Morgunblaðið - 08.03.1994, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. MARZ 1994
41
Mr. Empty/ Sigtryggur dyravörður
Kraftmiklar þreifingar
Hljómplötur
Sveinn Guðjónsson
Nýlega barst mér í hendur
geisladiskur, sem raunar kom
út fyrir síðustu jól, en fór ekki
hátt í þeim darraðardansi sem
þá var stiginn á hljómplötumark-
aðinum. Diskur þessi er þó allrar
athygli verður og hefði verið
full ástæða til að vekja athygli
á honum mun fyrr, - en betra
seint en aldrei.
Það er rokksveitin Sigtryggur
dyravörður sem stendur á bak
við þessa útgáfu og er þetta
frumraun sveitarinnar á hljóm-
plötusviðinu, en diskurinn ber
heitið „Mr. Empty“. Hér er á
ferðinni kröftug rokktónlist, sem
um sumt sver sig dálítið í ætt
við það sem verið var að gera á
sviði þungarokktónlistar fyrir
um það bil tuttugu árum, með
nettu Zeppelin-ívafi og áhrifa frá
ýmsum öðrum eðalsveitum á því
ágæta tímabili rokksögunnar.
Auk Zeppelin-áhrifanna fannst
mér ég m.a. greina áhrifa frá
Alvin Lee, úr Ten Years After,
í laginu It’s Alright og ekki er
laust við. að andi Doobie Brot-
hers svífi yfir vötnum í laginu
Rapers, svo eitthvað sé nefnt.
En Sigtryggur dyravörður þarf
ekkert að skammast sín fyrir að
sækja hugmyndir í þessa smiðju,
því þar er vissulega ekki leiðum
að líkjast, auk þess sem það
getur reynst býsna erfitt að vera
frumlegur í kraftrokk-tónsmíð-
um. Stakkurinn er þröngt snið-
inn og fyrir suma bragðast þetta
eins og sami grautur úr sömu
skál.
Annað efni á þessum diski ber
þess þó glögg merki að Sigtrygg-
ur dyravörður er að þreifa fyrir
sér víðar en í hefðbundnu kraft-
rokki. í Indian summer örlar til
dæmis á pælingum í anda
„Police" og Everything er
smekkleg ballaða ásamt Angry
Youth. Þessi þijú lög eru í hópi
hinna áhugaverðari á plötunni
að mínu mati og eins finnst mér
Queen of the Alley skemmtilega
grípandi, þótt erfitt sé að gera
upp á milli laganna með einhveij-
um faglegum rökum. Styrkur
plötunnar felst nefnilega fremur
í góðum söng og hljóðfæraleik
en tónsmíðunum sem slíkum, og
verður spennandi að fylgjast með
þróuninni hjá Sigtryggi dyra-
verði í framtíðinni.
Jóhannes Eiðsson söngvari
sýnir hér að hann er í fremstu
röð rokksöngvara á þessari línu,
ekki síður en Eiður bróðir hans
og jafnvel Robert Plant hefði
verið fullsæmdur af að skilja
eftir sig slíkan söng á hljóm-
plötu. Jón Elvar Hafsteinsson
gítarleikari kemur einnig sterkur
út á þessari plötu og virðist njóta
sín vel í þessari tegund tónlistar.
Bassaleikarinn Eiður Alfreðsson
og trommarinn Tómas H. Jó-
hannesson eru þéttir í grunnin-
um og binda tónlistina-vel sam-
an. Eins er vert að geta þess,
að hljómurinn á plötunni, eða
„sándið" eins og það er kallað á
fagmálinu, er furðugott ef tekið
er mið af því að platan .er tekin
upp á átta rása tæki og við frum-
legar aðstæður eftir því sem
gerist og gengur í fulkomnum
hljóðverum. Stjórn upptöku og
hljóðblöndun var í höndum Jóns
Elvars og útkoman er ánægjuleg
sönnun þess að yfirbyggingin
þarf ekki endilega að vera for-
senda þess að vel takist til.
