Morgunblaðið - 08.03.1994, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 08.03.1994, Blaðsíða 1
56 SIÐURB 55. tbl. 82. árg. ÞRIÐJUDAGUR 8. MARZ 1994 Prentsmiðja Morgunblaðsins Rannsókn Whitewater-málsins og Hvíta húsið Starfsfólkið má ekki fleygja rusli Washing^ton. Reuter, The Daily Telegraph. STARFSLIÐl Hvíta hússins í Washington var skipað að afhenda skrifstofu lögmanns forsetaembættisins fyrir lokun í gær öll gögn og skjöl um fundi og samtöl sem kunna að varða rannsókn á svo- nefndu Whitewater-máli. Sex embættismönnum í Hvíta húsinu og þremur í fjármálaráðuneytinu var á föstudag stefnt fyrir sérstakan rannsóknardómara sem rannsakar hvort óviðurkvæmiieg tengsl hafi verið milli Madison-sparisjóðsins í Arkansas og Whitewater-fyr- irtækisins, sem Clinton-hjónin fjárfestu í á síðasta áratug. Bill Clinton forseti varði í gær eiginkonu sína, Hillary, á frétta- mannafundi og sagði hana gædda miklum siðferðisstyrk. Hann vísaði því harðlega á bug að í uppsiglingu væri nýtt Watergate-mál. Richard Nixon, fyrrverandi forseti, varð að segja af sér á áttunda áratugnum er í ljós kom að hann hafði reynt að leiða dómstóla á villigötur er kannað var innbrot repúblikana- í Watergate-húsið, höfuðstöðvar demókrataflokksins í Washington. í síðustu viku var bann lagt við því að fleygja rusli í Hvíta húsinu vegna rannsóknar Whitewater- Bernard Nussbauin Bingóspil- ið bannað London. Reuter. PRESTUR í Scarborough í Bretlandi hefur sagt ellilíf- eyrisþegum, sem nota stof- una í safnaðarheimilinu til að spila bingó á fimmtudags- kvöldum, að þeir verði að velja. Annaðhvort hætti þeir eða verði vísað burt. „Þeir verða að finna sér aðr- ar vistarverur ef þeir treysta sér ekki til að afhenda mér skriflegt vottorð um að þeir séu hættir að stunda fjárhættu- spil,“ sagði presturinn, Bob Jackson. Gamla fólkið er á öðru máli og bendir á að fjárhæðirn- ar séu lágar, venjulega fáist 50 pence, rúmar fimmtíu krón- ur, fyrir fullt spjald. „Við eyð- um tímanum aðallega í að drekka te og slúðra," sagði einn lífeyrisþeganna. málsins og grip- ið til ýmissa ráð- stafana til að tryggja að rann- sóknin gengi eðlilega fyrir sig. Starfslið Hvíta hússins fékk einnig fyrirmæli um að geyma öll gögn sem varða fundi Bernards Nussbaums, lögfræðiráð- gjafa Clintons, með embættismönn- um fjármálaráðuneytisins. Nuss- baum sagði af sér eftir að fjölmiðl- ar skýrðu frá því að hann hefði þrisvar farið á fund embættismann- anna til að fá upplýsingar um stöð- una í rannsókninni. Sjá „Spjótin beinast einkum að forsetafrúnni“ á bls. 23. Fordæma kvótalögin Morgunblaðið/Thomas Johansen SAMTÖK færeyskra togaraútgerðarmanna héldu fund í Þórshöfn í gærkvöldi og samþykktu að vísa nýsettum lögum um kvótakerfi í fiskveiðum alger- lega á bug. „Við munum nú leggja til við landstjórn- ina að hún gefi lögin ekki út en setji þess í stað á laggirnar nefnd með fulltrúum allra aðila í sjávarút- vegi og stjórnvalda,“ sagði Emil Nolsoe, formaður samtakanna, í gær. Hann sagði að togaraflotinn myndi verða í höfn þar til ný og betur unnin lög um fískveiðistjórnun yrðu samþykkt. Að sögn frétta- ritara Morgunblaðsins í Þórshöfn, Grækaris D. Magnussen, munu um 500 manns fljótlega missa vinnuna og frystihús stöðva framleiðsluna ef ekki tekst að leysa deiluna um kvótalögin sem Lögþingið samþykkti í liðinni viku. Á myndinni sjást sjómenn að störfum á hafnarbakkanum í Þórshöfn í gær. Erfiðar samningaviðræður Norðmanna og Evrópusambandsins Reynt til þrautar að finna málamiðlun í kvótamálum ísraelar funda með PLO í