Morgunblaðið - 08.03.1994, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 08.03.1994, Qupperneq 10
10 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. MARZ 1994 ------------------------♦-------- Engjasel Um 200 fm vandað endaraðhús með séríbúð í kjallara. Stæði í bílgeymslu. Skipti á 2ja-4ra herb. íbúð koma vel til greina. Verð 11,9 millj. 3590. EIGNAMIÐTJINTIV hf Súni 67-90-90 ■ Síðumúla 21 ♦ ♦♦-------♦--------- Hjallabraut 33 - Hf. - þjónustuíbúð Höfum fengið til sölu eina af þessum vinsælu íbúð- um fyrir 60 ára og eldri. íbúðin er ca 70 fm og er á 3. hæð, snýr í suður. Nánari upplýsingar á skrifstofunni. Árni Grétar Finnsson hrl., Stefán Bj. Gunnlaugsson hdl., Linnetsstíg 3, 2. hæð, Hfj., símar 51500 og 51601. . Skólahljómsveit Mosfellsbæjar. Raftækjaverslun Til sölu er gamalgróin og landsþekkt raftækja- verslun sem selur aðeins lampaskerma og minni raftæki í eldhús. Sami eigandi frá upphafi. Mjög góð staðsetning. Eiginn innflutningur að hluta. Góð aðstaða fyrir skrifstofu og geymslur. Fram- tíðarfyrirtæki og vinna t.d. fyrir samhenta fjöl- skyldu. Upplýsingar aðeins á skrifstofunni. ŒsmiiiiiEmoii SUÐURVE R I SÍMAR 812040 OG 814755, REYNIR ÞORGRÍMSSON. Smásala og innflutningur Höfum fengið til sölu snyrtilegt fyrirtæki sem sérhæfirsig finnfluttum, þekktum eldhúsinnrétt- ingum og smásölu á þeim. Enginn vörulager, aðeins sýnishorn á staðnum. Þetta er þekkt og gamalt fyrirtæki sem aðeins er með mjög góða og viðurkennda vöru sem reynst hefur vel. Upplagt fyrirtæki fyrir hjón. Umboð fyrir ýmsar vörur fylgja með. Upplýsingar aðeins á skrifstofunni. SUÐURVERI SIMAR 812040 OG 814755, REYNIR ÞORGRlMSSON. ■ 1 1 21150-2137 A LÁRUS Þ„ VALDIMARSSUN FRAMKVÆMDASTJÓRl U KRISTINN SIQURJÓNSS0N, HRL. löggiltur fasteignasali 1 Til sýnis og sölu m.a. athyglisverðra eigna: í gamla, góða vesturbænum glæsil. efri hæð í þríbhúsi byggðu 1967. 2 stórar stofur, 3 rúmg. herb. í svefnálmu m.m. Tvennar svalir. Innb. bílsk. m. geymslu 37,4 fm. Trjá- garður. Hagkvæm skipti mögul. Skammt frá Grandaskóla úrvalseinstaklíb. 2ja herb. á 1. hæð 56,5 fm. Öll eins og ný. Sér lóð. Ágæt sameign. Vinsæll staður. Gott verð. Nýleg húseign við Jöldugróf Steinhús á hæð er 5-6 herb. íb. 132 fm. Nýtt parket o.fl. Kjallari, gott húsnæði, 132 fm. Bílskúr 49 fm. Stór sólstofa í byggingu. Margs konar eignaskipti mögul. Tilboð óskast. Skammt frá sundlaug Vesturbæjar 3ja herb. íb. á 2. hæð á besta stað v. Kaplaskjólsveg. Sólsvalir. Ágæt sameign. Vinsæll staður. Gott verð. Góð íbúð - gott verð - góð lán Rúmg. 4ra herb. íb. á 1. hæð v. Hraunbæ. Nýl. eldh. Nýl. parket. Gott kjherb. fylgir m. snyrtingu. 40 ára húsnlán kr. 3,3 millj. Skipti á 2ja herb. íb. mögul. Á söluskrá óskast húseign m. tveimur íb. í nágr. Menntaskólans við Sund. 3ja herb. íb. í smíðum á höfuðbsvæðinu. Húseign m. tveimur íb. og bílskúr. Traust- ir kaupendur m. góðar greiðslur. • • • Viðskiptum hjá okkur fylgir ráðgjöf og traustar uppl. Auglýsum á fimmtudaginn. ALMENNA FASIEIGMASALAN LAUGAVEG118 SÍMAR 21150-21370 Afmælistónleikar í Mosfellsbæ __________Tónlist______________ Jón Ásgeirsson Skólahljómsveit Mosfellsbæjar hélt upp á 30 ára starfsafmæli og fékk til liðs við 6 kóra í bænum. Á efnisskránni voru hefðbundin lúðrasveitarverk, leikin af þremur aldursflokkum, byijendum, 7-9 ára, undir stjórn Sveins Björnsson- ar, yngri deild, 9-12 ára og eldri deild, en þar léku með fyrrverandi nemendur, undir stjórn Birgis Sveinssonar. Tónleikarnir hófust með kon- serti fyrir 7 trompeta og páku, eftir Altenburg og var fylgt eftir með valdhornaleik undir stjórn Þorkels Jóelssonar, hornleikara í Sinfóníuhljómsveit íslands, en hann hóf nám í hornablæstri með stofnhóp skólahljómsveitarinnar fyrir 30 árum. Aðalhljómsveitin (eldri deildin) lék undir stjórn Birgis, forleik eft- ir Schneider, polkann Fjörugir flakkarar en þar léku einleik Vil- borg Sigurðardóttir á valdhorn og Grétar Ingi Grétarsson á tenór- horn og hafa þau leikið með