Ágætt verk Sigtryggs dyravarð-
ar ætti því að verða öðrum rokk-
tónlistarmönnum hvatning til að
reyna meira upp á eigin spýtur
í útgáfustarfsemi.
ÁRIMAÐ HEILLA
Ljósm.st. Mynd
HJÓNABAND. Gefín voru saman
hinn 5. febrúar sl. hjá Hvítasunnu-
kirkjunni Fíladelfiu af Snorra Ósk-
arssyni, Hanna Hallgrímsdóttir og
Víðir Davíðsson. Heimili þeirra er
á Lónabraut 20, Vopnafirði.
Mau FESTINGAJÁRN
p ■ ■ OG KAMBSAUMUR
Þýsk gasöavara — traustari festing
HVERGI MEIRA URVAI,
Armúla 29 - 1OK Keykjuvík - simar 38640 »K 6H6KMI
Sjálfsrækt
Námskeið sem fjallar um bernskuna, kvíða,
sjálfsviröingu, ást og samskipti, líkamsrœkt, matarœði,
jákvceða hugsun, markmiðasetningu, öndunarœfingar,
slökun, hugleiðslu og lögmál velgengni. Kennslubók,
œfingar og einkatími. 14. mars til 11. apríl.
Leiðbeinandi er Gunnlaugur Guðmundsson.
Stjörnuspekistöðin, Laugavegi 59, sími 10377.
Ljósmyndastofan Svipmyndir
hjónaband. Gefin voru saman
hinn 6. febrúar sl. Ingibjörg Sveins-
dóttir og Ragnar Lárus Gunnars-
son. Heimili þeirra er á Þjórsárgötu
9A.
pú svalar lestrarþörf dagsins
SÍtium Moggans! /g
Námskeið
Sjálfsþekking - Sjálfsöryggi
Á námskeiðinu kynnast þátttakendur:
• Hvaða persónulegan stíl þeir hafa í samskiptum
• Hvernig má greina og skilja samskipti
• Hvernig ráða má við gagnrýni
• Hvernig finna má lausnir í árekstrum
• Hvernig læra má samskipti sem auka sjálfsöryggi
fljHÉL Leiðbeinendur
sálfræðingarnir
Álfheiður Steinþórsdóttir og Guðfinna
Innritun ng nanari upplýsingar
í símum Sállræðistöðvarinnar: EE
62 30 75 00 2 11 10 kl. 11-12. smnocAno
Macintosh námskeið
Mjög vandað og gott námskeið fyrir byrjendur.
Stýrikerfi tölvunnar, riwinnsla og kynning á helstu forritum.
Með fylgir disklingur með deiliforritum, dagbókarforriti, teikniforriti,
leikjum, veiruvamarforriti o. fl. • Hagstaett verð!
Tölvu- og verkfræbiþjónustan
Verkfræðístofa Halldórs Kristjánssonar
Grensásvegi 16 • sfmi 68 80 90
.S dýnan er jrrískipt. Bíst er lag af
tnjúþuin svampi, í miájunni
er latex, sem er unnið úr náttúru-
gúmmíi, og neðst er stífur svampur.
Stgr.verá [26.900 kr. (80x200sm)
er klædd eggja-
aoradyna þaLrkaskomum
mjúkum svampi efst og neðst og í
miðjunni er vandaður fjaðrakjami.
Stgr.verð
18.500 kr.
(80x200sm)
er klædd Lúxus
jaðradyna latexi efst og
neðst, á ntilli ent ntjúkar fjaðrir sem
steyptar em inní stuðpúða úr frauði.
Hver fjaðraeining er klædd í poka og
fjaðrar Jtví sjálfstætt.
Stgr.verð (32.800 kf. (80x200sm)
LYSTADÚ N -SNÆLAN D
Skútuvogi 11* Sími 68 55 88
Láttu ekki vanann verða jpér að keilsutjóni.
Hugleiddu kvort ekki er kominn tími til að endumýja
gömlu dýnuna jtína. Lystadún-Snæland framleiðir allt
frá einföldustu dýnum til úrvals rúmdýna sem fullnægja
ströngustu kröfum um útlit, gæði og jtægindi.