Morgunblaðið - 08.05.1994, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 8. MAÍ 1994 11
værar deilur og því hafi alþýðu-
flokksmenn talið að heppilegra
væri að standa að þessum málum
á faglegum grundvelli í anda frum-
varpsins fyrrnefnda. Viðmælendur
mínir segja að það hafi þó verið
ljóst frá upphafi að Davíð Oddsson
forsætisráðherra hafi verið á móti
því að auglýsa stöðuna og raunar
verið andvígur því fyrirkomulagi
allar götur síðan.
Eru ýmsir viðmælenda minna
orðnir efins um að seðlabankalög-
unum verði breytt í bráð, þegar
hafðir eru í huga þeir atburðir sem
áttu sér stað í kringum seðlabanka-
stjórastöðurnar á seinustu misser-
um. Margir gagnrýna einnig það
fyrirkomulag að bankaráð sé yfir-
leitt að auglýsa stöður seðlabanka-
stjóra, ekki síst í ljósi ágreinings
um ráðningu bankastjóra nú, þegar
það er viðskiptaráðherra en ekki
bankaráðið sem hefur stöðuveiting-
arvaldið. Hef ég upplýsingar um
að hvorki innan Sjálfstæðisflokks
né Framsóknarflokks sé nú áhugi
fyrir því að hafa oftar þann háttinn
á að auglýsa stöðu seðlabankastjóra
og að bankaráðsmenn myndu hugsa
sig tvisvar um áður en þeir ákvæðu
að auglýsa þessar stöður að óbreytt-
um lögum.
Sjö umsóknir bárust um stöðu
seðlabankastjóra í stað Jóhannesar
Nordal áður en umsóknarfrestur
rann út 15. júní á seinasta ári.
Meðal umsækjenda voru Eiríkur
Guðnason, aðstoðarbankastjóri
Seðlabankans, Ingimundur Frið-
riksson, forstöðumaður í alþjóða-
deild, en hann var fyrir skömmu
ráðinn aðstoðarbankastjóri við
Seðlabankann, Már Guðmundsson,
forstöðumaður í hagfræðideild og
Yngvi Örn Kristinsson, forstöðu-
maður tölfræðideildar.
21. júní 1993 voru greidd at-
kvæði um umsækjendur í bankaráð-
inu. Jón Sigurðsson fékk atkvæði
Ágústs Einarssonar og fulltrúa
Sjálfstæðisflokks, þeirra Ólafs B.
Thors og Guðmundar Magnússon-
ar. Fulltrúar Alþýðubandalags og
Framsóknar, þeir Geir Gunnarsson
og Davíð Aðalsteinsson, sátu hjá
við atkvæðagreiðsluna því þeir
töldu víst að búið væri að ráðstafa
stöðunni fýrirfram. Sighvatur
Björgvinsson, nýskipaður viðskipta-
ráðherra, skipaði svo Jón Sigurðs-
son bankastjóra.
Rœtt um bankast jóramál
sl. haust
Heimildir innan Sjálfstæðisflokks
og Framsóknarflokks staðfesta að
síðastliðið haust hafi Steingrímur
Hermannsson og Davíð Oddsson
hist að ósk Steingríms til að ræða
um bankastjórastöðu Tómasar
Árnasonar við Seðlabankann, sem
vitað var að myndi losna um ára-
mót en Tómas hafði þá ákveðið að
segja af sér vegna aldurs. Ekkert
var minnst á þann möguleika að
Steingrímur sækti um stöðuna skv.
upplýsingum mínum en skýringar,
sem ég hef fengið bæði meðal sjálf-
stæðismanna og framsóknarmanna
af þessum fundi, eru þær að þar
hafi Steingrímur verið að leita hóf-
anna um stuðning forystu Sjálf-
stæðisflokks við þann fulltrúa sem
framsóknarmenn myndu tilnefna í
stöðu Tómasar og forsætisráðherra
hafi tekið jákvætt í umleitun Stein-
gríms.
í byijun nóvember sl. fór stjórn
Norræna fjárfestingarbankans
(NIB) þess á leit við Jón Sigurðsson
að hann tæki við aðalbankastjóra-
stöðu við Norræna fjárfestingar-
bankann og þekktist Jón boðið. Þá
blasti við að ekki ein heldur tvær
bankastjórastöður myndu fljótlega
losna við Seðlabankann, en gengið
var frá því að Jón Sigurðsson tæki
við hinni nýju stöðu 11. apríl á
þessu ári.
Um svipað leyti lagði Sighvatur
Björgvinsson fram frumvarp á Al-
þingi um að fresta ráðningu í
bankastjórastöðurnar meðan seðla-
bankalögin væru til endurskoðunar
og lýsti viðskiptaráðherra því yfir
að í tengslum við þá endurskoðun
Vinsælasti sumarleyfisstabur í Evrópu. Meb einstökum samningum geta Heimsferbir
nú bobib þriggja vikna ferb meb dvöl í þessum nýuppgerbu
íbúbum á hreint ótrúlegu verbi.
Abeins 10 íbúbir eru í bobi á þessum einstöku kjörum. VefÖ kf.
Críptu tœkifœríb og bákabu strax!
42.900
pr. mann m.v.hjón me& 2 börn
Verð kr.
54.900
pr. mann m.v.
