Morgunblaðið - 08.03.1994, Page 4

Morgunblaðið - 08.03.1994, Page 4
4 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. MARZ 1994 Innbrot í Grindavík og Vogum Miklar skemmd- ir á fimm stöðum Grindavík og Vogum. BROTIST var inn á þremur stöðum í Grindavík aðfaranótt mánu- dags og mikla skemmdir unnar i félagsheimilinu Festi. Sömu nótt voru framin innbrot í Stóru-Vogaskóla og íþróttamiðstöðina í Vog- um. Talsverðar skemmdir voru unnar á þessum stöðum en ekki er talið að þjófarnir hafi haft margt fémætt upp úr krafsinu. í Grindavík hófust þjófarnir handa á Skólabraut þar sem farið var inn í smíðastofu skólans. Þaðan komust þeir að geymslustað sjúkrabifreiðar- innar í Grindavík. Þaðan var farið í félagsheimilið Festi þar sem brotist var inn með kúbeini og skrúfjárni og 10 hurðir brotnar og lausafé stol- ið. í íþróttamiðstöðinni í Vogum voru þrjár hurðir skemmdar og gos- drykkjasjálfsali eyðilagður. Þá var stolið símtæki og útvarpstæki frá lík- amsrækt Önnu Leu og Bróa. Aðkoma í Stóru-Vogaskóla var mjög slæm, þar var allt á tjá og tundri. Þijár hurðir voru brotnar, brotin rúða og hurðir í skrifborði spenntar upp. Þaðan er saknað myndbandsvélar og segulbandstækis. Píanó, sem er í skólanum, var notað til að mölva hurðirnar, en mikillar fyrirhafnar er þörf til að færa það til. Á báðum stöðum var greinilegt að verið var leita peninga en nánast ekkert hafð- ist upp úr krafsinu. Þó ekki hafi miklu verið stolið er ljóst að umtals- verðar skemmdir voru unnar á þess- um stöðum. Innbrotin eru nú í rannsókn. Rann- sóknarlögreglan óskar eftir því að ef einhveijir hafa orðið varir manna- ferða á þessum stöðum láti þeir lög- regluna í Grindavík og Vogum vita, en aðferðir þeirra sem voru að verki þykja svipaðar á báðum stöðum. - FÓ/EG Morgunblaðið/Ámi Sæberg Arsskýrsla kynnt FRÁ blaðamannafyndi þar sem ársskýrsla Stígamóta var kynnt auk þess sem fjallað var um göngu gegn kynferðirofbeldi og fjallað um Kvennaráðgjöfina og Kvennaathverfið. Ársskýrsla Stígamóta um kynferðislegt ofbeldi Meirihlutí þolenda innan við tvítugt VEÐUR I/EÐURHORFUR I DAG, 8. MARZ YFIRUT: Á vestanverðu Grsenlandshafi er víðáttumikil 960 mb lægð sem hreyfist austnorðaustur. Skammt norðvestur af Vestfjörðum er 972 mb laegð sem þokast norðaustur. SPÁ: Um morguninn verður suðvesttæg átt, kaldi eða stinningskaldi og él sunnan og vestan til en skýjað með köflum norðaustanlands. Nálægt hádegi fer að létta til suðvestanlands með norðan kalda eða stinningskalda en um landið norðvestan- vert verður þá allhvöss norðanátt og éljagangur. Frost verður á bilinu 2-5 stig. STORMVIÐVÖRUN: Gert er ráð fyrir stormi á Norðurdjúpi, Suðausturdjúpi, Suður- djúpi og Suðvesturdjúpl. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á MIÐVIKUDAG:Norðanátt um land allt, víða hvasst um austanvert land- íð, en hægari vestanlands. Snjókoma eða éljagangur norðanlands, en léttskýjað syðra. Frost 3-10 stig. HORFUR Á FIMMTUDAG: Sunnan- og suðvestanátt, hvasst og snjókoma eða élja- gangur sunnan- og vestanlands, en hægari og úrkomulftlð á Noröausturlandi. Frost 0-5 stig. HORFUR Á FÖSTUDAG: Vestlæg átt, sums staðar allhvasst um sunnanvert land- ið, en mun hægari norðanlands. El vfða um land, en sfst þó suðaustanlands. Frost á bilinu 3-9 stig. Nýir veðurfregnatímar: 1.30, 4.30, 7.30, 10.46, 12.46, 16.30, 19.30, 22.30. Svar- sími Veðurstofu isiands - Veðurfregnir: 990600. Heiðskírt / / / r r r r r Rigning tik Léttskýjað * / * * / / * / Siydda Hálfskýjað * * * * * * * * Snjókoma A Skýjað Alskýjað V ^ V Skúrir Slydduél Él Sunnan, 4 vindstig. Vindörin sýnir vindstefnu og fjaðrirnar vindstyrit, heil fjöður er 2 vindstig. 10° Hitastig v súld = Þoka rtig.. FÆRÐA VEGUM: (KI.17.301 gær) Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti f sfma 91-631600 og á grænni Ifnu, 99-6315. Vegagerðin. VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma hltl veöur Akureyrl 2 skýjað Reykjavlk +2 úrkoma Bergen 5 alskýjaö Helsinkl 0 aiskýjað Kaupmannahöfn 5 rigning og súld Narssarssuaq +14 skýjaö Nuuk +14 skafrenningur Ósló 3 iéttskýjað Stokkhólmur 2 hálfskýjað Þórshöfn 8 skúr Algarve 18 heiðskírt Amsterdam 9 þokumóða Barcelona 14 þokumóða Berlín 8 rígning Chicago 7 skýjað Feneyjar 11 þokumóða Frankfurt 9 rigningogsúld Glasgow 10 rigning og súld Hamborg 7 skýjað London 13 alskýjað LosAngeles 17 mistur Lúxemborg 7 súld Madrtd 16 skýjað Malaga 15 mistur Mallorca 15 léttskýjað Montreal 3 alskýjað NewYork 6 skýjað Orlando 26 skýjað París 11 skýjað Madeira 16 skýjað Róm 12 hálfskýjað Vín 9 alskýjað Washington 16 léttskýjað Winnipeg +11 snjóél /'DAG kl. 12.00 V *& Heimlld: Veðurstofa Islands (Byggt á veðurepá kt. 16.30 f gær) ÁRSSKÝRSLA Stígamóta, ráðgjafar- og fræðslumiðstöðvar um kyn- ferðislegt ofbeldi, er komin út og í henni kemur fram að á síðasta ári leituðu alls 403 einstaklingar til samtakanna vegna kynferðislegs ofbeldis. Af þeim komu 309 einstaklingar í fyrsta sinn en 94 höfðu komið áður. Heildarfjöldi viðtala var 1.816, þar af voru 344 viðtöl vegna mála frá fyrri árum. Einnig kemur fram að stór hluti þolenda kynferðislegs ofbeldis er yngri en tvítugt og einnig er stór hópur gerenda á þessum aldri. Tæp 95% þeirra sem leita til Stígamóta eru konur og segir Guð- rún Jónsdóttir, starfskona Stíga- móta, þær tölur endurspegla að kon- ur leita fremur aðstoðar heldur en karlmenn. Flestir þeir sem leita til samtakanna koma vegna sifjaspells. Alls leiturðu 207, manns, tæplega 60%, til Stígamóta vegna sifjaspells, 107, rúm 30%, vegna nauðgunar, 24, tæp 7% vegna gruns um silja- spell og 11, eða rúm 3% vegna kyn- ferðislegrar áreitni. í þessum tilvik- um er gerandi í flestum tilfellum einn. í þeim tilvikum sem um sifja- spell er að ræða var misjafnt hversu lengi það stóð yfir, allt frá einu skipti upp í nokkur ár. Meirihlutinn stoð skemur en tvö ár en í sex tilfellum stóðu þau lengur en í tíu ár. Þolendur leita yfirleitt sjálfir aðstoðar Guðrún sagði að fyrirleitt væru það þolendur sjálfir sem leituðu að- stoðar, nema þegar um börn væri að ræða. Tæp 90% þolenda kynferðisof- beldis