Morgunblaðið - 08.03.1994, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. MARZ 1994
Innbrot í Grindavík og Vogum
Miklar skemmd-
ir á fimm stöðum
Grindavík og Vogum.
BROTIST var inn á þremur stöðum í Grindavík aðfaranótt mánu-
dags og mikla skemmdir unnar i félagsheimilinu Festi. Sömu nótt
voru framin innbrot í Stóru-Vogaskóla og íþróttamiðstöðina í Vog-
um. Talsverðar skemmdir voru unnar á þessum stöðum en ekki er
talið að þjófarnir hafi haft margt fémætt upp úr krafsinu.
í Grindavík hófust þjófarnir handa
á Skólabraut þar sem farið var inn
í smíðastofu skólans. Þaðan komust
þeir að geymslustað sjúkrabifreiðar-
innar í Grindavík. Þaðan var farið í
félagsheimilið Festi þar sem brotist
var inn með kúbeini og skrúfjárni
og 10 hurðir brotnar og lausafé stol-
ið.
í íþróttamiðstöðinni í Vogum voru
þrjár hurðir skemmdar og gos-
drykkjasjálfsali eyðilagður. Þá var
stolið símtæki og útvarpstæki frá lík-
amsrækt Önnu Leu og Bróa. Aðkoma
í Stóru-Vogaskóla var mjög slæm,
þar var allt á tjá og tundri. Þijár
hurðir voru brotnar, brotin rúða og
hurðir í skrifborði spenntar upp.
Þaðan er saknað myndbandsvélar og
segulbandstækis. Píanó, sem er í
skólanum, var notað til að mölva
hurðirnar, en mikillar fyrirhafnar er
þörf til að færa það til. Á báðum
stöðum var greinilegt að verið var
leita peninga en nánast ekkert hafð-
ist upp úr krafsinu. Þó ekki hafi
miklu verið stolið er ljóst að umtals-
verðar skemmdir voru unnar á þess-
um stöðum.
Innbrotin eru nú í rannsókn. Rann-
sóknarlögreglan óskar eftir því að
ef einhveijir hafa orðið varir manna-
ferða á þessum stöðum láti þeir lög-
regluna í Grindavík og Vogum vita,
en aðferðir þeirra sem voru að verki
þykja svipaðar á báðum stöðum.
- FÓ/EG
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Arsskýrsla kynnt
FRÁ blaðamannafyndi þar sem ársskýrsla Stígamóta var kynnt auk þess sem fjallað var um göngu
gegn kynferðirofbeldi og fjallað um Kvennaráðgjöfina og Kvennaathverfið.
Ársskýrsla Stígamóta um kynferðislegt ofbeldi
Meirihlutí þolenda
innan við tvítugt
VEÐUR
I/EÐURHORFUR I DAG, 8. MARZ
YFIRUT: Á vestanverðu Grsenlandshafi er víðáttumikil 960 mb lægð sem hreyfist
austnorðaustur. Skammt norðvestur af Vestfjörðum er 972 mb laegð sem þokast
norðaustur.
SPÁ: Um morguninn verður suðvesttæg átt, kaldi eða stinningskaldi og él sunnan
og vestan til en skýjað með köflum norðaustanlands. Nálægt hádegi fer að létta
til suðvestanlands með norðan kalda eða stinningskalda en um landið norðvestan-
vert verður þá allhvöss norðanátt og éljagangur. Frost verður á bilinu 2-5 stig.
STORMVIÐVÖRUN: Gert er ráð fyrir stormi á Norðurdjúpi, Suðausturdjúpi, Suður-
djúpi og Suðvesturdjúpl.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á MIÐVIKUDAG:Norðanátt um land allt, víða hvasst um austanvert land-
íð, en hægari vestanlands. Snjókoma eða éljagangur norðanlands, en léttskýjað
syðra. Frost 3-10 stig.
HORFUR Á FIMMTUDAG: Sunnan- og suðvestanátt, hvasst og snjókoma eða élja-
gangur sunnan- og vestanlands, en hægari og úrkomulftlð á Noröausturlandi. Frost
0-5 stig.
HORFUR Á FÖSTUDAG: Vestlæg átt, sums staðar allhvasst um sunnanvert land-
ið, en mun hægari norðanlands. El vfða um land, en sfst þó suðaustanlands. Frost
á bilinu 3-9 stig.
