Morgunblaðið - 08.05.1994, Page 20
20 SUNNUDAGUR 8. MAÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
samkeppni við ísgerð Mjólkursamsöl-
unnar barst Hafsteini aftur bréf frá
Framleiðsluráði landbúnaðarins. Nú
hafði verið tekin ákvörðun um að
hætta niðurgreiðslu smjörs og ijóma
til ísgerðar. Hafsteinn lét ekki beygja
sig öðru sinni og hélt áfram ísgerð,
en úr jurtafitu í stað mjólkurfitu.
Nokkru síðar var aftur farið að niður-
greiða mjólkurfitu til ísgerðar. Eitt
helsta hráefni í Kjörís er íslensk land-
búnaðarframleiðsla, en það er undan-
rennuduft.
Hægur vöxtur
Hafsteinn bryddaði upp á ýmsum
nýjungum í ísgerðinni. Hann bauð
upp á úrval af íspinnum sem strax
nutu mikilla vinsælda. Auk þess var
boðið upp á pakkaís til heimilisnota.
Vöxtur fyrirtækisins hefur verið jafn
fram á þennan dag. Sjö sinnum hef-
ur verið byggt við gömlu ostagerðina
.sem var 250 fermetrar að stærð.
Húsnæðið er af af sumum uppnefnt
„Bútapest" og er nú 3500 fermetra
stórt.
Hjá Kjörís hf. eru nú unnin 27
ársverk og gegna þeim um 30 ein-
staklingar. Oll starfsemi fyrirtækis-
ins er nú í Hveragerði en um tíma
var söludeildin staðsett í Reykjavík.
Við flutning söludeildarinnar austur
árið 1991 sköpuðust þar 8 störf auk
þess sem mikil hagræðing fylgdi því
að hafa fyrirtækið allt undir einu
þaki. „Eftir flutninginn fengum við
miklu betri yfirsýn yfir reksturinn
og sterkari tengsl við sölumennina.
Nú hittum við þá kvölds og morgna
en áður hitti pabbi þá jafnvel ekki
nema einu sinni í viku,“ segir Guð-
rún.
SALAN
Fjölbreytt framleiðsla
Framleiðsla Kjöríss hf. skiptist í
nokkur meginsvið. Fyrst er að nefna
ís til heimilisnota sem seldur er í
eins og tveggja lítra pakkningum og
ýmsar gerðir af ístertum. í þessum
vöruflokki er einnig framleiddur ís
fyrir vörumerkið Bónus. Mikið úrval
er af pinnaís, bæði jurtaís og klökum.
FYLGIRSOLINNI
Kjörís framleiðir isblöndu fyrir ísvél-
ar sem víða er að finna í söluturnum
og ísbúðum. Fyrirtækið stærir sig
eftir Guðno Einarsson
Kjörís hf. er fjölskyldufyrir-
tæki og var stofnað af
bræðrunum Hafsteini,
' Guðmundi og Sigfúsi
Kristinssonum ásamt bræðrunum
Gylfa og Braga Hinrikssonum. Gylfi
Hinriksson átti þátt í uppbyggingu
Dairy Queen-ísbúðanna í Reykjavík
og var mjög áhugasamur um stofnun
Kjöríss hf. í dag er Kjörís hf. í eigu
Laufeyjar S. Valdimarsdóttur, ekkju
Hafsteins, og bræðranna Guðmund-
ar og Sigfúsar Kristinssona. Þau
skipa stjórn fyrirtækisins og er Lauf-
ey stjórnarformaður. Hafsteinn
Kristinsson var forstjóri Kjöríss hf.
frá stofnun til dauðadags, en hann
lést skyndilega 18. apríl 1993.
Skóli reynslunnar
Framkvæmdastjóri Kjöríss hf. er
ekki nema 24 ára að aldri. Guðrún
segist hafa haft áform um annað
en að setjast í framkvæmdastjóra-
stó! Kjöríss hf. þegar örlögin gripu
í taumana. „Ég var búin að skrá
mig til háskólanáms en pabbi lagði
hart að mér að koma hér ti! starfa
haustið 1992. Ég sló til og hann
setti upp skrifborð fyrir mig gegnt
sínu skrifborði," segir Guðrún þar
sem hún situr í smekklega búinni
skrifstofu sinni.
„Fram að þessu hafði pabbi haft
öll fjármál á sinni könnu, séð um
innkaup og allan daglegan rekstur.
