Morgunblaðið - 12.04.1994, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 12.04.1994, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. APRÍL 1994 23 Auðjöfrar Drottningin ekki lengur auðugasti íbúi Bretlands Sænskir bræður sem græddu á fernum leysa hana af hólmi London. Reuter. ELIZABET drottning er ekki lengur auðugasti íbúi Bretlands og hefur orðið að víkja úr því sæti fyrir tveimur Svíum, sem hafa flutzt til landsins og grætt offjár á mjólkurfernum, samkvæmt könnun blaðsins Sunday Times. Gad Rausing, 71 árs Svíi, og bróðir hans, Hans, 68 ára, eru efstir á lista Sunday Times yfir auðugasta fólk Bretlands og eru taldir eiga 5,2 milljarða punda. Drottninguna skortir 200 milljónir punda til þess að teljast eins auðug og Svíarnir, en hún er enn sem fyrr auðugasta kona heims. Rausing-bræður skipa áttunda sæta á lista yfir 10 auðugustu menn heims, en soldáninn í Bru- nei er í efsta sæti. Bræðurnir iiafa auðgazt á einni vörutegund - TetraPak-fernum, sem eru notað- ar undir mjólk og ávaxtasafa. Faðir þeirra, Ruben, fann upp fernurnar, sem eru hornsteinn við- skiptaveldis þeirra. Rausing-bræður komu til Bret- lands til þess að flýja skattpíningu í Svíþjóð og nutu sín strax vel í andrúmslofti því sem ríkti í Bret- landi á valdaárum Margrétar Thatchers. Bræðurnar hættu ný- lega virkum afskiptum af kaup- sýslu. Yngri bróðirinn, Hans, sem er talinn hafa meira viðskiptavit en bróðir hans, býr í Sussex á Suður-Englandi, þar sem hann hefur komið sér upp safni gamalla bifreiða og dádýrahjörð, en Gad er fræðilega sinnaðri. I þriðja sæti á listanum er mat- vörukaupmaðurinn David Sains- bury og fjölskylda, sem talið er að eigi 2,7 milljarða punda, og síðan koma John og Peter Moores, synir stofnanda verzlanasam- steypu, með 1,7 milljarða punda. Fjórði er John Paul Getty II, elzti sonur olíujöfursins fræga í Banda- ríkjunum, með 1,5 milljarða punda. Blaðið segir, að auðmenn Bret- lands verði stöðugt auðugri og þeim fari fjölgandi, þótt einnig séu dæmi um, að sumir hafi misst aleiguna á síðari árum, þeirra á meðal útgefandinn Robert heitinn Maxwell. Þegar fyrsti listinn var birtur 1989 þurftu menn að eig'a 20 millj- ónir punda til þess að komast á blað og Sunday Times segir að tekizt hafi ineð herkjum að finna 200 nöfn. Á síðasta lista blaðsins eru 500 manns, sem eiga 20 millj- ónir punda eða meira, og mörg hundruð eiga lítið eitt lægri upp- hæð og geta hæglega komizt á blað á næstu árum. Margir tónlistarmenn eru á list- anum. Blaðið segir að ef tónskáld- ið Sir Andrew Lloyd Webber haldi áfram að starfa af eins miklum krafti og hann hafi gert á undan- förnum fimm árum verði þess ekki langt að bíða að hann verði fyrsti milljarðamæringur tóniistarheims- ins. Eric Clapton, Paul McCartney, Elton John og Mick Jagger eru allir ofarlega á blaði. Nöfn kapp- akstursmannsins Nigel Mansell og kylfingsins Nick Faldo er einnig að finna á listanum, þótt mest beri á auðjöfrum, kaupsýslumönn- um og landeigendum. Suðurh I fðarskó I i GÆÐASTJÓRNUN OGISO 9000 í MINNI FYRIRTÆKJUM NÁMSKEIÐ: Uppbygging ISO 9000 gæðakerfa,vottun þeirra og ávinningur af þeim. Frá orðum til athafna: Kynning á vinnuhóparáðgjöf í uppbygg- ingu gæðakerfa til samræmis við ISO 9000. Námskeiðið haldið á Hótel Sögu, fimmtudaginn 14. aprfl, kl. 13.00-17.20. 