Morgunblaðið - 12.04.1994, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 12.04.1994, Blaðsíða 50
50 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. APRÍL 1994 DREGGJAR DAGSINS + * * * G.B. DV. * * * * Al. MBL. ★ ★ ★ ★ Eintak ★ ★ ★ ★ Pressan Sýnd kl. 4.35, 6.50 og 9.05. MORÐGÁTA Á MANHATTAN Sýnd kl. 11.30. Síðustu sýningar. KR. 400. Stórmyndin FÍLADELFÍA Tom Hanks hlaut Golden Globe- og Óskarsverðlaunin fyrir leik sinni í myndinni. Að auki fékk lag Bruce Springsteen, Streets Of Philadelphia, Óskar sem besta frumsamda lagið. Leikstjóri: Jonathan Demme. Sýnd í A-sal kl. 4.40, 6.50, 9 og 11.20. Miðaverð 550 kr. Bíómióinn á Philadelpia gildir sem 200 kr. afsl. á Philadclphia geislaplötu í verslunum Músík og mynda. Takið hétt í spennandi kvikmynúagetraun á Stjörnubíó-iínunni í síma 991065. í verðlaun eru Fíladelfía bolir og bnðsmiðar á myndir Stjörnubíós. Verð kr. 39,90 mínútan. % fi NEMENDALEIKHÚSIÐ LINDARBÆ - SÍMI 21971 Sumargestir eftir (Vfaxim Gorki, í leikstjórn Kjartans Ragnarssonar. 9. sýning í kvöld kl. 20.00. Uppselt. 10. sýning fim. 14. apríl kl. 20.00. Uppselt. 11. sýning mán. 18. apríl kl. 20.00. öfóar til ____Lfólksíöllum starfsgrei num! jWorflunfrlnbifr Svipað atvinnu- ástand á Húsavík Góð aðsókn að leirlistar- sýningu í Borgarnesi MJÖG góð aðsókn hefur verið að leirlistarsýningn sem Elísabet Haraldsdóttir leirlistarkona opnaði ný- verið í Safnahúsinu í Borg- arnesi. Alls hafa komið yfir 300 manns á sýninguna sem er opin fram til 24. apríl. Á sýningunni eru 58 mun- ir, skálar, vasar, veggmyndir, ásamt nokkrum hnatt- og egglaga skúlptúi'urn. Leirlistarmaðurinn Eiísa- bet Haraldsdóttir er búsett á Hvanneyri í Borgarfirði og hefur þar vinnustofu. Hún nam við Myndlista- og hand- íðaskóla íslands á árunum 1967 til 1971 og stundaði framhaldsnám í Vínarborg 1971 til 1975. Elísabet hefur haldið fjölda einkasýninga og tekið þátt í samsýningum hérlendis og erlendis. Þá hef- ur hún hlotið ýmsar viður- kenningar og meðal annars mun hún í sumar dvelja á vegum Norrænu listamið- stöðvarinnar í Hordaland Kunstnersentrum í Björgvin í Noregi. TKÞ. Húsavík. Atvinnuástand á félags- svæði Verkalýðsfélags Húsavíkur var um síðustu mánaðamót svipað og í fe- brúarlok, en betra en það var um áramótin. Skráðir avinnulausir á öllu svæðinu í mars voru 192, í febrúar voru þeir 219, en í lok marz voru skráðir 163 en 160 í febrúarlok. Á Húsavík var 101 skráður í mars, 113 í febrúar, en í mánaðarlok nú 77 en 75 mánuðinn áður. Bótadagar í mars voru 3.290 — þar af á Húsavlk 1.613 og útgreiddar atvinnu- leysisbætur alls 4.703 þús- und og þar af á Húsavík 2.212 þúsund. fl i fl Hátíðahöld er tuttugu ára kaupstaðarréttindum Grindavíkur var fagnað Fyrsti heiðurs- borgari Grinda- víkur valinn Grindavík. Á HÁTÍÐAFUNDI bæjarstjórnar í Grindavík, sem haldinn var að morgni afmælisdagsins 10. apríl, var ákveðið einróma að útnefna Svavar Árnason, fyrrum oddvita sveitarsljórnar, fyrsta heiðursborgara Grindavíkur. Viðstödd fundinn var frú Vigdís Finnbogadóttir, forseti Islands, ásamt fjölda annarra boðsgesta. Fund- urinn hafði aðeins tvö mál á dagskrá. Fyrra málið var að ákveða kaup á gamla gestahúsinu í Garðhúsum og verja 2 milljónum króna á þessu og næsta ári til kaupa og endurbóta á gömlum húsum. Þar með telur bæjarstjórn að fyrsta skref sé stigið til verndunar sögulegra minja sem tengjast búsetu og atvinnuháttum í Grindavík. Morgunblaðið/Frímann Ólafsson ' Eðvarð Júlíusson afhendir Svavari Árnasyni skjal þess efnis að hann sé heiðursborgari í Grindavík. Ný sundlaug víg’ð Grindavík. ^ GRINDVIKINGAR t.