Hann veitti mér innsýn í reksturinn,
setti mig inn í fjármálin og kynnti
mig fyrir viðskiptavinum og gestum.
Það var ekki hægt að fá betri skóia
en að starfa með pabba." Þessi sam-
vinna varaði ekki nema þennan vet-
ur. Síðastliðið vor lést Hafsteinn af
völdum heilablóðfalls. „Þetta bar svo
ótrúlega brátt að,“ segir Guðrún.
„Hann hafði aldrei misst dag úr
vinnu vegna veikinda og svo var
hann dáinn. Þetta var mikið áfall.
VIÐSKIPri AIVINNULÍF
ASUNNUDEGI
► Guðrún Hafsteinsdóttir framkvæmdastjóri Kjöríss hf. er
fædd 1970 og uppalin í Hveragerði. Hún lauk stúdents-
prófi frá Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi 1991. Guð-
rún tók við framkvæmdastjórastarfinu að föður sínum,
Hafsteini Kristinssyni, látnum. Hún hefur starfað við fyrir-
tækið meira og minna frá unga aldri. Einnig starfaði Guð-
rún hjá Búnaðarbanka íslands um tíma. Hafsteinn stofnaði
Kjörís hf. í Hveragerði 1968 og sendi fyrstu framleiðsluna
til verslana 31. mars 1969. Við þann dag er upphaf starfsem-
innar miðað og er fyrirtækið því nýorðið 25 ára.
Það var ekki aðeins að ég missti
pabba minn og nánasta samstarfs-
mann. Ég missti líka besta vin
minn.“
Guðrún segist búa vel að því vega-
nesti sem hún fékk hjá föður sínum.
Þótt mikil ábyrgð legðist á herðar
hennar við skyndilegt fráfall Haf-
steins hefur hún aldrei verið rög við
að axla þá ábyrgð. „Það sat í mér
að standa mig og halda merkinu á
lofti,“ segir hún. Guðrún telur að
rekstur fyrirtækisins hafi gengið
ágætlega síðastliðið ár. Veltan jókst
á millivára og var rúmar 200 milljón-
ir árið 1993. Til marks um stöðuna
sýnir Guðrún hvernig veltufjárhlut-
fall hefur batnað ár frá ári undanfar-
in fimm ár. Veltufjárhlutfall er fund-
ið með því að deila skammtímaskuld-
um í veltufjármuni. Arið 1989 var
hlutfallið 0,6 og var í fyrra komið í
1,2. „Við höfum mjög gott starfsfólk
og það hafa allir lagt sitt af mörkum
til að þetta gengi.“
Morgunkaffi hjá mömmu
Fyrirtækið hefur verið stór þáttur
í lífi fjölskyldu Laufeyjar og Haf-
steins. Rekstur Kjöríss hf. var bæði
ástríða og atvinna húsbóndans sem
var vakinn og sofínn yfir þessu af-
kvæmi sínu. Börnin fóru ekki var-
hluta af tilveru Kjöríss hf. Það var
ekki aðeins að þau fengju oftar ís
en aðrir krakkar, þau voru ekki há
í loftinu þegar þau fóru að hjálpa til
við reksturinn. Systurnar Aldís og
Guðrún starfa nú báðar við fyrirtæk-
ið. Aldís annast öll innkaup og Guð-
rún sér um daglega stjórnun. Bróðir-
inn Valdimar er í námi í Reykjavík
og yngsta systirin Sigurbjörg í skóla
á Selfossi. Valdimar býr í Hvera-
gerði og þegar hann kemur heim úr
skólanum liggur leiðin fyrst í Kjörís.
Þau Valdimar og Sigurbjörg vinna
bæði við fyrirtækið í skólafríum.
„Við hittumst á hveijum morgni
í morgunkaffi hjá mömmu,“ segir
Guðrún. Þar er lagt á ráðin um rekst-
urinn og stjórnarformaðurinn hellir
upp á könnuna. Það leynir sér ekki
að fjölskyldan er samhent og ætlar
ekki að láta deigan síga, þótt upp-
hafsmannsins njóti ekki lengur við.
„Þetta er ævistarf pabba og það var
ekki í eðli hans að gefast upp,“ seg-
ir Guðrún. í vor tekur Valdimar við
stjórntaumnum þegar Guðrún fer í
barneignafrí. „Ég er samt ekkert að
hætta,“ segir hún. „Ég mun koma
hér daglega auk þess sem ég held
áfram að mæta í morgunkaffið!"