12.30 Innritun þátttakenda, greiðsla námskciðsgjalds og af- hending námskeiðsgagna. 13.00 Uppbygging gæðakerfa til samræmis við ISO 9000 staðl- ana. (Eiður Guðmundsson, Matvælatækni). Fyrirspumir. 14.00 Vottun gæðakerfa. (Kjartan Kárason, Vottun hf.). Fyrirspumir. 14.40 KafFi og kökur. 15.00 Gerð og framkvæmd vinnuhóparáðgjafarinnar (Work-groups) sem MATVÆLATÆKNI veitir. (Eiður Guðmundsson, Matvælatækni). Fyrirspumir. 15.50 Reynsla af uppbyggingu gæðakerfis og undirbúningi fyrir vottun. (Agúst Guðmundsson, Bakkavör hf.). Fyrirspumir. 16.20 Kaffi. 16.30 Gildi ISO 9000 vottunar fyrir íslenskan útflutningsiðn- að. (María Ingvadóttir, Útflutningsráð íslands). Fyrirspumir. 16.50 Fyrirspurnir til leiðbeinenda og gestafyrirlesara. Þátttökugjald er kr. 6.750 kr. (m. VSK), veitingar innifaldar. Vinsamlega tilkynnið þátttöku til Matrælatækni í síma 91 - 68 07 20. ö MATVÆLATÆKNI Lágmúla 5,108 Reykjavík. Suðurhlíð 36, 105 Reykjavík. :mvT‘ “TT ■ —BElDHZHlEiriB BDINH H yj^pnnn □□□□ wft .<—?—-- ER: Almennur grunnskóli, þar sem kennt er sam- kvæmt námskrá og kröfum menntamálaráðuneytis. Fámennur skóli, þar sem gott samband myndast milli nemenda og kennara. Staðsettur á friðsælum og fallegum stað við Fossvoginn neðst i Öskjuhiíðinni. Kristilegur skóli, það sem nemendum er kennt að bera virðingu fyrir því sem heilagt er. Einkaskóli, starfræktur af Sjöunda dags aðventistum. Þeir foreldrar, sem hafa hugsað sér að koma börnum sínum í Suðurhlíðarskóla næsta skólaár, eru vinsamlega beðnir um að senda inn umsóknir sem allra fyrst. Hringið og fáið nánari upplýsingar í síma 91-679260. L0GÐ ER AHERSLA A: Aðstoð við heimanám. Sérstakur lestími undir umsjá kennara eftir að kennslu lýkur. Persónulega leiðsögn. Samfelldan skóladag. Nemendur hafa með sér nesti eða geta keypt léttan hádegisverð á vægu verði. Að skóiinn sé einsetinn. Boðið er upp á gæslu yngri barna eftir að kennslu lýkur. HOTEL KEFLAVÍK NETAGERÐ JÓNS HOLBERGSSONAR Hjallahrauni 11, Halnarliröi, siml 54949 Metsölublað á hveijum degi! .noHnnól hjiviiirL''- yi .-nVi.if:fihni‘wl)l U0NSKARPAR Kostir: Stækkanleg í: 33MHz, 66MHz, Pentium (P24T) 4MB vinnsiuminni (mest 96MB) 130 MB diskur (fleiri stærSir fáanlegar) Turntölva-pláss fyrir fimm tæki 14" Super-VGA lággeisla litaskjár, 0.28 dp 32 bita Local Bus skjástýring m/lMB 256 KB í flýtiminni (cache) 32 bita Local Bus diskstýring ZIF sökkull sem auðveldar uppskipti Staðgreiðsluverð: LEO 486SX-25 LEO 486DX-33 LEO 486DX2-66 123.900 kr. 153.900 kr. 183.900 kr. Greiðsluskilmálar: Glitnir, VISA- og Euro raSgreiSslur. á lágu veröi LEO tölvur eru tæknilega viSurkenndar sem leiSandi á heimsmarkaSi einmenningstölva. Þær hafa áralanga reynslu aS baki á íslenskum tölvumarkaSi og eru þekktar fyrir framúrskarandi gæði og sanngjarnt verS. FramleiSandi LEO tölva, First International Computer er aS auki stærsti framleiSandi tölvumóSurborSa í heiminum (yfir 3 milljónir á ári). Kynntu þér yfirburSi Leo tölvanna. aco SKIPHOLT117 105 REYKJAVÍK • SÍMI: 91-€27333 • FAX: 91-628622 Elsta tölvufypíntæki á Islandi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.