Morgunblaðið - 08.03.1994, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. MARZ 1994
Umræður á flokksstjórnarfundi Alþýðuflokksins
Margir andvígir
ráðningn Steingríms
í Seðlabankann
MARGIR fundarmanna á flokksstjórnarfundi Alþýðuflokksins sem
haldinn var á laugardag lögðu hart að forystumönnum flokksins að
standa ekki að skipun Steingríms Hermannssonar, formanns Fram-
sóknarflokksins, í stöðu seðlabankastjóra og hvöttu til að fagleg sjón-
um, en skv. upplýsingum Morgun-
blaðsins af fundinum gáfu ráðherr-
ar engar yfirlýsingar um hvort
Steingrímur yrði ráðinn en Jón
Baldvin Hannibalsson, formaður
flokksins, sagði að Steingrímur
væri óumdeilanlega hæfur til að
gegna stöðunni.
Aðgerðir ekki bundnar
við Vestfirði
Mikið var rætt um atvinnumál
og um sértækar aðgerðir ríkis-
stjómarinnar vegna vanda Vest-
firðinga og sagði Guðmundur Ámi
Stefánsson heilbrigðisráðherra að
aðgerðir væm ekki bundnar við
Vestfirði eina heldur væri ætlunin
að kanna hvort þörf væri á sértæk-
um aðgerðum á öðrum stöðum á
landinu.
Þá var fjallað um undirbúning
vegna sveitarstjómakosninganna á
fundinum og sagðist Jón Baldvin
telja að Alþýðuflokkurinn myndi
koma vel út úr kosningunum þrátt
fyrir veika stöðu á landsvísu í ein-
stökum skoðanakönnunum. Lýstu
fundarmenn yfir að þeir stæðu
fast að baki flokksforystunni í deil-
unum um landbúnaðarmál.
armið yrðu látin ráða ferðinni.
Rúmlega hundrað mánns sóttu
fundinn, sem var lokaður ijölmiðl-
Fræðslufundur
hjá félaginu
Minjum og sögu
FRÆÐSLUFUNDUR verður
haldinn í Þjóðminjasafninu í dag
klukkan 17 á vegum félags
áhugamanna um minjar og sögu.
Fundurinn er öllum opinn og er
félagsmönnum bent á að taka
með sér gesti.
Tveir fyrirlestrar verða haldnir.
Þann fyrri heldur Sigríður Th. Er-
lendsdóttir og mun hún kynna bók
sína Veröld sem ég vil - Sögu
kvenréttindafélags íslands. Leitast
höfundur við að varpa ljósi á þátt
samtímasögunnar, sem enn er að
mestu óskráður og setur kvenna-
baráttu hér í alþjóðlegt samhengi,
eins og segir í fréttatilkynningu.
Síðari fyrirlesturinn heldur Guðjón
Friðriksson og mun hann kynna
annað bindi af Sögu Reykjavíkur
sem fjallar um millistríðsárin.
# Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Heimtur úr háska
BRUGÐIÐ var á leik á björgunarsýningunni á laugardaginn er Markúsi Erni Antonssyni borgar-
stjóra í Reykjavík var bjargað úr sjávarháska með Markúsarneti.
20 þúsund á björgunarsýningu
SÝNINGIN Björgun ’94 var haldin í Perlunni um helgina og seg-
ir Björn Hermannsson framkvæmdastjóri Landsbjargar að frá-
bærlega hafi til tekist. Sýningin hófst á föstudag með þátttöku
boðsgesta og björgunarsveitarfólks en var opin almenningi laug-
ardag og sunnudag.
Að sögn Bjöms má ætla að um
20.000 manns hafi sótt Öskjuhlíð-
ina og Perluna heim til þess að
taka þátt en áhorfendur vora í
návígi við margs konar björgunar-
aðgerðir. Til dæmis var leitað að
týndum, fólki bjargað úr bílflökum
og borgarstjóranum, Markúsi Emi
Antonssyni. bjargað úr sjáv-
arháska með Markúsarneti.
Björn segir að slíkar sýningar
séu haldnar annað hvert ár og sé
þetta í fyrsta skipti sem samstarf
sé haft við Slysavarnafélagið.
Einnig voru til sýnis vörar frá þrjá-
tíu söluaðilum, en Björn segir að
hingað til hafi slíkar björgunar-
kynningar gengið út á fyrirlestra
og sé þetta í fyrsta skipti sem al-
menningur hafi fylgst með starfi
björgunarfólks í slíku návígi.
Geir H. Haarde formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins
Jöfnunargjald á olíu
ekki verið rætt enn
Stokkhólmi. Frá Sigrúnu Davíðsdóttur, fréttaritara Morgunblaðsins.
JÖFNUNARGJALD á olíu hefur ekki verið tekið til um-
ræðu innan þingflokks Sjálfstæðisflokksins, en Geir H.
Haarde þingflokksformaður sagðist í samtali við Morgun-
blaðið vera viss um að það yrði gert af opnum hug.
Geir H. Haarde sagði að þó svo
að málið hefði verið afgreitt í ríkis-
stjórninni hefði það enn ekki verið
afgreitt í þingflokknum og hann
hefði ekki séð endanlega útgáfu
þess. Sjálfur teldi hann að ýmsar
Stefnt að færri
slysum á bömum
ÁTAKIÐ Öryggi barna — okkar ábyrgð hefur um tveggja
ára skeið verið samráðsvettvangur aðila sem vinna að slysa-
vörnum fyrir börn. Hlutverk framkvæmdastjómar auk þess
að vera samráðsvettvangur er að veita árlega viðurkenning-
ar fyrir árangursríkt framlag til slysavarna barna, álykta
í málefnum sem varða öryggi barna og halda árlega opinn
kynningarfund. Framkvæmdasljórn átaksins Öryggi barna
— okkar ábyrgð hefur sett fram það markmið að stefnt
skuli að því lækka slysatíðni á bömum á íslandi um 20%
frá 1992 til 1997.