Kaíró Jerúsalem. Reuter, The Daily Telegraph. Ósló, Lissabon. Reuter. ENGIN niðurstaða hafði enn fengist seint í gærkvöldi í viðræðum Norðmanna við Evrópusambandið, ESB, um aðild. Hart var deilt um sjávarútvegsmál og stóðu Norðmenn fast á þeirri kröfu sinni að fá undanþágu frá sameiginlegri sjávarútvegsstefnu bandalagsins. Þá höfðu Norðmenn hert á kröfum sínum í landbúnaðarmálum. Spánveij- ar kröfðust þess að fá fiskveiðikvóta í norskri landhelgi en stjórnarerin- drekar sögðu að Grete Knudsen, viðskiptaráðherra Norðmanna, hefði tjáð ráðherrum ESB að enginn viðbótarfiskur væri til staðar, sem hægt væri að leyfa veiðar á. Utanríkisráðherrar ESB funduðu um aðildarviðræðurnar við Norð- menn í gær og var fundinum ekki lokið seint í gærkvöldi. Ráðherrar ESB deila einnig innbyrðis um það hvernig vægi einstakra aðildarríkja skuli vera í ráðherraráði sambands- ins í framtíðinni. Stórþjóðirnar vilja draga úr vægi smáþjóða og að sögn norska blaðsins Aftenposten gæti þessi deila tafið aðildarsamningana. Reuter Ráðherrar í Brussel SIGBJORN Johnsen, fjármálaráðherra Noregs, svarar spurningum fréttamanna í Brussel, í baksýn er Grete Knudsen viðskiptaráðherra. ÍSRAELAR staðfestu í gær að aðstoðarmaður Yitzhaks Rabins, forsæt- isráðherra ísraels, hefði hitt Yasser Arafat, leiðtoga Frelsissamtaka Palestínumanna (PLO) í Kaíró í gær í von um að takast mætti að taka upp þráðinn í friðarviðræðum að nýju. Þær féllu niður í Iqölfar morðs ísraelsks landnema á tugum múslinia í Hebron fyrir rúmri viku. Þrýstingur jókst mjög á Rabin um helgina um að láta flytja um 400 ísraelska landnema á brott frá Hebron og er meirihluti ísraels- stjórnar sagðu fýlgjandi því. Um 5.000 landnemar búa í Kiriyat Arba, rétt utan Hebron, og nokkur hundruð til viðbótar í sjálfri borg- inni. Æ fleiri ráðherrar telja land- nemana skapa ónauðsynlega árekstra. Átök urðu á hernumdu svæðun- um í gær og særðu ísraelskir her- menn 17 Palestínumenn í Hebron. Þá hafa öfgasamtökin Hamas lýst því yfir að ísraelskir landnemar hafi viku til að koma sér á brott, ella verði ráðist á þá. Aftenposten sagði að fjallað hefði verið í gærkvöldi um óskir Norð- manna sem vilja fá lengri aðlögunar- tíma fyrir vissar landbúnaðarafurðir sínar er myndu eiga erfitt með að keppa á fijálsum markaði. Rætt hefði verið um að í staðinn fengju þeir ekki strax fullan aðgang að fisk- markaði ESB en sum aðildarríki sambandsins óttast norska sam- keppni á fiskmarkaðnum. Jan Henry T. Ölsen, sjávarútvegsráðherra Nor- egs, útilokaði ekki slíka lausn í gær, sagði að erfitt yrði að fá fulla frí- verslun með fisk frá fyrsta degi aðildar. Björn Tore Godal, utanríkisráð- herra Noregs, hefur í tengslum við kvótakröfur Spánveija bent á að í samningunum um Evrópska efna- hagssvæðið, EES, í fyrra hafi Noregur látið ESB í té 51.000 tonna þorskkvóta. Þar af hafi 11.000 tonn verið ætluð til úthlutunar fátækustu þjóðum ESB árið 1997 og gert ráð fyrir að Spánverjar fengju helming- inn. Anibal Cavaco Silva, forsætisráð- herra Portúgals, sagði í viðtali við Reutere-fréttastofuna um helgina að Norðmenn gætu ekki farið fram á að fá stöðuga undanþágu frá því að hleypa togurum annarra ESB- ríkja inn í lögsögu sína. Sigbjörn Eriksen, fylkisstjóri í Nordland, hef- ur ritað Olsen sjávarútvegsráðherra bréf þar sem hann segir að Norð- menn ættu að veita Spánveijum nokkurra þúsunda tonna fiskveiðik- vóta í lögsögu sinni ef þeir fái sjálf- ir að ráðstafa fiskveiðistofnum fyrir norðan 62. breiddargráðu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.