Morgunblaðið - 12.04.1994, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 12.04.1994, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. APRIL 1994 Danskeppni Islenskt par vann grill- verðlaun ELÍSABET Sif Haraldsdóttir og Sigursteinn Stefánsson unnu til gullverðlauna fyrir cha cha cha og rúmbu í flokki 12 til 13 ára dansara í stórri danskeppni i Blackpool á Englandi síðast- liðinn laugardag. Danskeppni þessi þykir mjög erfið og hefur hún verið kölluð óopinber heimsmeistarakeppni í dansi barna og unglinga. Fleiri íslensk pör náðu einnig góðum árangri, meðal annars komst annað íslenskt par í undan- úrslit ásamt Elísabetu og Sigur- steini. Dansararnir komu til lands- ins í gær þreyttir en engu að síð- ur ánægðir og hressir eftir skemmtilega og árangursríka ferð, þar sem gull var sótt í greip- ar Engilsaxa líkt og forfeður okk- ar gerðu forðum. Morgunblaðið/Kara Arngrímsdóttir Gullvæg spor ELÍSABET Sif Haraldsdóttir og Sigursteinn Stefánsson voru sig- ursæl í Blackpool og hlutu gull í cha cha cha og rúmbu. VEÐUR I DAGkl. 12.00 Heimild: Veðurstofa íslands (Byggt á veöurspá kl. 16.15 í gœr) VEÐURHORFUR í DAG, 12. APRÍL YFIRLIT: Skammt vestur af Snaafellsnesi er 984 mb lægð, sem hreyfist norðaust- ur. Önnur lægð, álfka djúp, skammt noröur af Vestfjörðum er einnig á norðaustur- leið. Við Nýfundnaland er heldur vaxandi 995 mb lægð, sem hreyfist norðnorðaustur. SPÁ: Suðvestantil á landinu verður norðvestanstinningskaldi fram eftir morgni en hæg breytileg átt síödegis og léttskýjað. Norðantil á landinu verður norðvestan- stinnlngskaldi eða allhvasst og él. Suðaustanlands verður vestanstlnningskaldi og léttskýjað. Hiti verður á bilinu 1 til 5 stig. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á MIÐVIKUDAG: Vaxandi sunnan- og suðaustanátt með slyddu en síðar- rigningu um vestanvert iandið en í fyrstu haeg suövestlaeg átt og léttskýjað um austanvert landiö en þykknar upp síðdegis með vaxandi suöaustanátt. Hlýnandi veður. « HORFUR Á FIMMTUDAG: Suðvestan- og vestanstrekkíngur og slydduél um vestan- vert landið en þurrt og víða lóttskýjað austanlands. Kólnandi veður. HORFUR Á FÖSTUDAG: Vestan- og suðvestanstinningskaldi með allhvössum óljurrv um vestanvert iandið, en þurrt og víoast léttskýjað austaniands. Fremur svalt íveðri. Heiðskírt r r r f f r f f Rigning A £> » Léttskýjað Hálfskýjaö Skýjað Alskýjað * / * * * * * f * * r * r * * * Slydda Snjókoma V $ V Skúrir Slydduél Él Sunnan, 4 vindstig. Vindörín sýnir vindsfefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. 10° Hitastig V Súld = Þoka 7 FÆRÐA VEGUM: <ki 17 30,9*0 Á Vestfjöröum er Breiðadalsheiði orðin fær en Botnsheiði er ófær. Annars er færð yfirleitt góð á landinu. Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í síma 91-631500 og á grænni Ifnu, 99-6315. Vegagerðin. VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma hiti veður Akureyri 4 skýjað Reykjavík 2 slydduél Bergen 10 hálfskýjaö Helsinkl 12 léttskýjað Kaupmannahöfn 12 léttskýjað Narssarssuaq 0 8kýjað Nuuk +S snjókoma Ósló 10 léttakýjað Stokkhólmur 12 léttskýjað Þórshöfn 7 skýjað Algarve 20 léttskýjað Amsterdam 12 heiðskírt Bsrcelona vantar Berlín 10 alskýjað Chlcago 6 alskýjað Feneyjar 9 skýjað Frankfurt 7 skýjað Glasgow 9 skýjað Hamborg 8 skýjað London 11 téttskýjað Los Angeles 13 heiðskirt Lúxemborg 7 skýjað Madrid vantar Malaga vantar Mallorca vantar Montreal vantar New York 8 léttskýjað Orlando 19 þokumóða Parls 12 skýjað Madeira 16 aúld Róm 14 alskýjað Vín 6 alskýjaö Washington 10 alskýjað Winnipeg vantar Slasaðist á fæti í dans- keppniimi í Blackpool SESSELJU Sigurðardóttur, dömu Brynjars Arnar Þorleifssonar, var hrint í 1. umferð danskeppni barna og unglinga í Blackpool með þeim afleiðingum liðbönd slitnuðu á ökkla. Þau Sesselja og Brynjar Órn féllu þar með úr keppni en þau voru komin í undanúrslit í tangó og quickstep í 12-13 ára flokki. Sesselja og Brynjar Örn hafa undan- farin ár verið sigursæl í Blaekpool, unnu meðal annars gullverðlaun fyrir jive-dans þegar þau kepptu í 11 ára flokki og fengu silfurverð- laun í latin-dönsum. Sesselja kom til landsins í gær ásamt félögum sínum. Hún var að vonum leið yfir þessu óhappi. „Okkur hafði gengið mjög vel fram að þessu,“ sagði Sesselja. „Við vorum að keppa í ballroom dönsum þegar kom par á fleygiferð og klessti á okkur. Ég lenti mjög illa á fætinum og hélt að ég hefði bara misstigið mig. Ökklinn var kældur niður og ég hélt áfram keppni. Um kvöldið fór ég á sjúkrahús og þá kom í ljós að liðbönd voru slitin. Ég verð að fara mér hægt næstu vikurnar og get ekki aftur byrjað að æfa dans fyrr en eftir mánuð.