Morgunblaðið - 08.05.1994, Side 10
10 SUNNUDAGUR 8. MAÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
eftir Ómor Friðriksson.
MIKLAR sviptingar urðu í kringum skipun Steingríms Her-
mannssonar og Eiríks Guðnasonar í stöðu seðlabankastjóra.
Upplýst hefur verið að hvorugur bankaráðsfulltrúi Sjálfstæðis-
flokksins hafi greitt þessum umsækjendum atkvæði sín en Sig-
hvatur Björgvinsson viðskiptaráðherra lýsti því yfír í Morgun-
blaðinu, eftir að niðufstaðan lá fyrir, að ákvörðun hans nyti
stuðnings forystumanna Sjálfstæðisflokksins. Steingrímur telur
sig hafa mjög ríka ástæðu til að ætla að hann hafí notið stuðn-
ings forystu Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokks allt frá því að
viðræður og ráðagerðir um stöðuveitinguna hófust og segist
hafa verið hvattur til að taka við bankastjórastöðunni. Skv.
heimildum mínum innan Sjálfstæðisflokksins er þetta pólitíska
samkomulag orðað svo, að forysta flokksins verji þessa niður-
stöðu. Ágúst Einarsson, formaður bankaráðs og fulltrúi Alþýðu-
flokks, og Guðmundur Magnússon, fulltrúi Sjálfstæðisflokks,
sögðu sig úr bankaráðinu í kjölfar ráðningarinnar og létu þung
orð falla um að fagleg sjónarmið hefðu verið látin víkja fyrir
flokkspólitískum hagsmunum. Hefð hefur verið fyrir því um
árabil að flokkarnir bendi á fulltrúa sína í stöður bankastjóra
við Seðlabankann og „eigi tikall“ til þessara embætta, eins og
það er oft orðað. Skipun tveggja bankastjóra nú og allur aðdrag-
andi þess á þannig rætur frá upphafi starfsemi Seðlabankans.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í
bankaráði Seðlabankans,
Ólafur B. Thors og Guð-
mundur Magnússon, báru
upp tillögu um Birgi ísleif
Gunnarsson í stöðu seðlabanka-
stjóra í bankaráðinu 15. janúar árið
1991. Staðan var ekki auglýst þá
fremur en venja var á þessum tíma
og fékk Birgir atkvæði sjálfstæðis-
mannanna í stöðuna. Ekki voru
nefndir til aðrir umsækjendur, enda
gengið út frá því að staðan til-
heyrði Sjálfstæðisflokknum. Ágúst
Einarsson, fulltrúi Alþýðuflokksins
í bankaráðinu, hefur þó lýst því
yfir að hann hafi verið á móti ráðn-
ingu Birgis ísleifs en hann sat hjá
við atkvæðagreiðsluna. Það gerði
einnig Davíð Aðalsteinsson, Fram-
sóknarflokki. Alþýðubandalags-
menn voru á móti þessari skipan
en Geir Gunnarsson, fulltrúi Al-
þýðubandalags, lagði til að skipaður
yrði aðstoðarbankastjóri í stöðuna
til bráðabirgða meðan lög um
stjórnskipun Seðlabankans væru
endurskoðuð, en sú tillaga var felld.
Það var síðan Jón Sigurðsson, þá-
verandi viðskiptaráðherra, sem
skipaði Birgi Isleif í bankastjóra-
stöðuna. Forystumenn Alþýðu-
flokks voru andvígir því í upphafi
að skipa Birgi ísleif í þetta emb-
ætti. Þeim snerist þó hugur, ekki
síst af pólitískum ástæðum og töldu
að ef þeir höfnuðu Birgi myndi það
valda vandræðum í samstarfi Sjálf-
stæðisflokks og Alþýðuflokks þegar
fram í sækti.
I þeim viðræðum, sem áttu sér
stað á bak við tjöldin á undanföm-
um mánuðum um skipun Stein-
gríms Hermannssonar, rifjuðu sjálf-
stæðismenn upp, þegar gengið var
eftir því hvort fulltrúar flokksins í
bankaráði Seðlabankans myndu
styðja Steingrím, að fulltrúi Fram-
sóknarflokksins hefði á sínum tíma
ekki greitt Birgi ísleifí atkvæði.
Birgir ísleifur var fýrsti seðla-
bankastjórinn sem skipaður var tij
takmarkaðs tíma, eða sex ára. í
framhaldi af þessu varð samkomu-
lag um það milli allra flokka að
endurskoða seðlabankalögin og
skipaði Jón Sigurðsson, þáverandi
viðskiptaráðherra, nefnd fulltrúa
allra þingflokka til að endurskoða
seðlabankalögin í ljósi breyttra að-
stæðna á íslenskum ljármagns-
markaði. Nefndin skilaði frum-
varpsdrögum vorið 1992 með ítar-
legri greinargerð, þar sem m.a.
voru lagðar til róttækar breytingar
á stjórnskipulagi bankans. Nefnd-
armenn voru m.a. sammála um að
heppilegt væri að stórefla sjálfstæði
Seðlabankans gagnvart ríkisstjóm.
Meirihluti nefndarmanna lagði til
að bankastjórar yrðu áfram þrír og
stöður þeirra skyldu auglýstar
lausar til umsóknar. Gerð var krafa
um að bankastjórar hefðu víðtæka
þekkingu á peningamálum og öðr-
um sviðum efnahagsmála. Már
Guðmundsson, fulltrúi Alþýðu-
bandalags, skilaði séráliti og lagði
til að seðlabankastjóri yrði aðeins
einn en það hefur verið stefna Al-
þýðubandalagsins seinustu ár.
Ágreiningur wm awglýsingar
í byijun síðasta árs óskaði dr.
Jóhannes Nordal eftir að láta af
starfi seðlabankastjóra um mitt ár
1993. Bankaráð greindi frá þessu
með fréttatilkynningu 26. janúar.
Að forgöngu Jóns Sigurðssonar við-
skiptaráðherra og Agústs Einars-
sonar, formanns bankaráðs, var
ákveðið að auglýsa eftir umsóknum
um stöðu bankastjóra til undirbún-
ings tillögugerð bankaráðs til við-
skiptaráðherra, í fyrsta skipti í sögu
bankans, og samþykkti bankaráðið
það samhljóða. Viðmælendur mínir
úr röðum bæði alþýðuflokks- og
sjálfstæðismanna halda því fram
að ástæður þess að staðan var aug-
lýst hafi fyrst og fremst stafað af
fyrirhugaðri umsókn Jóns Sigurðs-
sonar. Þótt enginn hafí efast um
faglega hæfni Jóns var vitað að
ráðning hans myndi vekja upp há-