Morgunblaðið - 12.04.1994, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 12.04.1994, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. APRÍL 1994 55 Snjóflóð við austanverðan Skutulsfjörð hreif með sér lögreglubíl Morgunblaðið/Gísli Úlfarsson Sluppu ómeiddir úr snjóflóði BIRGIR Hilmarsson (t.v.) og Rögnvaldur Ólafsson lögreglumenn við bílinn sem þeir voru í þegar flóðið hreif þá með sér. Feijað á milli ÓSHLÍÐINNI var lokað á sunnudagskvöld. Þeir sem urðu innlyksa á ísafirði og Bolungarvík voru ferjaðir á milli með björgunarbátnum Daníel Sigmundssyni sem fór eina ferð á milli með fólk. Auk þess fór báturinn eina ferð til Súðavíkur með fólk báðar leiðir. Tveir lögreglumenn sluppu óskaddaðir TVÖ snjóflóð féllu utan við bæinn Kirkjubæ við Skutulsfjörð á sunnu- dag. Tveir lögreglumenn voru að kanna verksummerki eftir fyrra flóðið ásamt snjóathugunarmanni þegar síðara flóðið féll. Það hreif með sér lögreglubílinn sem fór út af veginum og langleiðina niður • fjöru og má þakka snarræði lögreglumannsins sem sat undir stýri og samvinnu þeirra beggja að þeir sluppu ómeiddir. Flóðið tók í sundur tvo rafmagnsstaura og fór rafmagn af Kirkjubæ, flugvellin- um og tveimur bæjum í Arnardal. Almannavarnanefndir á Vestfjörð- um höfðu í gær alls staðar aflýst hættuástandi og heimilað fólki að snúa aftur til húsa sinna, þar sem þau höfðu verið rýmd, og leyft umferð um þá vegi sem hafði verið lokað. Fimm snjóflóð féllu á Ingjaldssandi á sunnudag en þau ollu óverulegu tjóni. Jens Guðmundsson, kenndur við Kaldalón, er ábúandi á Kirkjubæ. Hann segir að svolítil gusa hafi fall- ið rétt fyrir kl. 4. Um 15 mínútum síðar var heimilisfólkið að drekka kaffi þegar drengur, sem staddur var í forstofunni, veinaði upp yfir sig og kallaði að annað flóð væri að koma niður. Jens segir að það hafi fallið um 30 metra utan við fjós- ið við bæinn, verið um 300 metrar á breidd og hafi náð langt fram í sjó. Hann segir að pallur sem var í l,5-2ja metra hæð við tvo staura hafi brotnað eins og eldspýtnastokk- ur. Á pallinum var spennir sem datt niður og skemmdist. Þá segir hann að flóðið hafi verið mjög þykkt, það hafi náð miðja vegu upp á rafmagns- staurana sem séu um 11 metra háir og hafi byrgt útsýni frá bænum. Voru að kanna verksummerki Lögreglumennirnir tveir; Birgir Hilmarsson og Rögnvaldur Olafsson, voru á veginum að kanna verksum- merki eftir fyrra flóðið ásamt snjóat- Samtökin voru stofnuð síðastliðið vor eftir að könnun sem gerð var leiddi í ljós að fátækt og þröngur fiárhagur væri greinlegur og kæmi fram í ýmsum myndum, m.a. af- skiptaleysi foreldra og jafnvel van- rækslu og í skólanum varð vart við spennu, lítið úthald, einbeitingar- leysi, námsörðugleika og óöryggi. Fjöldi fyrirlesara munu fjalla um margvísleg mál er efninu tengjast á ráðstefnunni en þeir eru Karolína Stefánsdóttir, félagsráðgjafi, Helga Magnúsdótir, hverfisfóstra, Svan- hildur Hermannsdóttir, skólastjóri, Sigríður Traustadóttir sérkennari, Páll Tryggvason barnageðlæknir, hugunarmanni þegar seinna flóðið féll. „Við vorum að íjarlægja gaddavír úr girðingu sem fyrra flóð- ið hafði tekið með sér. Oddur Péturs- son snjóeftirlitsmaður kom þarna að og við vorum að spjalla við hann þegar hann sá flóðið koma niður. Hann náði að vara okkur við og keyra út úr flóðinu. Fyrstu viðbrögð hjá mér voru að keyra af stað. Við snerum út fjörðinn og vorum því í raun að keyra inn í flóðið. Birgir sá þetta