Morgunblaðið - 12.04.1994, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 12.04.1994, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. APRIL 1994 Stærsta tveggja hreyfla þota heims í Everett. Reuter. NÝ breiðþota af gerðinn Boeing-777 var sýnd í fyrsta sinn við hátíðlega athöfn í Boeing-verksmiðjunum í Everett í Washington- ríki á laugardag. Er um að ræða stærstu tveggja hreyfla þotu heims en flugvélin er lítið eitt minni en 747-breiðþotan sem er knúin fjórum hreyflum. Hún er sögð fyrsta farþegaþotan sem er að öllu leyti hönnuð í tölvum, ekki á teikniborði, og verður tölvu- tæknin notuð til hins ýtrasta í stjórnkerfum þotunnar. Viðstaddir athöfnina í Everett voru 100.000 boðsgestir. Með smíði þotunnar þykja Boeing-verk- smiðjurnar taka mestu áhættu sem þær hafa tekið frá því þær réðust ; í smíði 747-júmbóþotunnar á sjö- ! unda áratugnum. Lægð er nú í | flugvélasmíði vegna samdráttar í Fleiri falla í S-Afríku Jóhannesarborg. Reuter. AÐ MINNSTA kosti 552 Iétu lífið í öldu pólitíkskra ofbeldis- . verka í mars i Suður-Afríku en það eru rúmlega helmingi fleiri en fórnarlömbin í mánuðinum þar á undan. Flest dauðsföllin urðu í Kwa- Zulu og Natalhéraði, 361 og voru langflest af völdum stuðnings- manna Inkatha-hreyfingar Zúlú- j manna og stuðningsmanna Af- : ríska þjóðarráðsins (ANC). í þess- um mánuði hafa 147 manns látið lífið í Natal. Tala þeirra sem látist hafa í ofbeldisverkum í héraðinu frá því í júlí í fyrra er 4.139 manns en alls hafa um 15.000 manns látist í átökum fylkinganna á síð- ustu fjórum árum. flugi og varð fyrirtækið til að mynda að segja upp 17.000 starfs- mönnum í fyrra. Nýja þotan er tveggja hreyfla og getur borið á fimmta hundrað farþega. Verður hún knúin Pratt og Whitney hreyflum sem verða stærstu þotuhreyflar sem nokkru sinni hafa verið smíðaðir. Er um- máls hvors hreyfils meira en um- mál skrokks Boeing-757 þotunnar. Til þess að flugvélin geti athafnað sig auðveldlega á flugvöllum verð- ur hægt að lyfta vængendum henn- ar. Verða hjarir á vængjunum sjö metra frá enda. Þegar hafa verið pantaðar 147 flugvélar af þessari tegund en flug- vélin kostar milli 116 og 140 millj- ónir dollara. Ætlunin er að lang- drægara afbrigði verði fáanlegt 1996. Henni er ætlað að keppa við þotur af gerðunum Airbus A330 og A340 svo og McDonnell-Dougl- as MD-11. Gert er ráð fyrir að Boeing þurfi að selja 300 flugvélar til þess að fá fyrir þróunar- og íjárfestingar- kostnaði. Forráðamenn Boeing segja að hér sé um að ræða fyrstu þotuna í nýrri flugvélafjölskyldu sem ætlað er að viðhalda hlutdeild fyrirtækisins á markaði fyrir nýjar þotur næstu 30-50 árin. Boeing- þotur eru 65% þeirra flugvéla sem nú eru í notkun í farþegaflugi. Sætafjöldi: 305-328 á þremur farrýmum. 375-400 á tveimur farrýmum. Allt aö 440 á einu farrými. Hámarks Fyrstu vélar - 243 tonn flugtaks- Langdrægar - 268 tonn þungi: Mesti Fyrstu vélar - 56 tonn aðfarmur: Langdrægari afbrigöi - 55 tonn Farflugs- 990 km/klst. hraöi: Áætluö í fyrstu - 4.900 sjóm. drægni: Langdrægari af- brigöi - 6.600 sjóm. Hreyflar: Pratt & Whitney General Electric Ftolls Royce Drægni Boeing-flugvéla Möguleg sætaskipan 2.000 4.000 6.000 Drægni (sjómílum 8.000 m i i'nri. i j rri. Sagaklassi - 6 i röö Forstjórarými - 7 i röö Drægni Boeing 777-200 heimjlístæki nú á Islandi... Á alveg frábæru verði! Dæmi um verö: Vifta, grillofn með teini og helluborð m/4 hellum aðeins kr. 43.250 stgr. 4ra hellna keramik- helluborö - margar geröir. Verö frá kr. 29.900 stgr. Uppþvottavélar. Verö frá kr. 46.700 stgr. Þvottavélar. Verö frá kr. 43.700 stgr. Kæliskápar. Verö frá kr. I 25.800 ' • I stgr. .. j Tvöfaldar gashellur og tvöföld keramikhelluborð til afgreiðslu í lok maí. Faxafeni 9 sími 677332 Japan Sljórnin í hættu vegria klofnings Tókýó. Reutcr. ALVARLEGUR klofningur er kominn upp á