Morgunblaðið - 08.05.1994, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 08.05.1994, Blaðsíða 20
20 SUNNUDAGUR 8. MAÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ samkeppni við ísgerð Mjólkursamsöl- unnar barst Hafsteini aftur bréf frá Framleiðsluráði landbúnaðarins. Nú hafði verið tekin ákvörðun um að hætta niðurgreiðslu smjörs og ijóma til ísgerðar. Hafsteinn lét ekki beygja sig öðru sinni og hélt áfram ísgerð, en úr jurtafitu í stað mjólkurfitu. Nokkru síðar var aftur farið að niður- greiða mjólkurfitu til ísgerðar. Eitt helsta hráefni í Kjörís er íslensk land- búnaðarframleiðsla, en það er undan- rennuduft. Hægur vöxtur Hafsteinn bryddaði upp á ýmsum nýjungum í ísgerðinni. Hann bauð upp á úrval af íspinnum sem strax nutu mikilla vinsælda. Auk þess var boðið upp á pakkaís til heimilisnota. Vöxtur fyrirtækisins hefur verið jafn fram á þennan dag. Sjö sinnum hef- ur verið byggt við gömlu ostagerðina .sem var 250 fermetrar að stærð. Húsnæðið er af af sumum uppnefnt „Bútapest" og er nú 3500 fermetra stórt. Hjá Kjörís hf. eru nú unnin 27 ársverk og gegna þeim um 30 ein- staklingar. Oll starfsemi fyrirtækis- ins er nú í Hveragerði en um tíma var söludeildin staðsett í Reykjavík. Við flutning söludeildarinnar austur árið 1991 sköpuðust þar 8 störf auk þess sem mikil hagræðing fylgdi því að hafa fyrirtækið allt undir einu þaki. „Eftir flutninginn fengum við miklu betri yfirsýn yfir reksturinn og sterkari tengsl við sölumennina. Nú hittum við þá kvölds og morgna en áður hitti pabbi þá jafnvel ekki nema einu sinni í viku,“ segir Guð- rún. SALAN Fjölbreytt framleiðsla Framleiðsla Kjöríss hf. skiptist í nokkur meginsvið. Fyrst er að nefna ís til heimilisnota sem seldur er í eins og tveggja lítra pakkningum og ýmsar gerðir af ístertum. í þessum vöruflokki er einnig framleiddur ís fyrir vörumerkið Bónus. Mikið úrval er af pinnaís, bæði jurtaís og klökum. FYLGIRSOLINNI Kjörís framleiðir isblöndu fyrir ísvél- ar sem víða er að finna í söluturnum og ísbúðum. Fyrirtækið stærir sig eftir Guðno Einarsson Kjörís hf. er fjölskyldufyrir- tæki og var stofnað af bræðrunum Hafsteini, ' Guðmundi og Sigfúsi Kristinssonum ásamt bræðrunum Gylfa og Braga Hinrikssonum. Gylfi Hinriksson átti þátt í uppbyggingu Dairy Queen-ísbúðanna í Reykjavík og var mjög áhugasamur um stofnun Kjöríss hf. í dag er Kjörís hf. í eigu Laufeyjar S. Valdimarsdóttur, ekkju Hafsteins, og bræðranna Guðmund- ar og Sigfúsar Kristinssona. Þau skipa stjórn fyrirtækisins og er Lauf- ey stjórnarformaður. Hafsteinn Kristinsson var forstjóri Kjöríss hf. frá stofnun til dauðadags, en hann lést skyndilega 18. apríl 1993. Skóli reynslunnar Framkvæmdastjóri Kjöríss hf. er ekki nema 24 ára að aldri. Guðrún segist hafa haft áform um annað en að setjast í framkvæmdastjóra- stó! Kjöríss hf. þegar örlögin gripu í taumana. „Ég var búin að skrá mig til háskólanáms en pabbi lagði hart að mér að koma hér ti! starfa haustið 1992. Ég sló til og hann setti upp skrifborð fyrir mig gegnt sínu skrifborði," segir Guðrún þar sem hún situr í smekklega búinni skrifstofu sinni. „Fram að þessu hafði pabbi haft öll fjármál á sinni könnu, séð um innkaup og