Morgunblaðið - 08.03.1994, Page 20
20
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. MARZ 1994
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Ólafsfirði
Þorsteinn Asgeirs-
son í fyrsta sæti
ÞORSTEINN Ásgeirsson hlaut flest atkvæði í fyrsta sæti í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins í Ólafsfirði sem haldið var um helgina. Hann
fékk 64 atkvæði í fyrsta sæti og 92 atkvæði alls og bindandi kosningu.
Í öðru sæti varð Kristín Trampe
með 45 atkvæði í fyrsta og annað
sæti og 86 atkvæði alls. Karl Guð-
mundsson fékk 52 atkvæði í fyrsta
til þriðja sæti og 102 atkvæði alls.
Hvorki Kristín né Karl hlutu bind-
andi kosningu.
í fjórða sæti var Anna María Elías-
dóttir með 69 atkvæði í fyrsta til
fjórða sæti og 99 atkvæði alls og í
fimmta sæti varð Gunnlaugur Jón
Magnússon með 96 atkvæði í fyrsta
til fimmta sæti og 106 atkvæði alls.
Alls greiddu 126 atkvæði í próf-
kjcrinu og voru 124 seðlar gildir.
Þátttaka var 27% meiri en í próf-
kjöri flokksins í Ólafsfirði fyrir fjór-
um árum en þá tóku innan við 100
manns þátt.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið
í meirihluta í bæjarstjórn Ólafsfjarð-
ar á kjörtímabilinu, en hann á Qóra
af sjö bæjarfulltrúum í bæjarstjóm-
inni.
Þorsteinn Ásgeirsson
64 atkv. 92 alls
Kristín Trampe
45 atkv. í 1.-2. sæti 86 alls
Karl Guðmundsson
52atkv. íl.-3. sæti 102 alls
Anna María Elíasdóttir
69 atkv. í 1.-4. sæti 99 alls
Gunnlaugur Jón Magnússon
96 atkv. í 1.-5. sæti 106 alls
14 ára íslandsmeistari í brids
Framtíðardraum-
urínn er að gerast
atvinnubridsari
„SIGURINN var óvæntur, auðvitað langaði mig að vinna og við
áttum möguleika, en ég bjóst nú samt ekki við þessu,“ sagði Sigur-
björn Haraldsson, 14 ára Akureyringur, sem ásamt félögum sínum
varð íslandsmeistari í brids á íslandsmóti yngri spilara sem fram
fór í Reykjavík fyrir nokkru. Með honum í sveit voru Magnús
Magnússon frá Akureyri og sunnanmennirnir Karl O. Garðarsson
og Kjartan Ásmundsson. Þetta mót er fyrir þá sem eru 25 ára
og yngri.
Sigurbjöm byijaði að spila brids
fyrir tveimur árum, en þá fór
hann með bróður sínum, Ántoni,
í tvímenning í Golfskálann að
Jaðri og þá varð ekki aftur snúið,
hann fékk bakteríuna.
„Ég hef mjög gaman af því að
spila og ætla mér að halda áfram.
Við spilum alltaf fast tvisvar í
viku, á sunnudögum og þriðjudög-
um, en síðan hittast menn þess á
milli,“ sagði bridsspilarinn ungi,
en það vakti nokkra athygli þegar
hann sigraði á afmælismóti Soffíu
Guðmundsdóttur á Akureyri í
nóvember síðastliðnum.
Góðan árangur við spilaborðið
sagði hann að mætti þakka bróður
sínum, sem hefði verið duglegur
að leggja fyrir hann æfingar af
ýmsu tagi og bera í hann bækur
um efnið. „Þetta er mitt aðal-
áhugamál og það skemmtiiegasta
sem ég geri, ég æfí reyndar fót-
bolta með KA á sumrin, en yfír
vetrarmánuðina liggur maður yfír
þessari íþrótt hugans,“ sagði
Sigurbjöm, sem er i 9. bekk Gagn-
fræðaskólans á Akureyri. „Fram-
tíðardraumurinn er auðvitað sá
að gerast atvinnubridsari, en þar
sem ég á alls ekki von á að hann
rætist verður maður að læra eitt-
hvað.“
Morgunblaðið/Benjamín Baldursson
Forseti í heimsókn
LEIKDEILD Ungmennafélags Skriðuhrepps frumsýndi gamanleikinn Forsetaheimsóknina um helgina.