2 í íbúð
Þjónusta Heimsferba
íslensk fararstjórn
Spennandi kynnisferbir
Vibtalstímar á gististöbum
Þrif 5 sinnum í viku
Akstur til og frá flugvelli
HEIMSFERÐIR
VISA
Austurstræti 17 Sími 624600
Pú sparar 3.250 kr.
Pú sparar 5.460 kr.
yrði tekin ákvörðun um hvort rétt
væri að fækka seðlabankastjórum
og hafa hann bara einn, auk aðstoð-
arbankastjóra eins og gert væri í
nálægum löndum. í byrjun þessa
árs hafði þó þetta mál snúist á
þann veg í viðræðum forystumanna
flokkanna, að bankastjórar við
Seðlabankann yrðu áfram þrír.
Lýsti viðskiptaráðherra því þá yfir
að engin ástæða væri til að fresta
frekar ráðningu í bankastjórastöð-
urnar.
Viðræður við Steingrím
Sunnudaginn 9. janúar bar skip-
un Steingríms Hermannssonar í
embætti seðlabankastjóra fyrst á
góma á fundi Steingríms með Sig-
hvati Björgvinssyni. Heimildum ber
ekki saman um hvort Steingrímur
lýsti áhuga sínum á að fara í Seðla-
bankann á fundi sínum með Sig-
hvati eða hvort það var Sighvatur
sem bauð Steingrími að sækja um.
Það er sjónarmið alþýðuflokks-
manna að Sighvatur hafi átt þessar
viðræður við Steingrím að ósk
Steingríms og Steingrímur hafi lýst
því þar yfir að það berðist um í
huga hans að draga sig í hlé frá
stjórnmálum og sækja um stöðu
seðlabankastjóra. Sighvatur hafi
tjáð honum að það kæmi vel til
greina að skipa hann en af því
gæti þó ekki orðið nema með sam-
komulagi beggja stjórnarflokkanna
og Steingrímur yrði sjálfur að ræða
það við Davíð Oddsson, þar sem
Sighvatur hafi ekki viljað bera boð-
in á milli. Alþýðuflokksmenn telja
skv. heimildum mínum að Stein-
grímur hafi um langa hríð átt stuðn-
ing forystumanna Sjálfstæðis-
flokksins vísan.
Það er hins vegar sjónarmið
framsóknarmanna um efni þessara
viðræðna að Sighvatur hafi borið
þetta mál upp við Steingrím að
fyrra bragði og tjáð Steingrími að
ef hann hefði hug á að sækja um
stöðuna þá teldi hann Steingrím
fullkomlega hæfan til að gegna
henni og hann væri reiðubúinn að
skipa hann í stöðuna ef hann fengi
einhvern stuðning í bankaráðinu.
Steingrímur hafi þá tjáð viðskipta-
ráðherra að ef hann ákvæði að
skoða þetta, þá myndi ‘hann einnig
ræða um það við forsætisráðherra.
Samkvæmt frásögn framsóknar-
manna sagði Steingrímur Davíð
Oddssyni frá samtalinu við Sighvat
nokkrum dögum síðar og tjáði hon-
um að Sighvatur teldi sig geta stutt
hann í stöðu bankastjóra ef Sjálf-
stæðisflokkurinn styddi það. Davíð
hafi sagt að hann teldi Steingrím
prýðilega hæfan til að taka að sér
starfið og hafi vísað í því sambandi
til sjö ára reynslu Steingríms sem
forsætisráðherra. Sjálfstæðismenn
halda því hins vegar fram sam-
kvæmt heimildum mínurn að á
fundinum hafi Davíð tjáð Steingrími
að ef Sighvatur styngi upp á því
að Steingrímur yrði skipaður myndi
Sjálfstæðisflokkurinn ekki bregða
fæti fyrir það. Steingrímur mun svo
hafa gert endanlega upp við sig að
sækjast eftir stöðunni um miðjan
febrúar. Hann hafi alltaf litið svo
á að hann hefði fullan stuðning
forsætisráðherra, Jóns Baldvins
Hannibalssonar, formanns Alþýðu-
flokksins, ög viðskiptaráðherra til
að fara í Seðlabankann.
Skilaboó til Magnúsar
Péturssonar
20. janúar auglýsti bankaráðið
eftir umsóknum í tvær stöður seðla-
bankastjóra til undirbúnings til-
lögugerð sinni til ráðherra. Ágúst
Einafsson mun hafa lagt áherslu á
að stöðurnar yrðu auglýstar og
herma heimildir mínar að hann
hafi gert það í fullu samráði við
viðskiptaráðherra. Sighvatur mun
þó hafa verið mótfallinn því að aug-
lýsa en ekki viljað efna til deilna
um það við bankaráðið. Fjölmargir
einstaklingar höfðu lagt inn um-
sókn þegar umsóknarfrestur rann
út 4. mars. Steingrímur Hermanns-
son skilaði umsókn sinni beint til
ráðherra. í umsækjendahópnum var
imSStmmSSEsSsrSsIsíCTíSSsEHS^ss
Sértilboð til Kanarí
9. júní - nýr gistis
- Vinsælasti sumarleyfisstabur í Evrópu -
Verð áður 8.240 kr.
Verð áður 15.450 kr.
FROSTASKJÓLI 6 • SlMI: 12815 OG 12355
TWMhAB Frábæru fitubrennsluefnin, Chromic fuel og L-Carnitine frá Twinlab eru til sölu hjá okkur TWHSfiLAB
Flugvallaskattar: Kr. 3.660 fyrir
fullorbinn, kr. 2.405 f. bam. 8
5