sveit- inni í meira en áratug. Næst var leikin dægurlagasyrpa, eftir Watz og endaði leik sinn með marsi, eftir Halvorsen. Það sem einkenn- ir leik hljómsveitarinnar er sérlega falleg tónmótun, mjúk og gulllit- uð, sem kom sérlega vel fram í einleik Vilborgar og Grétars. Að byggja upp slíka hljómsveit tekur langan tíma og er vanda- samt verk. Það mátti glögglega heyra á leik byijendanna, hve miklu varðar að vanda til kennsl- unnar í upphafi og var sérlega gaman að heyra smávaxna blásar- ana leika mars og skrúðgöngulag, undir stjórn Sveins Birgissonar. Yngri deildin, 9-12 ára, lék nokk- ur lög undir stjórn Birgis, Sálmfor- leik eftir Smith og kór úr Júdasi Makkabeusi, eftir Handel. Þar mátti og heyra þá hljómrækt er einkennir blástur Mosfellinga. Síðari hluti tónleikanna var samleikur skólahljómsveitarinnar og kóranna í Mosfellsbæ en þeir eru 6 að tölu, Álafosskórinn, barnakór Varmárskóla, Karlakór- inn Stefnir, kirkjukór Lágafells- kirkju, Mosfellskórinn og Reykja- lundarkórinn. Fyrsta verkið var, Sjá mánann stilltan stara, þýskt þjóðlag, sem Guðmundur Omar Oskarsson stjórnaði og þá næst var fluttur Fangakórinn úr Nabucco, eftir Verdi og var stjórnandi Helgi Ein- arsson. Lofsöngur, Þitt lof, ó, Drottinn, eftir Beethoven, var flutt undir stjórn Páls Helgasonar. Tón- leikunum lauk með sigurkórnum úr Aidu, eftir Verdi, sem Lárus Sveinsson stjórnaði. Það var tölu- verð reisn yfir flutningi þessara verka, bæði hjá kórunum og skóla- hljómsveitinni, einkum í verkum Verdis, sem voru viðamestu við- fangsefnin á þessum tónleikum. Það er ljóst að starf Birgis Sveinssonar og samkennara hans, hefur skilað Mosfellsbæ mikilvæg- ari menningareign, er mun í ríku mæli skila góðum arði í tónlistar- iðkun bæjarbúa í framtíðinni. 51500 Hafnarfjörður Löngumýri - Gbæ Glæsil. ca 140 fm timbureinb- hús auk bílsk. Steni-klætt að utan. Áhv. ca 3,5 millj. byggsj. rík. Verð 14,5 millj. Hjallabraut - þjónustuíbúð Góð 2ja herb. þjónustuíb., fyrir Hafnfirðinga 60 ára og eldri, á 4. hæð ca 63 fm. Áhv. byggsj. ca 3,2 millj. Verð 7,4 millj. Skipti mögul. Álfaskeið Góð ca 100 fm 4ra herb. íb. á 1. hæð í þríbýlishúsi. Klettagata Til sölu tvær 4ra-5 herb. íb. í tvíbýlishúsi auk bílskúrs. Geta selst saman. Arnarhraun Góð 5 herb. íb. á 3. hæð í þríb- húsi ca 136 fm. Sérinng. Áhv. ca 1,5 millj. Lindarhvammur Glæsil. efri sérhæð ásamt risi ca 140 fm. Mikið endurn. Æskil. skipti á einbhúsi í Hafn- arfirði ca 200-300 fm. Árni Grétar Finnsson hrl., Stefán Bj. Gunnlaugss. hdl.t Linnetsstíg 3, 2. hœð, Hfj., símar 51500 og 51601. FELLA- og Hólakirkja: For- eldramorgunn í fyrramálið kl. 10-12. HJALLAKIRKJA: Mömmu- morgnar á miðvikudögum frá kl. 10-12. SELJAKIRKJA: Mömmu- morgunn. Kynning á húðvör- um úr íslenskum jurtum. KEFLAVÍKURKIRKJA: Foreldramorgnar kl. 10-12 og umræða um safnaðareflingu kl. 18-19.30 í Kirkjulundi á miðvikudögum. Kyrrðar- og bænastundir eru í kirkjunni á fimmtudögum kl. 17.30. LANDAKIRKJA, Vest- mannaeyjurn: Mömmumorg- unn kl. 10. Kyrrðarstund á hádegi kl. 12.10. TTT-fundur ki. 17.30 og fundur ferming- arbarna úr Barnaskólanum og foreldra þeirra kl. 20.30. SKIPIN REYKJ AVÍKURHÖFN: í fyrradag kom Reykjafoss að utan. Otto N. og Víðir komu til löndunar og Stapafeli kom og fór samdægurs. Hákon fór á veiðar og Bergey VE kom til viðgerða. Þá var Brúar- foss væntanlegur í nótt. HAFNARFJARÐARHÖFN: I gærmorgun kom Venus til löndunar og Sjóli er væntan- legur fyrir hádegi í dag. MINNINGARKORT MINNINGARKORT Minn- ingarsjóðs Hvítabandsins eru fáanleg á eftirtöldum stöðum: Kirkjuhúsið, Kirkjuhvoli s. 21090. Bóka- búðin Borg, Lækjargötu 2, s. 15597. Hjá Lydíu s. 73092, hjá Elínu s. 615622, hjá Kristínu s. 17193 og Arndísi s. 23179. Slysavarnafélag íslands sel- ur minningarkort á skrifstofu félagsins á Grandagarði 147 Reykjavík og í síma 627000. MINNINGARKORT Gigt- arfélags íslands fást á skrif- stofu félagsins að Ármúla 5, s. 30760.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.