verða fyrir ofbeldinu fyrir tví- tugt og af 309 þoiendum voru 95, eða tæpur þriðjungur, sextán ára eða yngri. Áf þessum unglingahóp eru 87 stúlkur og átta drengir og er þetta sambærilegt hlutfall og árið áður. Gerendur eru flestir yngri en fer- tugt. Eitthundrað og þrettán eru 30-39 ára, 100 manns eru 20 til 29 ára og 124 eru yngri en tvítugt. Algengt virðist að ungir drengir beiti sér yngri böm ofbeldi, en rúm 14% gerenda eru yngri en 16 ára. Ofbeldismennirnir koma úr öllum starfsstéttum þjóðfélagsins og er menntun þeirra mismunandi. Meirihluti þolenda, eða 68%, hafa alist upp hjá báðum foreldrum, 13% ólust upp hjá öðru foreldri og sama hlutfall ólst upp hjá móður og stjúpa. Tæpur fimmtungur ólst upp við lík- amlegt ofbeldi í æsku. Jafnt í þéttbýli sem dreifbýli Kynferðislegt ofbeldi á sér stað jafnt í þéttbýli sem dreifbýli, það sama á við um kynferðislega áreitni en fleiri nauðganir eiga sér stað á höfuðborgarsvæðinu heldur en úti á landi. Hinsvegar býr meirihluti þo- lenda sem leita aðstoðar Stígamóta á Reykjavíkursvæðinu, eða 81%. íbúar landsbyggðarinnar nýta sé hins vegar símaþjónustu Stígamóta. Kunningjar og vinir fórnarlamba nauðgunar er rúmlega helmingur nauðgara eða 132, en 30% eru ókunnugir menn. í 14% tilvika var um eiginmenn eða sambýlismenn að ræða. Þrátt fyrir mikinn fjölda sem leit- ar til Stígamóta er lítill hluti kynferð- isofbeldis kærður og að í minnihluta kærumála eru ofbeldismennirnir ákærðir. Alls bárust Rannsóknalög- reglu ríkisins 319 kærur á árunum 1989-1992. Ganga gegn kyn- ferðislegu ofbeldi GANGA gegn kynferðisofbeldi verður gengin í dag og hefst hún á Hlemmi kl. 17.30. Verður gengið niður í Hlaðvarpa, með viðkomu á nokkrum stöðum þar sem embættí tengd réttarkerfinu eru til húsa. Að göngunni lokinni verður opið hús í Hlaðvarpanum. Það eru Kvennaathvarfíð, Stíga- mót, Kvennaráðgjöfin og Kvenna- og karlakeðjan sem eru frumkvöðlar göngunnar, en 44 félög og samtök kvenna standa að henni. í fréttatilkynningu frá aðstand- endum göngunnar segir að markmið hennar sé þríþætt. Verið er að vekja almenning til umhugsunar um kyn- ferðislegt ofbeldi og afleiðingar þess fyrir þolendur, einnig að undirstrika að kynferðislegt ofbeldi er samfé- lagslegt vandamál sem rekja má til ójafnrar stöðu kynjanna og loks að krefjast breytinga á réttarkerfmu þannig að réttarstaða þolenda kyn- ferðisofbeldis verði ekki eins veik og hún er í dag. Til þess að koma þessu á framfæri fara fram tákn- rænar athafnir við þær byggingar sem hýsa embætti réttarkerfísins og eru á leið göngunnar. í broddi fylkingar ganga fjórar svartklæddar konur sem eru þolend- ur kynferðislegs ofbeldis. „Klæðnað- ur þessi er táknrænn fyrir eðli þess- ara mála. Hann er tákn þeirrar sorg- ar, þess að kynferðisofbeldi eru myrkraverk, sem unnin eru í felum og að enn mæta þolendur kynferðis- ofbeldis samfélagslegum fordómum sem gerir þeim erfitt um vik að segja frá þessari reynslu," segir ennfrem- ur í tilkynningunni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.