Morgunblaðið - 08.05.1994, Side 4
4 SUNNUDAGUR 8. MAÍ 1994
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
VIKAN 1/5 - 7/5.
►Meðalfjölskylda í landinu
skuldar 3,9 milljónir króna.
Skuldir heimila jukust um
26 milljarða króna í fyrra,
ogf námu í árslok 116% af
ráðstöfunartekjum meðal-
heimilis. Árið 1980 var
þetta hlutfall 25%. Skuldir
eru hlutfallslega mestar
hjá þeim tekjulægstu. Ald-.
urshópurinn 31-39 ára er
skuldugastur. Hlutfall hús-
næðislána í skuldum heim-
ila fer sílækkandi en
neyslulán aukast.
►íslenska saltfélagið og
hollenskt móðurfélag þess
hafa verið tekin til gjald-
þrotaskipta. Skuldir eru
taldar 600 millj. kr. Öllum
40 starfsmönnum var sagt
upp um mánaðamót.
► Aðilar í útgerð og fisk-
vinnslu á Suðumesjum
stofna á næstu dögum
hlutafélag um rekstur
loðnubræðslu í Helguvík.
Forsenda fyrirtækisins er
að gerður verði 150 m við-
legukantur við höfnina í
Helguvík. Bræðslan mun
afkasta 1000 tn á sólar-
hring og veita um 20 manns
vinnu.
►Halldór Ásgrímsson, nýr
formaður Framsóknar-
flokksins, telur að endur-
skoða þurfi vinnulöggjöf-
ina og herða reglur um
boðun verkfallsaðgerða, til
að koma í veg fyrir að fá-
mennir hópar knýji fram
kjarabætur í skjóli valds.
►Um 150 milljóna króna
tjón varð í eldsvoða í húsa-
kynnum Nord Morue,
dótturfyrirtækis SH i
Frakklandi.
Super Puma
verður keypt
fm ■
RÍKISSTJÓRNIN hefur ákveðið að
kaupa Super Puma björgunarþyrlu fyr-
ir Landhelgisgæsluna. Jafnframt var
samþykkt
að óska
viðræðna
við
Banda-
ríkja-
menn um
yfírtöku íslendinga á rekstri þyrlu-
björgunarsveitar vamarliðsins. Meðal
íslenskra stjómvalda gætir óánægju
með vinnubrögð bandarískra stjórn-
valda í viðræðum við þyrlumál og
tregðu þeirra til að fylgja eftir tilboði
Perrys varnarmálaráðherra um að Is-
lendingar yfirtaki rekstur sveitarinnar
og kaupi þyrlur af Bandaríkjaher á
hagstæðu verði.
Metár hjá SH
SÖLUMIÐSTÖÐ Hraðfrystihúsanna
hagnaðist um 600 milljónir króna árið
1993, sem er besta niðurstaða í 50 ára
sögu félagsins. Framleiðsla aðildarfyr-
irtækja SH jókst um 22% frá fyrra ári
og nam heildarsala Samtakanna 21,2
milljörðum króna og jókst um 10% að
verðmæti milli ára. Þetta kom fram í
ræðu Jóns Ingvarssonar formanns SH
á aðalfundi samtakanna. Þar sagði
Friðrik Pálsson, forstjóri SH, að íslend-
ingar ættu hvorki að útiloka fyrirfram
aðild að ESB né aðra kosti. Hann telur
margt benda til að aðild að ESB gæti
reynst okkur hagkvæm og æskileg og
segir styrki ESB til sjávarútvegs í
Noregi rýra kjör hér á landi.
R-listi 55,7%
D-listi 44,3%
SAMKVÆMT skoðanakönnun Félags-
vísindastofnunar fengi R-listinn 55,7%
atkvæða og 8 borgarfulltrúa en D-list-
inn 44,3% og 7 borgarfulltrúa ef geng-
ið væri til borgarstjómarkosninga í
Reykjavík nú.
Stórsigur ANC
í Suður-Afríku
MIKILL fögnuður ríkti í Suður-Afríku
í vikunni eftir stórsigur Afríska þjóðar-
ráðsins (ANC) í fyrstu þingkosningum
í sögu landsins með þátttöku allra kyn-
þátta. Nelson Mand-
ela, leiðtogi ANC,
lýsti yfir því á mánu-
dag að íbúar Suður-
Afríku hefðu loks
fengið frelsi. emb-
ættiseið forseta. F.W.
de Klerk, fráfarandi
forseti sem bar kyn-
þáttastefnuna til
grafar, verður vara-
forseti Mandela.
Samkomulag Israela
og PLO
Á MIÐVIKUDAG var undirritað í Ka-
író í Egyptalandi tímamótasamkomu-
lag ísraela og Frelsissamtaka Palestínu
(PLO) um takmarkaða sjálfstjóm Pal-
estínumanna á Gaza-svæðinu og í borg-
inni Jeríkó. Leiðtogi PLO, Yasser Ar-
afat og Yitzhak Rabin, forsætisráð-
herra Israels, undirrituðu sáttmálann.