Opinn fundur um átakið Ör-
yggi bama — okkar ábyrgð,
haldinn í Hinu húsinu í Reykja-
vík 22. febrúar 1994, samþykkti
að beina því til ríkis og sveitarfé-
laga að sett verði markmið um
forvamastarf í þágu barna á
vegum sveitarfélaga og ríkis
þannig að markvisst verði unnið
að því að fækka slysum meðal
barna.
Fundurinn skorar á stjómvöld
að láta gera fjárhags- og fram-
kvæmdaáætlun um slysavarnir í
þágu bama til nokkurra ára í
senn og tryggja nægt fjármagn
til nauðsynlegra verkefna í þessu
skyni.
Í framkvæmdastjóm 1994
voru kjörnir fulltrúar frá: Forel-
drasamtökunum, Guðrún Hjart-
ardóttir, ritstjóri Uppeldis, Land-
læknisembættinu, Vilborg Ing-
ólfsdóttir, yfirhjúkranarfræðing-
ur, Neytendasamtökunum, Sig-
ríður A. Ásgrímsdóttir, verkfr.
og sérfræðingur um vöraöryggi,
Rauða krossi íslands, Svanhildur
Þengilsdóttir, deildarstjóri í
Fræðsludeild og Umferðarráði
og María Finnsdóttir, bama-
slysa- og fræðslufulltrúi.
breytingar í þessum efnum væru
tímabærar. Nauðsynlegt væri að
knýja fram hagræðingu í dreifingu
með því að gera breytingar á flutn-
ingsjöfnuðinum. Það þyrfi ekki
endilega að þýða hækkanir miðað
við núgildandi verð, en geti hugs-
anlega þýtt lækkanir fyrir ein-
hveija. Nauðsynlegt væri að ræða
þetta mál af opnum hug og Geir
sagðist viss um að það yrði gert
innan þingflokksins, þó of snemmt
væri að segja um niðurstöður.
Fyrir tveimur árum var lögð
mikil vinna í að semja frumvarp
um þetta efni, að sögn Geirs, en
það náði þá ekki fram að ganga,
en sér væri ekki kunnugt um hvort
núverandi frumvarp væri eins.
Tortryggni landsbyggðarþing-
manna væri skiljanleg, en sín
skoðun væri að í þessum efnum
þyrfti að gera breytingar til að
knýja fram aukna hagkvæmni til
að gefa stórkaupendum kost á
eðlilegum afslætti og auka við-
skiptamöguleika við erlend skip.
Morgunblaðið/Jón H. Sigurmundsson
Verksmiðja flutt
STARFSMENN BM Vallár flytja vikurverksmiðjuna til Þorlákshafnar.
BM Vallá flytur vikur-
vinnslu til Þorlákshafnar
Þorlákshöfn.
STEYPUSTÖÐIN BM Vallá sem hefur flutt út Hekluvikur síðan
1977 hefur ákveðið að flytja allan vikur út frá Þorlákshöfn. Vikur-
inn er sigtaður, mulinn og að hluta til þveginn áður en hann er
sendur út. Þessi starfsemi hefur hingað til farið fram í Reykjavík.
Þórarinn Ólafsson, sem starfað fastir starfsmenn og lausamann-
hefur hjá BM Vallá síðan 1971, varð
fyrir svöram er fréttaritara bar að
og innti frétta. Þórarinn sagði að
fyrirhugað væri að flytja út allt að
einum skipsfarmi í mánuði, en skipið
tekur um 7.000 rúmmetra. Þessi
starfsemi er ekki mannfrek, tveir
skapur þegar útskipun stendur yfir,
auk þess verða fjórir til fimm bílar
í stöðugum flutningum.
Magnús Eiríksson, sem ættaður
er frá Skúmslæk, verður stöðvar-
stjóri.
- J.H.S.
Sjö fulltrúar Reykjavíkurborgar staddir í Alaska
A fundi um vetrarborgir
SJÖ manns eru nú staddir á vegum Reykjavíkurborgar í Alaska til
að sitja ráðstefnu í borginni Anchorage um norrænar vetrarborgir.
Ráðstefnan stendur yfir í sex daga að þessu sinni en hún hefur
verið haldin á tveggja ára fresti seinustu ár, og er fjallað um sameig-
inlega þætti vetrarborga á sviði umhverfismála, samgöngumála,
heilbrigðismála, útivistarmála, atvinnumála, orkumála o.fl.
Af hálfu núverandi meirihluta í
borgarstjóm era Anna K. Jónsdótt-
ir, Jóna Gróa Sigurðardóttir og
Haraldur Blöndal í Alaska. Frá
minnihlutanum era Sigrún Magnús-
dóttir, Guðrún Ögmundsdóttir og
Siguijón Pétursson, auk þess sem
Jóhann Pálsson, garðyrkjustjóri
borgarinnar, er einnig staddur á
ráðstefnunni. Samkvæmt upplýs-
ingum frá Reykjavíkurborg er
ferðakostnaður sjömenninganna um
1,9 milljónir króna. Reykjavíkur-
borg hefur nokkram sinnum áður
sent fulltrúa á ráðstefnu um vetrar-
borgir, m.a. í Edmonton í Kanada
árið 1988 og í Tromsö í Noregi árið
1990. Milli 30 og 40 norðlægar
borgir eiga aðild að ráðstefnunni.