allan daglegan rekstur. Hann veitti mér innsýn í reksturinn, setti mig inn í fjármálin og kynnti mig fyrir viðskiptavinum og gestum. Það var ekki hægt að fá betri skóia en að starfa með pabba." Þessi sam- vinna varaði ekki nema þennan vet- ur. Síðastliðið vor lést Hafsteinn af völdum heilablóðfalls. „Þetta bar svo ótrúlega brátt að,“ segir Guðrún. „Hann hafði aldrei misst dag úr vinnu vegna veikinda og svo var hann dáinn. Þetta var mikið áfall. VIÐSKIPri AIVINNULÍF ASUNNUDEGI ► Guðrún Hafsteinsdóttir framkvæmdastjóri Kjöríss hf. er fædd 1970 og uppalin í Hveragerði. Hún lauk stúdents- prófi frá Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi 1991. Guð- rún tók við framkvæmdastjórastarfinu að föður sínum, Hafsteini Kristinssyni, látnum. Hún hefur starfað við fyrir- tækið meira og minna frá unga aldri. Einnig starfaði Guð- rún hjá Búnaðarbanka íslands um tíma. Hafsteinn stofnaði Kjörís hf. í Hveragerði 1968 og sendi fyrstu framleiðsluna til verslana 31. mars 1969. Við þann dag er upphaf starfsem- innar miðað og er fyrirtækið því nýorðið 25 ára. Það var ekki aðeins að ég missti pabba minn og nánasta samstarfs- mann. Ég missti líka besta vin minn.“ Guðrún segist búa vel að því vega- nesti sem hún fékk hjá föður sínum. Þótt mikil ábyrgð legðist á herðar hennar við skyndilegt fráfall Haf- steins hefur hún aldrei verið rög við að axla þá ábyrgð. „Það sat í mér að standa mig og halda merkinu á lofti,“ segir hún. Guðrún telur að rekstur fyrirtækisins hafi gengið ágætlega síðastliðið ár. Veltan jókst á millivára og var rúmar 200 milljón- ir árið 1993. Til marks um stöðuna sýnir Guðrún hvernig veltufjárhlut- fall hefur batnað ár frá ári undanfar- in fimm ár. Veltufjárhlutfall er fund- ið með því að deila skammtímaskuld- um í veltufjármuni. Arið 1989 var hlutfallið 0,6 og var í fyrra komið í 1,2. „Við höfum mjög gott starfsfólk og það hafa allir lagt sitt af mörkum til að þetta gengi.“ Morgunkaffi hjá mömmu Fyrirtækið hefur verið stór þáttur í lífi fjölskyldu Laufeyjar og Haf- steins. Rekstur Kjöríss hf. var bæði ástríða og atvinna húsbóndans sem var vakinn og sofínn yfir þessu af- kvæmi sínu. Börnin fóru ekki var- hluta af tilveru Kjöríss hf. Það var ekki aðeins að þau fengju oftar ís en aðrir krakkar, þau voru ekki há í loftinu þegar þau fóru að hjálpa til við reksturinn. Systurnar Aldís og Guðrún starfa nú báðar við fyrirtæk- ið. Aldís annast öll innkaup og Guð- rún sér um daglega stjórnun. Bróðir- inn Valdimar er í námi í Reykjavík og yngsta systirin Sigurbjörg í skóla á Selfossi. Valdimar býr í Hvera- gerði og þegar hann kemur heim úr skólanum liggur leiðin fyrst í Kjörís. Þau Valdimar og Sigurbjörg vinna bæði við fyrirtækið í skólafríum. „Við hittumst á hveijum morgni í morgunkaffi hjá mömmu,“ segir Guðrún. Þar er lagt á ráðin um rekst- urinn og stjórnarformaðurinn hellir upp á könnuna. Það leynir sér ekki að fjölskyldan er samhent og ætlar ekki að láta deigan síga, þótt upp- hafsmannsins njóti ekki lengur við. „Þetta er ævistarf pabba og það var ekki í eðli hans að gefast upp,“ seg- ir Guðrún. í vor tekur Valdimar við stjórntaumnum þegar Guðrún fer í barneignafrí. „Ég er samt