Morgunblaðið - 08.03.1994, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 08.03.1994, Qupperneq 18
18 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. MARZ 1994 VIÐSKIPn AIVINNULÍF Holland Philips loks með hagnað eftír þriggja ára tap Eindhoven, Hollandi. Reuter. HOLLENZKA rafeindafyrirtækið Philips — hið stærsta í Evrópu — hefur skýrt frá því að það hafi verið rekið með hagnaði í fyrra eftir þriggja ára hallarekstur, en er aðeins hóflega bjartsýnt á horfurnar á þessu ári og varar við fleiri uppsögnum starfsfólks í Þýzkalandi. Nettóhagnaður nam 856 milljónum gyllina (441 milljón doll- ara) 1993, þannig að 900 milljóna gyllina (464 milljóna dollara) halli 1992 var svo að segja þurrkaður út, og það er betri útkoma en bjart- sýnustu sérfræðingar höfðu búizt við. „Við teljum að við höfum náð mikilvægum áfanga og séum þess megnugir að hefjast smám saman handa um að hleypa nýju lífi í fyrir- tækið,“ sagði Jan Timmer, stjórnarformaður þess, sem hleypti af stokkunum erfiðri endurskipu- lagningaráætlun þegar hann tók við starfinu 1990. Philips bendir hins vegar á að frekari tekjuaukning á árinu 1994 verði komin undir þeim efnahags- bata sem verði í Evrópu. Nettóhagnaður Philips 1993 jókst í 1,97 milljarða gyllina (1,02 milljarða dollara) úr 900 milljóna tapi 1992. Að sögn Philips hagnað- ist fyrirtækið mest á niðurskurði Fjölmiðlar Telegraph fer út í út- gáfu rafeindablaða ÚTGÁFUFYRIRTÆKI brezka blaðsins The Daily Telegraph hyggst gera tilraunir með rafeindablöð í næstu framtíð að því er fram kom þegar ársreikningar fyrirtækisins voru kynntir nýlega. Að sögn Joe Cookes fram- kvæmdastjóra er líklegt að fylgiblað- ið Weekly Telegraph verði fljótlega tengt tölvukerfínu Intemet, sem er talið mjög aðgengilegt. Fylgiblaðið, sem er í litlu broti og kemur út viku- lega með úrvali af efni aðalblaðsins, er einkum ætlað Bretum búsettum erlendis. Cooke sagði að blöðum væri nauð- synlegt að huga að möguleikum sín- um í framtíðinni. „Prentað mál verð- ur ekki leyst af hólmi,“ sagði hann, „en áður en langt um líður munu blöð í rafrænu formi verða notuð í miklu ríkara mæli en hingað til.“ Telegraph-blaðaútgáfan hyggst einnig gefa út blað sitt fyrir unga lesendur, Young Telegraph, á disk- um. Hins vegar hefur fyrirtækið hætt við fyrirætlanir um færa út kvíarnar með sjónvarpsrekstri. rekstrarkostnaðar og skuldaað- haldi. Sala hélzt nær því óbreytt og nam 58,83 milljörðum gyllina (30,32 milljarða dollara) miðað við 58,53 milljarða árið á undan. En þótt „fjárhagsstaðan batni ört“ varar Timmer stjórnarformað- ur við miklum erfíðleikum í Þýzka- landi — aðallega í systurfyrirtæk- inu Grundig AG. Fyrir utan bágan efnahag hafa þýzk fyrirtæki verið seinni til að hefjast handa um end- urskipulagningu vegna sigurvímu í kjölfar sameiningar Þýzkalands að sögn Timmers. Vegna hundruða milljóna gyllina taps Grundigs var rafeindadeild Philips rekin með 73 milljóna gyll- ina (37,6 milljóna dollara) halla miðað við 553 milljóna halla 1992. Endurskipulagning er fyrirhug- uð, en önnur rafeindafyrirtæki Philips eru rekin með hagnaði. BILASALAN I EVROPU Vestur- Evrópsk bílasala er taiin rétta eitthvaö úr kútnum á þessu ári eftir aö hafa hruniö á liönu ári. BlLASLA í EVRÓPU 96 97 MARKAÐSHLUTDEILD 1993 Aörir 3,6% BMW 3,2% ' Bílar lluttir inn Irá Bandaríkjunum og seldir I V-Evrópu meðtaldir. " Lancia, Alfa Romeo, Innocenti, Ferrari og Maserati meðtaldir. Heimild : Motor Industry Research Unit Rover 3,2% Mercedes- Benz 3,1% REUTER Bílar Bílasala mun smáaukast í Vestur-Evrópu íár Brussel. Reuter. EFTIRSPURN eftir nýjum bíl- um í Vestur- Evrópu jókst um 1,9% í febrúar miðað við sama tíma í fyrra og jókst einnig í janúar samkvæmt upplýsing- um Samtaka