Brottflutningur ísraelskra hermanna
frá stöðum þessum hófst í vikunni en
PLO reyndist ekki tilbúið til þess áð
taka upp umsamda löggæslu.
►Tveir slökkviliðsmenn í
Los Angeles voru á föstudag
sakaðir um að hafa kveikt
skógareldana í Malibu í Suð-
ur-Kaliforníu sem urðu
þremur að bana auk þess
sem um 350 hús brunnu til
kaldra kola.
►Evrópuþingið sam-
þykkti á miðvikudag
áform um aðild fögurra
ríkja, Austurríkis, Finn-
lands, Svíþjóðar og Nor-
egs, að Evrópusambandinu
(ESB). Fékk fjölgun aðild-
arríkjanna úr 12 í 16 meiri
stuðning en búist hafði
verið við.
►Mjög harðir bardagar
brutust út í Jemen um
miðja vikuna og voru m.a.
gerðar loftárásir á flug-
velli í tveimur stærstu
borgum landsins, Sanaa og
Aden. Suður- og Norður-
Jemen sameinuðust árið
1990 en gagnkvæm tor-
tryggni og ættbálkadeilur
hafa einkennt sambúðina.
Var talin veruleg hætta á
að borgarastyijöld bloss-
aði upp i landinu.
Nelson Mandela
Major í vanda
BRESKIR íhaldsmenn biðu háðuglegan
ósigur í sveitarstjómakosningum sem
fram fóru á fímmtudag. Flokkurinn
tapaði alls um 400 fulltrúum og mæld-
ist fylgi hans aðeins um 27% á lands-
vísu borið saman við um 43% í þing-
kosningunum 1992. Úrslitin eru mikið
áfall fyrir John Major forsætisráðherra
og þykir sýnt að reynt verði að fella
hann í haust fái flokkurinn sams konar
útreið í kosningum til Evrópuþingsins
í næsta mánuði.
►Ungur Bandaríkjamað-
ur, Michael Fay, var hýdd-
ur fjórum vandarhöggum
í fangelsi í Singapore á
fimmtudag. Bill Clinton
Bandaríkjaforseti hafði
mótmælt hýðingunni en
stjórnvöld í Singapore
sögðu Fay hafa gerst sek-
an um spellvirki og því
þyrfti hann að sæta þeirri
refsingu sem lög landsin
kvæðu á um.
Sverrir Hermannsson bankastjóri á aðalfundi SH
Kreppa vegna óráð-
síu og atkvæðakaupa
SVERRIR Hermannsson bankastjóri Landsbanka íslands sagði í ræðu
á aðalfundi Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna á föstudag að á íslandi
væri kreppa óráðsíu, offjárfestingar og gegndarlausrar eyðslu. Skýring-
amar á þessu væri kunningsskapur, fyrirgreiðsla og atkvæðakaup stjórn-
málamanna. Hann sagði að það yrði að koma í veg fyrir hallarekstur
á ríkissjóði og að næsta ríkisstjórn yrði viðlagastjórn um fjármál ríkisins.
Erindi Sverris nefndist Verður
góðæriskafli næsta áratug. Sverrir
sagði að engar framfarir hefðu orðið
á Islandi nema þær hefðu fyrst verið
dregnar úr sjó. en lítið væri á því
að græða að líta um öxl nema til
að varast vítin. Hann sagði að óráðs-
ían í opinberum fjármálum skipti
hundruðum milljóna kr. og þannig
hefði verið staðið að fjárlagagerð að
embættislýð hefði verið sleppt laus-
um og hann sett fram óskalista um
hitt og þetta. „Enginn mátti vera
afskiptur en einstaka mál höfðu for-
gang, eins og niðurgreiðsla rollu-
kjöts,“ sagði Sverrir.
Þolum við góðæri?
Sverrir sagði að breytingar hefðu
þó orðið á allrasíðustu árum hvað
þetta varðar sem gæfi vonir um að
tilraunin um rekstur sjálfstæðs þjóð-
félags á íslandi tækist. Hann sagði
að leggja ætti af sjóðakerfi atvinnu-
veganna og sameina þá bönkunum
og benti á að Fiskveiðisjóður hefði
forgang um veð í atvinnutækjum
þótt lánafyrirgreiðslan væri að mestu
á höndum bankanna. Sverrir sagði
það miður að spumingin um hvernig
við þyldum nýjan góðæriskafla ætti
rétt á sér og sagði að það gæti ver-
ið stanslaust góðæri á íslandi ef þjóð-
in kynni að fara með peninga. Engin
ráð önnur væm tiltæk þjóðinni en
fara að fiskfræðinga. „Þegar örugg
teikn eru á lofti um hvað við höfum
lært af fyrri mistökum þá tekst til-
raunin um rekstur sjálfstæðs þjöð-
félags á íslandi," sagði Sverrir.
I
»
I
ft
I
»
Minnihlutí í borgarstjóm
Hafnar-
svæðið
verði eflt
BORGARFULLTRÚAR minnihlut-
ans í borgarstjóm Reykjavíkur
lögðu fram tillögu á borgarstjórnar-
fundi í gær um að borgarstjórn láti
fara fram ítarlega könnun á því
hvernig efla megi Reykjavíkurhöfn
sem umsvifamikið atvinnusvæði,
Qölga skipakomum og stuðla að
aukinni samkeppni í sjóflutningum
og þar með lækkun vömverðs.