miklu betur en ég og sagði mér að reyna frekar að bakka. Þeg- ar við sáum að það var orðið of seint að gera nokkuð sneri ég bílnum til að reyna að forða því að hann myndi velta. Ég var ennþá að snúa honum þegar flóðið skall á bílnum og var með olíugjöfina í botni þannig að bíllinn fór aðeins upp á flóðið áður en hann fór með því niður í fjöruna með framendann á undan. Birgir hafði náð að grípa í talstöðina og kalla að við værum að lenda í flóði áður en það skall á okkur og þegar við vorum stopp létum við vita að Guðný Bergvinsdóttir skólahjúkr- unarfræðingur, Geir Friðgeirsson barnalæknir, Þórhallur Höskuldsson sóknarprestur, Guðmundur Sig- valdason forstöðumaður og nemarnir Hörður Flóki Ólafsson, Vilhelm Jóns- son og Diljá Óladóttir. Gestafyrirlesarar eru Margrét Pála Ólafsdóttir leikskólastjóri og Einar Gylfi Jónsson sálfræðingur. Þátttakendur geta skráð sig hjá Fræðsluskrifstofu Norðurlands eystra fyrir 14. apríl næstkomandi. Innifalið í 1.500 króna þátttökugjaldi er hádegisverður, kaffi og meðlæti. (Fréttatilkynning.) það væri allt í lagi með okkur. Fyrsta hugsun hjá okkur var að athuga hvort Oddur hefði líka farið niður með flóðinu því við bjuggumst alveg eins við því. Við komumst út úr bíln- um farþegamegin og sáum Odd uppi á veginum heilan á húfi.“ Snjóflóðasendar og öryggisbelti Rögnvaldur segir að nokkurt högg hafi komið á bílinn þegar flóðið skall á honum og að þeir Birgir hafi ótt- ast að rúðurnar myndu gefa sig og bíllinn fyllast af snjó. Til þess kom þó sem betur fer ekki og einu skemmdirnar á bílnum eru brotið afturljós og skakkt útvarpsloftnet. Bíllinn náðist upp úr fjörunni með því að handmoka frá honum að fram- an, keyra hann út í sjó og snúa honum við þar. Hann var síðan dreg- inn upp með aðstoð bæjarbíls og bíls frá skátunum á ísafirði en bæði skátabíllinn og lögreglubíllin eru með spil. Rögnvaldur kann bæjar- starfsmönnum og skátum bestu þakkir fyrir dyggilega aðstoð. Rögnvaldur og Birgir voru báðir í öryggisbeltum auk þess sem þeir voru með snjóflóðasenda á sér. Rögnvaldur segist telja að lögreglan á Isafirði sé eina lögregluembætti landsins sem eigi slík tæki fyrir lög- reglumenn sína en hann segir að það sé mikið öryggisatriði fyrir lögreglu- menn sem starfí á snjóflóðasvæðum og ættu öll lögregluembætti þar sem snjóflóðahætta er að vera búin slík- um tækjum. Rafmagnslaust á flugvellinum Rafmagn komst fljótlega á í Kirkjubæ en ekki fyrr en í gær- kvöldi á flugvellinum og í Arnardal. Gert var við brotna rafmagnsstaura til bráðabirgða í gær. Einangrari á sþenninum brotnaði auk þess sem öll olía fór af honum þegar pallurinn datt undan honum í flóðinu. Gert var við spenninn á verkstæði Orku- bús Vestfjarða og honum komið fyr- ir þegar viðgerð lauk. Jakob Ólafs- son, rekstrarstjóri hjá Orkubúinu, sagði að rafmagnsleysið hefði ekki komið mikið að sök á flugvellinum, öll tæki sem þar þyrfti að nota hefðu verið starfhæf meðan rafmagnsleys- ið stóð. Helst hefði verið kvartað undan kulda í flugturninum. Hús rýmd enn á ný Eftir að flóðin féllu á sunnudag kom almannavarnanefnd ísafjarðar saman og ákvað að hús á hættu- svæðum í Skutulsfírði og við tvær götur í Hnífsdal skyldu rýmd. Hættuástandi var lýst yfir í hest- húsahverfi á Búðatúni, umferð bönn- uð á Kirkjubólshlíð frá Langá í Barnaheill á Norðurlandi eystra Ráðstefna um viðhorf gagnvart börnum SAMTÖKIN Barnaheill á Norðurlandi eystra efna til ráðstefnu í