bifreiðaframleið- enda Evrópu (ACEA). FÉLAG ÍSLENSKRA STÓRKAUPMANNA Ráðstefna um flutningamál Ráðstefna verður haldin þann 16. mars nk. kl. 13.30 í Háskólabíó, sal 2, í tengslum við aðalfund Félags íslenskra stórkaupmanna. Meðal efnis sem fjallað verður um: - Hefur samkeppnisstaða í milliríkjaverslun batnað eða versnað með tilliti til þróunar flutningsgjalda? - Hver eru flutningsgjöld í íslandssiglingum? - Hver eru flutningsgjöld í samkeppnislöndum íslands? - Eru íslensk flutningasölufyrirtæki vel rekin? Dagskrá: 1. Ávarp Sighvatur Björgvinsson, viðskiptaráðherra. 2. Kynning á skýrslu Drewry Shipping Consultants, sem unnin hefur verið fyrir FÍS og íslenska flutningakauparáðið um ís- lenskan og alþjóðlegan flutningamarkað. Mark Page, Senior Consultant. 3. íslenski gámaflutningamarkaðurinn í alþjóðlegu samhengi. Birgir R. Jónsson, formaður FÍS. 4. Umræður. / Ráðstefnustjóri verður Stefán S. Guðjónsson, framkvæmdastjóri FÍS. Skýrsla Drewrys er umfangsmesta úttekt, sem unnin hefur verið á íslenska sjóflutningamarkaðinum fram til þessa. Ráðstefnan er öllum opin. Aðgangur er kr. 2.800 fyrir almenna ráðstefnugesti. Afsláttur er veittur til félagsmanna. Skráning ráðstefnugesta fer fram á skrifstofu félagsins á 6. hæð í Húsi verslunarinnar. Upplýsingar í síma 678910. Félag fslenskra stórkaupmanna. Flutningakauparáð. Mark Page Nýskráðum bílum fjölgaði í 936.060 í 17 Vestur-Evrópulöndum úr 918.610 í febrúar 1993. í janúar voru 6,3% fleiri nýskráningar en í sama mánuði ári áður, en þá lauk eins árs samdrætti á markaðnum í Vestur-Evrópu. Sala á nýjum bílum dróst saman um rúmlega 15% í fyrra i um 11,4 milljónir og það var mesti samdráttur á einu ári í hálfa öld. Ekki er búizt við að söluaukning- in 1994 verði veruleg. Fram- kvæmdastjórn Evrópusambandsins spáði núllaukningu í viðræðum við japönsk stjórnvöld um bifreiðaút- flutning Japana 1994, en Japanar gerðu réð fyrir lítils háttar aukn- ingu. I Genf gera sérfræðingar ráð fyrir að bifreiðasala í Vestur-Evr- ópu muni aukast lítils háttar 1994 í um 11,6 eða 11,7 milljónir. Fyrsta alþjóðlega bílasýning ársins hefst í Genf á fimmtudag og sérfræðingar sjá litla ástæðu til bjartsýni í bráð. Fýrirtæki eru rekin með halla, til- kostnaður er enn of mikill og fleiri uppsagnir eru í uppsiglingu. Hörð samkeppni Japana mun líklega harðna og á sama tíma eykst inn- flutningur bíla til Evrópu frá lönd- um þar sem vinnuafl er ódýrt, til dæmis Suður-Kóreu og Malaysíu. Ekki er heldur búizt við að nýir bílar sem sýndir verða muni valda kaupæði meðal neytenda. „Þeir eru leiðinlegir," sagði brezkur ráðu- nautur, Peter Schmidt. Peugeot og Fiat kynna „fjölnotabiT (MPV), BMW nýjan smábíl, Evrópudeild General Motors Opel/Vauxhall „Omega-forstjórabíl“ og Audi sýnir A8 með yfirbyggingu úr áli. Einnig má nefna Ford-smábílinn „Ka“ og fólksbíl Mercedes/Swatch. „1994 verður annað erfitt sölu- ár,“ sagði Schmidt. Brezka vikuritið Economist kannaði nýlega álit yfír- manna sex stórra bílaverksmiðja í Evrópu. Peugeot og Fiat spáðu 3% og 2,3% vexti. Ford-Evrópa spáði smávegis aukningu. General Mot- ors-Evrópa lítils háttar hnignun, Volkswagen stöðnun, en Renault taldi að botninum hefði verið náð. Ert þú kona sem... - hefur áhuga á atvinnumálum? - hefur áhuga á betrí launum? - vilt hafa meiri áhrif á eigin framtíð? á námskeiöinu Hansina B. Ðnarsdóttir Þekking - þjálfun - þátttaka er fjallaö um stööu kvenna í breyttu samfélagi, vinnumarkaö, ný störf, stjórnunarstíl kvenna og nýjar leiöir til árangurs. Námskeiöið er haldið í húsnæöi Stjórnunar- félagsins 15. mars kl. 13.00-17.30. Verö: kr. 6.900,- Skráning í síma 621066 Stjórnunarfélag islanós Ánanaustum 15

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.