Morgunblaðið - 12.04.1994, Blaðsíða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. APRIL 1994
Eiginkona mín, t SIGURRÓS JÓNSDÓTTIR
frá Norðurfirði,
lést í Sjúkrahúsi Akraness föstudaginn 8. apríl.
Sveinbjörn Valgeirsson.
t
Faðir okkar og tengdafaðir,
EINAR JÓNSSON
fv. símaverkstjóri,
áður Laugavegi 145,
andaðist á Hrafnistu í Hafnarfirði 9. apríl.
Ingvar Einarsson, Anna Gissurardóttir,
Egill Einarsson, Hailfrfður Guðmundsdóttir,
Gunnar Einarsson, Ólöf H. Sigurðardóttir.
Móðir okkar, t HALLDÓRA SIGURJÓNSDÓTTIR
fyrrverandi skólastjóri Húsmæðraskólans, Laugum,
lést 10. apríl. Halldór Halldórsson, Svanhildur Halldórsdóttir, Kristín Halidórsdóttir.
t
Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma,
INGUNN JÓNSDÓTTIR,
Nýlendugötu 18,
lést í Borgarspítalanum 10. apríl.
Jarðarförin auglýst síðar.
Karl M. Einarsson,
Jón Ó. Karlsson,
Guðrún Dam,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar og bróðir,
INGVI HRAFN MAGNÚSSON,
andaðist á heimili sínu í Sydney, Ástralíu, 9. apríl.
Ester Magnúsdóttir,
Nanna Ingvadóttir, Sonja Ingvadóttir,
Aðalbjörg Ingvadóttir, Magnús Ingvason,
Birgir Magnússon, Freyr Magnússon,
Stefán Magnússon
og fjölskyldur.
t
Ástkær eiginkona mín, móðir og amma,
RAKEL J. SIGURÐARDÓTTIR
ROSENBLAD,
Melabraut 5,
Seltjarnarnesi,
er lést í Landspítalanum 4. apríl, verður
jarðsungin frá Kristskirkju í dag, þriðju-
daginn 12. apríl kl. 15.00.
Þeim, sem vildu minnast hennar, er
bent á Krabbameinsfélag íslands.
Esbjörn Rosenblad,
Þorgils Baldursson,
barnabörn og systkini.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengda-
faðir og afi,
GUNNAR E. MAGNÚSSON,
húsgagnasmiður,
Álfaskeiði 75,
Hafnarfirði,
verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðar-
kirkju í dag, þriðjudag, kl. 15.00.
Ásthildur Magnúsdóttir,
Ragnheiður Gunnarsdóttir, Ásgeir Bjarnason,
Magnús Gunnarsson, Elísabet Karlsdóttir,
Sigurður Gunnarsson
og barnabörn.
Gunnar E. Magnús
son — Minning
Fæddur 6. september 1921
Dáinn 1. apríl 1994
Elskulegur afi okkar Gunnar
Magnússon er látinn. Mig iangar
að minnast hans með örfáum orðum
fyrir hönd okkar systkinanna.
Afí var hæglátur og góður mað-
ur. Ekki lét hann fara mikið fyrir
sér og orð hans voru fá en áhrifa-
rík. Fyrir okkur krökkunum var
hann sá sem við vissum að við
gætum alltaf leitað til, hvort sem
vandamálin voru stór eða smá, allt-
af var hann til staðar. Fyrir okkur
var hann ekki aðeins afi, heldur
einnig góður vinur. Hann tók þátt
í leikjum okkar, kenndi okkur að
spila og hughreysti okkur í okkar
barnslegu sorgum. Það var einnig
afar vinsælt að fá að sitja í fanginu
á afa og þannig minnist ég hans
helst, sitjandi í húsbóndastólnum
með bros á vör og krakkaskarann
í fanginu.
Við, Ásta Lilja, Elín Marta og
Bjarni Gunnar þökkum þér, elsku
afi, fyrir allt og við þökkum guði
fyrir þær stundir, sem við fengum
að njóta með þér, og þó þær komi
aldrei aftur eru minningamar
geymdar á góðum stað í hjörtum
okkar.
Blessuð sé minning afa.
Ásta Lilja Ásgeirsdóttir.
Á föstudaginn langa, er fánar
blöktu í hálfa stöng, barst okkur
sú fregn að Gunnar Magnússon
væri látinn. Gunnar Magnússon, eða
Gunni hennar Ástu eins og við köll-
uðum hann gjaman, var búinn að
vera sjúklingur um alllangt skeið.
Smátt og smátt dró af honum og
var hann orðinn mikið veikur undir
það síðasta.
Gunnar var góður maður, hægur
og prúður, átti góða konu og fjöl-
skyldu, sem honum var annt um.
