Morgunblaðið - 08.03.1994, Side 16

Morgunblaðið - 08.03.1994, Side 16
16 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. MARZ 1994 Umræður á flokksstjórnarfundi Alþýðuflokksins Margir andvígir ráðningn Steingríms í Seðlabankann MARGIR fundarmanna á flokksstjórnarfundi Alþýðuflokksins sem haldinn var á laugardag lögðu hart að forystumönnum flokksins að standa ekki að skipun Steingríms Hermannssonar, formanns Fram- sóknarflokksins, í stöðu seðlabankastjóra og hvöttu til að fagleg sjón- um, en skv. upplýsingum Morgun- blaðsins af fundinum gáfu ráðherr- ar engar yfirlýsingar um hvort Steingrímur yrði ráðinn en Jón Baldvin Hannibalsson, formaður flokksins, sagði að Steingrímur væri óumdeilanlega hæfur til að gegna stöðunni. Aðgerðir ekki bundnar við Vestfirði Mikið var rætt um atvinnumál og um sértækar aðgerðir ríkis- stjómarinnar vegna vanda Vest- firðinga og sagði Guðmundur Ámi Stefánsson heilbrigðisráðherra að aðgerðir væm ekki bundnar við Vestfirði eina heldur væri ætlunin að kanna hvort þörf væri á sértæk- um aðgerðum á öðrum stöðum á landinu. Þá var fjallað um undirbúning vegna sveitarstjómakosninganna á fundinum og sagðist Jón Baldvin telja að Alþýðuflokkurinn myndi koma vel út úr kosningunum þrátt fyrir veika stöðu á landsvísu í ein- stökum skoðanakönnunum. Lýstu fundarmenn yfir að þeir stæðu fast að baki flokksforystunni í deil- unum um landbúnaðarmál. armið yrðu látin ráða ferðinni. Rúmlega hundrað mánns sóttu fundinn, sem var lokaður ijölmiðl- Fræðslufundur hjá félaginu Minjum og sögu FRÆÐSLUFUNDUR verður haldinn í Þjóðminjasafninu í dag klukkan 17 á vegum félags áhugamanna um minjar og sögu. Fundurinn er öllum opinn og er félagsmönnum bent á að taka með sér gesti. Tveir fyrirlestrar verða haldnir. Þann fyrri heldur Sigríður Th. Er- lendsdóttir og mun hún kynna bók sína Veröld sem ég vil - Sögu kvenréttindafélags íslands. Leitast höfundur við að varpa ljósi á þátt samtímasögunnar, sem enn er að mestu óskráður og setur kvenna- baráttu hér í alþjóðlegt samhengi, eins og segir í fréttatilkynningu. Síðari fyrirlesturinn heldur Guðjón Friðriksson og mun hann kynna annað bindi af Sögu Reykjavíkur sem fjallar um millistríðsárin. # Morgunblaðið/Jón Svavarsson Heimtur úr háska BRUGÐIÐ var á leik á björgunarsýningunni á laugardaginn er Markúsi Erni Antonssyni borgar- stjóra í Reykjavík var bjargað úr sjávarháska með Markúsarneti. 20 þúsund á björgunarsýningu SÝNINGIN Björgun ’94 var haldin í Perlunni um helgina og seg- ir Björn Hermannsson framkvæmdastjóri Landsbjargar að frá- bærlega hafi til tekist. Sýningin hófst á föstudag með þátttöku boðsgesta og björgunarsveitarfólks en var opin almenningi laug- ardag og sunnudag. Að sögn Bjöms má ætla að um 20.000 manns hafi sótt Öskjuhlíð- ina og Perluna heim til þess að taka þátt en áhorfendur vora í návígi við margs konar björgunar- aðgerðir. Til dæmis var leitað að týndum, fólki bjargað úr bílflökum og borgarstjóranum, Markúsi Emi Antonssyni. bjargað úr sjáv- arháska með Markúsarneti. Björn segir að slíkar sýningar séu haldnar annað hvert ár og sé þetta í fyrsta skipti sem samstarf sé haft við Slysavarnafélagið. Einnig voru til sýnis vörar frá þrjá- tíu söluaðilum, en Björn segir að hingað til hafi slíkar björgunar- kynningar gengið út á fyrirlestra og sé þetta í fyrsta skipti sem al- menningur hafi fylgst með starfi björgunarfólks í slíku návígi. Geir H. Haarde formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins Jöfnunargjald á olíu ekki verið rætt enn Stokkhólmi. Frá Sigrúnu Davíðsdóttur, fréttaritara Morgunblaðsins. JÖFNUNARGJALD á olíu hefur ekki verið tekið til um- ræðu innan þingflokks Sjálfstæðisflokksins, en Geir H. Haarde þingflokksformaður sagðist í samtali við Morgun- blaðið vera viss um að það yrði gert af opnum hug. Geir H. Haarde sagði að þó svo að málið hefði verið afgreitt í ríkis- stjórninni hefði það enn ekki verið afgreitt í þingflokknum og hann hefði ekki séð endanlega útgáfu þess. Sjálfur teldi hann að ýmsar Stefnt að færri slysum á bömum ÁTAKIÐ Öryggi barna — okkar ábyrgð hefur um tveggja ára skeið verið samráðsvettvangur aðila sem vinna að slysa- vörnum fyrir börn. Hlutverk framkvæmdastjómar auk þess að vera samráðsvettvangur