Nýir veðurfregnatímar: 1.30, 4.30, 7.30, 10.46, 12.46, 16.30, 19.30, 22.30. Svar-
sími Veðurstofu isiands - Veðurfregnir: 990600.
Heiðskírt
/ / /
r r
r r r
Rigning
tik
Léttskýjað
* / *
* /
/ * /
Siydda
Hálfskýjað
* * *
* *
* * *
Snjókoma
A
Skýjað
Alskýjað
V ^ V
Skúrir Slydduél Él
Sunnan, 4 vindstig.
Vindörin sýnir vindstefnu
og fjaðrirnar vindstyrit,
heil fjöður er 2 vindstig.
10° Hitastig
v súld
= Þoka
rtig..
FÆRÐA VEGUM:
(KI.17.301 gær)
Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti f sfma 91-631600 og á grænni
Ifnu, 99-6315. Vegagerðin.
VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma hltl veöur Akureyrl 2 skýjað Reykjavlk +2 úrkoma
Bergen 5 alskýjaö
Helsinkl 0 aiskýjað
Kaupmannahöfn 5 rigning og súld
Narssarssuaq +14 skýjaö
Nuuk +14 skafrenningur
Ósló 3 iéttskýjað
Stokkhólmur 2 hálfskýjað
Þórshöfn 8 skúr
Algarve 18 heiðskírt
Amsterdam 9 þokumóða
Barcelona 14 þokumóða
Berlín 8 rígning
Chicago 7 skýjað
Feneyjar 11 þokumóða
Frankfurt 9 rigningogsúld
Glasgow 10 rigning og súld
Hamborg 7 skýjað
London 13 alskýjað
LosAngeles 17 mistur
Lúxemborg 7 súld
Madrtd 16 skýjað
Malaga 15 mistur
Mallorca 15 léttskýjað
Montreal 3 alskýjað
NewYork 6 skýjað
Orlando 26 skýjað
París 11 skýjað
Madeira 16 skýjað
Róm 12 hálfskýjað
Vín 9 alskýjað
Washington 16 léttskýjað
Winnipeg +11 snjóél
/'DAG kl. 12.00 V *&
Heimlld: Veðurstofa Islands
(Byggt á veðurepá kt. 16.30 f gær)
ÁRSSKÝRSLA Stígamóta, ráðgjafar- og fræðslumiðstöðvar um kyn-
ferðislegt ofbeldi, er komin út og í henni kemur fram að á síðasta
ári leituðu alls 403 einstaklingar til samtakanna vegna kynferðislegs
ofbeldis. Af þeim komu 309 einstaklingar í fyrsta sinn en 94 höfðu
komið áður. Heildarfjöldi viðtala var 1.816, þar af voru 344 viðtöl
vegna mála frá fyrri árum. Einnig kemur fram að stór hluti þolenda
kynferðislegs ofbeldis er yngri en tvítugt og einnig er stór hópur
gerenda á þessum aldri.
Tæp 95% þeirra sem leita til
Stígamóta eru konur og segir Guð-
rún Jónsdóttir, starfskona Stíga-
móta, þær tölur endurspegla að kon-
ur leita fremur aðstoðar heldur en
karlmenn. Flestir þeir sem leita til
samtakanna koma vegna sifjaspells.
Alls leiturðu 207, manns, tæplega
60%, til Stígamóta vegna sifjaspells,
107, rúm 30%, vegna nauðgunar,
24, tæp 7% vegna gruns um silja-
spell og 11, eða rúm 3% vegna kyn-
ferðislegrar áreitni. í þessum tilvik-
um er gerandi í flestum tilfellum
einn. í þeim tilvikum sem um sifja-
spell er að ræða var misjafnt hversu
lengi það stóð yfir, allt frá einu skipti
upp í nokkur ár. Meirihlutinn stoð
skemur en tvö ár en í sex tilfellum
stóðu þau lengur en í tíu ár.
Þolendur leita yfirleitt sjálfir
aðstoðar
Guðrún sagði að fyrirleitt væru
það þolendur sjálfir sem leituðu að-
stoðar, nema þegar um börn væri
að ræða.