Áhugaleikarar í Ungrnennafélagi Skriðuhrepps
Gamanleikurínn Forsetaheim-
sóknin frumsýndur að Melum
Ytri-Tjörnum, Eyjafjarðarsveit.
LEIKDEILD Ungmennafélags Skriðuhrepps frumsýndi um helg-
ina gamanleikinn Forsetaheimsóknina eftir Frakkana Luis Rego
og Philippe Bruneau sem báðir eru leikarar og miklir háðfuglar
í sínu heimalandi. Leiksljóri er hinn kunni leikhúsmaður Aðal-
steinn Bergdal en þýðandi verksins er Þórarinn Eldjárn.
í leikskrá segir að kveikjan að
þessu leikriti, Forsetaheimsókn-
inni, megi rekja til þess uppátæk-
is Giscard d’Estaings fyn-verandi
Frakklandsforseta fyrst eftir að
hann varð forseti, að heimsækja
alþýðufjölskyldur. í embættistíð
hans jókst verðbólga mjög í
Frakklandi og atvinnuleysi varð
meira en áður hafði þekkst. Finna
má tilvísanir í þetta í leikritinu.
Leikendur í sýningunni á Mel-
um eru 12 talsins, flestir gamal-
reyndir leikarar enda hefur leiklist
verið í háveguln höfð í dalnum
áratugum saman.
Leikstjórinn hefur nýtt sér
þennan efnivið til fullnustu og er
útkoman bráðfjörug og skemmti-
leg sýning sem áhorfendur kunnu
vel að meta. Önnur sýning á For-
setaheimsókninni verður að Mel-
um í kvöld, þriðjudagskvöld.
- Benjamín
Kór Akureyrar-
kirkju með tónleika
KÓR Akureyrarkirkju heldur tón-
leika í Akureyrarkirkju í kvöld,
þriðjudagskvöldið 8. mars kl.
20.30. Tónleikamir eru liður í
kirkjuviku.
Stjómandi er Björn Steinar Sól-
bergsson, Dóróteha Dagný Péturs-
dóttir leikur á orgel og einsöngvari
er Ingibjörg Guðjónsdóttir, sópran. Á
efnisskránni er íslensk og erlend
kirkjutónlist.
Ingibjörg Guðjónsdóttir hefur
komið fram við ýmis tækifæri hér á
landi og erlendis, var meðal annars
fulltrúi íslands á Tónlistarhátíð
ungra norrænna einleikara og söngv-
ara í Stokkhólmi.
(Úr rréttatilkynningu.)
■ KYRRÐ-
ARSTUND
verður í Gler-
árkirkju í há-
deginu á morg-
un, miðviku-
daginn 9. mars
frá kl. 12 til 13.
Orgelleikur,
helgistund, alt-
arissakramenti,
fyrirbænir, léttur málsverður að
stundinni lokinni. Allir velkomnir.
Þátttakendum í bænastundum
kvenna er beint í föstumessur Ak-
ureyrarkirkju á föstunni.
Guðrún Friðriks-
dóttir - Minning
Sl. laugardag var gerð frá Greni-
víkurkirkju útför Guðrúnar Frið-
riksdóttur á Jarlsstöðum, sem and-
aðist 24. febrúar sl.
Guðrún Friðriksdóttir var fædd
í Hléskógum í Höfðahverfi 27. júlí
1916, og var næstelst fjögurra
dætra þeirra hjóna Önnu Margrétar
Vigfúsdóttur og Friðriks Kristins-
sonar er þar bjuggu þá, en áttu
síðar heimili í Vallholti á Grenivík.
Anna Margrét fékk berkla og and-
aðist meðan þær systur voru enn á
unga aldri.
Hinn 8. september 1939 giftist
Guðrún Bjama Benediktssyni á
Jarlsstöðum og eignuðust þau fjög-
ur börn sem öll komust upp og eiga
fjölskyldur.