Metið verði hvaða fyrirkomulag
sé ákjósanlegast til að koma á frí-
verslunarsvæði og efla umskipunar-
starfsemi. Tillagan gerði ráð fyrir
að auglýst yrði eftir rekstrarsér-
fræðingi til að stjórna könnuninni.
Tillögunni var vísað til hafnar-
stjórnar.
Lagt er til að sérstaklega verði
skoðaðir möguleikar á því að stofna
sjálfstætt hlutafélag með meiri-
hlutaeign Reykjavíkurborgar.
Hlutafélagið eigi þá aðstöðu sem
þurfi til þess að reka góða upp- og
útskipunarþjónustu fyrir allan
fraktflutning um Reykjavíkurhöfn.
Þá verði einnig skoðað sérstaklega
að stofna sambærilegt fyrirtæki
sem ræki þjónustu við Vogabakka
og framtíðarhöfn í Eiðsvík.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Fundur í pottinum
VILHJÁLMUR Þ. Vilhjálmsson borgarfulltrúi efndi til stjórnmála-
fundar í heita pottinum í sundlauginni í Breiðholti í gærmorgun
og ræddi borgarmálefni við áhugasama sundlaugargesti. Kosn-
ingabaráttan vegna borgarstjórnarkosninganna er nú komin á
skrið og samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins beita frambjóð-
endur ýmsum nýstárlegum aðferðum til að komast í beint sam-
band við kjósendur. Vinnustaðafundir munu ekki jafnmikið tíðkað-
ir og áður, en þess í stað leggja listarnir meiri áherslu á margs
kyns uppákomur. Fjölmargir Reykvíkingar hafa fengið frambjóð-
endur Sjálfstæðisflokksins i heimsókn til að ræða um borgarmál
við sig og gesti sína. Einnig hafa frambjóðendur flokksins geng-
ið um íbúðahverfi, bankað upp á hjá fólki, rætt málin og afhent
bæklinga og dreifirit um stefnu flokksins.
I
I
»
»
I
I
I
Neytendasamtökin um svæðisbundið gjald á orkugjafa
Fráleitar hugmyndir sem i
fela í sér aukna skattlieimtn 1
„HUGMYNDIR samgöngumálaráðherra um svæðisbundið gjald á
bensín og díselolíu til að fjármagna vegaframkvæmdir í Reykjavík,
fela í sér enn frekari skattlagningu á bifreiðaeigendur en verið
hefur og eru fráleitar með öllu,“ segir Jóhannes Gunnarsson, formað-
ur Neytendasamtakanna.
í Morgunblaðinu hefur komið
fram, að Halldór Blöndal, sam-
göngumálaráðherra, hafi á ráð-
stefnu Tæknifræðingafélags ís-
lands og Verkfræðingafélags ís-
lands, lýst þeirri skoðun sinni að
vegaframkvæmdir á höfuðborgar-
svæðinu verði næsta stórverkefni
í nýrri vegaáætlun, og til greina
komi að leggja svæðisbundið gjald
á orkugjafa til að fjármagna fram-
kvæmir að miklu leyti.
Vara við framkvæmd
hugmyndanna
„Mín viðbrögð eru í fyrsta lagi
að ég skil ekki hvað samgöngu-
málaráðherra er að fara,“ segir
Jóhannes, og minnir á þá staðreynd
sem Neytendasamtökin hafa ítrek-
að bent á, að álögur á bifreiðaeig-
endur séu þegar allt of miklar.
Skattar til vegamála
skila sér ekki
„Ég minni einnig á þá staðreynd
að allur sá skattur sem lagður hef-
ur verið á bifreiðaeigendur, og á
að renna til vegamála, gerir það
ekki nema að hlutatil. Svæðisbund-
ið orkugjald er fráleitt með öllu frá
mínum sjónarhóli, ég minnist þess
ekki að nokkrum manni hafi dottið
í hug að legga sérstakt svæðis-
bundið orkugjald vegna vegafram-
kvæmda utan höfuðborgarsvæðis-
ins, vegna jarðgangnagerða á Vest-
fjörðum, eða við Eyjafjörð í kjör-
dæmi samgöngmálaráðherra,
þannig að ég tek þessar hugmynd k
ráðherra með miklum fyrirvara og 1
vara raunar eindregið við því að
reynt verði að hrinda henni í fram- I
kvæmd.“ r
Nóg tekið af eigendum bíla
Runólfur Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri Félags íslenskra bif-
reiðaeigenda, kveðst vera alfarið á
móti hugmyndum um staðundið
orkugjald. „Félagið hefur markað I
þá stefnu, að rúmlega mikið meira 1
en nóg sé tekið af bifreiðaeigendum
þannig að nú þegar er næg skatt- I
tekja til þeirra framkvæmda sem
þarna um ræðir,“ segir Runólfur.