Morgunblaðið - 24.04.1994, Síða 12

Morgunblaðið - 24.04.1994, Síða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. APRÍL 1994 Betra seint en aldrei MANGOSOTHO Buthelezi, pólitískur leiðtogi Zúlumanna, á kosninga- fundi i Ulundi. FYRSTU FRJALSU ÞINGKOSNINGARNAR í SUÐUR-AFRÍKU eftir Steingrím Sigurgeirsson ÁTTA dögum áður en allir íbúar Suður-Afríku áttu að ganga að kjörborðinu í fyrstu lýðræðislegu kosningunum, sem haldn- ar hafa verið í landinu, ákvað Mangosotho Buthelezi, pólitísk- ur leiðtogi Zúlumanna, að Inkatha-flokkur hans tæki þátt í kosningunum. Áður en samkomulag náðist um það sl. þriðju- dag hafði Buthelezi harðneitað þátttöku og krafist þess að Zúlumenn fengju sjálfstjórn í héruðunum KwaZulu og Natal í vesturhluta landsins. Er talið að með þessari ákvörðun hafi líkurnar á friðsælli framtíð hinnar nýju Suður-Afríku aukist til muna. Það er hins vegar óvíst hvernig Inkatha mun vegna í kosningunum sökum þess hve skammur tími er til stefnu. Viðurkenndi Buthelezi sjálfur á kosningafundi nú fyrir helgi að kraftaverk yrði að koma til ef flokki hans ætti að ganga vel í kosningunum. Kosningarnar hefjast á þriðjudag og munu standa í þrjá daga. AIls eru 22,7 milljónir manna á kjörskrá. Akvörðun Buthelezis um kosningaþátttöku kom flestum mjög á óvart. Fæstir bjuggust við sinnaskiptum Zúluleiðtogans þegar svo áliðið var á kosningabaráttuna ekki síst í ljósi þess að einungis nokkrum dögum áður hafði alþjóðleg sendi- nefnd sáttasemjara, undir forystu þeirra Henry Kissingers, fyrrum utanríkisráðherra Bandaríkjanna, og Carrington lávarðar, fyrrum utanríkisráðherra Bretlands og framkvæmdastjóra Atlantshafs- bandalagsins, mistekist að fá deiluaðila í Suður-Afríku að samn- ingaborðinu. Buthelezi átti samt að lokum fárra annarra kosta völ en að taka þátt í kosningunum. Ef hann hefði haldið áfram að beijast gegn þeim hefði hann staðið uppi embættis- laus, tekjulaus og áhrifalaus í stjórnmálum landsins að afloknum kosningum. Það hefði eflaust einn- ig leitt til enn frekari blóðsúthell- inga, ef Zúlumenn hefðu reynt að sniðganga kosningarnar, og dóm- ur sögunnar yfir Buthelezi hefði að öllum líkindum orðið óvæginn. Inkatha-flokkur Zúlumanna og Afríska þjóðarráðið, þar sem menn af Xhosa-ættbálkinum ráða ríkj- um, hafa eldað grátt silfur um langt skeið. Á annað þúsund hafa fallið í átökum Inkatha og ANC það sem af er þessu ári (á annan tug þúsunda frá árinu 1990) og óttuðust margir að Zúlu-stríð hefði skollið á ef Buthelezi hefði ekki skipt um skoðun. Ekki samkomulag um stjórnskipan Deilurnar hófust þegar í viðræð- unum um framtíðar stjórnskipan Suður-Afríku. Buthelezi lagði of- uráherslu á að nýja stjórnarskráin myndi byggjast á því að Suður- Afríka yrði sambandsríki, þar sem hinir einstöku landshlutar hefðu verulega sjálfstjóm. Buthelezi, sem er 65 ára gamall og hefur verið valdamesti maður KwaZulu í um tvo áratugi, ákvað að hætta þátttöku í samningaviðræðunum er þessar kröfur náðu ekki fram að ganga þar sem jafnt ANC sem ríkisstjórn hvíta minnihlutans vildu stjórnkerfi sem byggði á miðstýringu. Óttuðust Inkatha- menn að slíkt gæti leitt til þess að ANC (og þar með Xhosa-ætt- bálkurinn) myndi geta kúgað Zúlumenn, þar sem allt bendir til að Afríska þjóðarráðið vinni stór- sigur í kosningunum. Sumar skoðanakannanir benda til að ANC muni fá tvo þriðju at- kvæða í kosningunum og gæti þá ríkisstjórn þeirra í raun ráðskast með stjórnarskrána eins og henni sýndist án þess að hafa samráð við aðrar þjóðir landsins. Til að afla kröfunni um sjálfs- stjórn KwaZulu-héráðsins fylgis fékk Buthelezi Goodwill Zwelit- hini, konung Zúlumanna, í lið með sér. Margir Zúlumenn voru hins vegar ósammála þessari stefnu og lýstu yfir óánægju með að konung- inum hefði verið „rænt“ af Ink- atha-flokknum. Ekki gerði það Buthelezi auðveldara fyrir að þeg- ar hann beitti Goodwill Zwelithini fyrir sig voru viðbrögð Nelsons Mandela, forseta ANC, og F.W. de Klerks, forseta Suður-Afríku, þau að koma til móts við kröfur konungssinnaðra Zúlumanna. Á leiðtogafundi þann 8. apríl sl. buð- ust þeir til að viðurkenna embætti konungs Zúlumanna, tryggja stöðu hans í stjórnarskránni, tryggja honum ákveðnar tekjur og rétt á hirð og ákveðnum fjölda ráðgjafa. Þó að Zwelithini hafí talið þetta vera mjög hagstætt til- boð hafnaði hann því vegna mikils þrýstings frá Buthelezi. „Balkansiðir