ekkert að hætta,“ segir hún. „Ég mun koma hér daglega auk þess sem ég held áfram að mæta í morgunkaffið!" Erfið upphafsár Hafsteinn Kristinsson lærði mjólk- urfræði og stundaði framhaldsnám í faginu í Noregi og Danmörku. Að námi loknu gerðist hann ráðunautur í mjólkuriðnaði og hjá Búnaðarfélag- inu. Hafsteinn vissi að ostaneysla íslendinga var þá miklu minni en nágrannaþjóða og ákvað að setja upp ostagerð í Hveragerði í samvinnu við nokkra bændur í Ölfusi. Þar fram- leiddi Hafsteinn meðal annars cam- enbert, port salut og Ölfusjógúrt. Nokkru eftir að þessi einkarekna ostagerð hóf starfrækslu setti Fram- leiðsluráð landbúnaðarins niður- greiðslur á allar gerðir osta nema svonefnda sérosta eins og þá sem Hafsteinn framleiddi. Grundvellinum var kippt undan ostagerðinni og tæk- in seld Mjólkurbúi Flóamanna. Hafsteinn stóð uppi atvinnulaus en átti húsnæði ostagerðarinnar. Hann stofnaði Kjörís hf. 1968 og hóf framleiðslu ijómaíss úr smjöri vetur- inn 1969. Þremur mánuðum eftir að Kjörís hf. hóf ísframleiðslu í beinni faf því að geta boðið allt sem þarf til íssölu. Bæði ísvélar, brauðform og pappírsform, íssósur, munnþurrk- ur auk þess að annast viðhald á ísvél- um. Einnig eru framleiddir tugir bragðtegunda af svonefndum kúluís, sem seldur er í ísbúðum. Stöðugt er unnið að vöruþróun hjá Kjörís hf. og stýrir Margrét Reynis- dóttir matvælafræðingur því starfi. Vikulega hittist vöruþróunarhópur pg þar eru ræddar nýjar hugmyndir. I þessum hópi eru auk þeirra Guðrún- ar og Margrétar fólk úr söludeild og framleiðsludeild. Guðrún segir að starfsfólkið sé ófeimið við að koma með nýjar hugmyndir. Vakandi auga er haft með því sem gerist í íssölu- málum erlendis. Guðrún segir að um næstu mánaðamót sé að vænta nýj- unga hjá Kjörís, en hún vill ekki fara nánar út í þá sálma. Ánægjuleg samvinna Nýjasta varan hjá Kjörís hf. eru sælumolar lítil súkkulaðihúðuð ís- stykki og komu þau á markað fyrir síðustu jól. Þessi vara er framleidd í samvinnu við sælgætisgerðina Nóa og Síríus og er hjúpurinn úr Síríus- súkkulaði. Guðrún segir að samstarf þessara fyrirtækja hafi byijað fyrir jólin 1992 með framleiðslu svo- nefndrar konfektístertu. Samstarfið gat einnig af sér sælgætisbitana og í bígerð eru fleiri nýjungar þar sem Kjörís og Nói-Síríus leggjast á eitt. Guðrún segir sérlega ánægjulegt að tvö íslensk iðnfyrirtæki skuli geta unnið sameiginlega að vöruþróun og framleiðslu líkt og hér hefur gerst. Hörð samkeppni Samkeppnin á ísmarkaðnum er hörð. Allt frá byijun hefur Kjörís hf. keppt við ísgerð Mjólkursamsölunn- ar, sem er hluti af umfangsmiklu afurðastöðvakerfi landbúnaðarins. „Til skamms tíma var Mjólkursam- salan ríkisstyrkt og samkeppnin ekki á jafnréttisgrundvelli,“ segir Guðrún. Kjörís hefur haldið velli þrátt fyrir samkeppnina og nú er fyrirtækið annað tveggja sem eru ráðandi á markaðinum. Til viðbótar eru nokkr- ar ísbúðir sem framleiða eigin ís- blöndu. Guðrún telur að Kjörís hf. hafi 35-40% markaðshlutdeild í heimilisís „Maður fær aldrei leið á ís,“ segir Guðrún Hafsteinsdóttir, framkvæmdasljóri Kjöríss hf. í Hveragerði. Morgunbiaðið/Þorkeii Þorkeisson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.