er að veita árlega viðurkenning- ar fyrir árangursríkt framlag til slysavarna barna, álykta í málefnum sem varða öryggi barna og halda árlega opinn kynningarfund. Framkvæmdasljórn átaksins Öryggi barna — okkar ábyrgð hefur sett fram það markmið að stefnt skuli að því lækka slysatíðni á bömum á íslandi um 20% frá 1992 til 1997. Opinn fundur um átakið Ör- yggi bama — okkar ábyrgð, haldinn í Hinu húsinu í Reykja- vík 22. febrúar 1994, samþykkti að beina því til ríkis og sveitarfé- laga að sett verði markmið um forvamastarf í þágu barna á vegum sveitarfélaga og ríkis þannig að markvisst verði unnið að því að fækka slysum meðal barna. Fundurinn skorar á stjómvöld að láta gera fjárhags- og fram- kvæmdaáætlun um slysavarnir í þágu bama til nokkurra ára í senn og tryggja nægt fjármagn til nauðsynlegra verkefna í þessu skyni. Í framkvæmdastjóm 1994 voru kjörnir fulltrúar frá: Forel- drasamtökunum, Guðrún Hjart- ardóttir, ritstjóri Uppeldis, Land- læknisembættinu, Vilborg Ing- ólfsdóttir, yfirhjúkranarfræðing- ur, Neytendasamtökunum, Sig- ríður A. Ásgrímsdóttir, verkfr. og sérfræðingur um vöraöryggi, Rauða krossi íslands, Svanhildur Þengilsdóttir, deildarstjóri í Fræðsludeild og Umferðarráði og María Finnsdóttir, bama- slysa- og fræðslufulltrúi. breytingar í þessum efnum væru tímabærar. Nauðsynlegt væri að knýja fram hagræðingu í dreifingu með því að gera breytingar á flutn- ingsjöfnuðinum. Það þyrfi ekki endilega að þýða hækkanir miðað við núgildandi verð, en geti hugs- anlega þýtt lækkanir fyrir ein- hveija. Nauðsynlegt væri að ræða þetta mál af opnum hug og Geir sagðist viss um að það yrði gert innan þingflokksins, þó of snemmt væri að segja um niðurstöður. Fyrir tveimur árum var lögð mikil vinna í að semja frumvarp um þetta efni, að sögn Geirs, en það náði þá ekki fram að ganga, en sér væri ekki kunnugt um hvort núverandi frumvarp væri eins. Tortryggni landsbyggðarþing- manna væri skiljanleg, en sín skoðun væri að í þessum efnum þyrfti að gera breytingar til að knýja fram aukna hagkvæmni til að gefa stórkaupendum kost á eðlilegum afslætti og auka við- skiptamöguleika við erlend skip. Morgunblaðið/Jón H. Sigurmundsson Verksmiðja flutt STARFSMENN BM Vallár flytja vikurverksmiðjuna til Þorlákshafnar. BM Vallá flytur vikur- vinnslu til Þorlákshafnar Þorlákshöfn. STEYPUSTÖÐIN BM Vallá sem hefur flutt út Hekluvikur síðan 1977 hefur ákveðið að flytja allan vikur út frá Þorlákshöfn. Vikur- inn er sigtaður, mulinn og að hluta til þveginn áður en hann er sendur út. Þessi starfsemi hefur hingað til farið fram í Reykjavík. Þórarinn Ólafsson, sem starfað fastir starfsmenn og lausamann- hefur hjá BM Vallá síðan 1971, varð fyrir svöram er fréttaritara bar að og innti frétta. Þórarinn sagði að fyrirhugað væri að flytja út allt að einum skipsfarmi í mánuði, en skipið tekur um 7.000 rúmmetra. Þessi starfsemi er ekki mannfrek, tveir skapur þegar útskipun stendur yfir, auk þess verða fjórir til fimm bílar í stöðugum flutningum. Magnús Eiríksson, sem ættaður er frá Skúmslæk, verður stöðvar- stjóri. - J.H.S. Sjö fulltrúar Reykjavíkurborgar staddir í Alaska A fundi um vetrarborgir SJÖ manns eru nú staddir á vegum Reykjavíkurborgar í Alaska til að sitja ráðstefnu í borginni Anchorage um norrænar vetrarborgir. Ráðstefnan stendur yfir í sex daga að þessu sinni en hún hefur verið haldin á tveggja ára fresti seinustu ár, og er fjallað um sameig- inlega þætti vetrarborga á sviði umhverfismála, samgöngumála, heilbrigðismála, útivistarmála, atvinnumála, orkumála o.fl. Af hálfu núverandi meirihluta í borgarstjóm era Anna K. Jónsdótt- ir, Jóna Gróa Sigurðardóttir og Haraldur Blöndal í Alaska. Frá minnihlutanum era Sigrún Magnús- dóttir, Guðrún Ögmundsdóttir og Siguijón Pétursson, auk þess sem Jóhann Pálsson, garðyrkjustjóri borgarinnar, er einnig staddur á ráðstefnunni. Samkvæmt upplýs- ingum frá Reykjavíkurborg er ferðakostnaður sjömenninganna um 1,9 milljónir króna. Reykjavíkur- borg hefur nokkram sinnum áður sent fulltrúa á ráðstefnu um vetrar- borgir, m.a. í Edmonton í Kanada árið 1988 og í Tromsö í Noregi árið 1990. Milli 30 og 40 norðlægar borgir eiga aðild að ráðstefnunni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.