Tæp 90% þolenda kynferðisof-
beldis verða fyrir ofbeldinu fyrir tví-
tugt og af 309 þoiendum voru 95,
eða tæpur þriðjungur, sextán ára
eða yngri. Áf þessum unglingahóp
eru 87 stúlkur og átta drengir og
er þetta sambærilegt hlutfall og árið
áður.
Gerendur eru flestir yngri en fer-
tugt. Eitthundrað og þrettán eru
30-39 ára, 100 manns eru 20 til
29 ára og 124 eru yngri en tvítugt.
Algengt virðist að ungir drengir
beiti sér yngri böm ofbeldi, en rúm
14% gerenda eru yngri en 16 ára.
Ofbeldismennirnir koma úr öllum
starfsstéttum þjóðfélagsins og er
menntun þeirra mismunandi.
Meirihluti þolenda, eða 68%, hafa
alist upp hjá báðum foreldrum, 13%
ólust upp hjá öðru foreldri og sama
hlutfall ólst upp hjá móður og stjúpa.
Tæpur fimmtungur ólst upp við lík-
amlegt ofbeldi í æsku.
Jafnt í þéttbýli sem dreifbýli
Kynferðislegt ofbeldi á sér stað
jafnt í þéttbýli sem dreifbýli, það
sama á við um kynferðislega áreitni
en fleiri nauðganir eiga sér stað á
höfuðborgarsvæðinu heldur en úti á
landi. Hinsvegar býr meirihluti þo-
lenda sem leita aðstoðar Stígamóta
á Reykjavíkursvæðinu, eða 81%.
íbúar landsbyggðarinnar nýta sé
hins vegar símaþjónustu Stígamóta.
Kunningjar og vinir fórnarlamba
nauðgunar er rúmlega helmingur
nauðgara eða 132, en 30% eru
ókunnugir menn. í 14% tilvika var
um eiginmenn eða sambýlismenn að
ræða.
Þrátt fyrir mikinn fjölda sem leit-
ar til Stígamóta er lítill hluti kynferð-
isofbeldis kærður og að í minnihluta
kærumála eru ofbeldismennirnir
ákærðir. Alls bárust Rannsóknalög-
reglu ríkisins 319 kærur á árunum
1989-1992.
Ganga gegn kyn-
ferðislegu ofbeldi
GANGA gegn kynferðisofbeldi verður gengin í dag og hefst hún á
Hlemmi kl. 17.30. Verður gengið niður í Hlaðvarpa, með viðkomu
á nokkrum stöðum þar sem embættí tengd réttarkerfinu eru til
húsa. Að göngunni lokinni verður opið hús í Hlaðvarpanum.
Það eru Kvennaathvarfíð, Stíga-
mót, Kvennaráðgjöfin og Kvenna-
og karlakeðjan sem eru frumkvöðlar
göngunnar, en 44 félög og samtök
kvenna standa að henni.
í fréttatilkynningu frá aðstand-
endum göngunnar segir að markmið
hennar sé þríþætt. Verið er að vekja
almenning til umhugsunar um kyn-
ferðislegt ofbeldi og afleiðingar þess
fyrir þolendur, einnig að undirstrika
að kynferðislegt ofbeldi er samfé-
lagslegt vandamál sem rekja má til
ójafnrar stöðu kynjanna og loks að
krefjast breytinga á réttarkerfmu
þannig að réttarstaða þolenda kyn-
ferðisofbeldis verði ekki eins veik
og hún er í dag. Til þess að koma
þessu á framfæri fara fram tákn-
rænar athafnir við þær byggingar
sem hýsa embætti réttarkerfísins og
eru á leið göngunnar.
í broddi fylkingar ganga fjórar
svartklæddar konur sem eru þolend-
ur kynferðislegs ofbeldis. „Klæðnað-
ur þessi er táknrænn fyrir eðli þess-
ara mála. Hann er tákn þeirrar sorg-
ar, þess að kynferðisofbeldi eru
myrkraverk, sem unnin eru í felum
og að enn mæta þolendur kynferðis-
ofbeldis samfélagslegum fordómum
sem gerir þeim erfitt um vik að segja
frá þessari reynslu," segir ennfrem-
ur í tilkynningunni.