Morgunblaðið - 08.03.1994, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. MARZ 1994
13
Rúnar Þórisson á
Háskólatónleikum
Á Háskólatónleikum í Norræna húsinu miðvikudaginn 9. mars leikur
Rúnar Þórisson gítarleikari. Tónleikarnir hefjast kl. 12.30 og eru
um hálftími að Iengd. Á tónleikunum verða flutt verk eftir Johan
Kaspar Mertz (1806-1856), MJanuel de Falla (1876-1946) og William
Walton (1902-1983).
Mertz var sjálfur afburða gítar-
leikari og starfaði sem hljóðfæraleik-
ari við keisarahirðina í Vín. Hann
var afkastamikið tónskáld og eru
flest verka hans annaðhvort fyrir
einleiksgítar eða píanó og gítar, en
eiginkona Mertz var píanóleikari og
léku þau hjónin oft saman. Elegie
sem verður leikið á tónleikunum
þykir meðal hans bestu verka, en í
því má greina áhrif Vínar heiðríkj-
unnar og rómantískrar tónlistar.
Manuel de Falla er eitt merkasta
tónskáld Spánveija, auk þess er
hann af mörgum talinn einn af helstu
frumkvöðlum nútímatónlistar. Hann
sótti efni í þjóðlagatónlist lands síns
og ekki síst í flamenco dansinn. Þó
mun það verk sem flutt verður á
tónleikunum Homenaje „Le Tombe-
au de Debussy“ vera eina verk hans
sem var upphaflega samið fyrir gít-
ar.
William Walton er meðal þekktari
tónskálda Englendinga á þessari öld.
Hann hóf feril sinn á því að semja
kvikmyndatónlist og tónlist með
sterkum jassáhrifum. í þeim verkum
sem leikin verða eftir hann má finna
áhrif bæði frá hefðbundinni klass-
ískri tónlist og frá dægurlagatónlist
samtímans.
Rúnar Þórisson lauk burtfarar-
prófi frá Tónskóla Sigursveins D.
Kristinssonar í Reykjavík árið 1989.
Gítarkennari hans var Símon H.
ívarsson. Árið áður hafði hann lokið
prófí frá kennaradeild skólans.
Þá lá leiðin til .Svíþjóðar þar sem
Rúnar nam gítarleik hjá þeim Per-
Olaf Johnson, Gunnari Spjuth og
Göran Söllscher. Auk þess hefur
hann tekið þátt í nokkrum gítarnám-
skeiðum, meðal annars hjá argen-
tíska gítarleikaranum Roberto Aus-
ell og spænska gítarleikaranum Jose
Louis González. Samhliða gítarná-
minu stundaði Rúnar nám við tónvís-
indadeild Háskólans í Lundi og lauk
þaðan phil. kand. prófi í tónvísind-
um.
Auk tónleikahalds hér á landi þá
lágkúrunnar (auglýsingamennsku
og ímyndasýki).
Aldo Clementi (sem í mínum
eyrum er mjög áhugavert framhald
af Webern, enda þótt hann gefi
sér aðrar forsendur) og Riccardo
Nova verða ekki sakaðir um yfir-
borðsmennsku og fúsk. Clementi —
með sínum stóíska hætti sem sum-
ir kenna við „neikvæðni" en er þó
fremur í ætt við e.k. „minimal-
isma“ a la Beckett — dundar sér
við að „hlunnfara tímann“ með
sérstæðu litrófi og ríkum (rytmísk-
um) hljómbrigðum eftir flóknum
prinsippum kanónunnar. (Virkar
næstum eins og eftirmæli eða
minningargrein...) Riccardo Nova
er yngri og „fijálsari". Samt bera
verk hans merki heiðarleikans í
ströngum vinnubrögðum, sem
koma manni fyrir sjónir sem
útpæld rannsóknariðja á takmörk-
um úrræðanna, ef einhver botnar
í slíkri framsetningu! Sannarlega
lifa verk þeirra sjálfstæðu lífi, ekki
síst þess fyrrnefnda (segi ég, sem
gamall Beckett-dýrkandi).
í svona umsögn „geldur" Caput
þess að leika alvöru-nútímatónlist
fallega og af einstakri vandvirkni
(svo maður sé sjálfum sér sam-
kvæmur og haldi áfram að tala í
kross). Þökk sé þessu framúrskar-
andi tónlistarfólki (og Guðmundi
Óla Gunnarssyni, direttore princip-
ale) fyrir örugga leiðsögn um
mikilvægan og krefjandi tónvef,
sem lætur sig einu gilda hvort
hann eigi sér stóran „málfarshóp“.
