Morgunblaðið - 31.12.1993, Síða 29

Morgunblaðið - 31.12.1993, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. DESEMBER 1993 29 árleg fjárlög verði innan langtíma- rammans. Þetta væri eðlilegt fram- hald af þeim umbótum sem núv. fjármálaráðherra hefur beitt sér fyrir, að koma á rammafjárlögum til þess að freista þess að gera útgjaldafrekustu ráðherrana sam- ábyrga í ríkisfjármálum. Þriggja ára rammafjárlög þjóna þeim til- gangi að gera meirihluta Alþingis samábyrgan um ábyrga stefnu i ríkisfjármálum. 2. Breytt vinnubrögð á Alþingi. Taka þarf upp í þingskaparlög þá vinnureglu að engum þingmanni sé heimilt að leggja fram útgjald- atillögu við afgreiðslu fjárlaga, nema hann leggi fram á móti jafn- gilda sparnaðartillögu, sem meiri- hlutinn geti fallist á. Þetta er við- tekin vinnuregla í þjóðþingum ýmissa grannlanda. 3. Reikningshaldskerfi ríkisins. Það er meingallað. Af því leiðir að skráning og viðurkenning á vanda- málum ríkisíjármála er ófullnægj- andi. Stjórnendum í ríkiskerfínu er mörgum hverjum óljós sú fjár- munanotkun, sem fram fer undir þeirra handaijaðri. Stjórnendur rík- isstofnana komast upp með það, sumir hvetjir, að fara fram úr fjár- lögum ár eftir ár, án þess að viður- lögum sé beitt. Lánasjóðir og ríkis- bankar skáka í skjóli almennrar ríkisábyrgðar og taka einatt á sig skuldbindingar umfram greiðslu- getu, sem vísað er á skattgreiðend- ur framtíðarinnar. Þannig er farið með ýmsar stórfelldar opinberar skuldbindingar sem ríkisleyndar- mál en ekki sem ríkisfjármál. Brýn nauðsyn er á að störfum nefndar um þessi málefni verði hraðað og að tekið verði upp reikningshalds- kerfi, sem tekur meira mið af þeim venjum, sem mótaðar hafa verið í fyrirtækjarekstri. 4. Breytt kjördæmaskipan. Með því að gera landið að einu kjör- dæmi yrði dregið úr fjárkúgunar- valdi þröngsýnna kjördæmapotara og sendiherra sérhagsmuna, sem hvað eftir annað hafa gert sig seka um að misnota aðstöðu sína á þingi í atkvæðakaupaskyni. Eitt ömur- legasta dæmið í seinni tíð um slíka íjárpynd var tugmilljóna króna framlag til hafnarframkvæmda á Blönduósi, þrátt fyrir þá staðreynd að höfnin á Skagaströnd gat full- nægt eðlilegum þörfum fyrir út- gerðar- og hafnaraðstöðu, í stund- arfjórðungs akstursijarlægð eftir malbikuðum vegi. Að því er varðar tekjuhlið fjár- laga er rétt að halda því til haga að ríkisstjórnin hyggst reka enda- hnútinn á áætlanir sínar um sam- ræmingu á skattlagningu fjár- magnstekna eða samræmingu á skattlagningu peningalegra eigna, þegar jafnvægi hefur náðst á ijár- magnsmarkaði við lægra vaxtastig. 4 Á fáeinum árum hafa vestrænar þjóðir orðið vitni að — og tekið þátt í — umfangsmestu breytingum í alþjóðamálum á síðustu öld. í kjöl- far þessara breytinga er bein hern- aðarógn við ísland og önnur Vest- ur-Evrópu-ríki að mestu leyti úr sögunni og lýðræðislegir stjómar- hættir ryðja sér nú rúms víðast hvar í ríkjum Mið- og Austur-Evr- ópu. Umskipti af þessu tagi hafa vit- anlega umtalsverð áhrif á íslenska öryggishagsmuni. Islendingar, ekki síður en aðrir, þurfa að laga sig að breyttum aðstæðum. Af þessum sökum ákvað ég á miðju ári 1992 að setja á fót nefnd til að greina og leggja mat á áhrif endaloka kalda stríðsins á stefnu íslands í öryggis- og varnarmálum. Á grundvelli þeirra niðurstaðna, sem nefndin lagði fram í mars síðast- liðnum, hafa farið fram ítarlegar viðræður íslenskra og bandarískra stjórnvalda um fyrirkomulag varna landsins á grundvelli