meðal stjórnar- flokkanna í Japan og þeir skipt- ast nú í tvær fylkingar, sem deila hart um hver eigi að taka við embætti forsætisráðhcrra af Morihiro Hosokawa er sagði af sér vegna hneykslismáls í vikunni sem leið. Eftir þijá samningafundi stjórn- arflokkanna í gær virtist ágrein- ingurinn hafa aukist enn frekar. Sjö flokkar og ein verkalýðssamtök eiga aðild að stjórninni og hún skiptist í tvær fylkingar, annars vegar hægri- og miðflokka og hins vegar flokka undir forystu Sósíal- istaflokksins. Fylkingarnar deila um hvernig standa beri að valinu á nýjum forsætisráðherra og settu hvorri annarri úrslitakosti í gær. Sósíalistar sögðu að samsteypu- stjórnin myndi falla ef hægriflokk- arnir samþykktu ekki leiðtogafund um málið í dag. Hvorugar fylkingarnar eru nógu sterkar til að geta myndað nýja stjórn. Hægriflokkamir eru með 157 þingmenn af 511 í neðri deild- inni og sósíalistar og bandamenn þeirra 108. Frjálslyndi lýðræðis- flokkurinn er stærsti flokkurinn, með 219 þingmenn. Hosokawa skipaði í gær nefnd til að endurskoða kosningalöggjöf- ina og formaður hennar sagði að hún myndi ljúka starfi sínu í októ- ber. Stjórnmálaskýrendur í Japan sögðu þetta þýða að næsti for- sætisráðherra myndi ekki geta boðað til þingkosninga næstu sex mánuðina að minnsta kosti. Á meðan þyrftu Japanir að búa við veika ríkisstjórn sem gæti að öllum líkindumiekki komið nokkru í verk. Réðust inn í rússneska herstöð ÚKRAÍNSK sérsveit réðst í ■ gær inn í herstöð rússneska flotans í Odessu og særði nokkra hermenn. Rússneskir hermenn veittu mótspyrnu en urðu að gefast upp. Áð sögn lögreglunnar í Odessu var árás- - in gerð til að handsama þtjá rússneska herforingja. Talið er að handtakan tengist því að rússneskir hermenn hunsuðu fyrirmæli yfirvalda í Úkraínu og sigldu úr höfn á herskipi með dýran tækjabúnað á laug- ardag. /níer/ax-fréttastofan hafði eftir háttsettum rúss- neskum stjórnarerindreka að Úkraínumenn mættu búast við hörðum viðbrögðum Rússa vegna árásarinnar. Finnar fyrstir með þjóðarat- kvæði? MARTTI Ahtisaari, forseti Finnlands, kvaðst á sunnudag vonast til þess að Finnar yrðu fyrst Norðurlandanna þriggja, sem hafa samið um aðild að Evrópusambandinu, til að efna til þjóðaratkvæðis um aðildina. Hann kvaðst vona að þjóðarat- kvæðið yrði ekki síðar en í byij- un október. Forsætisráð- herraskipti í Alsír REDHA Malek sagði af sér sem forsætisráðherra Alsírs í gær og Mokdad Sifi tæknimálaráð- herra var skipaður í embættið. Daginn áður hafði stjórnin, sem var mynduð fyrir tilstilli hers- ins, fellt gengi dínarsins um 28,6% samkvæmt samkomu- lagi við Alþjóðagjaldeyrissjóð- inn. Fréttaskýrendur sögðu af- sögnina ekki koma á óvart þar sem hún auðveldaði forsetan- um, Liamine Zeroual, að ná sáttum við heittrúaða múslima í stjórnarandstöðunni. Astarbréf frá prinsessu? BRESKA dagblaðið The News of the World birti í gær ástar- bréf sem sögð voru frá Mar- gréti prinsessu, systur Elísabet- ar Bretadrottningar, til elsk- huga hennar þegar hún var enn gift Snowdon lávarði. Blaðið heldur því fram að prinsessan hafi hafið ástarsamband við Robin Douglas-Home, frænda Sir Alec Douglas-Home, fyrr- verandi forsætisráðherra, ári.ð 1966. Margrét var þá 37 ára og sjö ára hjónaband hennar var að fara út um þúfur. 10. líkið finnst í Gloucester LÖGREGLAN í Gloucester í Bretlandi hefur fundið bein sem talin eru af tíunda fórnarlambi meints fjöldamorðingja, Fred- ericks Wests. Beinin fundust í akri nálægt húsi Wests og að- eins er vitað að þetta eru konu- bein. West hafði verið ákærður fyrir morð á níu konum. Líbanonsferð páfa frestað JÓHANNES Páll páfi hefur frestað ferð sinni til Líbanons, sem ráðgerð var í maí, um óákveðinn tíma vegna vaxandi spennu í landinu. Þetta er fyrsta ferð páfa til Miðaustur- landa.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.