningaskrá:
Bifreið Nissan Primera 2.0 SLX
kr. 1.775.000: 18082
Bifreið Nissan Micra 1.3 LX kr. 985.000:
22893 47191 69454 71196 80758
Vöruúttekt hjá Heimilistækjum hf.
kr. 160.000:
2334 13935 41314 48304 69545 74553
6769 37763 43737 57835 73939 89342
3-5 daga ferðir fyrir tvo til heimsborga Flugleiða kr. 100.000:
66 10091 40451 50362 76690 79305
5400 12692 41918 51993 77066 80717
5882 9434 21704 24747 42099 45325 55770 62587 77758 82156
Helgarferðir fyrir tvo með Flugleiðum
kr. 30.000:
847 20148 30418 42559 52329 69291
5094 20442 31865 43273 53921 70057
5212 22135 35937 44834 57235 72027
7277 23870 37224 45465 59137 72223
8122 26222 37637 45520 60112 73657
16235 26253 40103 45581 65291 85045
17489 29986 42239 51539 Birt án ábyrgðar.
Tvenns konar prófessorar
Að sögn Siguijóns er málið ekki
enn komið á frumstig en hann
sagðist gera ráð fyrir að það færi
af stað á næstu mánuðum. „Ef
deildarforseti telur sérstaka ástæðu
til þá ýtir hann á eftir því en ég
hef ekki séð ástæðu til þess. Það
hefur ekki virst vera sérstaklega
aðkallandi, við höfum komist af í
öll þessu ár auk þess sem aðstæður
eru nú að breytast jafnt og þétt.
Eftir því ráðningarkerfi sem nú
gildir fá menn framgang eftir
ákveðinn tíma. Þeir byija sem lekt-
orar og geta eftir ákveðinn ára-
fjölda farið fyrir dómnefnd og orð-
ið dósentar. Eftir ákveðinn ára-
fjölda til viðbótar geta þeir aftur
farið fyrir dómnefnd og orðið pró-
fessorar. Nú eru því komnir tvenns
konar prófessorar, þeir sem hafa
unnið sig upp og þeir sem eru skip-
aðir beint,“ sagði Siguijón Björns-
son.
-----♦ ♦ ♦----
Islenskur
arkitekt
vinnur til
verðlauna
ÍSLENSKUR arkitekt, Guð-
mundur Jónsson, búsettur í Ósló,
átti verðlaunateikningu að menn-
ingar- og ferðamiðstöð sem ætl-
unin er að reisa í Geirangursfirði
í Noregi. Haldin var hugmynda-
samkeppni í nóvember á þessu
ári og var sex arkitektastofusam-
steypum boðið að senda inn hug-
myndir og bar hugmynd Guð-
mundar Jónssonar og Kristínar
Jarmund sigur úr býtum.
Sagt var frá hugmyndasam-
keppninni og sigurvegurunum í
Aftenposten en um var að ræða
lokaða samkeppni þar sem ákveðn-
um fjölda arkitekta var boðin þátt-
taka. Guðmundur, sem hefur verið
búsettur í Noregi sl. 19 ár, sagði
ekki mikinn tíma hafa gefist til
undirbúnings, eða fjórar vikur.
Hugmyndin var unnin í samvinnu
við arkitektinn Kristínu Jarmund
og er ætlunin að byggingu mið-
stöðvarinnar verði lokið árið 1995.
Geirangursfjörður er fjölsóttur
ferðamannastaður, þangað koma
600.000 manns árlega, og er mið-
stöðinni ætlað að standa á hásléttu
með útsýn yfir fjörðinn.