tvíhliða varn- arsamningsins frá 1951. í viðræðum þessum, sem vonir standa til að ljúki á næstunni, hef- ur komið fram að báðir aðilar eru sammála um meginforsendurnar; annars vegar að mikilvægi vamar- samningsins standi óhaggað og hins vegar að svigrúm sé til breytinga eftir því sem dregið hefur úr hætt- unni á ófriði á Norður-Atlantshafí. Þrátt fyrir að lok kalda stríðsins hafi gert vestrænum ríkjum kleift að draga úr vígbúnaði, ríkir mikil óvissa víða í Evrópu, ekki síst á Balkanskaga og á landsvæði Sovét- ríkjanna fyrrverandi. Nýafstaðnar kosningar í Rússlandi hafa víða vakið ugg um framtíð umbóta þar í landi. Við þessar aðstæður hef ég lagt á það áherslu að ísland og ríki þau, sem íslendingar eiga samstarf við í öryggis- og varnarmálum, haldi vöku sinni og ráðist í engar þær aðgerðir sem veikt gætu ör- yggishagsmuni þeirra og annarra Evrópuríkja síðar meir. Umfram allt beri að varðveita og styrkja þau tengsl, sem farsælt samstarf Evr- ópuríkja og ríkja Norður-Ameríku í varnarmálum hefur byggst á til þessa. Ég bind við það vonir að í byijum nýs árs náist samkomulag milli íslands og Bandaríkjanna um fyrir- komulag varnarsamstarfsins. Samningsniðurstaðan þarf að treysta í sessi þá hagsmuni, sem ríkin eiga sameiginlega, jafnframt því sem brugðist verði við þeim sögulegu breytingum, sem aukið hafa horfur á friði í okkar heims- hluta á síðustu árum. 5 Menn verða að gera skýran greinarmun á viðskiptum með afla- heimildir, sem stuðla að aukinni hagræðingu og eru báðum aðilum, útgerðarmönnum og sjómönnum, í hag annars vegar; og hins vegar á leigu eða sölu kvóta innan ársins, sem útgerðarmenn stunda beinlínis á kostnað sjómanna — ganga bein- línis á þeirra hlut. Allir sem til þekkja viðurkenna að aflamarkskerfí, án heimilda til viðskipta með aflaheimildir, er óhagkvæmt kerfi. Forsenda frelsis i þess háttar viðskiptum er hins vegar sú að greitt sé fyrir úthlutað- ar aflaheimildir í sameiginlegan sjóð landsmanna þ.e.a.s. til hins löglega eiganda auðlindarinnar. Aflamarks- eða sóknarmarks- kerfi, þar sem viðskipti með sókn- ar- eða aflaheimildir eru bönnuð með lögum, mundi ekki kalla fram minna kvótasvindl á svörtum mark- aði en opið kerfi með viðskipti gerir. Flestar tegundir kvótaviðskipta eru báðum aðilum, útgerðarmönn- um og sjómönnum, til hagsbóta. Það á við t.d. um færslu á kvóta innan sömu útgerðar, eða þegar skipst er á kvóta einnar tegundar á móti annarri, milli óskyldra aðila. Að því er varðar viðskipti sem kennd eru við „tonn á móti tonni“ ber að koma í veg fyrir misnotkun af því tagi að viðskiptin séu skráð á undirverði og þ.a.l. á kostnað sjómanna. Sameiginleg kvótakaup út- gerðarmanna og sjómanna snúast því fyrst og fremst um beina leigu eða sölu innan ársins. Hér hefur viðskiptafrelsið verið misnotað í þeim tilgangi einum að rýra hlut áhafnarinnar. Slíkir viðskiptahættir eru óþol- andi. Löggjafanum ber beinlínis skylda til að koma í veg fyrir slíka misnotkun. Það er unnt að gera t.d. með því að takmarka heimildir til að flytja kvóta til baka á sama skip innan ákveðins tíma. Þá myndu útgerðaraðilar hugsa sig um tvisvar áður en þeir féllu í þá freistni að níðast á kjarasamning- um sjómanna, sérstaklega ef þessu væri fylgt eftir með viðurlögum, sem gætu þýtt sviptingu aflaheim- ilda. Til þess að koma í veg fyrir undirverð í viðskiptum með kvóta ber að skylda útgerðaraðila til að selja þann afla á fijálsum fiskmörk- uðum. Þar með væri hlutur