óku í notkun nýja sundlaug um helgina í sambandi við 20 ára afmæli kaupstaðarins. Sundlaugin hefur verið undanfarna 20 mánuði í byggingu en var vígð formlega að morgni laugardags að viðstöddum fjölda bæjarbúa. Eðvarð Júlíusson, forseti bæjarstjórnar, sagði í ávarpi sem hann flutti við þetta tækifæri að nú væri langþráður draumur Grindvík- inga að rætast með þessari nýju og fullkomnu sundlaug og í sundi megi segja að ekki ríki kynslóðabil, þar geti ungir sem aldnir brugðið á leik og skemmt sér. „í Grindavík þar sem aðalat- vinnuvegurinn er sjósókn hlýtur það að vera frumskilyrði að það sé góð aðstaða til sundkennslu og fáum við hana hér. Ég er viss um að sú góða aðstaða sem hér skap- ast verður íþróttafólki hvatning til að skara framúr eins og íþrótta- fólk í Grindavík hefur gert á lands- vísu í öðrum keppnisgreinum íþrótta,“ sagði Eðvarð meðal ann- ars í vígsluræðu sinni. Sundlaugin er af gerðinni Myrta, ítölsk af stærðinni 25 metr- ar að iengd og 12,5 metrar að breidd með rennibraut. Á svæðinu er einnig barnalaug með svepp og tveir heitir pottar. Sundlaugarhús- ið er 770 fermetrar að stærð á einni hæð með tækjarými og þrek- Bærinn í hátíðarbúningi Grindavík. MIKIÐ var um dýrðir í Grindavík um helgina þar sem haldið var upp á 20 ára afmæli kaupstaðarréttinda bæjarins. Fjöldi gesta, bæði gamalir íbúar bæjarins og aðrir boðsgestir, sótti bæinn heim og tókust hátíðahöld mjög vel. Afmælið bar upp á 10. apríl en þann dag fyrir 20 árum hlaut Grindavíkurbær formlega kaupstaðarrétt- indi. Hátíðahöld hófust að kvöldi föstudags með dansleik. Laugardag- urinn hófst með vígslu nýrrar sundlaugar og afmælishátíð UMFG var í íþróttahúsinu ásamt boðsundskeppni í nýrri sundlaug. Þá hélt Sinfóníuhljómsveit íslands afmælistónleika í iþróttahúsinu og lék verk undir stjórn Alvaros Monzanos. Afmælisdagskránni lauk síðan á sunnudag, sjálfan afmælisdaginn, með dagskrá í íþróttahúsinu þar sem meðal annarra voru þingmenn Igördæmisins, félagsmálaráð- herra, forseti Alþingis, bæjarstjórar og oddvitar sveitarfélaga á Suðurnesjum og bæjarstjóri Penistone sem er vinabær Grindvíkinga í Englandi. Eðvarð Júlíusson, forseti bæjar- stjórnar, stjórnaði fundi bæjar- stjórnar og rakti feril Svavars Árnasonar á stjórnmálasviðinu og í atvinnumálum Grindvíkinga. Hann lauk máli sínu með því að segja að vel væri við hæfi að heiðra Svavar á þessum tímamótum með því að gera hann að fyrsta heiðurs- borgara Grindavíkur. Svavari var síðan afhent áritaði skjal þess efn- is. Svavar er fæddur í Grindavík 14. nóvember 1913 og var kosinn í hreppsnefnd árið 1942 og varð oddviti hreppsnefndar árið 1946. Hann var óslitið oddviti fram til þess að Grindavík fékk kaupstað- arréttindi á árinu 1974. Þá varð hann fyrsti forseti nýrrar bæjar- stjórnar og sat í bæjarstjórn fram til ársins 1982. Þá hafði hann set- ið óslitið í sveitarstjórn um 40 ára skeið. Svavar var í fjölmörgum | nefndum og ráðum bæjarins, þar á meðal hafnarnefnd, bygginga- nefnd og skólanefnd, formaður Verkalýðsfélags Grindavíkur 1939-1962, hann var organisti Grindavíkurkirkju um 40 ára skeið þar sem hann tók við af föður sín- um, Árna Helgasyni, og í sóknar- nefnd, lengst af sem formaður. Svavar rak einnig útgerð og fisk- verkun ásamt öðrum og var þar með virkur þátttakandi í atvinnu- lífi Grindavíkur. Að hátíðafundi loknum var formlega opnuð sýning á verkum Gunnlaugs Schevings, sem tengj- ast búsetu hans í Grindavík, í hús- næði bæjarstjórnar. Þar er einnig sýning á bókum grindvískra skálda í húsnæði bókasafnsins ásamt verkum grunnskólabarna úr Grunnskóla Grindavíkur. Sýningin verður síðan opin almenningi dag- lega milli kl. 17-22 til 18. apríl. Dagskráin í íþróttahúsinu var til- einkuð tónskáldinu Sigvalda Kalda- lóns sem var búsettur í Grindavík um margra ára skeið. Kór Grinda- víkurkirkju ásamt barnakór og blás- arasveit undir stjórn þeirra Siguróla Geirssonar og Vilborgar Sigutjóns- dóttur fluttu lög Sigvalda við ljóð skálda, má nefna Stefán G. Stefáns- son, Einar Benediktsson og Davíð Stefánsson svo fáir séu taldir. Krist- inn Sigmundsson óperusöngvari söng við undirleik Jónasar Ingi- mundarsonar. Afmælisgjafir og kveður Þá fluttu gestir ávörp og færðu þeir Grindavíkurbæ gjafir í tilefni afmælisins. Félagsmálaráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir, flutti ávarp. Salóme Þorkelsdóttir, forseti Alþingis, talaði af hálfu þingmanna kjördæmisins. Drífa Sigfúsdóttir, forseti bæjarstjórnar Keflavíkur, flutti þakkir frá stjórn Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum og færði bænum gjöf sem var mynd
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.