Morgunblaðið - 08.05.1994, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 08.05.1994, Blaðsíða 38
38 SUNNUDAGUR 8. MAÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ 3U«nrgunMafrí& BRÉF TEL BLAÐSINS Dýraglens Kringlan 1103 Reylgavík • Sími 691100 • Símbréf 691329 Tommi og Jenni Hver platar hvem? Frá Ólafi Gíslasyni: TRAUST almennings á stjómmála- mönnum hefur minnkað verulega á undanförnum ámm, m.a. vegna aukinna samskipta þeirra við fjöl- miðla, þannig að almenningur hefur nánast fengið þá inn í stofu til sín. Þeir hafa sem sagt stigið niður af stallinum væntanlega sér til frama, en um leið hefur okkur orðið það ljóst að margir þessara manna hafa komist til valda frekar vegna ýtni og góðs talanda en dáða í daglegu starfi. Ýmsir telja enn fremur að vin- sældir stjómmála- og annarra for- ráðamanna hafi dvínað mikið eftir uppljóstranir fjölmiðla á hátterni og afskiptum margra þeirra sem verða því miður að fiokkast undir spillingu. Hvernig getur það t.d. átt sér stað að þingmenn, ráðherrar o.fl. skammti sér ótæpilega há eftir- laun á sama tíma sem hinn almenni borgari getur varla lifað af ellilíf- eyri sínum? Annað dæmi era laun bankastjóra sem eflaust eiga að vera svona há vegna mikillar ábyrgðar. í reynd eru þessir menn í langflestum tilvikum ábyrgðar- lausir - hver hefur t.d. heyrt nokkra opinbera umræðu eða kröfur um að setja ætti bankastjóra af, þrátt fyrir bullandi taprekstur ár eftir ár? Bankastjórafarganið í okkar litia þjóðfélagi er reyndar glöggt dæmi um þá óheyrilegu yfirbyggingu sem viðgengst og þrífst á íslandi. Þessir bankar em minni eða álíka og vana- leg bankaútibú í nágrannalöndun- um, en láta sér ekki nægja minna en 2-3 bankastjóra auk fleiri að- stoðarbankastjóra. Erlendis mundi nægja einn útibústjóri og hér ætti líka að nægja einn bankastjóri, því að bankastarfsmenn okkar standast fyllilega samanburð við erlenda starfsfélaga sína, svo að margföld yfirstjórn á engan rétt á sér. Það virðist ekki skipta máli, hvort stjórnmálamenn koma úr röðum hægri eða vinstri manna, þeir falla flestir ljúflega inn í ríkjandi valda- mynstur. Vissulega era meðal kosinna ráðamanna okkar margir hæfír menn og tel ég Davíð Oddsson einn þeirra. Hann sýndi og sannaði sig sem leiðtogi í starfí borgarstjóra, framkvæmdamaður sem þorði að taka ákvarðanir og standa við þær. Mér brá þess vegna heldur betur í brún, þegar Davíð lét fyrir nokkra hafa eftir sér, að það væri verið að plata fólk með því að auglýsa lausar stöður, sem fyrirfram væru ætlaðar ákveðnum mönnum. Sé þetta rétt haft eftir, þá kemur þarna að mínu áliti fram veralegt vanmat á almenningi. íslendingar era þrátt fyrir allt ákaflega umburðarlyndir við ráðamenn sína og hafa fram að þessu látið flestar refskáksað- gerðir afskiptalausar. Allir hafa séð í gegnum tilfæringar þeirra til að hygla vinum eða losna við keppi- nauta. Hingað til hefur fólk látið sér nægja að gera gys að þessum aðgerðum, en nú er sennilega mæl- irinn orðinn fullur. Þessu til stuðn- ings má t.d. benda á fall nokkurra borgarstjómarmanna út af lista Sjálfstæðisflokksins og nú hina gíf- urlegu andstöðu manna við skipan 66 ára gamals stjórnmálamanns í stöðu Seðlabankastjóra. Ég las nýlega grein í „The New York Times“, sem fjallaði um dvín- andi álit á stjómmálamönnum. Þar segir m.a. að almenningur hafí gef- ið ráðamönnum allt of fijálsar hend- ur í góðæri eftirstríðsáranna og þeir hafi undantekningalítið misnot- að aðstöðu sína. Nú, þegar kjör manna hafa almennt rýrnað hefur afskipti og athygli fólks beinst að atferli ráðamanna og eru þá kveðn- ir upp óvægir dómar. Telur blaðið að fólk á Vesturlöndum kreíjist þess að ráðamenn víki, ef misferli eða misnotkun valds sannist á þá. Ég tel að umrædd hugarfars- breyting sé að eiga sér stað á ís- landi þrátt fýrir náin tengsl og kunningskap og má þakka það góðri menntun og árvekni almenn- ings. Það er eins gott að stjómmála- menn átti sig á þessum breyttu við- horfum, geri sér ljóst að við ætl- umst til að siðgæði þeirra sé fyrir ofan en ekki neðan meðallag og þeir skynji kröfur nýrra tíma. ÓLAFUR GÍSLASON, verkfræðingur. Að varpa sprengjum á börn er alltaf glæpur Smáfólk Vegna bréfs frá Predrag Dokic IN THE OLD DAYS, IF SOMEONE 0JA5 PEFEATER HE HELP UP A U)HITE FLA6.. zc Ef einhver tap- UJELLJHAT'5 IT, CHARLIE BR0U)N..UE L0STA6AIN Jæja þá, Kalli Bjarna... við töpuðum aftur aði í gamla daga hélt hann uppi hvítum fána... Frá Gunnari Haukssyni: ELSKU VINUR, Predrag Dokic. Ekki saka okkur íslendinga um fordóma þó við séum sumir að setja út á framferði Serba í þessu dapurlega stríði sem þeir taka þátt í. Ég ætla samt ekkert að verja aðra stríðsaðila. Það að varpa sprengjum á börn að leik, hvort sem það er inn á leikskóla- lóð, fótboltavöll eða í sleðabrekku, er bara glæpur. Það hefur ekkert með fordóma að gera. Það hefur ekkert með hermennsku að gera. Það hefur heldur ekkert með ein- hveija glæpi í fortíðinni að gera. Það er bara sóðaleg morð. Hugsaðu þér ástandið ef öll heimsbyggðin léti svona. Ég leyfi mér að fullyrða að allflestar þjóðir og þjóðabrot á þessari þjáðu jörð okkar eiga einhverra harma að hefna úr fortíðinni. Eigum við kannski að efna til heimsstyijaldar til að leiðrétta allt það ranglæti sem dunið hefur á mannkyninu í gegnum aldirnar? Engan æsing, vinur. GUNNAR HAUKSSON, landi Magnúsar Skarphéðinssonar, Vallartröð 10, Kópavogi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.