Clementi og Nova verða sem sé
ekki sakaðir um lágkúru - þótt
oftast séu þeir á lágum nótum.
Hljóðritun (digital) er að sjálf-
sögðu fyrsta flokks.
hefur Rúnar leikið á tónleikum í
Svíþjóð og Danmörku, og vorið 1992
lék hann á menningarhátíð í
Greifswald í Þýskalandi. Jafnframt
því að leika á klassískan gítar þá lék
Rúnar um tíipa á rafmagnsgítar,
lengst af með hljómsveitinni Grafík,
og hefur sem slíkur leikið inn á all-
margar hljómplötur.
Handhöfum stúdentaskírteina er
boðinn ókeypis aðgangur, en að-
gangseyrir fyrir aðra er 300 kr.
TONVAKINN
Tónlistarverðlaun Ríkisútvarpsins 1994
í SUMAR efnir Ríkisútvarpið í þriðja sinn til keppni um Tónvak-
ann, Tónlistarverðlaun Ríkisútvarpsins, en keppnin er ætluð flytjend-
um sígildrar tónlistar, hlóðfæraleikurum og söngvurum.
Rúnar Þórisson gítarleikari.
í ár er sú nýbreytni tekin upp
að Tónvakakeppnin verður jafn-
framt undankeppni fyrir Tónlistar-
hátíð ungra norrænna einleikara
(Ung nordist solistenbiennial) og
verður verðlaunahafi Tónvakans
1994 fulltrúi íslands á hátíðinni sem
haldin verður á næsta ári. Vegna
þessa miðast þátttaka í Tónvaka-
keppninni í ár við 25 ára hámarks-
aldur hljóðfæraleikara og 30 ára
hámarksaldur söngvara.
Að öðru leyti verður Tónvaka-
keppni RÚV með líku sniði og ver-
ið hefur; sigurvegarinn hlýtur
keppnisfé að upphæð 250 þúsund
og mun Ríkisútvarpið gera hjóðrit-
anir með viðkomandi til útgáfu og
koma á framfæri hér á landi og í
útlöndum. Að auki verður tónleik-
um verðlaunahafans með Sinfóníu-
hljómsveit íslands næsta haust út-
varpað um Norðurlönd.
Þeim sem hyggja á þátttöku í
Tónvakanum 1994 er bent á að
snúa sér til tónlistarstjóra RÚV sem
veitir nánari upplýsingar.
EPPNI
■
l»l GETUR DOTTIÐ
LUKKUPOT TINN t
'nýir
É
Við efnum til uppskriftasamkeppni og leitum að nýjum
eftirlætis-pastaréttum, heitum og köldum, fínum og hvers-
JQ dagslegúm, ódýrum og dýrum, hefðbundnum og óhefð-
bundnum! Búðu til gómsætan pastarétt og sendu okkur
R. É T T I R
----nramas" i— uppskriftina og þú átt möguleika á að vinna ferð til ítalíu!
L
fíLÆgILEfí3^ERÐLAII&í;
1. VERÐLAUN:
Ferð fyrir tvo til Ítalíu.
2. VERÐLAUN:
Ferð til Italíu fyrir einn.
Ujt\\
Ferð til Ítalíu fyrir einn.
Fimm glæsileg aukaverðlaun verða veitt
fyrir áhugaverðar uppskriftir.
»hIM>
Frá 14.-18. mars verður sagt!
frá verðlaunaréttunum í DV
og hjá Gústa og Gerði á
Bylgjunni.
Sendu þinn eftirlætis-
pastarétt til okkar strax í
dag því þátttökufrestur
rennur út föstudaginn
11. mars.
Utanáskriftin er:
NYIR
EFTIRLÆTISRÉTTIR
Síðumúla 6
108 Reykjavík
Síminn er:
(91) 688 300
DÓMNEFNDINA SKIPA (f.v.):
Guðrún Einarsdóttir frá Barilla, _
Ingibjörg Óðinsdóttir frá DV, Pétur | FLUGLEIÐIR
Ómar Ágústsson frá Fluglciðum, r “ m
Þorgeir Ástvaldsson frá Bylgjunni ___ __
og Björg Sigurðardóttir frá INýjum > tzVjr
eftirlætisréttum.
C<1