Margar ánægjustundir höfum við
átt á heimili Gunna og Ástu og þar
leið manni vel, alltaf svo notalegt
og heimilislegt. Þau vom samhent
í því að skapa fallegt heimili og
ekki má gleyma skrúðgarðinum í
kringum húsið sem hefur reyndar
fengið fyrstu verðlaun bæjarins fyr-
ir fegurð. Já, þau kunnu að rækta
garðinn sinn og frændgarðinn líka,
hún í fararbroddi, en studd af Gunna
sínum.
Ætíð hefur verið glatt á hjalla í
Álfaskeiðinu. Ásta á þönum í hús-
móðurstörfunum og Gunni, þessi
trausti maður, á sínum stað. En nú
hefur ský dregið fyrir sólu. Gunnar
er farinn og söknum við hans öll.
Um leið og við kveðjum hann, þökk-
um við honum samfylgdina og allt
það sem hann var okkur.
Kær kveðja,
Haukur, Rannveig og börnin.
Mig langar fyrir hönd okkar
systkinanna að minnast afa okkar
Gunnars Magnússonar sem lést 1.
apríl sl. á St. Jósefsspítala í Hafnar-
firði eftir erfið veikindi.
Afi Gunni var fæddur 6. septem-
ber 1921 í Hafnarfirði. Hann var
sonur hjónanna Sigríðar Eyjólfs-
dóttur og Magnúsar Böðvarssonar.
Hann ólst upp í Hafnarfirði ásamt
fjórum systkinum og eru þau öll á
lífí. Árið 1945 giftist hann Ásthildi
Magnúsdóttur frá Skuld og eignuð-
ust þau ijögur böm. Þau era: Ragn-
heiður, fædd 1945, gift Ásgeiri
Bjarnasyni og eiga þau þrjú böm,
Ástu Lilju, Elínu Mörtu og Bjarna
Gunnar; Magnús, fæddur 1950,
kvæntur Elísabetu Karlsdóttur og
eiga þau þrjú böm, undirritaða,
Gunnar og Þröst; Sigurður, fæddur
1953, ókvæntur; Elín María, fædd
1955, dáin sama ár.
Afi Gunni var húsgagnasmiður
og starfaði hjá Dverg hf. í Hafnar-
fírði í rúm 50 ár eða til ársins 1991
þegar hann varð að láta af störfum
vegna heilsuleysis. Við krakkamir,
jafnt sem aðrir, fengum að njóta
hversu góður smiður hann var. Man
ég þá sérstaklega eftir borði og stól-
um sem hann smíðaði handa mér
þegar ég var lítil og vöktu hjá mér
ómælda ánægju.
Afí Gunni var rólyndur, skapgóð-
ur og heimakær maður. Hann vildi
aldrei láta neitt fyrir sér hafa og
fannst það þá „tómt vesen“ ef það
var gert. Afí hafði alltaf gott skop-
skyn og þegar maður átti síst von
á kom eitthvert gullkorn frá honum.
Þegar við komum í heimsókn á Álfa-
skeiðið var það ósjaldan sem hann
sat fyrir framan sjónvarpið að fylgj-
ast með íþróttum. Áhugi hans á
íþróttum var mikill, ekki síst hand-
bolta og fótbolta, og hélt hann þá
ávallt með liðinu sínu, FH. Hann
hafði mikið dálæti á útivera og fór
oft á sumrin í útilegur og var þá
veiðistöngin gjarnan höfð með.
Við systkinin viljum þakka afa
allar góðu stundirnar sem við áttum
saman og biðjum góðan Guð að
styrkja þig, amma mín, á þessari
sorgarstundu.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljðta skalt.
(V. Briem.)
Hrund.
ÍslaiidsUoMur
I£rfic1rykkjur
Verð Irá 750 kr. á mami
614849
v
ERFIDRYKKJUR
perlan sími 620200
t
Elskulegur vinur okkar og frændi,
RAFN ÞORSTEINSSON
bóndi,
Hrafntóftum, Djúpárhreppi,
Rangárvallasýslu,
andaðist laugardaginn 9. apríl.
Pálína Jónsdóttir,
Björgúlfur Þorvarðsson,
Grétar Björnsson
og aðrir vandamenn.
t
Ástkær móðir okkar,
SOFFÍA SMITH,
lést á Grund laugardaginn 9. apríl.
Synir hinnar látnu.
t
Ástkær vinur okkar,
ANTON SALÓMONSSON,
Grenimel 20,
andaðist í Landakotsspítalanum sunnu-
daginn 10. apríl.
Jarðarförin verður tilkynnt síðar.
Fyrir hönd skyldmenna og vina.
Ásthildur Lúthersdóttir.
t
Útför
ALBERTS S. GUÐMUNDSSONAR
fyrrverandi ráðherra,
verður gerð frá Hallgrímskirkju fimmtudaginn 14. apríl kl. 13.30.
Aðstandendur.
LEGSTEINAR
- VETRARTILBOÐ -
SÍMI 91-652707