“ Dómsmál vegna sölunnar á SR-mjöli hf. Héraðsdómur hafnar frávísun HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hafnaði í gær frávísunarkröfu sem ríkis- lögmaður og lögmenn þeirra 178 aðila sem keyptu SR-mjöl af ríkinu um áramótin gerðu í máli því sem Haraldur Haraldsson höfðaði gegn þeim og ríkinu til að fá ógiltan samning þann sem gerður var um sölu fyrirtækisins 29. desember sl. Haraldur gerði staðgreiðslutilboð í hlutabréf SR-mjöls og heldur því fram í málinu að við meðferð tilboðs- ins og framkvæmd sölunnar hafi af hálfu ríkisvaldsins ekki verið gætt réttra og lögmætra aðferða sem leiði til þess að samningurinn sé ógildan- legur. í úrskurði Héraðsdóms um frávís- unarkröfuna segir m.a. að Haraldur hafi verið tilboðsgjafi við söluna og þyki hann því eiga lögvarða hags- muni af að fá úr því skorið fyrir dómstólum hvort ríkisvaldið hafi við söluna gætt lögmætra aðferða og hvort honum sjálfum hafí verið mis- munað. Eftir uppkvaðningu úrskurðarins var ákveðið að aðalmeðferð málsins heíjist 25. apríl næstkomandi. íslendingum boðin atvinna í útlöndum Vinnumiðlunin er óskráð í Englandi SAMKVÆMT upplýsingum breska sendiráðsins er vinnumiðlunar- skrifstofan Global Employment Agency ekki skráð í Englandi og því ekki lögleg samkvæmt þarlendum lögum. Ekki hefur tekist að hafa uppi á símanúmeri skrifstofunnar, en talið er að eigendur henn- ar séu tveir Danir og hefur ekki heldur tekist að finna heimilisfang þeirra né símanúmer. Athugasemd frá Viimumála- skrifstofu MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi athugasemd: „Að gefnu tilefni vill Vinnumála- skrifstofa félagsmálaráðuneytisins benda á að öU milliganga um ráðn- ingar eða upplýsingar um atvinnu- tækifæri sem fela í sér að vinnuveit- andi skuli inna af hendi greiðslur af einu eða öðru tagi eru óheimilar sbr. 1. gr., 10. gr. og 17. gr. laga um vinnumiðlun nr. 18/1985. Síðastliðinn sunnudag birtist á atvinnusíðum Morgunblaðsins aug- lýsing frá ofangreindu fyrirtæki þar sem boðin voru vellaunuð störf á Spáni og í Mexíkó. Áhugasamir umsækjendur skyldu senda nöfn sín og heimilisföng ásamt 25 punda greiðslu til að fá umsóknareyðublöð. Vinnumálaskrifstofa félagsmála- ráðuneytisins hefur bent á að hér á landi sé óheimilt að krefja atvinnu- leitendur um greiðslur af einu eða öðru tagi. Að sögn Gests Einarssonar aug- lýsingastjóra Morgunblaðsins var komið með auglýsinguna í afgreiðslu blaðsins og birtingin staðgreidd. Ekki þótti frekar ástæða til að ve- fengja efni þessarar auglýsingar en annarra sem teknar eru til birtingar. Hámarkslengd á aðsendum greinum Ræður og erindi ekki birt Morgunblaðið tekur ekki til birting- ar í þeim dálkum aðalblaðs, sem ætlaðir eru undir aðsendar greinar, lengri greinar en nemur 8.000 slög- um á tölvu eða um hálfri síðu í Morgunblaðinu. Æskilegt er, að aðsendar greinar séu styttri og að þeim sé skilað á disklingi. Há- markslengd á Bréfum til blaðsins er 2.500-3.000 slög. Rétt er að taka fram, að Morg- unblaðið birtir ekki ræður eða er- indi, sem haldin hafa verið í út- varpi eða á fundum, ráðstefnum eða öðrum slíkum samkomum. Ástæðan er einfaldlega sú, að þá mundi ekkert annað efni birtast í blaðinu vegria mikillar ásóknar í birtingu á ræðum og erindum. Greinar, sem byggðar eru á slík- um erindum eða ræðum og eru í raun sami texti með smávægileg- um breytingum, eru heldur ekki teknar til birtingar. Hins vegar er höfundum auðvitað heirnilt að skrifa greinar um sama efni en þá verður þar ótvírætt að vera um nýjan texta að ræða.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.