Erfið upphafsár
Hafsteinn Kristinsson lærði mjólk-
urfræði og stundaði framhaldsnám í
faginu í Noregi og Danmörku. Að
námi loknu gerðist hann ráðunautur
í mjólkuriðnaði og hjá Búnaðarfélag-
inu. Hafsteinn vissi að ostaneysla
íslendinga var þá miklu minni en
nágrannaþjóða og ákvað að setja upp
ostagerð í Hveragerði í samvinnu við
nokkra bændur í Ölfusi. Þar fram-
leiddi Hafsteinn meðal annars cam-
enbert, port salut og Ölfusjógúrt.
Nokkru eftir að þessi einkarekna
ostagerð hóf starfrækslu setti Fram-
leiðsluráð landbúnaðarins niður-
greiðslur á allar gerðir osta nema
svonefnda sérosta eins og þá sem
Hafsteinn framleiddi. Grundvellinum
var kippt undan ostagerðinni og tæk-
in seld Mjólkurbúi Flóamanna.
Hafsteinn stóð uppi atvinnulaus
en átti húsnæði ostagerðarinnar.
Hann stofnaði Kjörís hf. 1968 og hóf
framleiðslu ijómaíss úr smjöri vetur-
inn 1969. Þremur mánuðum eftir að
Kjörís hf. hóf ísframleiðslu í beinni
faf því að geta boðið allt sem þarf
til íssölu. Bæði ísvélar, brauðform
og pappírsform, íssósur, munnþurrk-
ur auk þess að annast viðhald á ísvél-
um. Einnig eru framleiddir tugir
bragðtegunda af svonefndum kúluís,
sem seldur er í ísbúðum.
Stöðugt er unnið að vöruþróun hjá
Kjörís hf. og stýrir Margrét Reynis-
dóttir matvælafræðingur því starfi.
Vikulega hittist vöruþróunarhópur
pg þar eru ræddar nýjar hugmyndir.
I þessum hópi eru auk þeirra Guðrún-
ar og Margrétar fólk úr söludeild og
framleiðsludeild. Guðrún segir að
starfsfólkið sé ófeimið við að koma
með nýjar hugmyndir. Vakandi auga
er haft með því sem gerist í íssölu-
málum erlendis. Guðrún segir að um
næstu mánaðamót sé að vænta nýj-
unga hjá Kjörís, en hún vill ekki fara
nánar út í þá sálma.
Ánægjuleg samvinna
Nýjasta varan hjá Kjörís hf. eru
sælumolar lítil súkkulaðihúðuð ís-
stykki og komu þau á markað fyrir
síðustu jól. Þessi vara er framleidd
í samvinnu við sælgætisgerðina Nóa
og Síríus og er hjúpurinn úr Síríus-
súkkulaði. Guðrún segir að samstarf
þessara fyrirtækja hafi byijað fyrir
jólin 1992 með framleiðslu svo-
nefndrar konfektístertu. Samstarfið
gat einnig af sér sælgætisbitana og
í bígerð eru fleiri nýjungar þar sem
Kjörís og Nói-Síríus leggjast á eitt.
Guðrún segir sérlega ánægjulegt að
tvö íslensk iðnfyrirtæki skuli geta
unnið sameiginlega að vöruþróun og
framleiðslu líkt og hér hefur gerst.
Hörð samkeppni
Samkeppnin á ísmarkaðnum er
hörð. Allt frá byijun hefur Kjörís hf.
keppt við ísgerð Mjólkursamsölunn-
ar, sem er hluti af umfangsmiklu
afurðastöðvakerfi landbúnaðarins.
„Til skamms tíma var Mjólkursam-
salan ríkisstyrkt og samkeppnin ekki
á jafnréttisgrundvelli,“ segir Guðrún.
Kjörís hefur haldið velli þrátt fyrir
samkeppnina og nú er fyrirtækið
annað tveggja sem eru ráðandi á
markaðinum. Til viðbótar eru nokkr-
ar ísbúðir sem framleiða eigin ís-
blöndu.
Guðrún telur að Kjörís hf. hafi
35-40% markaðshlutdeild í heimilisís
„Maður fær aldrei leið á ís,“ segir Guðrún Hafsteinsdóttir, framkvæmdasljóri Kjöríss hf. í Hveragerði. Morgunbiaðið/Þorkeii Þorkeisson