Með þessum línum er ekki ætlun-
in að rekja frekar hin ytri æviat-
riði, heldur einungis að gjöra fátæk-
legan blómsveig af orðum í þakk-
látri minningu.
Bjami og Gunna á Jarlsstöðum
voru meðal hinna föstu og óbifan-
legu þátta sem mynda bemsku-
minningar mínar og okkar í Dal.
Þau voru nánast eins og hluti af
landslaginu. í minningunni er eins
og aldrei hafi liðið svo dagur að
ekki væri farið í Jarlsstaði, jafnvel
að frátöldum föstum mjólkurferð-
um. Oftast lá leiðin nokkuð beint í
eldhúsið til Gunnu. Þar var sælu-
reitur. Þar voru sætar kökur með
sunnudagsbragði, og þar lágu
dönsku blöðin á eldhúsbekknum og
þar vom Knold og Tot í heimili.
Að gera vel við hvern sem bar að
garði var ekki bara eðliseinkenni
heldur líf og yndi Gunnu á Jarls-
stöðum.
Allar eru minningamar um hana
umvafðar blómum, blómum úti og
inni, blómum í öllum gluggum, fræ
í pokum, plöntur í uppeldi, sjaldgæf-
ar tegundir og fáséðar, græðlingar
og afleggjarar. í varpanum höfðu
sóleyjarnar félagsskap af fíflum og
hundasúrum en gátu líka glatt sig
við að horfa á rósir halla sér að
húsveggnum. Og í brekku mót suðri
var garður sem yndi var að ganga
um. Sá hafði enn í sumar sem leið
vaxið og þroskast og lagt ævintýra-
blæju yfir rústir útihúsanna. Þau
voru samhent og sama sinnis um
það hjónin, að „maður á að rækta
garðinn sinn“. Fegurri minnisvarða
um líf og starf getur varla en reit-
inn þeirra Bjarna. Kannski kunnum
við söguna um tréð sem Bjarni
ætlaði að sitja undir þegar hann
yrði gamall. Hvort við trúðum því
er önnur saga. En það er þarna,
og hann líka.
Garðurinn á Jarlsstöðum er eng-
inn venjulegur minnisvarði. Hann
kunngjörir kærleika til alls sem
grær og lifír og minnir á, að „sú
tíð er sárin foldar gróa“ kemur
ekki nema mennirnir noti hendur
sínar fyrst og fremst til að hlúa að
og rækta.
„Öllu er afmörkuð stund og sér-
hver hlutur undir himninum hefur
sinn tíma,“ segir Prédikarinn.
(Pred. 3.1.) Auðvitað er einnig okk-
ur útmæld stund. Auðvitað er það
vegur okkar allra að kveðja. Samt
er sárt að þurfa að skilja, þótt að-
eins sé um sinn. í hlýindunum und-
anfarna daga hafa páskaliljurnar
hérna undir húsveggnum verið að
stinga upp grænum sprotum. Það
er frá náttúrunnar sjónarmiði auð-
vitað alltof snemmt. Sjálfsagt
kremur kuldinn þær næstu daga,
því enn er langt til páska náttúrunn-
ar. Páskar trúarinnar eru nær, líka
á miðri föstu. Orð engilsins við
konurnar kunngjöra boðskapinn:
„Hann er upp risinn frá dauðum
eins og hann sagði yður. Sjá, hann
fer á undan yður til Galileu. Þar
munuð þér sjá hann.“ (Matt. 28.7.)
Blessuð sé minning Guðrúnar
Friðriksdóttur. „Guð huggi þá sem
hryggðin slær, — hvort þeir eru fjær
eða nær.“
Kristján Valur Ingólfsson,
Skálholti.
Vegna mistaka við vinnslu birt-
ist þessi minningargrein um
Guðrúnu Friðriksdóttur fyrir-
sagnar- og myndarlaus á blaðs-
íðu 34 í Morgunblaðinu á laugar-
dag innan um greinar um nöfnu
hennar Sigurðardóttur. Eru
hlutaðeigendur innilega beðnir
afsökunar á þessum leiðu mis-
tökum.