sjó- manna tryggður. Einmitt vegna þess að afla- markskerfið fær ekki staðist án framsalsréttar á kvóta í hagræð- ingarskyni, ber að taka hart á mis- notkun á þeim forréttindum, sem aðgangurinn að auðlindinni er. Ef kerfið misbýður réttlætiskennd sjó- manna og brýtur í bága við grund- vallarregluna um sanngirni í við- skiptum, fær það ekki staðist. Þá gildir um það hið sama og landbún- aðarkerfið, að farið hefur fé betra. Jóna Valgerður Kristjánsdóttir, formaður þingflokks Kvennalistans Botni efnahagskr eppu ekki náð i EES-samningurinn mun hafa margs konar áhrif, og þau eru ekki öll efnahagsleg, heldur hefur hann einnig áhrif á löggjöf og dómskerfi landsins. Samningurinn boðar fijálst flæði fjármagns, fólks, flutn- inga og vöru milli þeirra landa, sem hann nær til. Ég hygg, að of mikið sé gert úr mikilvægi þessa fyrir íslenskt efnahagslíf og að ekki fylgi sá bati í kjölfarið, sem margir ætla. Jafnframt samningnum var samið um svokallaðar „gagnkvæmar veiðiheimildir" við Evrópubanda- lagið. Þar fóru íslensk stjórnvöld inn á hættulega braut að mínu mati, að hleypa erlendum togurum inn í fiskveiðilögsögu okkar með réttindi til veiða. Vissulega hefur EES-samningur- inn í för með sér tollalækkanir á ýmsum sjávarafurðum og getur þannig aukið sölu á þeim afurðum erlendis. Hins vegar höfum við ekki búið við sölutregðu, heldur miklu fremur við takmarkaðan afla til að vinna úr hér heima, og tollalækkan- ir skila sér frekar sem hagsbót til neytenda vöru en til seljenda henn- ar. Þá þarf sú vara, sem seld er á EES-svæðinu, líka að vera að stærstum hluta upprunnin á því svæði. Það er því ekki hægt að framleiða úr Rússaþorski eða úr Jóna Valgerður Kristjánsdóttir rækjuafla úr skipum, sem ekki eru skráð á íslandi eða á EES-svæðinu, og selja þá framleiðslu með lág- markstollum. Um slíkan sjávarafla gilda önnur tollaákvæði, þ.e. hærri tollar. EES-samningurinn er ekki til hagsbóta fyrir garðyrkjubændur, sem hér á íslandi búa við þau kjör að geta ekki keppt við framleiðslu suðrænna þjóða. íslenskur iðnaður hefur farið halloka gagnvart er- Iendri framleiðslu á undanförnum árum og ekki í sjónmáli breyting þar á. Þannig getur EES-samning- urinn verið til hagsbóta fyrir eina atvinnugrein, en gert annarri erfitt fyrir. í heildina er því óvíst um ávinning íslenskra fyrirtækja af samningnum. Eftir er að kynna nánar, hvað í hinu nýja GATT-samkomulagi felst, en nú tekur samningurinn einnig til landbúnaðarvara, hugverka o.fl. Mikilvægt er, að landbúnaðurinn fái tíma til að laga sig að þessum nýju aðstæðum, og ég tel víst, að það muni valda umtalsverðri röskun í þeim atvinnuvegi, ekki síst vegna þess að engar magntakmarkanir verða í innflutningi landbúnaðar- vara. Hins vegar bind ég vonir við, að samkomulagið auki umsetningu þeirra sem fást við sölu hugverka og skili í heild bata í efnahagslífinu. Hvernig til tekst í viðskiptalífinu með báða þessa samninga er nokk- uð undir okkur sjálfum komið. Ef við viljum hlúa að því sem íslenskt er (sbr. íslenskt, já takk) getum við ráðið ferðinni þar, en ég held því miður, að sú hugarfarsbreyting eigi langt í land og það verði skamm- tíma sjónarmiðin sem ráði. Sjá næstu opnu Nikotínlyf sem fást í apótekum án lyfseðils gera oft gæfumuninn. Mikilvægt er að velja strax rétta meðferð svo árangurinn verði varanlegur. Hann leiðbeinir þér og gefur góð ráð Heilkrigöisþjónusta er okkarfag. Aþótekin.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.