Safnað- arheimili Akureyrarkirkju næstkomandi laugardag, 16. apríl, um við- mót og viðhorf gagnvart börnum og unglingum. Engidal og fólk varað við að vera á ferli á Eyrarhlíð og á Skutulsfjarðar- braut frá áhaldahúsi og inn að Selja- landi. Þá var Óshlíðarvegi lokað undir kvöld á sunnudag. Þessu hættuástandi var aflýst á fundi al- mannavarnanefndar kl. 8 í gær- morgun, umferð hleypt á götur og fólki leyft að snúa heim. Fimm flóð á Ingjaldssandi Almannavarnanefnd á Bolungar- vík hittist síðdegis á laugardag og ákvað að leyfa fólki að snúa til húsa sinna sem höfðu verið rýmd. Nefnd- in kom aftur saman á sunnudag en að sögn Jónasar Guðmundssonar, formanns nefndarinnar, sáu nefnd- armenn ekki ástæðu til að aðhafast frekar. Á Flateyri var fólki leyft að fara inn í hús sín síðdegis á laugar- dag eftir að almannavarnanefnd hafði komið saman. Á Ingjaldssandi féllu fimm snjó- flóð úr Brekkufjalli á sunnudag en að sögn Guðmundar Hagalínssonar, bónda á Hrauni, er ekki óalgengt að þar falli flóð þrisvar til fjórum sinnum á hverjum vetri. Að þessu sinni hafi verið óvanalegt hversu stór flóðin voru og hvað þau féllu með skömmu millibili. Þau hafi fall- ið á 8-900 metra löngum kafla og verið 500 metra breið samanlagt. Flóðið féll niður á veg og yfir hann auk þess sem það skemmdi girðingu við bæinn Brekku, sem nú er í eyði. Guðmundur segir að mannvirkjum á Ingjaldssandi stafi ekki í hætta vegna snjóflóða. 12.4. 1994 Nr 378 ' VÁKORT Eftirlýst kort nr.: 4507 4500 0022 0316 4543 3700 0009 7116 4543 3718 0006 3233 4546 3912 3256 0090 4842 0308 1995 3028 ÖLL ERLEND KORT SEM BYRJA Á: 4550 50** 4560 60** 4552 57** 4941 32** Afgreiðslutúlk vinsamlegast takið ofangreind kort úr umferð og sendið VISA íslandi sundurklippt. VERÐLAUN kr. 5000,- lyrir að klótesta kort og visa á vágest. Höföabakka 9 • 112 Reykjavik Simi 91-671700 Dags. 12.4.1994. NR. 155 5414 8300 0310 5102 5414 8300 3163 0113 5414 8300 3164 7117 5414 8301 0494 0100 5422 4129 7979 7650 5221 0010 9115 1423 5413 0312 3386 5018 | Ofangreind kort eru vákort, sem taka ber úr umferð. VERÐLAUN kr. 5000.- fyrir þann, sem nær korti og sendir sundurklippt til Eurocards. KREDITKORT HF., Ármúla 28, 108 Reykjavík, sími 685499 14. leikvika, 9-10. aprfl 1994 Nr. Leikur:_______________Rödin: 1. Degcrfors - Landskr. 1 - - 2. Helsingb. - Gðteborg - - 2 3. Norrköping - Frölunda 1 - - 4. Trellcborg -Hanunarby - X - 5. Öster - Malniö - - 2 6. Arscnal - Wimblcdon - X - 7. Covcntry - Tottcnham 1 - - 8. Man. City - Ncwcastle 1 - - 9. Norwich - Southampton - - 2 10. ShcfT. Wed. - QPR 1 - - 11. Charlton - Notth. For. - - 2 12. C. Palace - Millwall 1 - - 13. Sundcrland - Leiccster - - 2 Hcildarvinningsupphæðin: 97 milljón krónur 13 réttir: 419.530 | kr. 12 réttir: 9.530 |kr. 11 réttir: 820 jkr. 10 réttir: 250 I kr. 14. Icikvika, 10. april 1994 Nr. Leikur: Röðin: 1. Lazio - Atalanta 1 - - 2. Napoll-Juventus - X - 3. Piacenza - Cremonesc - X - 4. Sampdoria - Genoa - X - 5. Udincse - Foggia 1 - - 6. AscoU - Pescara 1 - - 7. Cesena - Ravcnna - - 2 8. Cosenza - Acireale - X - 9. Fid.Andria - Ancona - X - 10. Padova - Lucchese - X - 11. Pisa - Viccnza 1 - - 12. Vcnczia - Palermo 1 - - 13. Vcrona - Monza 1 - - Hcildarvinningsupphæöin: 10,3 milljón krónur 13 réttir: T 918.220 | kr. 12 réttir: 10.770 kr. 11 réttir: 820 kr. 10 réttir: 230 kr. Höföar til .fólks í öllum starfsgreinum!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.