Grikkja ðgnun við Evröpusambandið Brussel. The Sunday Telegraph. LÖNGU áður en Grikkir tóku við formennsku í ráðherraráði Evrópu- sambandsins, ESB, voru embættismennirnir í Brussel og frammá- menn í öðrum aðildarríkjum þess farnir að kvíða fyrir. Grikkir komu þeim heldur ekki á óvart. Nú þegar þrír mánuðir eru liðnir af for- mennskutíma þeirra og þrír mánuðir eftir, hafa allar hrakspárnar ræst og meira en það og enn verra er í vændum. Ovinsæll ANDREAS Papandreou og aðrir ráðherrar í ríkissljórn Grikklands eru ekki hátt skrifaðir í Brussel þessa dagana. að var vitað, að allt að því sjúkleg afstaða Grikkja til Makedóníu, landlukts og örsnauðs smáríkis, myndi ekki hjálpa til. Þeir höfðu háð og tapað tveggja ára baráttu fyrir því, að önnur Evrópusambandsríki neituðu að viðurkenna makedónsku stjórnina og raunar tók sambandið upp formlegt stjórnmálasamband við hana hálfum mánuði áður en Grikkir tóku við formennskunni í ráðherraráðinu. Það var gert til að ESB-sendiráðin þyrftu ekki að opna skrifstofur sínar í Skopje, höfuðborg Makedóníu, á sama tíma og Grikki væri í forsvari fyr- ir sambandið. Það varð hins vegar til þess, að Theodoros Pangalos, aðstoðarutanríkisráðherra Grikk- lands, sá ástæðu til að úthrópa Þjóðverja sem „risavaxinn rum með barnsheila“. Byijunin lofaði því ekki góðu en tónninn hafði verið gefinn. Óskammfeilnin kom á óvart Þrátt fyrir þetta óraði engan fyrir því, að Grikkir myndu bijóta lög og reglur Evrópusambandsins með jafn óskammfeilnum hætti og þegar þeir ákváðu einhliða við- skiptabann á Makedóníu í febrúar sl. Það er ein af grundvallarreglum sambandsins, að það sjái sjálft um alla viðskiptasamninga og -sam- skipti. Eftir tveggja mánaða hik og bið ákvað loks framkvæmda- stjórnin fyrir skömmu að höfða mál á hendur grísku stjórninni fyrir brot á Rómarsáttmálanum. Andsvör Grikkja hafa verið eins og uppvakningar úr kalda stríðinu meðan það var í algleymingi og minna mest á „Milosevic með hausverk", hinn stóryrta Serbíu- forseta, eins og einhveijir orðuðu það. Svona ástand, sem sumir líkja við borgarastríð, hefur aldrei kom- ið upp í sögu Evrópusambandsins og það á eftir að verða enn alvar- legra þegar Evrópudómstóllinn kveður upp sinn dóm undir maílok. Framtíð ESB í hættu Ef dómstóllinn úrskurðar, að viðskiptabannið á Makedóníu sé ólöglegt, sem er mjög líklegt, og Grikkir neita að hlíta dómnum, sem er líka mjög sennilegt, þá verður skyndilega öll tilvera og framtíð Evrópusambandsins íjiú- verandi mynd í voða. Þegar ríkis- stjórn eins aðildarríkis — og sá, sem er í forsvari fyrir sambandið, • hvorki meira né minna — hunsar Rómarsáttmálann og Evrópudóm- stólinn, þá hefur fyrsta skrefið í átt til upplausnar verið stigið. Takist Grikkjum að lauma sínum „Balkansiðum" inn í ESB, þá er afturförin hafín, þá mun samband- ið breytast úr hópi nátengdra, samstæðra ríkja í getulaust sam- anskrap eins og Sameinuðu þjóð- irnar. Gríska sendinefndin hjá Evr- ópusambandinu ætti að vera önn- um kafin í sjávarútvegsmálum, landbúnaðarmálum, umhverfis- málum, iðnaðarmálum og öllum hinum málunum, sem tilvera sam- bandsins snýst um, en hún er með Makedóníu á heilanum og hana eina. Á hveijum fundinum á fætur öðrum er ákvörðunum frestað til næsta fundar og þannig koll af kolli. Það bætir eklki úr skák, að mánuði áður en Grikkir tóku við formennskunni í ESB rak hina nýja ríkisstjórn Papandreous sendiherra landsins hjá samband- inu, ekki heldur, að Papandreou er svo heilsulaus, að hann getur aðeins unnið i tvo, þijá tíma á dag, og þá ekki, að enginn hátt- settur embættismaður í Grikklandi hefur gegnt starfinu lengur en í sjö mánuði. Frá því í janúar hefur ekkert gerst í Brussel. Þeir, sem hafa formennskuna á hendi, eiga að ákveða dagskrána, boða fundi, stjórna þeim og sjá til, að ákvarð- anir séu teknar, en fyrir því hefur lítið farið. Engar tilskipanir, sem máli skipta, hafa verið gefnar út og engar mikilvægar ákvarðanir teknar. Þó var að því stefnt að Maastricht-samningunum sam- þykktum að móta sameiginlega stefnu í utanríkis- og öryggismál- um en Grikkir hafa eyðilagt allt með Makedóníu. Það átti líka að vinna að því að samræma efna- hagsstefnu ESB-ríkjanna og koma á sameiginlegum gjaldmiðli en þótt enn eigi flest ríkin nokkuð í land með að uppfylla nauðsynleg skilyrði, þá eru engir fjær þeim

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.